Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 23
vorum í Madrid. Það var liðið á
nótt og við höfðum verið með sýn-
ingu um kvöldið. Yfir matnum
spurðí hann okkur allt í einu:
„Stelpur, langar ykkur til Ibisa?“
Og við sögðum bara: „Já, já.“ Því
næst sagði hann bílstjóranum að
keyra okkur upp á hótel og við
ættum að pakka niður í hvelli og
koma aftur eftir tuttugu mínútur.
Þegar við mættum út á flugvöll var
allt fullt af lögreglu og öryggis-
vörðum. Síðan stigum við um borð
í einkaþotu hans sem er mjög
glæsileg. Hann sneri sér að mér og
sagði: „So, AMO, you like my
plane?“ A leiðinni til Ibisa settist
hann hjá mér og sagði á bjagaðri
ensku: „Your mother is very
beautiful." Hann hafði hitt
mömmu á tónleikunum í Los Ang-
eles og kysst hana í bak og fyrir
og talaði síðan ekki um annað en
hvað hún væri æðisleg," segir
Anna Mjöll og hefur augljóslega
lúmskt gaman af. „Julio leigði
íbúðir fyrir mig og Wendy á Ibisa
og við vorum þar í í fjóra daga.
Vinir hans fóru með okkur út að
borða og við fórum á diskótek og
lágum á stöndinni. Þetta var mjög
gaman og það var alveg séð um
okkur, m.a. hringt í okkur á hverj-
um degi til að athuga hvort allt
væri í lagi.“
Eiginkana Juiia
hiédræg ag feimin
A Spáni gafst Önnu Mjöll tæki-
færi til að hitta eiginkonu Julio, en
hún heitir Miranda og er frá
Hollandi. Að sögn Önnu Mjallar
eiga þau hjónin von á barni í sept-
ember. „Miranda er ein ljúfasta
manneskja sem ég hef hitt á æv-
inni. Hún kom hlaupandi til mín og
Wendy í fyrsta skiptið sem við hitt-
um hana, kyssti okkur á báðar
kinnar og sagði: „Loksins fæ ég að
hitta ykkur.“ Hún er ægilega sæt,
feimin, hlédræg, ómáluð í framan,
yfirleitt með hárið í tagli og í
strigaskóm. Maður hefði aldrei bú-
ist við að maður eins og Julio væri
með stelpu eins og henni. Frekar
hefði ég búist við einhverri svaka
gellu, sem væri alltaf uppstríluð.
Húsið sem Julio leigir á Ibisa kem-
ur manni líka á óvart. Það er
greinilegt að hann vill hafa heimil-
islegt í kringum sig, hann vill ekki
ANNA Mjöll með samstarfsfólki Julios á góðri stundu. Lengst til hægri er magadansmær frá Kúbu, fatahönn-
uður Julios, Wendy, nýja söngkonan og aðstoðarkona Julios.
SLAPPAÐ af á Ibiza. Anna Mjöll ásamt Wendy, að-
stoðarkonu Julios og nýju söngkonunni, sem er frá
Englandi.
ANNA Mjöll og Wendy, önnur aðalsöngkonan.
„Wendy er alveg ótrúleg, syngur eins
og Whitney Houston.“
þennan glamúr. Fólkið sem hann
umgengst er heldur ekki tilgerðar-
legt. Vinir hans eru allir sömu
gömlu vinirnir sem hann hefur átt
síðan hann var 12 ára gamall í Ma-
drid. Hann heldur fast í sína vini og
þeir era honum tryggir og mér
finnst það segja mikið um hvemig
týpa hann er í raun og veru.“
Anna Mjöll vill ekki gefa upp hvað
hún fær borgað fyrir að syngja með
Julio. „Gisting og flugfargjöld eru
borguð fyrir okkur og það er vel
séð um okkur.“ Næstu áfangastað-
ir heimsreisunnar era Lissabonj
Beirút, Istanbúl og Ukraína. „I
Beirút verða haldnir þrennir tón-
leikar og þar fáum við sömu ör-
yggisgæslu og sjálfur páfinn i
Róm. Öryggisgæslan í kringum
okkur er með eindæmum, vopnað-
ir menn fylgja okkur hvert fótmál
og það má segja að við séum eigin-
lega hálfhræddar við öryggisverð-
ina okkar,“ segir Anna Mjöll og
hlær. „Eftir Ukraínu verður síðan
farið aftur til Spánar og síðan til
austurstrandar Bandaríkjanna."
