Morgunblaðið - 26.07.1997, Side 31
1_
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 31
hagslegum stöðugleika. Það telst
líka pólitískur eða efnahagslegur
óstöðugleiki ef verkamenn fara í
verkfall eða mótmæla ástandinu í
landi sínu.
Fyrir ári síðan lýsti talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins
að þeir litu á sig sem Evrópuveldi.
Bandaríkin hafa úrslitavald um allt
sem viðkemur NATÓ í Evrópu.
Þessu hafa ráðastéttir í Evrópu
reynd að sporna við með því að
stofna Vestur-Evrópusambandið,
sem er undir stjórn Frakklands og
Þýskalands.
Rússland er að stækka skrið-
drekaflota sinn á þessu svæði um
300%. Jafnframt eru þeir að reyna
að ná samstarfi við Finnland um
varnir. Rússar eru skelkaðir vegna
stækkunar NATÓ og t.d. felldu
nýlega ákvæði úr lögum sem sagði
að Rússland myndi aldrei hefja
kjarnorkuárás.
Heræfingarnar hér á landi eru
til að undirbúa átök sem eiga að
flýta fyrir uppbyggingu kapítal-
ismans í Austur-Evrópu. í rauninni
eru þetta lífgunartilraunir á kapítal-
ismanum almennt. Heræfingarnar
eru þáttur í botnlausri gróðahyggju
kapítalistanna.
Island sá hag sinn í því að styðja
Bandaríkin varðandi hvaða íönd
fengju inngöngu inn í NATÓ.
Bandaríkin hafa verið helsti banda-
maður íslensku ráðstéttarinnar
seinustu fimmtíu árin. Þeir íslensku
ráðamenn sem voru í Madríd voru
harðir á því að Eystrasaltslöndun-
um ætti að hleypa inn í NATÓ í
næstu umferð.
ísland úr NATÓ — herinn burt!
Þegar Bandaríkjaforseti heimsótti
Danmörku fyrir skömmu fundu
danskir mótmælendur upp sam-
svarandi kjörorð: „Danmörk úr
Nató — Clinton úr Danmörku!" Við
hvetjum alla sem fyllast hryllingi
þegar heimsvaldasinnar eru að und-
irbúa sitt stríð til að koma og mót-
mæla heræfingunum á Lækjartorgi
kl. 17 mánudaginn 28. júlí.
Höfundar eru ifélaginu Vngir
sósíalistar.
höggi á Reykjavíkurlistann, sem
vildi hraða framkvæmdum við Gull-
inbrú.
„Vinur veganna"
fyrir norðan
Ríkisendurskoðun komst að
þeirri niðurstöðu í vetur að ekki
væri eðlilegt að taka lánstilboðum
sem þessum, nema Alþingi hafi
áður samþykkt viðkomandi fram-
kvæmd.
Hefðu samgönguráðherra og
Er samgönguráðherra
að reyna að koma höggi
á Reykjavíkurlistann?
spyr Asta R. Jóhannes-
dóttír. R-listinn vildi
hraða framkvæmdum
við Gullinbrú.
stjórnarliðar staðið sig á Alþingi
og fjögurra ára áætlunin verið
samþykkt, en ekki þessi vesæla
tveggja ára áætlun samgönguráð-
herrans, hefðu úrbætur við Gullin-
brú í Grafarvogi getað hafist strax.
Við Reykvíkingar getum ekki
búið við ófremdarástandið á þessum
vegarkafla. Því verður það að verða
fyrsta verk Alþingis í haust að koma
honum inn á vegaáætlun og sam-
þykkja fjögurra ára áætlun, eins
og lög gera ráð fyrir. Það er ekki
boðlegt fýrir Grafarvogsbúa og
aðra Reykvíkinga að þeir þurfi að
líða fyrir landsbyggðarstefnu sam-
gönguráðherra. Þótt sumir í kjör-
dæmi hans nefni hann „vin veg-
anna“ geta Reykvíkingar varla tek-
ið undir þá nafnbót.
Höfundur er þingmaður
Reykjavíkur og á sæti í
samgöngunefnd Alþingis.
