Morgunblaðið - 26.07.1997, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR A MORGUM
Guðspjall dagsins:
Hinn rangláti
_______ráðsmaður.___________
(Lúk. 16.)
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Áskirkju er bent á guðs-
þjónustu í Laugarneskirkju. Úti-
guðsþjónusta í Fjölskyldugarðinum
í Laugardal kl. 14.45. Djasshljóm-
sveit, skipuð Gunnari Gunnarssyni,
píanó, Tómasi R. Einarssyni,
kontrabassa, Hauki Gröndal, saxó-
fón, og Matthíasi M.D. Hemstock,
trommur, leikur. Kammerkór Lang-
holtskirkju syngur undir stjórn Jóns
Stefánssonar og félagar úr Kór
Laugarneskirkju syngja. Einnig
verður almennur söngur. Stundin
er fyrir alla fjölskylduna. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson og sr. Jón Helgi
Þórarinsson annast stundina, sem
er samstarfsverkefni Áskirkju,
Laugarneskirkju og Langholts-
kirkju. Rétt er að benda á að að-
gangseyrir er að Fjölskyldugarðin-
um.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Skírn.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Organleikari Marteinn H. Friðriks-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Gylfi Jónsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Fermdar verða Anna Freyja Theó-
dórsdóttir og Þóra Margrét Theó-
dórsdóttir, Barónsstíg 39. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Sigurður
Pálsson. Tónleikar kl. 20.30. Björn
Steinar Sólbergsson, organisti Ak-
ureyrarkirkju.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Pavel Smid. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Einleikur
á blokkflautu. Aðalheiður Jónsdótt-
ir. Kaffisopi eftir messu. Útiguðs-
þjónusta í Fjölskyldugarðinum í
Laugardal kl. 14.45. (Sjá Áskirkja.)
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Fermd verður Elín Arna Bogadóttir,
Bronsáldersvágen 19, 226 54 Lund,
Svíþjóð. Félagar úr Kór Laugarnes-
kirkju syngja. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Jón Dalbú Hróbjarts-
son. Útiguðsþjónusta í Fjölskyldu-
garðinum í Laugardal kl. 14.45. (Sjá
Áskirkja.)
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti
Reynir Jónasson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hildur Sigurðar-
dóttir. Organisti Violeta Smid.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Fyrsta
guðsþjónusta að loknu sumarleyfi
verður sunnudaginn 10. ágúst kl.
20.30.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organleikari Jakob Hall-
grímsson. Sönghópurinn Smávinir
syngur í guðsþjónustunni. Prest-
arnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin guðs-
þjónusta er í kirkjunni vegna sumar-
leyfa starfsfólks kirkjunnar. Fólki er
bent á helgihald og þjónustu í öðr-
um kirkjum í prófastsdaeminu.
Fermingar
27. júlí
Ferming í Hallgrímskirkju
27. júlí. Prestur sr. Sigurður
Pálsson. Fermdar verða:
Anna Freyja Theodórsdóttir,
Barónsstíg 39.
Þóra Margrét Theodórsdóttir,
Barónsstíg 39.
Ferming í Laugarneskirkju
27. júlí. Prestur sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson. Fermd
verður:
Elín Arna Bogadóttir,
Bronsáldersvagen 19,
226 54 Lund, Svíþjóð.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Eyþór I.
Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30 í umsjá Guðlaug-
ar Ragnarsdóttur. Organisti Lenka
Mátéová. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Messa ki.
11. Organisti Hörður Bragason.
Sigurður Arnarson.
HJALLAKIRKJA: Vegna fram-
kvæmda í Hjallakirkju og sumar-
leyfa starfsfólks kirkjunnar er fólki
bent á helgihald og þjónustu í öðr-
um kirkjum í Kópavogi. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund í
umsjá sr. Stefáns Lárussonar. Boð-
ið verður upp á kaffi eftir stundina.
SEUAKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.
Sr. Ágúst Einarsson predikar.
Hanna Björg Guðjónsdóttir syngur
einsöng. Altarisganga. Sóknar-
prestur.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Al-
menn samkoma á morgun kl. 20.
Kristniboðshjónin Skúli Svavarsson
og Kjellrún Langdal og Guðlaugur
Gunnarsson og Valgerður Gísla-
dóttir kvödd. Skúli Svavarsson tal-
ar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Almenn samkoma kl. 20. Ræðu-
maður Vörður Traustason. Allir
hjartanlega velkomnir.
KLETTURINN: Kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði. Sam-
koma kl. 20. Allir velkomnir.
