Morgunblaðið - 26.07.1997, Síða 52

Morgunblaðið - 26.07.1997, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVtK, SÍMl 569 1100, SÍMBKÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@)MBL.IS, / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 64 húseignir í Súðavík til sölu eða leigu Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson HLUTI húseignanna 52 í gömlu byggðinni í Súðavík sem auglýstar hafa verið til sölu. AUGLÝSTAR hafa verið til sölu 64 fasteignir í Súðavíkurhreppi. Eru það annars vegar 52 eignir í gömlu byggðinni og hins vegar 12 sumarhús sem reist voru til bráða- birgða eftir snjóflóðin 1995. Einnig kemur til greina að leigja húseign- irnar eða að hreppurinn eigi sam- starf um nýtingu þeirra og segir sveitarstjórinn allt mögulegt koma til greina í þeim efnum. Eignimar eru auglýstar í Morgunblaðinu í dag. >*• Ágúst Kr. Björnsson sveitar- stjóri segir að heimilt sé sam- kvæmt lögum um varnir gegn snjó- flóðum og skriðuföllum að nýta hús sem keypt hafa verið upp af Ofanflóðasjóði að fengnu íeyfí umhverfisráðuneytisins og umsögn Skipulags ríkisins og Veðurstofu íslands. Það leyfi hafi hreppurinn nú fengið og er búseta í húsunum í gömlu byggðinni, sem öll eru á snjóflóðasvæði, nú heimil frá 1. maí til 1. nóvember. w Söluandvirði húseignanna mun skiptast að jöfnu milli Ofanflóða- sjóðs og hreppsins. Súðavíkur- hreppur er eigandi húsanna eftir að þau voru keypt upp og segir Ágúst talsverðan kostnað fólginn í þeirri skyldu hreppsins að sjá um umhirðu þeirra, kyndingu og þess háttar og því hafi verið afráðið að reyna að selja þau eða leigja til að fá inn tekjur. Óskað er eftir kauptilboðum og er skilafrestur til 7. september. 52 eignir í gömlu byggðinni í gömlu byggðinni í Súðavík em 52 eignir sem hreppurinn keypti af eigendum með styrk frá Ofan- ' ' flóðasjóði. „Þetta eru gömul hús og nýleg, það elsta frá 1912, nokk- ur eru frá þriðja áratugnum en flest voru reist eftir 1970 og er bruna- bótamat nýrri húsanna milli 14 og 18 milljónir króna,“ segir Ágúst Kr. Bjömsson. „Þama em steypt einbýlis- eða parhús, timburhús og nokkrar íbúðir í fjölbýlishúsum. Þar sem búseta er ekki heimil yfir vetr- artímann er kjörið að einstaklingar eða félagasamtök festi kaup á þeim til sumardvalar." Þá eru boðnir til sölu 12 sumar- bústaðir af þeim 18 sem reistir vom sem bráðabirgðahúsnæði í febrúar 1995, um mánuði eftir snjóflóðin. Flatarmál þeirra er á bilinu 50-60 fermetrar og eru þau með innréttingum, hreinlætistækj- um og eldhúsbúnaði. Heimilt er einnig að flytja þau burt og segir sveitarstjórinn að hreppurinn skarti fallegri og fjölbreyttri nátt- úru, sé mjög landmikill, nái frá Arnameshamri og inn í ísafjörð, og því séu mjög margir möguleikar á að setja slík hús niður víða ann- ars staðar í hreppnum. Ágúst sagði aðspurður að ekki hefði þótt góður kostur að eyða húsunum í gömlu byggðinni. Mörg þeirra væru ný og það myndi kosta 50 til 60 milljónir að rífa húsin. Þeir fjármunir væra hvorki til hjá hreppnum né opinberum aðilum öðmm. „Okkur þótti mun æski- legra að finna húsunum nýtingu og ég vil vekja sérstaka athygli á því að þetta er kjörið fyrir félaga- samtök eða aðila í ferðaþjónustu að kaupa eða leigja aðstöðu til margs konar starfsemi og hugsan- lega væri hægt að finna einhvem flöt á samstarfi hreppsins og slíkra aðila,“ segir Ágúst ennfremur. Hlutafjár- sjóðir eignast 2% hlut í SH HLUTHAFAR í Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna nýttu sér ekki for- kaupsrétt sinn á 2% hlut Granda hf. í SH. Þar með er orðið ljóst að kaup íslenska fjársjóðsins hf. og íslenska hlutabréfasjóðsins á Grandabréfun- um, sem samið var um í síðasta mán- uði, ganga eftir. Söluandvirði bréfanna er 172 millj- ónir króna og kaupir íslenski fjársjóð- urinn fyrir tæplega 115 milljónir króna en íslenski hlutabréfasjóðurinn fyrir rúmlega 57 milljónir. Bréfin vora seld á genginu 5,65. Samtals hefur nú verið gengið frá sölu á um fjórðungi hlutafjár í SH, en einungis lítið brot þess er komið í eigu utanaðkomandi aðila. Nýverið seldi Gefla hf. á Kópaskeri 0,5% hlut sinn í Sölumiðstöðinni til stofnanafjár- festa en í því tilviki rann forkaupsrétt- urinn einnig út án þess að hluthafam- ir nýttu sér hann. Bréf Geflu vora Iíkt og Grandabréfin seld á genginu 5,75. ■ Hluthafar í SH/17 ♦ ♦ ♦ . Eftir skjálftann SAMVÖRÐUR ’97, almanna- varnaæfing íslensks og erlends hjálparliðs, er hafin af fullum þunga . Björgunarlið var í gær að störfum á öllu æfingarsvæðinu, allt frá Hvalfirði í norðri, og aust- ur fyrir Selfoss. Æfingin gerir ráð fyrir að mikill jarðskjálfti ríði yfir, fjöldi fólks slasist. Meðal þeirra sem hlynntu að slösuðum voru sjúkraliðar frá Eistlandi, sem héldu til i uppblásnum bragga við Grindavikurafleggj- ara. ■ Sjúkrahúsið/6 ■ Hlúð að slösuðum/10 Tjóná sex bílum MIKIÐ eignatjón varð þegar árekstur varð í Austursíðu á Akureyri í gærkvöldi. Sex bílar skemmdust. Par í öðrum bílnum var flutt á sjúkrahús. Ökumaður skarst á hendi en er að öðru leyti ekki talinn alvarlega slasaður. Áreksturinn varð þegar bíll, sem pitsusendill ók, tók fram úr fólksbíl sem beygði í sama mund til vinstri. Við áreksturinn kastaðist bíll pitsusendilsins yfir gangstétt og inn á plan hjá bílasölu og skemmdi fjóra bíla, m.a. einn nýjan bíl. Um svipað leyti valt bíll við Melgerði í Eyjafjarðar- sveit. Tvennt var í bílnum og var fólkið flutt á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri með sjúkrabíl. Fólkið skarst nokk- uð í andliti og á höndum. Talið er að bílinn hafi enda- stungist og farið 3-4 veltur áður en hann stöðvaðist. Eignalausum fjölgar um þús- und milli ára FRAMTELJENDUM sem skulda meira en þeir eiga hefur fjölgað ár frá ári síðustu ár. í lok árs 1996 vom liðlega 24 þúsund ein- staklingar með neikvæða eigna- stöðu, að meðaltali 1,7 milljónir í skuldir umfram eignir. Eignalaus- um framteljendum fjölgaði um rúmlega þúsund á síðasta ári. Árið 1988 voru eignalausir framteljendur rúmlega 11 þúsund og hefur þeim því fjölgað um meira en 100% á níu árum. Um síðustu áramót áttu 84.473 framteljendur eignir umfram skuldir og fækkaði þeim milli ára um 173. Að mati fjármálaráðuneytisins er skýringin á þessari þróun m.a. sú að fasteignaverð hefur lækkað og skuldir heimilanna hafa aukist. Þar eru sérstaklega nefndar hús- næðisskuldir og námsskuldir sem stofnað er til áður en eignamyndun kemur til. Jafnframt hafi átt sér stað talsverð endurfjámögnun og veðsetning á eldra húsnæði með auknum lánamöguleikum án þess að á móti komi samsvarandi eigna- myndun. Fjármálaráðuneytið bendir á í yfirliti um skattskyldar tekjur á síðasta ári að spamaður í skatt- fijálsum eignum, s.s. ríkisverðbréf- um, hafi aukist langt umfram eignarskattsskyldar eignir og skuldir einstaklinga á síðustu ámm eða fimmfaldast frá árinu 1988. Jafnframt hafí lífeyrisspamaður fjórfaldast á sama tímabili. ■ Fyrirtækin greiða/4 Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.