YFIRLÝSING
Staðreyndir
upplýstar vegna
fjölmiðlafárs
Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi
yfirlýsing frá Jóhanni G. Bergþórssyni,
bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, svo og bókun
hans í bæjarráði frá því sl. vor.
„ÓTRÚLEGA óvönduð umfjöllun
fjölmiðla annarra en Morgunblaðs-
ins um bæjarstjórnarmeirihlutann í
Hafnarfirði undanfarnar vikur er
tilefni þessarar yfirlýsingar minnar,
auk sameiginlegrar yfirlýsingar
okkar Ellerts.
Núverandi meirihluti var mynd-
aður eftir að 4 af 6 fulltrúum fyrra
samstarfs Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðubandalags stóðu ekki við sam-
starfssamning aðila. Þeim meiri-
hluta var síðan slitið af efsta manni
á lista Sjálfstæðisflokksins Magnúsi
Gunnarssyni og Valgerði Sigurðar-
dóttur án samráðs við fulltrúaráð
flokksins, mig eða Ellert Borgar.
í kjölfar meirihlutaslitanna hafði
Alþýðuflokkurinn lykilstöðu til
myndunar meirihluta og ræddi við
Alþýðubandalagið og síðan fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í tvennu lagi.
Niðurstaða bæjarfulltrúa Alþýðu-
flokksins var að óska eftir meiri-
hluta-samstarfi við mig og Ellert
og leiddu viðræður aðila í milli til
gerðar meirihlutasamstarfssamn-
ings og stefnuyfirlýsingar, sem síð-
an hefur verið unnið eftir. Yfirlýs-
ingar ónafngreindra aðila í kjölfar
dóms yfir mér í júlí 1996 vegna
gjaldþrots Hagvirkis-Kletts um
meinta eiðstafi mína og Ellerts um
að öllum málefnum Hagvirkis-
Kletts væri lokið við meirihluta-
myndunina hafa við yfirheyrslur í
héraðsdómi Reykjaness vegna
meiðyrðamáls míns á hendur Sverri
Ólafssyni sannast að vera rangar.
Orðrómur þar að lútandi reyndist
byggður á misskilningi og/eða
minnispunktum eins bæjarfulltrúa
Alþýðuflokksins, minnispunktum
sem aldrei voru ræddir eða kynntir
mér eða Ellerti. Rétt er að geta
þess að fyrir liggur skrifleg yfirlýs-
ing allra bæjarfulltrúa meirihlutans
sem hnekkir þessum ómerkilega
orðrómi sem einhver ónafngreindur
kom á framfæri við ijölmiðla.
Vegna umfjöllunar um kaup
VJGB ehf. á Strandgötu 28 er rétt
að upplýsa eftirfarandi: Viðræður
hafa staðið í rúmt ár milli nokkurra
leigjanda í húsinu að Strandgötu
28 um kaup á húsinu af lífeyris-
sjóðnum Framsýn. Þeim viðræðum
lauk í júní sl. með því að VJGB
ehf. keypti húsið í samvinnu við
nokkra aðra leigjendur í húsinu.
Þetta hefur Karl Benediktsson stað-
fest opinberlega og eins er hægt
að fá staðfestingu hjá ýmsum öðr-
um leigjendum í húsinu, m.a. frum-
kvöðli að kaupunum, Jóhanni Þ.
Jóhannssyni í HB-búðinni, Strand-
götu 28.
