Morgunblaðið - 26.07.1997, Page 49

Morgunblaðið - 26.07.1997, Page 49
1- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ1997 49 MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVARP Hef mikið bullað í gegn- um tíðina INGVAR E. Sigurðsson er einn af leikurunum í mynd Óskars Jónassonar, Perlum og svínum, sem frumsýnd verður í haust. Ingvar leikur foringja í hópi Rússa sem braskar með Lödur, dollara og vodka hér á landi. Gaman að læra rússnesku „Það var fyrst og fremst skemmtilegt að leika í þessari kvikmynd, og lærdómsríkt að auki. Eg þurfti að læra smá rússnesku og það var nyög gaman.“ Ingvar þykir mjög sannfærandi í þessu hlutverki sínu og efaðist fólk, sem til hans sá, um að þessi frábæri íslenski leikari væri íslenskur eftir allt. Hvernig fór hann að þessu? „Ég hef oft verið að bulla í gegnum tíðina og herma eftir ýmsum tungumálum, en ég fékk leiðsögn í þetta skiptið. Bæði frá íslendingi, sem hefur búið í Rússlandi, og einnig Rússa. Þetta er samt grín og ekki tekið of alvarlega. Upphaflega átti þetta að vera bull en síðar var ákveðið að fá til liðs við okkur rússneskumælandi menn ogþað endaði með því að næstum hvert orð er rússneskt. Ég veit hvað ég er að segja en ætla að láta aðra um það að skilja hvort allt sé í réttu samhengi.“ Vil skila mínu vel Hvernig ætli helsta kroppi landsins finnist að leika eintóma lúða, eins og Grjóna í Djöflaeyjunni og svo þennan Rússa? „Fólk hefur spurt mig hvort mér finnist þau hlutverk sem ég fæ í kvikmyndum nógu skemmtileg. Ég verð eiginlega hálfundrandi. Ég hef haft svo margt að hugsa að ég hef ekkert verið að velta mér upp úr því. Ég hef verið kandidat í ýmis hlutverk sem síðan hefur ekki ræst úr. Ég er nú fyrst og fremst að reyna að skila mínum hlutverkum sæmilega." Ingvar er umtalaðri sem sviðsleikari en RÚSSINN sem braskar með Lödur, dollara og vodka. Ljósmynd/Ámi Páll Jóhannsson kvikmyndaleikari. Ætli honum finnst ekki gaman að breyta til og leika fyrir framan myndavél? „Það er mjög hollt og gaman að vinna í kvikmyndum. Eg er að leika í tveimur kvikmyndum í augnablikinu. Það eru Sporlaust eftir Hilmar Oddsson og Stikkfrí eftir Ara Kristinsson. Það eru mjög ólíkar kvikmyndir og ólík hlutverk og ég hef nóg að gera og gaman af.“ Hvar geta svo aðdáendur Ingvars barið hann augum þar til hann birtist þeim á hvíta tjaldinu í haust? „Listaverkið fer aftur af stað í haust og svo er ég líka í leikritinu Þremur systrum eftir Tsjekov, sem sýnt verður I Þjóðleikhúsinu og er mjög skemmtilegt.“ Þá vitum við það. Vinnið gegn fíla- penslum og bólum Ný mynd frá Tim Robbins íWihíi bAGVNA.: TIM Robbins er um þessar mundir að undirbúa gerð næstu myndar sem hann ætlar að leikstýra. Robb- ins, sem var útnefndur til Óskars- verðlauna fyrir síðustu mynd sína „Dead Man Walking", er að vinna að handriti sem ber titilinn „The Cradle Will Rock“. Handritið er um deilur sem uppsetning á dramtísk- um söngleik, með sama nafni, kom af stað í Bandaríkjunum árið 