Morgunblaðið - 26.07.1997, Side 34

Morgunblaðið - 26.07.1997, Side 34
34 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Frænka okkar, SVANFRÍÐUFt MARÍA ÁGÚSTSDÓTTIR frá Ystabæ, Hrísey, sem lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 23. júlí, verður jarðsung- in frá Höfðakapellu, Akureyri, mánudaginn 28. júlí kl. 13.30. Bræðrabörn. I + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR, Álfabyggð 9, Akureyri, andaðist á dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 13. júlí. Jarðarförin fór fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks C-deildar á dvalarheimilinu Hlíð. Bjarndís Indriðadóttir, Þórir Guðmundsson, Eygló Indriðadótttir, Reynir Frímannsson, barnabörn og barnabarnabörn. J, + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Kópareykjum, Borgarfirði, er látin. Jónas Árnason, Jón B. Jónasson, Ingunn Anna Jónasdóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Birna Jóhanna Jónasdóttir, Árni Múli Jónasson, Þórdís Thoroddsen, Engilbert Guðmundsson, Kristján Örn Fredriksen, Hákon Bjarnason, Arnheiður Helgadóttir og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og virðingu við andlát ástkærrar móður minnar, tengda- móður, fósturmóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR ÞORLÁKSDÓTTUR, Langholtsvegi 76. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarliði þriðju Sigurgeir Kjartansson, Sigurrós Hermannsdóttir, Steinunn Geirsdóttir, Kristján Hallvarðsson og barnabarnabörn. hæðar hjúkrunarheimilisins Skjóls, Halla Sigurjóns, Olgeir Skúli Sverrisson, Aðalsteinn Sigurgeirsson, Elín Sigurgeirsdóttir, + Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, afa, tengdaföður og þróður, GUNNARS PÁLS JÓAKIMSSONAR fiskifræðings í Kiel. Helga Jóakimsson, börn, tengdabörn, barnabörn og systkini hins látna. ► + Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SNORRA ÓLAFSSONAR fyrrv. yfirlæknis. Valgerður Björnsdóttir og fjölskylda. + Gunnar Markús- son fæddist á Eyrarbakka 18. október 1918. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Sel- fossi, á Þorláks- messu á sumri hinn 20. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þuríður Pálsdóttir, verkakona, frá Reynifelli á Rangár- völlum, f. 2. júlí 1889, og maður hennar Markús Jónsson, sjómaður og verkamaður, frá Torfastöð- um í Fljótshlið, f. 26. júlí 1893. Systkini Gunnars eru Kjartan, f. 29.5. 1921, Jóna Sigriður, f. 30.5. 1923, d. 6.3. 1988, og upp- eldisbróðir, Helgi Maríasson, f. 8.11. 1939. Hinn 6. nóvember 1943 kvæntist Gunnar eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigurlaugu Stefánsdóttur kennara, síðar bóka- og safnverði, frá Akur- eyri, f. 26.2. 1922. Börn þeirra eru: 1) Hildur, f. 15.7. 1946. Eig- inmaður Helgi Finnlaugsson, f. 16.5. 1946 (skildu, látinn). Börn þeirra eru Þuríður, f. 2.11.1965, Gunnlaugur, f. 11.5. 1967, Finn- laugur Pétur, f. 25.4. 1968, og Sigurlaug, f. 31.5.1971. Sambýl- ismaður Þorleifur Arason, f. 9.4. 1945 (látinn). Síðari sambýlis- maður Hermann Jóhannes Jóns- son, f. 30.9. 1946. 2) Þór Jens, f. 30.11. 1947. Eiginkona Áslaug Þorsteinsdóttir, f. 8.5. 1950. Börn þeirra eru: Björn Markús, f. 5.8. 1974, Sara, f. 21.6. 1976 (látin), Sonja Þórey, f. 30.5. 1978, og Steinunn, f. 7.1. 1984. 3) Stefán, f. 3.10. 1951. Eigin- kona Helga Sigurbjörnsdóttir, f. 15.3. 1954. Börn þeirra eru: Davíð Fannar, f. 7.8. 1976, Rób- ert Orri, f. 10.6. 1980, og Sigur- björg Herdís, f. 6.1. 1988. 4) Agústa, f. 18.1. 1953. Eiginmað- ur Haraldur Guðbjartsson, f. 26.12. 1949 (skildu). Barn þeirra er Guðbjartur, f. 29.1. 