Sá ítrekaði misskilningur að gera
ekki greinarmun á almennings-
hlutafélaginu Hagvirki-Klettur hf.,
einkahlutafélaginu Verkfræðiþjón-
usta Jóhanns G. Bergþórssonar
ehf., og einstaklingnum Jóhanni
G. Bergþórssyni er að nokkru leyti
skiljanlegur. Eigi að síður ætti öll-
um sem vita vilja að vera ljóst að
einkahlutafélög og hlutafélög eru
fyrirtæki með ábyrgð sem takmark-
ast við hlutafé þeirra samkvæmt
lögum en ná ekki út fyrir það hvað
varðar fjárhagslegar skuldbinding-
ar. Að mínu mati og í samræmi við
bókun mína þar að lútandi í bæjar-
ráði fyrir skömmu (fskj. 1) skuldaði
Hagvirki-Klettur Hafnaríjarðarbæ
ekki neitt þegar fyrirtækið varð
gjaldþrota í október 1994, ef eðli-
lega hefði verið gengið til uppgjörs
við fyrirtækið fyrir gjaldþrotið. Sem
forstjóri og stjómarformaður HK
hef ég einn verið kallaður til
ábyrgðar vegna vanskila fyrirtæk-
isins við gjaldþrotið á opinberum
gjöldum og hlotið fyrir það dóm
eins og alþjóð er kunnugt. Jafn-
framt er ljóst, skv. upplýsingum
ijármálaráðuneytisins um vanskil,
að ef sömu lög væru látin ganga
yfir alla hefðu á árinu 1997 á milli
13.000-26.000 einstaklingar hlotið
samskonar dóm, þ.e. framkvæmda-
stjórar og stjórnarformenn 13.000
fyrirtækja, eða rúmur þriðjungur
stjórnenda fyrirtækja í landinu. Af
þessu tilefni skal bent á grein Ás-
geirs Thoroddsen hrl. og Bjama
Þórs Óskarssonar hdl. í Mbl. sl.
vor. Fyrir víðtækar ábyrgðaryfir-
tökur missti ég eignarhlut minn í
ýmsum fyrirtækjum, þ. á m. í HK
og VJGB ehf. og átti við gjaldþrot
HK ekkert í fyrirtækinu. Verk-
fræðiþjónustan er hins vegar ekki
gjaldþrota og ekki eignalaus enda
þótt hún hafi þurft að taka á sig
ýmis skakkaföll vegna erfiðleika
minna. Kaup húsnæðisins að
Strandgötu 28 em gerð með eigna-
skiptum og lánveitingu til langs
tíma, en engum beinum peninga-
greiðslum.
Hin raunverulega ástæða fyrir
írafári og upphlaupi síðustu daga
og einnig fyrir ári hefur reyndar
komið berlega í ljós. Ástæðan er
líklega draumur ýmissa um samein-
ingu vinstri manna fyrir næstu
kosningar. Um þann draum hef ég
ekkert að segja, en þykir harla
dapurt að til ósanninda eða mistúlk-
unar á ummælum um mig þurfi að
koma til þess að draumurinn verði
að veruleika. Tæpast er það gott
veganesti vinstrivina inn í framtíð-
ina að upphafið byggist á samein-
ingu um ósannindi eða viðhaldi
missagna í fjölmiðlum.
Ég var kosinn í bæjarstjórn til
þess að hafa áhrif, vinna af festu
og heiðarleika að málefnum bæj-
arbúa og bæjarsjóðs og tel mig
hafa gert það. Af minni hálfu hafa
persónuleg vandamál mín vegna
fyrirtækjareksturs engin áhrif haft
þar á. Forystumenn fyrri meiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags voru um of uppteknir í
leit að einhveiju ólöglegu eða sið-
lausu sem kæra mætti í embættis-
færslum fyrri meirihluta krata.
Framtíðarsýn og jákvæðni vék fyr-
ir þeirri leit. Núverandi meirihluti
hefur leitast við að leysa málin,
horfa til framtíðar og vinna verkin,
ekki velta sér uppúr vandamálum
fortíðar. Við Ellert og stuðnings-
menn okkar höfum ekki borið mál-
in á torg, ekki gefið út málgagn
eða stært okkur af því sem vel
hefur tekist til. Minnihlutinn hefur
nær alfarið haldið sig við að gera
störf meirihlutans tortryggileg og
nánast ekki fjallað um annað sl.
tvö ár en persónuna Jóhann G.
Bergþórsson. Það iýsir sorglegri
málefnafátækt.