MESSÍAS - FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Mess-
ur sunnudaga kl. 10.30, 14 og 20
(á ensku). Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa
sunnudag kl. 10 á þýsku. Laugar-
dag og virka daga messa kl. 7.15
á þýsku.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa
laugardag og virka daga kl. 18.30.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna-
þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMIL-
IÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr kór Vídalínskirkju
leiða almennan safnaðarsöng. Org-
anisti Guðmundur Sigurðsson.
Hans Markús Hafsteinsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta fellur niður vegna við-
gerða í kirkjunni. Sóknarprestur.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason prédikar og annast altar-
isþjónustu. Kirkjukór Njarðvíkur
syngur undir stjórn Steinars Guð-
mundssonar.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 10.30.
Veitingar og spjall í Safnaðarheim-
ili að messu lokinni. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum:
Messa kl. 14. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Almenn guðsþjónusta kl. 11.
Messukaffi.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Kristín Pálsdóttir.
Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Organleikari Helga Þórdís
Guðmundsdóttir. Sóknarprestur.
REYKHOLTSPRESTAKALL: Kirkju-
dagur í Reykholtskirkju. Messa
sunnudag kl. 14.
BREIÐAVÍKURKIRKJA: Kvöld-
messa kl. 22 sunnudag. Sóknar-
prestur.
IDAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
sigraði á mótinu ásamt
fjórum Dönum. Jón Vikt-
or Gunnarsson, 16 ára,
var mjög nálægt þvi að
ná sinum fyrsta áfanga
að alþjóðlegum meistara-
titli og tveir ungir Islend-
ingar koma sterkir inn á
alþjóðlega FIDE stigalist-
ann: Matthías Kormáks-
son, 16 ára, verður vænt-
anlega nálægt 2.300 stig-
um á næsta lista FIDE og
Stefán Kristjánsson, 15
ára, nálægt 2.200 stigum.
STAÐAN kom upp á Poli-
tiken Cup skákmótinu í
Kaupmannahöfn um dag-
inn. Rússneski skákmeist-
arinn heymardaufi, Sergei
Salov, hafði hvítt og átti
leik, en Daninn S. Petersen
var með svart og var að
drepa riddara á d5, lék 19.
Bb7xd5.
20. Hxg7+!
(Miklu sterkara en
20. Hxf6? - Dxg3!
21. Hxg3 - Bxc4
22. Dg4 - h5! og
svartur á varnar-
möguleika) 20. -
Kxg7 21. Dg4+ -
Kh8 22. Hxf6 -
Bxf6 23. Bxf6
mát.
Ungum ís-
lenskum skák-
mönnum vegnaði
mjög vel á Politi-
ken Cup. Helgi HVÍTURleikurogvinnur.
Ass Grétarsson
Með morgunkaffinu
Ast er...
að sjá strax hvar hann
er í mannmergðinni.
TM Reg U.S. P*|. OH. — ali nghts reserved
(c) 1997 Los Angetes Times Syndicaie
SUMIR ættu að sleppa því
að tala um sljórnmál.
svþ,R/V^
$lA nQ3
HEILRÆÐI
Það er ánægjulegt
að grilla á góðum
degi.
Látið ekki óvarkámi
spilla þeirri gleði.
Hellið alls ekki
uppkveikivökvanum
yfir grillið eftir að
búið er að Kveikja
upp l því.
KOMUM HEIL HEIM
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Illgresi í
borginni
VÍÐA um borgina má sjá
alls kyns illgresi og
annan gróður sem þrífst
vel við garðvegginn
götumegin. Reyndar líka
í rennisteininum. Þama
festist allt mögulegt drasl
og er sóðalegt en síðast
en ekki síst veldur þessi
gróður smátt og smátt
skemmdum á steypunni.
Það gerir frostið og
kostar oft offjár að
lagfæra. Verkstjórar við
garðavinnu unglinga
ættu að kenna þeim að
beita sköfunni á þetta
illgresi og það ættu
garðeigendur líka að
gera.
Garðeigandi.
Gott
fæðubótarefni
Mig langar til að vekja
athygli á fæðubótarefni
sem ég hef tekið inn í tvo
mánuði og finn mikinn
mun á mér. Ég er 71 árs
gömul og hef aldrei verið
svona hress. Efnið heitir
Life Extensian og fæst í
Ingólfsapóteki. Eg mæli
eindregið með þessu, sér-
stakiega fyrir aldraða,
maður verður mikið
hressari bæði andlega og
líkamlega.
Eldri borgari.
tapaðist á Laugavegi og
niður á Lækjargötu 16.
júlí. Skilvís fmnandi
vinsamlega hafi
samband í síma
562-2438.
Myndavél tapaðist
í Hornafirði
OLYMPUS-myndavél
tapaðist þriðjudaginn 22.
júlí við bílaplanið eða
nágrenni við Hoffells-
jökul í Hornafirði. Skilvís
fmnandi vinsamlega hafí
samband í síma
554-1858.
