Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 47 I í J I I 3 I J 0 3 I J l I I : i \ ★ STAFRÆNT HLJÓÐKERFI I ÓLLUM SðLUM! ★ ALVÖRU BÍÓ! * HX Sýnd kl. 3, 5,7, 9 og 11. IAR Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. www.skifan.com sími 551 9000 £ Rómantisk gamanmynd með þeim M.Pfeiffer og G.CIooney í hlutverkur framagjarnra foreldra í New York borg. Leiðir þeirra liggja saman einn eriisaman dag og i fyrstu virðast þau einungis eiga tvennt sameiginlegt; bæði eíga fimm ára gamalt barn og sömu gerð af gsm-símum. Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15. CALLERI REGNBOCANS MÁLVERKASÝNINO SICURPAR ÖRLYCSSONAR ÓTRÚLEGUR DAGUR Nýtt í kvikmyndahúsunum Þokkafull hasarhetja ► LEIKKONAN Lela Rochon, sem heillaði kvikmyndahúsagesti með leik sínum í kvennamyndinni „Waiting to Exhale", segir að gyðjur verði ekki til af slysni. Þessi þokkafulla leikkona hefur lagt sig fram við að vera kyn- þokkafull og glæsileg og er nú á hraðri uppleið í Hollywood. Henni tókst að krækja sér í hlutverk sem upphaflega var skrifað fyrir blá- eygða ljósku í myndinni „The Chamber" sem gerð er eftir sögu hins vinsæla Johns Grishams. Hin 31 árs gamla Lela segist ekki aðeins sækjast eftir hlutverkum sem ætluð eru lituðum leikkonum, eins og Salma Hayek, Jennifer Lopez og Halle Berry, heldur vill hún vera á lista með Söndru Bullock og Meg Ryan. Næstu myndir Lela eru „Criminal Intent" þar sem hún leikur fatafellu og kærustu leikarans Jims Belushis og „Knock Off“ þar sem hún leikur leyniþjónustukonu CIA á móti Jean- Claude Van Damme í hasarmynd að hætti hans. Persóna Lela í myndinni er vel vopnfær, fer í gegnum eld og upplifir eltingaleiki af bestu gerð. Þetta á vel við leikkonuna sem segir að allir séu leiðir á því að sjá að- gerðarlausar og öskrandi konur í bíó- myndum. „Ég vil hafa byssu í hönd ogtaka einhvern í karphúsið," segir Lela sem eyðir sumrinu við tökur á hasarmyndinni í Hong Kong. Elskunnar logandi bál sýnd í Háskólabíói HÁSKÓLABÍÓ frumsýnir nú um helgina framlag Svía til Óskarsverðlauna 1996, „Lust och Fagrig Stor“ sem fengið hefur íslenska nafnið Elsk- unnar logandi bál. Stig er 15 ára gamall strákur sem er yfír sig ást- fanginn af kennara sínum, hinni gullfallegu 37 ára gömlu Violu. Viola lifir í ömurlegu hjónabandi enda er maður hennar vonlaus drykkjusjúklingur. Hún lað- ast að sakleysi Stigs og þau hefja leynilegt en ástríðufullt ástarsamband í trássi við við- teknar venjur samfélagsins sem á eftir að hafa alvarleg- afleiðingar fyrir líf þeirra beggja. Leikstjóri er Bo Widerberg. Bo Widerberg er STIG, 15 ára, og kennarinn hans, Viola, 37 ára, eru í leynilegu og ástríðufullu ástarsambandi. einna þekktastur fyrir kvik- Widerberg leikstýrði einnig myndina „Elvira Madigan". „The Ballad of Joe Hill“ sem Var honum meðal annars vann dómnefndarverðlaunin boðið að leikstýra „The Great í Cannes 1971 og kvikmynd- Gatsby“ sem hann hafnaði. inni „The Man On The Roof‘. Gegn kynþátta- fordómum ► ► FLAMENCO dansarinn Jo- aquin Cortes hefur verið út- nefndur evrópskur sendiherra í baráttunni gegn kynþáttahatri. Hugmyndin kom frá samevr- ópskum samtökum sem betjast gegn kynþáttafordómum. Cort- es sem er sígauni segist aldrei hafa þurft að líða fyrir það en liann veit að það á ekki við um alla. Þess vegna er hann mjög stoltur og ánægður með sitt JOAQIUN ásamt kærustunni Naomi Campbell. nýja hlutverk. ÚR myndinni Frumskógarfjör er frumsýnd verður í Kringlubíói. Skógarfjör í Kringlubíói KRINGLUBÍÓ frumsýnir í kvöld, föstudag, fjölskyldu- myndina Frumskógarfjör, „Jungle to jungle". Michael Cromwell (Tim Al- len) er vel stæður viðstkipta- maður sem er trúlofaður Charlotte (Lolita Davidovich), en fyrst þarf hann að ganga frá skilnaði sínum við fyrri eiginkonu sína dr. Patriciu Cromwell (JoBeth Williams). Hann skilur allt eftir, þ.ám. móðursjúkan aðstoð- armann sinn Richard (Martin Short) og ferðast langt inn í Amazon-frumskóginn þar sem Patricia hefur búið frá því hún yfirgaf Michael, en þar fær hann óvæntar frétt- ir... 13 ára gamlan son sem heitir Mimi-Siku og var upp- alinn af innfæddum. Michael samþykkir að taka Mimi með sér til að heim- sækja sinn eigin frumskóg - New York. Menningarsjokk, glundroði og ringulreið þegar Mimi-Siku, sem er flinkari í að skjóta örvum en að vera í kringum fólk, hefur innreið sína í þessa mestu menning- arborg heimsins og tekst að rústa öllu fyrir föður sínum á sprenghlægilegan hátt, segir í kynningu frá Kringlubíói. ■r J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.