í yfirlýsingu bæjarfulltrúanna
Tryggva Harðarsonar og Valgerðar
Guðmundsdóttur er hvergi minnst
á neitt atriði sem ágreiningur hafí
verið um. Þvert á móti lýsa þau
árangri meirihlutans sem mjög góð-
um á ýmsum sviðum. Það er því
augljóst að hvorki störf meirihlut-
ans né húsakaup VJGB ehf. hafa
valdið óróanum að undanfömu
heldur eitthvað allt annað sem ekki
hefur verið útskýrt. Reyndar hefur
verið minnst á dómsmál. Spurning-
in er hvaða dómsmál; ársgamlan
dóm yfir mér eða nýlega dóma yfir
tveim forystumönnum hins nýja
Félags jafnaðarmanna í Hafnar-
firði? Dóma fyrir meiðyrði í minn
garð, enda þótt hluta stefnuatriða
hafi í raun verið vísað frá vegna
þess að sá sem kom ummælunum
á framfæri við blaðamanninn í við-
tali er ekki ábyrgur, heldur blaða-
maðurinn eða blaðið, enda þótt
ummælin séu ósönn.
Með von um að framanskráð
megi upplýsa almenning og fjöl-
miðla frekar um raunverulegar
staðreyndir vegna fjölmiðlafárs
undanfarið, en fram til þessa hef
ég neitað að tjá mig um þessi mál
í fjölmiðlum."
Bókun í bæjarráði
„JGB óskar að fá að gera grein
fyrir afstöðu sinni til þessa máls
áður en hann víkur af fundi með
svofelldri bókun sem óskast færð
til bókar í heild sinni.
Vegna tillögu bæjarlögmanns um
niðurfellingu á kröfu á hendur
þrotabúi Hagvirkis-Kletts vil ég
sem fyrrum aðili að umræddu máli
vekja athygli á eftirfarandi og
ítreka jafnframt þá skoðun mína
að í raun sé ekki um neina niðurfell-
ingu að ræða og að téð fyrirtæki
hafi í reynd ekki skuldað bæjarsjóði
neitt við gjaldþrot þess í október
1994.
1) Bæjarsjóður hefur í reynd
þegar afskrifað þessa upphæð 98%
með því að setja hana á afskrifta-
reikning á árinu 1994, sbr. með-
fylgjandi yfirlýsingu bæjarendur-
skoðanda frá 29. október 1996.
Skýringar á því er að leita I tillögum
Löggiltra endurskoðenda hf. og
bæjarfulltrúum væntanlega í fersku
minni. Afgreiðsla nú breytir þannig
ekki stöðu bæjarsjóðs. Ég gerði
athugasemd þá og geri enn.
2) Þegar fyrirtækið Hagvirki-
Klettur varð gjaldþrota í október
1994 voru ófrágengin uppgjörsmál
við fyrirtækið vegna aukaverka og
breyttra forsendna í safnaðarheim-
ili og tónlistarskóla, uppgjör sem
trúlega var á milli 30 og 40 milljón-
ir króna, en fékkst aldrei rætt, sam-
anber yfirlýsingar þáverandi for-
manns bæjarráðs og bæjarstjóra í
ijölmiðlum.
3) Á sama hátt voru ófrágengin
mál vegna útrásarverkefnis sem
nýlega var hafið. Enginn reikningur
hafði verið gerður fyrir þeirri vinnu
né öðrum kostnaði sem fyrirtækið
varð fyrir vegna tafa á upphafi
verksins. Fyrirtækinu var ekki um
að kenna, samanber nýlegan hér-
aðsdóm í máli VSÍ gegn bæjar-
sjóði. Ljóst er að dómurinn taldi
bæjarsjóð bera fébótaábyrgð vegna
vanefndanna, enda þótt Hæstirétt-
ur teldi ekki unnt að færa þessa
bótaábyrgð yfír á þriðja aðila.
4) Ekki höfðu verið gerðir reikn-
ingar fyrir síðustu jarðvinnslufram-
kvæmdir fyrirtækisins í Mosahlíð.
