Morgunblaðið - 31.07.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.07.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Steinunn Á þriðja þúsund manns á Njáluslóð Hvolsvöllur. Morgublaðið. AÐSÓKN að sýningunni á Njáluslóð, sem sett var upp á Hvolsvelli í lok júní, hefur verið mjög góð það sem af er sumri. Nú hafa á þriðja þúsund manns séð sýninguna og eru það að sögn Guðjóns Ámasonar, framkvæmda- stjóra Sögusetursins, mest innlendir og erlendir ferða- menn sem sækja sýninguna. Þá hefur viðkoma hópferða mjög aukist. Ferðir um Njáluslóðir Sögusetrið hefur einnig skipulagt ferðir um Njáluslóð- ir, sem famar eru eftir pönt- un, og einnig er verið að koma upp merkingum á sögustöð- um Njálu í Rangárvallasýslu. Vinsælasta gamanleikrit Bandaríkjanna í Borgarleikhúsinu : I 1 Morgunblaðið/Árni Sæberg ÆFINGAR á gamanleiknum Hár og Hitt standa nú yfir í Borgarleikhúsinu en leikritið verður frumsýnt 8. ágúst n.k. Ahorfendur leysa gátuna GAMANLEIKURINN Hár og Hitt verður frumsýndur í Borg- arleikhúsinu 8. ágúst nk. Leikrit- ið, sem á frummálinu kallast Shear Madness og er eftir Paul Portner, hefur verið sýnt sam- fellt í 18 ár fyrir fullu húsi í Boston og fyrir vikið komist í Heimsmetabók Guinness. Leik- ritið hefur sópað að sér verðlaun- um, m.a. sem besta gamanleikrit Bandaríkjanna. Söguþráður verksins er á þá leið að morð er framið í íbúð á hæð fyrir ofan hárgreiðslustof- una Hár og Hitt og grunur bein- ist að hárgreiðslumanninum Bonna, aðstoðarstúlku hans Hófí og tveimur viðskiptavinum stof- unnar. Hver hinna grunuðu reyn- ist svo sekur er undir áhorfend- um komið sem vitna um ferðir sögupersónanna. Áhorfendur fá tækifæri til að yfirheyra hina grunuðu og greiða loks atkvæði um það hver skuli ákærður fyrir morðið. Það er Gísli Rúnar Jónsson sem þýðir verkið en aðstandend- ur sýningarinnar eru leikhópur- inn Höfuðpaurar. Sýningin er mjög flókin í æfingu vegna hinna fjölmörgu möguleika á málalok- um sem þátttaka áhorfenda býð- ur upp á og hafa aðstandendur sýningarinnar farið bæði til Bos- ton og Washington og kynnt sér uppfærslur sýningarinnar. Leik- ritið er auk þess endurskoðað fyrir hverja sýningu með tilliti til þess sem fréttnæmast þykir þann daginn. Leikararnir æfa því breyttar áherslur í verkinu fyrir hverja sýningu og óhætt er að fullyrða að engar tvær sýningar verða eins. Djass á Café Au Lait DJASSTRÍÓ Árna Heiðars spilar á Café Au Lait í Hafnar- stræti í kvöld kl. 22. Kontra- bassaleikari tríósins er að þessu sinni Gunnlaugur Guðmunds- son en hann hefur numið kontrabassaleik í Hollandi síð- ustu fjögur ár og hefur stutta viðdvöl hér á landi í sumar. Húðirnar lemur að venju Matt- hías Hemstock en Árni Heiðar spilar á Rhodes-píanó. Á efnis- skránni eru valdir „standardar" auk frumsamis efnis eftir Árna Heiðar. Aðgangur er ókeypis. Ríkey sýnir á Siglufirði RÍKEY Ingimundardóttir myndlistarmaður opnar sýn- ingu í Ráðhúsinu, Siglufirði, á morgun, föstudag, kl. 15. Sýn- ingin er í tengslum við Síldar- ævintýrið sem stendur yfír um verslunarmannahelgina. „Skilaboð tiljarðar- innar“ Hcllu. Morgunblaðið. í TILEFNI70 ára afmælis byggð- ar á Hellu og þess að 50 ár eru liðin frá stóra Heklugosinu 1947 hefur verið opnuð nokkuð sér- stök myndlistarsýning við Heklu- rætur. Snorri Guðmundsson hraunlistamaður sem er upphafs- maður og framkvæmdaraðili hefur fengið nokkra listamenn í lið með sér til að senda jörðinni skilaboð, en einnig gefst gestum sýningarinnar og öðrum kostur á að senda sín eigin skilaboð. Snorri Guðmundsson leitar gjarnan fanga með efnivið í verk sín í yngsta hraunið við Heklu- rætur sem rann austan í fjallinu árið 1991. Þar hefur hann sett þessa sýningu upp i stórbrotinni náttúrunni, auðninni, hrauninu, mosanum og fjallasýninni en yfir öllu saman gnæfir sjálf fjalla- drottningin. Hann hefur sett saman níu ramma úr bragga- gluggum frá stríðsárunum og byggist sýningin á myndefni og texta sem sýnendurnir Ieggja fram sem sín skilaboð til jarðar- innar. Þeir sem taka þátt eru íslenska þjóðkirkjan, Búddistafélagið á Islandi, Ásatrúarsöfnuðurinn, Friður 2000, Gunnar Örn Gunn- arsson myndlistarmaður Kambi, Helga Sigurðardóttir myndlist- arkona Reykjavík, Spessi ljós- myndari Reykjavík, Bubbi Mort- hens tónlistarmaður Reykjavík og Hraunverksmiðjan Gunnars- holti. Til að komast á þessa myndlist- arsýningu er ekið sem leið liggur austur að Hellu, upp Rangárvelli og þaðan inná Fjallabaksleið syðri en svæðið er um 58 kíló- metra frá Hellu. Nánari upplýs- ingar um skilaboðin, sýninguna og leiðina að henni má fá hjá Hraunverksmiðjunni í Gunnars- holti eða á skrifstofu Rangár- vallahrepps. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir HVAÐ viljum við segja við jörðina? Hver og einn hefur sína eigin aðferð við að koma skilaboðum á framfæri. SNORRI Guðmundsson framkvæmdaraðili sýningarinnar við ein skilaboðin. Astamál atvinnumorðingja KVIKMYNDIR Bíóborgin GROSSE POINTE BLANKE ★ ★ ★ Vi Leikstjóri George Armitage. Hand- ritshöfundur Tom Jankiewicz, D.V. DeVincentis, Steve Pink og John Cusack. Aðalleikendur John Cusack, Minnie Driver, Dan Aykroyd, Alan Arkin, Joan Cusack.. 105 mín. Banda- rísk.HoUywood Pictures 1997. VINNUGLEÐIN fer dvínandi hjá Martin Blank (John Cusack), endá maðurinn manndrápari að atvinnu. Einkaritarinn hans (Joan Cusack) kemur því inn hjá honum að hann muni hafa gott af því sálarlega að mæta á 10 ára bekkjarafmæli í gamla skólanum hans í heimabæn- um. Sálfræðingurinn hans (Alan Arkin) er einnig á sama máli, enda dauðhræddur við þennan grunsam- lega viðskiptavin sem hann vill halda í sem mestri fjarlægð. Þegar við bætist að í bænum býr einnig æskuástin hans, hún Debi (Minnie Driver), sem hann yfirgaf á loka- ballinu, og hann fær drápsverkefni á sínum fornu heimaslóðum, ákveð- ur hann að slá nokkrar flugur í einu höggi og hverfa heim í faglegum og rómantískum tilgangi. Þetta er því engin venjuleg skemmtiferð og allnokkrir morðhundar á hælum Blanks gera honum lífið leitt og Debi er ekki búin að gleyma loka- ballinu. Yfirleitt er það vondur forboði ef handritshöfundar eru fleiri en tveir. Hér eru þeir fjórir og gera sitt til að afsanna þessa kenningu því Grosse Pointe Blanke er óvenju frumleg og fyndin mynd með traust handrit og leikhóp til grundvallar. Húmorinn er bleksvartur, drepfynd- inn á vel við hér. Sem dæmi má nefna að á endurfundadansleiknum er Blank eilíflega að segja sínum gömlu bekkjarsystkinum að hann sé leigumorðingi þegar þeir eru að stæra sig af velgengni í lífínu. Og enginn trúir honum. Annað eftir því. Aykroyd leikur kollega Blanks í morðbransanum og viil áfjáður stofna stéttarfélag leigumorðingja og huggst stúta Blanks þar sem honum líst ekki á hugmyndina. Gert er púragrín að galopnu mark- aðssamfélaginu og litið á leigudráp einsog hvern annan „bísness“, að vísu vandmeðfarnari en flestan ann- an. Leikhópurinn er óaðfinnanlegur, en hann er skipaður bæði þekktum og lítt kunnum leikurum. Meðal þeirra síðarnefndu er enginn betri en Jeremy Piven, þessi gamli vinur og skólabróðir Blanks er orðinn borginmannlegt merkikerti og fast- eignasali sem Blank fær sér til að- stoðar við að fela lík í einu „drep- fyndnasta“ atriðinu. í bland við hina heldur ógöfugu atvinnumennsku morðingja flétt- ast svo indæi og trúverðug ástar- saga um strákinn sem hljóp frá æskuunnustunni sem hann hefur syrgt æ síðan og reynir að endur- heimta. Hin írska Minnie Driver leikur hana með stíl. Þessi efnilega leikkona sem var svo eftirminnileg í Circle of friends, er nú hratt rísandi stjarna í Hollywood og er einkar sannfærandi sem hin jarð- bundna og eldklára Debi, gerir hana að sérstæðri og eftirtektar- verðri persónu sem er í alia staði eftirsóknarverð. Arkin gamli og Aykroyd eru einnig í fínu formi en bestur er Cusack. Gerir ódæðis- manninn að merkilega trúverðug- um gæðadreng í gruggugum við- skiptum. Óskarsverðlaunatilnefn- ing mjög líkleg. Það má segja að hlutverkið sé klæðskerasniðið fyrir þennan vandaða leikara (The Grift- ers, Eight Men Out) sem sjálfur á í því fjórðunginn, auk þess sem hann er einn af íjármagnendum myndarinnar og meginbakhjarl. Hann sigrar á öllum vígstöðvum og er fremstur meðal þeirra jafn- ingja sem lyfta Grosse Pointe Blanke langt yfir meðalmennskuna og gera hana að frumlegri og fínni skemmtun. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.