Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 1

Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 1
64 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 171. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Fimmtán bíða bana í sprengjuárás Hamas á markaðstorgi í Jerúsalem Israelar afboða friðarviðræður Mahane Yehuda markaðs- torgið Fyrirskipar handtökur 2 km r--. Vopnahléslína ; J milli Israela og Jórdana frá því í apríl 1949 þar til í júní 1967 mönnum nýjar sáttatillögur Banda- ríkjamanna.Evrópusambandið for- dæmdi árásina einnig og skoraði á ísraela að láta þessa atburði ekki hefta friðarumleitanir. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sagði árásina vera hryllilegan atburð og skoraði á deiluaðila að forðast ofbeldi en setjast að samn- ingaborði. „Friðurinn er martröð11 „Við verðum að halda friðarum- leitunum áfram því annars munu óvinir friðarins sigra,“ sagði ísra- elskur maður sem staddur var skammt frá torginu skömmu eftir að sprengingin varð. Strangtrúaðir gyðingar, sem heyrðu mál hans, æptu að honum ókvæðisorð. „Friðurinn er martröð,“ sagði einn þeirra. „Eg vil ekki frið lengur. Ég fann lyktina af blóði og sprengi- efni,“ sagði annar. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, fyrirskipaði í gær handtökur meðlima í herskáum samtökum múslíma. Hann fordæmdi árásina og sagði henni beint gegn friðarumleit- unum fyrir botni Miðjarðarhafs. Arafat sagði við Reuters í gærkvöldi að hann skoraði á Netanyahu að hvika ekki frá friðarumleitunum. Fulltrúi hans sagði í gærkvöldi að MARKAÐSTORGIÐ í miðborg Jerúsalem eftir sprengjuárásina í gær. bakkinn Borgarmörk eftir sexdaga- stríðið í júnl 1967 REUTERS Jerúsalem, Washington, Lúxemborg, Sameinudu þjúðunum. Reuter. ÍSRAELAíi tilkynntu í gærkvöldi að þeir rnyndu ekki mæta til friðarvið- ræðna við Pálestínumenn í kjölfar þess að sjálfsmorðssprengjuárás varð 15 manns að bana á markaðstorgi í Jerúsalem skömmu fyrir hádegi í gær. Hamas, samtök herskárra múslíma, lýstu síðdegis í gær ábyrgð á hendur sér og kröfðust þess að látnir yrðu lausir liðsmenn Hamas sem sitja í ísraelskum fangelsum. Gefinn var frestur til sunnudags. Tvær sprengjur sprungu á Mahane Yehuda markaðstorginu klukkan tuttugu mínútur yfir tíu að staðartíma (13.20 að íslenskum tíma) og að sögn lög- reglu báru tveir menn sprengjurnar, faldar í skjalatöskum, inn á torgið þar sem þeir sprengdu þær. MikiII fjöldi fólks var á torginu. Að sögn lögreglu í Jerúsalem slös- uðust 157 í sprengingunni. Vitni að atburðunum, lýstu blóðbaði og ringulreið og lögi'egla og sjúkralið, auk óbreyttra borgara, reyndi að koma særðu fólki til aðstoðar og fjarlægja lík. Öll umferð um mark- aðinn var stöðvuð á meðan lög- reglumenn leituðu að fleiri sprengj- um. Síðast sprakk mannskæð sprengja í Israel 21. mars sl. og varð þrem ísraelskum konum að bana og særði 42 á útikaffihúsi í Tel Aviv. Friðarumleitanir ísraela og Palestínumanna hafa legið niðri síð- an þá en að undanförnu hefur nokk- uð jiokast. I gærkvöldi sagði fulltrúi Benja- mins Netanyahus, forsætisráð- herra, að stjórnvöld hefðu afráðið að ekki væri unnt að halda friðar- viðræðum áfram nú síðar í vikunni, eins og ákveðið hafði verið. Leið- togar Palestínumanna yrðu fyrst að standa við orð sín um að berjast gegn ofbeldi. yfirvöld hefðu að undanförnu tekist á við ofbeldisöfl meðal múslíma. Pjóðarleiðtogar víða um heim for- dæmdu árásina í gær. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sagði að árásin hefði verið villimannlegt at- hæfi og nauðsynlegt væri að Palest- ínumenn hertu öryggiseftirlit. För Dennis Ross, sáttasemjara Banda- ríkjastjórnar, til Mið-Austurlanda var frestað, en hann átti að koma þangað í dag í þeim erindagjörðum að kynna Israelum og Palestínu- Blindur ók á staur París. Reuter. BLINDUR maður, sem stal bíl og ók á staur, hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm í Strassborg í Frakklandi á mánudag. Blaðið France Soir greindi frá þessu í gær., Maðurinn er 23 ára og var í fylgd unnustu sinnar sl. laugar- dagskvöld þegar ökuferðin var farin. Unnustan hefur full- komna sjón, og sagði mannin- um til við aksturinn. Maðurinn bar fyrir rétti að áður en hann missti sjónina, vegna veikinda, hefði hann dreymt um að ger- ast rallökumaður. Fjármála- fyrirtækj- um refsað TVEIMUR af stærstu fjármálafyr- irtækjum Japans, verðbréfafyrir- tækinu Nomura og Dai-Ichi Kangyo-banka, var í gær gert að sæta þyngstu refsingum sem beitt hefur verið í landinu fyrir brot á lögum um starfsemi banka og verðbréfafyrirtækja. Japanskir fjölmiðlar segja að öll fjögur stærstu verðbréfafyrirtæki lands- ins kunni að vera viðriðin fjár- málahneykslið og liklegt þykir að þau missi marga af stærstu við- skiptavinum sínum til erlendra keppinauta. Málið snýst um ólöglegar greiðslur til fjárkúgara, svokall- aðra „sokaiya", sem er lýst sem séijapanskri blöndu af harðsvfruð- um þorpurum og snjöllum og há- menntuðum endurskoðendum. Þessir menn beita yfirleitt þeirri aðferð að kaupa hlutabréf í fyrir- tækjum, rannsaka fjárhag þeirra rækilega og hóta síðan að afhjúpa glappaskot stjórnendauna á hlut- hafafundum verði þeir ekki við kröfum þeirra. Á myndinni er Katsuyuki Sugita, forseti Dai-Ichi Kangyo- banka, umkringdur fjölmiðlafólki eftir fund í japanska fjármálaráðu- neytinu. ■ Stór fjármálafyrirtæki/18 Hætta ennþá yfírvofandi á flóðasvæðum við Oder Yarnargarðar hriplekir Neurlidnitz, Brussel. Reuter. HÆTTUASTAND á flóðasvæðun- um við ána Oder var ennþá alvar- legt í gær, að sögn þýzkra embætt- ismanna, sem vöruðu íbúana við að falla í skeytingarleysi. Nokkurra merkja hafði þó gætt um að flóðið gæti verið í rénun, þar sem ekki varð af því að vatnshæðin hækkaði í nýtt hámark eins og búizt hafði ver- ið við að gerðist aðfaranótt gær- dagsins. En embættismenn vöruðu við því að margir varnargarðar meðfram ánni væru orðnir hriplekir og gætu gefið sig hvenær sem er. „Pað er enn langt í land að fulln- aðarsigri," sagði Manfred Stolpe, forsætisráðherra sambandslandsins Brandenburg, en landsvæðin sem nú eru í mestri hættu vegna flóðsins í Oder tilheyra því. Flóðin sem herjað hafa á Tékka, Pólverja og Þjóðverja á undanfórn- um vikum hafa kostað meira en 100 manns lífið. Enn sem komið er hef- ur enginn látið lífið í Þýzkalandi svo vitað sé, en þar hafa bæir, iðnfyrir- tæki og frjósöm landbúnaðarsvæði orðið fyrir miklu tjóni undir meng- uðu flóðvatninu. Þakkaði sjálfboðaliðum og hermönnum Stolpe þakkaði þeim þúsundum hermanna og sjálfboðaliða sem ósérhlífnir hafa unnið að því nótt og dag undanfarna viku að styrkja varnargarða með hleðslu sandpoka. ,An hjálpar þeirra hefðu garðarnir gefið sig fyrir löngu," sagði forsæt- isráðherrann. Stolpe lýsti einnig þakklæti fyiár það fé sem almenningur í Þýzka- landi hefur látið af hendi rakna í söfnunarátaki til að styrkja hjálpar- aðgerðir vegna flóðanna. Ríkis- stjómin í Bonn og stjórnvöld í Brandenburg hafa sett 40 milljónir marka, um 1,6 milljarða króna, í sjóð tileinkaðan sama tilgangi. Tals- menn Evrópusambandsins til- kynntu í gær, að ákveðið hefði verið að veita 1,5 milljónir ECU, um 120 milljónir króna, til hjálparaðgerða í Brandenburg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.