1972. Maki 2. Guðmundur Emilsson, Góður vinur er fallinn frá. Mér er ljúft og skylt að festa nokkur kveðjuorð á blað og þakka fyrir samfylgdina sem hefur staðið meira og minna yfir fjörutíu ára tímabil. Minningarnar eru margar og ekkert nema gleði kemur í hugann þegar þær streyma fram. Eg minnist ungra glaðlegra hjóna með lítil fal- leg börn, þegar Gunnar og Sigur- laug kona hans fluttust hingað að Flúðum, hann sem skólastjóri árið 1951. Við kynntumst fljótlega, þau hjón hafa alla tíð átt mjög gott með að koma til móts við fólk, á sinn þægi- lega hátt. Gunnar var skólastjóri og kenn- ari barna minna og þaurninnast hans öll með hlýjum hug. Ég minn- ist tíðra heimsókna milli heimila okkar, þó að óbrúuð á væri þá á milli og alltaf farið gangandi, oft yngstu börnin á háhesti. Allt virtist auðvelt þá, í rninningunni að minnsta kosti._ Ég minnist úti- skemmtana á Álfaskeiði, þar sem Gunnar afgreiddi öl og sælgæti fyr- ir ungmennafélagið í „sjoppunni", aftan á vörubílspalli, hress og kátur. Ég minnist ferða fernra hjóna. Ferðin var farin í Þórsmörk að sum- arlagi. Á myndum sést að þann dag hefur verið rigning, en í minningu minni finnst mér að verið hafi sól og blíða. Það var eftirsjá þegar Gunnar og Sigurlaug fluttust héðan burt. En ógleymanleg er ferð sem við fórum nokkrir vinir í heimsókn til þeirra að Húsabakka í Svarfaðar- dal. Fyrir utan allt atlæti í mat, drykk og gistingu, fengum við ómældan fróðleik hjá Gunnari um Svarfaðardalinn fyrr og síðar, hann hafði unun af að segja frá, var líka f. 24.4. 1951 (skildu). Maki Leigh Woods, f. 3.3. 1948. Börn þeirra Livia Arndal, f. 11.2. 1984, og Bryndís Amdal, f. 18.9. 1987. Gunnar fluttist fjögurra ára með foreldrum sínum til Vestmannaeyja þar sem hann missti föður sinn 1924. Hann fluttist þaðan ásamt móður og systkinum 16 ára til Hafnarfjarðar. Gunnar var í barnaskóla í Vestmannaeyjum og fyrsta vetur í gagnfræða- skóla, lauk síðan gagnfræða- prófi frá Flensborg í Hafnar- firði. Hann lauk kennaraprófi 1939, fór til náms í Danmarks Lærerhöjskole 1947-1948 og 1959-1960 til framhaldsnáms. Hann starfaði sem farkennari í Þingvallasveit 1939-1941 og í Grafningi 1940-1941. Hann var skólastjóri á Flúðum 1951-1955, á Húsabakka í Svarfaðardal 1955-1962, í Þorlákshöfn 1962- 1980. Hann var bókavörður í Þorlákshöfn frá 1965 til dauða- dags. Gunnar var formaður hafnarstjórnar Landshafnarinn- ar í Þorlákshöfn 1967-1978, í sljórn Bókavarðafélags íslands 1976-1980, gerður heiðursfé- lagi 1997. Hann var í stjóm Félags skólastjóra og yfirkenn- ara 1977-1981, í byggingar- nefnd sunnlenskra hafna 1973- 1976. Hann var formaður sókn- araefndar Hjallasóknar 1982- 1992, sem síðar varð Þorláks- og Hjallasókn, í byggingamefnd Þorlákskirkju frá upphafi þar til hún var vígð 1985. Hann sat í stjóm Sögufélags Ámesinga og í ritnefnd Árnesings 1990- 1992. Auk þessa vann Gunnar að söfnun og ritun heimilda um sögu Þorlákshafnar og Þorlák helga til dauðadags. Utför Gunnars fer fram frá Þorlákskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. stálminnugur og fróðleiksfús. Árin liðu og Gunnar gerðist skólastjóri í Þorlákshöfn, þá styttist aftur á milli heimila okkar og vin- áttuböndin sem aldrei höfðu slitnað, efldust á ný með skemmtilegum vinafundum og heimsóknum. í Þorlákshöfn fann Gunnar sig svo sannarlega heima. Einnig fann hann þar áhugamál, fleiri en skóla- stjórn og hann var svo lánsamur að geta starfað að mörgum þessum málum og átt þátt í að þau yrðu að veruleika. Hann unni byggðar- lagi sínu af heilum hug og gladdist yfir að sjá það vaxa og dafna enda var hann óspar á að segja okkur vinum sínum frá óskum sínum varð- andi Þorlákshöfn. Alveg sérstak- lega komst hann á flug þegar hann sagði frá eða lýsti kirkjunni sinni, sem var honum mikið hjartans mál. Þar sá jiann margar óskir sínar rætast. Ég tel að Gunnar hafi verið hamingjumaður í lífi sínu. Hann átti góðan lífsförunaut og góð börn, var tryggur vinur vina sinna, þess nutum við í ríkum mæli, gömlu vin- irnir í Hrunamannahrepp. Hann vann gott starf fyrir byggðarlag sitt og var í mörgu metinn að verð- leikum. Þau hjón ferðuðust mikið þegar tími gafst til, bæði innan- lands og utan, meðal annars til barna sinna í öðrum heimsálfum. Þau nutu slíkra ferða. Það er tóm- legt að eiga ekki von á þeim hjónum í heimsókn til að eiga með þeim glaða stund. Eiga ekki von á föstu handtaki og léttu