Alltaf á
leiðinni heim
Anna Mjöll hefur búið í Los Ang-
eles undanfarin fimm ár og hefur
m.a. starfað með hljómsveit sem
heitir Crave sl. tvö ár. Hún segir
hljómsveitarmeðlimi ekki hafa ver-
ið par hrifna þegar hún tilkynnti
þeim að hún væri á leiðinni í heims-
reisu með Julio Iglesias. En þetta
hafi verið tækifæri sem hún hefði
ekki getað látið framhjá sér fara.
Hún segir samstarfið við Julio ef til
vill eiga eftir að opna henni ýmsar
dyr í framtíðinni. Aðspurð hvort
hún sé í föstu sambandi, segist
Anna Mjöll hreinlega ekki hafa
mátt vera að því. „Maður verður
alltaf skotinn við og við en ekkert
alvarlegt. Ég held að það gangi
heldur ekki upp að vera í sambandi
og vinna svona mikið, ég kann það
allavega ekki.“
En erþún ekkert á leiðinni heim
aftur? „Ég er alltaf á leiðinni heim.
I mars sl. var ég eiginlega búin að
fá nóg af öllu og ákvað að koma
heim til Islands í nokkra mánuði.
Ég sat heila nótt á gólfinu í íbúð-
inni minni með flugfarseðilinn í
höndunum. Um morguninn ákvað
ég hins vegar að vera um kyrrt, en
það var eingöngu vegna þess að ég
fékk engan leigubíl út á flugvöll.
Morguninn eftir fór ég síðan að fá
flugfarseðilinn endurgreiddan og
þegar ég kom heim voru skilaboð á
símsvaranum frá manninum sem
bauð mér að syngja með Julio Ig-
lesias. Svona getur lífið verið
skrítið."
MORGUNBLAÐIÐ I LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 23
1
ekki, þá leið mér eins og litlu hræd-
du barni og þorði ekki aftur í sjó-
inn. Hann tók mig þá í fang sér og
sagði að það væri ekkert hættulegt
á svona grunnu vatni því skrímslið
væri á meira dýpi. Hann bar mig út
í vatnið, settist með mig í fanginu
og við kysstumst".
Ráðning
Draumurinn fjallar um þig, ótta
þinn við eigið sjálf og sjálfsásakan-
ir vegna atvika sem þú átt engan
þátt í, en sem innri ótti elur. Hafið
er þitt innra (sál) sem þú kafar í en
ert samt hrædd við og rígheldur í
ýtra samband (fréttakonan/ þú).
Skrímslið er þitt óþekkta sem þú í
raun hræðist (þar kemur látna
systirin sem ígildi einhvers þér
tengt en sem er horfið og það veld-
ur þessum ugg). Það að skrímslið
skipti um ham frá hákarli til ljós-
hærðrar stúlku bendir til að öfl
góðsemi og illsku takist á í þér á
vissum stundum. Ungi maðurinn er
þinn Animus og hann er „atvinnu
skrímslaveiðari" sem þýðir að þú
eigir að hlusta meira en þú gerir á
þinn innri mann þá muni hafið
grynnka (óttinn hverfa) og skiln-
ingur á eigin sjálfi (hákarlinum og
ljóshærðu stúlkunni) skýrast og
jafnvægi komast á.
%Þeir lesendur sem viljn fá drauma sínn
birta og ráðna sendi þá með fullu nnfni,
fæðingnrdegi og nri nsnmt heimilisfnngi
og dulnefni til birtingnr til:
Drnumstafir
Morgunblnðið
Kringlunni 1
103 Reykjnvík.
glæsi!egusti
sportbílar
landsins á
einum stað*
Aðgangseyrir aðeins 300 kf*
Frítt fyrir 12 ára 05 yngri*