5) Ekki höfðu verið gerðar eðli-
legar leiðréttingar á ofreiknuðum
kostnaði vegna lóðarúthlutunar á
Hvaleyrarholti. Um var að ræða
kostnað sem ekki hafði verið beitt
gagnvart öðrum fyrirtækjum. Auk
þess hafði bæjarsjóður ekki staðið
við viljayfirlýsingu sem gerð var
samhliða útgáfu skuldabréfs vegna
gatnagerðargjalda, en fyrirtækinu
bar engin skylda til útgáfu þess.
Sjá yfirlýsingu þess efnis frá 13.
des. 1991.
6) Ekki var af hálfu bæjarsjóðs
virtur lögmætur nauðasamningur
fyrirtækisins, sem bæjarsjóður
hafði þó formlega staðfest og stutt.
7) Við uppgjör við þrotabúið var
fallið frá öllum kröfum vegna þeirra
verka sem í gangi voru og jafnframt
fallið frá öllum verktryggingum
vegna framkvæmda. Tæpast hefði . -
það verið gert hefðu menn talið sig
eiga raunverulega kröfu á fyrirtæk-
ið.
8) Bústjórar fyrirtækisins töldu
ekki efni til frekari vinnu við kröfu-
gerð á hendur bæjarsjóði þar sem
í reynd hefði verið um skuldajöfnun
að ræða.
Því hefði í reynd verið réttast í
meðferð þessa máls að færa hluta
þessarar kröfu sem eign í safnaðar-
heimili-tónlistarskóla (og í reynd
hefði söfnuðurinn átt að greiða
hluta upphæðarinnar) og hluta sem
framkvæmdakostnað við útrásir og
gatnagerð í Mosahlíð, auk bak-
færslu á vaxtatekjum vegna aftur-
kallaðrar lóðarúthlutunar. Hér þarf
ekki einu sinni að taka tillit til brot-
ins nauðasamnings, sem í reynd
hefði getað verið krafa frá bústjór-
um og varðar við lög. Við eðlilega
meðferð mála hefði komið í ljós að
fyrirtækið átti i reynd inni hjá bæj-
arsjóði.
Uppígreiðslur vegna fram-
kvæmda voru ekki án ástæðna eða
útí hött. Þær byggðust á vissu um
inneign en ófrágengnum uppgjör-
um. Afhending hluta geymslufjár
til greiðslu skattskuldar hjá sýslu- i
manni var ekki heldur án for-
sendna. Fyrirtækið átti óuppgerð
mál hjá bæjarsjóði sem leiða myndi
til skuldleysis og þess að óhætt
væri að reiða út þann hluta
geymslufjár sem gert var. ... Aðilar
að þessu máli auk fyrirtækisins eru
tveir bæjarstjórnarmeirihlutar,
hreinn meirihluti Alþýðuflokksins
og síðan meirihluti Álþýðubanda-
lagsins og Sjálfstæðisflokksins.
Ekki er ástæða til að ætla annað
en að allir aðilar hafi verið í góðri
trú um réttmæti aðgerðanna, þótt
ekki gæfist tækifæri til að sanna
það vegna gjaldþrots fyrirtækisins.
Rétt er að taka fram að núver-
andi meirihluti á ekki aðild að þess- -<*
um aðgerðum.
Þá er einnig rétt og skylt að
geta þess að eftir nauðasamninginn
á árinu 1993 voru aðaleigendur
fyrirtækisins Esso, NCC, Sjóvá-
Álmennar, Samheiji og starfsmenn
Hagvirkis-Kletts, en forstjórinn átti
engan hlut í fyrirtækinu persónu- j
lega.
Vegna fyrri afskipta minna af
téðu fyrirtæki og með 45. gr. sveit-
arstjórnarlaga í huga tek ég ekki
frekari þátt í umræðu eða af-
greiðslu þessarar tillögu og mun
víkja af fundi. Ég ítreka jafnframt
að ég hefði talið eðlilegt að færa
þessi mál í bókhald bæjarsjóðs eins
og ég hef áður um getið.“ **
Pennauinir I 210 löndum.
International Pen Friends.
Sími 881 8181.
ÚTSALA
ÚTSALA
VÓuntV',
tískuverslun
V/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
SUMARTILBOÐ
Qluggatjaldaefni
20% afsláttur
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.