gríni, eða föstu faðmlagi og engu orði, eins og ég fékk á erfiðri stund frá þessum vini mínum. Veri hann ævinlega bless- aður. Elsku Sigurlaug mín. Ég sendi þér og fjölskyldu þinni einlægar samúðarkveðjur frá mér og börnum mínum. Guð geymi ykkur. Sigurbjörn. Á öndverðu síðastliðnu vori heim- sóttu þau Gunnar og eiginkona hans Sigurlaug Stefánsdóttir okkur hjón- in, en kona mín, Ásdís Guðbjörg, er dóttir þeirra Ágústu Kristiönu Ey- mundsdóttur og sr. Jes Anders Gísla- sonar, eina barn þeirra Hólshjóna í Vestmannaeyjum sem er á lífi og þá lifir tengdadóttir þeirra, Magnea Sjöberg, sem var kona Friðriks Jes- sonar stofnanda Sædýrasafns Vest- mannaeyja. Gunnar hafði þá, að virt- ist, náð sér af erfiðum sjúkdómi. Umræður okkar snerust um líf al- mennings í Eyjum á árunum 1920- 1940. Eg hafði fyrst séð Gunnar er hann neytti, 1934, matar á Hóli. Ég var þá nýkominn í hóp Hólsfólks- ins og þekkti því lítið til. Þó langt væri umliðið, notaði ég tækifærið er Gunnar var í umræddri heimsókn að spyija hann hver væri ástæðan fyrir hinni miklu tryggð er hann svo oft hefði sýnt Hólsfólkinu. Eitthvað ræddum við þetta, en skömmu síðar barst mér bréf frá Gunnar ásamt smáriti. Bréfið hefst á þessu: „Þú hefur oft haft orð á því hve trygg- iyndur ég sé í garð Hólsfólksins. Eg vona að þegar þú hefur lesið þennan pésa þá getir þú séð að það er hreint ekki að ástæðulausu.“ í þessum „pésa“, sem Gunnar kallaði svo, hefur hann safnað, t.d. stórmerkri ritgerð eftir Gísla J. Ástþórsson um lífsbaráttu Þuríðar Pálsdóttur, móð- ur Gunnars; - „Kvennakjarkur" eft- ir Gunnar, þar sem lífsskoðanir hans koma vel fram, hvað kjarkur og dugnaður móður hans mótaði hann og gerði hann að slíkum dugnaðar- manni, búnum trúmennsku sem leit- aðist við að vinna þau verk skjótt og vel, sem þá og þá þurfti að inna af hendi; - líkræða sr. Sigurjóns Þ. Árnasonar yfir föður Gunnars, Markúsi Jónssyni (d. 1924); - at- hugasemdir efítir Gunnar. Rit þetta er merk heimild um lífsbaráttu al- þýðu íslenskrar þjóðar á öðrum og þriðja áratug þessarar aldar. í at- hugasemdum þessa rits Gunnars er að finna frekara svar hans við spurn- ingu minni: „Sólveig, dóttir sr. Jes, var á þessum árum (1924 Þ.E.) bæjarhjúkrunarkona í Vestmanna- eyjum. - Hún hjúkraði pabba í bana- legunni. Þegar hann dó fór Sólveig með mig heim til sín (að Hóli: Þ.E.) og var meiningin að ég yrði þar fram yfir jarðarförina, en raunin varð sú, að heimilið sleppti aldrei alveg af mér hendinni þau 10 ár sem ég átti efitir að eiga heima í Eyjum þó ég svæfi þar aldrei. - Mér var ekki bara gefið að borða. Þær voru ófáar flíkurnar, sem ég fékk á Hóli. Þó að matur og föt hafi ef til vill verið minnst virði af því, sem ég naut þar.“ í þessu riti sem Gunnar nefnir „pésa“, koma vel fram viðhorf hans til lífsins, samborgaranna og verk- efnanna sem honum var trúað fyrir að vinna. Ég vann lengi að skólamálum og ferðaðist til skóla. Heimsótti ég þau skólahverfi fjögur sem Gunnar annaðist kennslu og skólastjórn í eftir 1941. Alls staðar var umsögnin sú sama. Trúr starfsmaður, virkur og duglegur. Nemendur hrifust til framkvæmda af starfsgleði hans og alúð. Virkni Gunnars beindist ekki ein- vörðungu að skólanum heldur einnig að störfum félaga, málefnum kirkju og bókasafna. Þessara menningar- starfa gætir greinilegast í Þorláks- höfn. Kauptún í örum vexti gat ekki á skömmum tíma búið íbúum sínum nauðsynlega aðstöðu til margþættra félagslegra starfa. Þjónustuhugur Gunnars leysti með útsjónarsemi úr vanda fólksins til að fá æft söng, leiklist, haldið fundi og síðast en ekki hvað síst notið bókasafns. Gunnar Markússon var sannur maður mannúðar og menningar. Hann varð mætur sæmdarsonur „kjarkkonunnar" móður sinnar. Fyr- ir hönd Hólsfólksins leyfi ég mér að þakka Gunnari tryggð við það og þá sæmd, sem þetta ágæta fólk, hefur öðlast hlutdeild í við að hafa sýnt honum aðhlynningu í æsku. Hinni ágætu eiginkonu Gunnars, GUNNAR MARKÚSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.