Gyllt og silfrað
úr tapaðist
ÚR, gyilt og silfrað,
tapaðist fyrir 4 vikum á
Engjateig. Skilvís finn-
andi vinsamlega hringi í
síma 567-5768.
Svart seðlaveski
tapaðist
SVART seðlaveski með
skilríkjum og öðrum per-
sónulegum munum, með
íslandsbankamerki á,
tapaðist miðvikudaginn
23. júlí annaðhvort í
Víðigerði í Húnavatns-
sýlu eða á Akranesi.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hafi samband við
Amar í símboða
842-2135.
Dýrahald
Tapað/fundið
Tjaldsúla tapaðist
í Langadal
TJALDSÚLA (hluti af
súlu) tapaðist í Langadal
sunnudaginn 20. júlí.
Skilvís fmnandi vinsam-
lega hafí samband í síma
553-8378.
Gullúr og mynd
töpuðust
á Laugavegi
GULLÚR og stækkuð
mynd af ungum dreng
Svartur
fressköttur
í óskilum
SVARTUR fressköttur,
stór, með blárri
merkingu er í óskilum í
Nökkvavogi. Uppl. í síma
588-8483.
Páfagaukur
fannst
PÁFAGAUKUR, ljós-
blár, fannst við
Bókhlöðustíg mánu-
daginn 21. júlí. Uppi. í
síma 557-7913.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI skrapp til Akureyrar
um síðustu helgi og heim-
sótti m.a. nýjan veitingastað þar í
bæ, Kaffi Akureyri, sem var opn-
aður þessa sömu helgi. Þessi veit-
ingastaður í hjarta miðbæjarins er
rekinn af þeim Sigríði Beinteins-
dóttur, Grétari Órvarssyni og
Magnúsi Sigurbjömssyni og gegnir
bæði hlutverki kaffihúss á daginn
og skemmtistaðar á kvöldin. Þau
geta verið stolt af húsinu, sem
hefur tekið algjörum stakkaskipt-
um í höndum þeirra. Greinilegt er
að ekkert hefur verið til sparað svo
húsnæði Kaffis Akureyrar mætti
vera sem glæsilegast.
Víkveiji kom á Kaffi Akureyri
síðdegis á föstudegi og um svipað
leyti fylltist húsið af Akureyringum
á öllum aldri, sem voru að kynna
sér þessa viðbót í veitingastaða-
flóru bæjarins. Greinilegt var að
myndir og munir á veggjum og í
lofti vöktu talsverða athygli gesta.
Þar má sjá líkön flugvéla, búninga
flugstjóra og flugfreyja, ýmis skjöl
og pappíra frá árdögum farþega-
flugs á íslandi og fjölmargar ljós-
myndir frá sama tíma.
Þessir munir eru í eigu Flugfé-
lags íslands og var safnað sérstak-
lega fyrir Kaffi Akureyri. Það var
vel til fundið, enda hófst saga
flugsins á íslandi á Akureyri með
stofnun Flugfélags Akureyrar, for-
vera Flugfélags Islands hins eldra.
Safnið setur skemmtilegan svip á
glæsilegt hús.
xxx
SVO virðist sem allmargir öku-
menn þekki ekki umferðar-
reglurnar sem skyldi. Á leið Vík-
veija norður í land og suður aftur
gerðist það æ ofan í æ, að öku-
menn víluðu ekki fyrir sér að aka
framúr þar sem framúrakstur er
augljóslega bannaður. Víkveiji trú-
ir því ekki að ökumenn leggi líf
sitt og sinna vísvitandi í mikla
hættu. Getur verið að svo margir
ökumenn viti hreinlega ekki hvað
merkingar á vegum þýða? Þeir
ættu þá að kynna sér það hið
fyrsta, því vera kann að lánið fylgi
þeim ekki á öllum blindhæðum.
Annað er það í fari annarra
ökumanna sem Víkveiji er ósáttur
við. Á leiðinni ók hann fram á
fólksbíl með tjaldvagn í eftirdragi
og fór ökumaður hans sér eðlilega
fremur hægt. Hann ók hins vegar
mjög nálægt stórum flutningabíl
og gerði Víkveija þar með mjög
erfitt um vik að fara fram úr. Það
er lítið mál að aka fyrst framhjá
fólksbíl og tjaldvagni og svo fram-
hjá stórum flutningabíl, en að taka
framúr báðum í einu er óðs manns
æði. Þetta var ekki eina dæmið sem
Víkveiji sá, um að ökumenn héldu
bílum sínum allt of nærri næsta
bíl fyrir framan til að framúrakst-
ur væri mögulegur.