1937. Umfjöllunarefni „The Cradle Will Rock“ þótti vera árás á kapítal- isma svo að lögbann var sett á verkið og stjórnendur leikhúsins, þar sem átti að sýna verkið, af- lýstu sýningum. Aðstendur verks- ins neituðu að fylgja lögbanninu, og undir forystu Orson Welles og John Houseman flutti leikhópurinn sig I annað leikhús og setti það upp án leiktjalda, búninga, og hljóm- sveitarundirleiks. Marc Blitzstein, höfundur verksins, spilaði undir á píanó og tók líka að sér hlutverk sögumanns til þess að bæta fyrir hljómsveitarmissinn. Þessi hráa uppsetning sló í gegn og Welles setti það einnig upp á Broadway. Robbins hefur ekki í hyggju að leika í „The Cradle Will Rock“ en vill leikstýra eigin handriti. Um- boðsmenn hans eru að semja við Touchstone Pictures um dreifíngar- réttin á myndinni í Bandaríkjunum og eru að leita að dreifingaraðilum fyrir alþjóðamarkaðinn. Stjórnend- ur Touchstone voru meira en til- búnir að gera vel við Robbins eftir að „Nothing to Lose“, ódýr mynd með honum og Martin Lawrence sem fyrirtækið framleiddi, gekk ágætlega í bíó vestanhafs. Robbins er ekki sá einni sem vill gera kvikmynd um Orson Well- es. Handrit John Logan „RKO 281“ um baráttu Welles við Will- iam Randolph Hearst þegar hann vann að gerð „Citizen Kane“, er enn í umferð en illa gegnur að finna leikstjóra. Einnig er David Fincher með í undirbúningi að kvikmynda „Mank“ handrit um Herman J. Mankiewicz, manninn sem skrifaði handritið að „Citizen Kane“. Naflaskoðun Hollywoodmanna nær til fleiri en Orson Welles og Herman J. Mankiewicz. Allt stefnir í að tvær myndir verði gerðar um slúðurdálkahöfundinn Walter Winchell, og einnig stendur til að gera „What Makes Sammy Run“ sem fjallar um uppdikteraðann Hollywoodgaur, Sammy Glick. Það er Ben Stiller sem ætlar að leik- stýra myndinni um Sammy, en hann og Jerry Stahl eru að vinna að handriti. * f f n silicol skin srticol sk\n \^j@niirike«iiiiiicil ilanmayni BwíiiðNffagmdlaiCTíiiailki^^ Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð. íslenskar leiðbeiningar fyigja. Fæst í flestum apótekum. Þjóðhátíðaráætlun 1997 Miðvikudagur 30. júh' Frá Vestm...kl. 08.15 Frá Þ.höfn..kl. 12.00 FráVestm....kl. 15.30 Frá Þ.höfn..kl. 19.00 Fimmtudagur 31. júlí Frá Vestm...kl. 08.15 Frá Þ.höfii.kl. 12.00 Frá Vestm...kl. 15.30 Frá Þ.höfn..kl. 19.00 Föstudagur 1. ágúst Frá Vestm...kl. 08.15 Frá Þ.höfn..kl. 12.00 Frá Vestm...kl. 15.30 Frá Þ.höfn..kl. 19.00 Laugardagur 2. ágúst Frá Vestm..kl. 08.15 Frá Þ.höfh .... kl. 12.00 Þriðjudagur 5. ágúst Frá Vestm....kl. 08.15 Frá Þ.höfn...kl. 12.00 Frá Vestm....kl. 15.30 Frá Þ.höfh...kl. 19.00 TIM Robbins er að skrifa handritið að sinni næstu mynd. Sunnudagur 3. ágúst Frá Vestm..kl. 13.00 Frá Þ.höfn.kl. 16.00 BREYTT ÁÆTLUN Mánudagur 4. ágúst Frá Vestm...kl. 11.00 Frá Þ.höfn..kl. 14.30 Frá Vestm...kl. 18.00 Frá Þ.höfn..kl. 21.30 BREYTT ÁÆTLUN Að öðru leyti gildir sumaráætlun Herjólfs 1997 Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.