Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 18

Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU ERLENT Húsvíkingar sækja í skiprúm á Raufarhöfn Búsetuflutninga verður krafist „VIÐ gerum ekki kröfu um búsetu- flutninga til að byrja með en ég reikna fastlega með að það verði gert þegar til lengri tíma er litið. Það eru allir ráðnir með það í huga að það verði gerð krafa um lögheimili á Raufarhöfn þótt það muni ekki verða látið brotna á því fyrstu mánuðina, en það verður látið reyna á það eftir vissan aðlögunartíma,“ segir Jóhann Olafsson, framkvæmdastjóri Jökuls hf. á Raufarhöfn. Um það bil helmingur í áhöfn hins nýja skips, Jökuls hf., sem keypt var frá Húsavík og áður hét Júlíus Havsteen, eru Húsvíkingar en um helmingur eru heimamenn. „Við höfum ekki mannskap heima til að manna öll plássin auk þess sem við viljum fá eitthvað af vönum mönnun- um til þess að fylgja skipinu áfram," segir Jóhann, sem telur líklegt að frestur til að breyta um lögheimili verði gefinn Húsvíkingunum til ára- móta. Að sögn Jóhanns er ekki óeðli- legt að minni staðirnir horfi til út- svarstekna þessara manna sem oft og tíðum eru með tekjuhæstu ein- staklingum lítilla sjávarplássa. Skip- stjóri og vélgtjórar koma frá Húsa- vík auk helmings háseta. Stýrimenn og aðrir hásetar eru aftur á móti heimamenn. Ætti að vera mál sveitarfélaganna Ljóst er að störfum á sjó á Húsa- vík fer fækkandi heldur en hitt eftir breyttan skipastól Fiskiðjusamlags Húsavíkur, en bæði Júlíus Havsteen og Kolbeinsey verða seld og í staðinn kemur einn rækjufrystitogari, Hús víkingur ÞH, sem áður var Pétur Jónsson. Að sögn Jóhanns hefur því orðið vart mikillar ásóknar húsvískra sjómanna í skiprúm á Raufarhöfn að undanförnu. Húsvíkingar af- henda skipið nýjum eigendum í dag og verður það til sýnis á Raufarhöfn á morgun áður en það fer á veiðar á föstudag. Jóhann segist vera aigjörlega á móti þvingunum af því tagi sem hér um ræðir. Hann telur eðlilegra að bæjarsjóður Húsavíkur eigi frum- kvæðið að því að gera samning við Raufarhafnarhrepp um málefni þeirra sjómanna, sem hlut eiga að máli og þiggja vinnu á Raufarhöfn en viija áfram eiga sín heimili á Húsavík. í giidi þurfi að vera inn- byrðis samningur milli sveitarfélaga um útsvarsskiptingu af einhveiju tagi í slíkri stöðu. „Þetta er mál, sem sveitarfélögin eiga að leysa sín á milli þegar til verða störf fyrir hóp einstaklinga, sem á þeim hafa áhuga.“ Jóhann segist auðvitað gera sér ákveðnar vonir um að sveitarfélögin noti reynslutímann fram að áramótum til viðræðna um þessi mál. Ef hins vegar ekkert yrði úr því býst hann við því að það verði nokkuð ströng krafa gerð um búsetuflutninga. „Manni fínnst það vera mjög eðlileg- ur framgangur að sveitarfélögin ræði saman svo ekki þurfí að koma til sú mikla fjölskylduröskun, sem óhjákvæmilega gæti orðið fylgifisk- ur þessa." Skilar sér í sterkara samfélagi Að sögn Jóhanns hefur stjóm fyr- irtækisins tekið undir sjónarmið sveitarfélagsins í þessa átt sem lagt hefur mikla áherslu á að þau störf, sem til verða, séu mönnuð heima- mönnum. „Okkur fínnst það vera mjög eðlilegt að horfa á það til lengri tíma litið að menn, sem eru í áhuga- verðum plássum, skili sínum gjöldum til sveitarfélagsins því það styrkir okkar samfélag og þennan rekstur í heild sinni út á við. Það, sem af þessu rennur, skilar sér í sterkara samfé- lagi fyrir okkur,“ segir Jóhann. Skiparadíó selur tækjabúnað í Börk SKIPARADÍÓ hefur selt mikið af fískileitartækjum í brúna í Berki NK, sem nú er í miklum breytingum í Póllandi. Meðal þess sem Skipa- radíó hefur selt útgerð Barkar, Síldarvinnslunni, er trollsónar, neð- ansjávarradar og straumlogg. í frétt frá Skiparadíó er þessum tækjum lýst á eftirfarandi hátt: „Trollsónarinn er frá WESMAR, en hann er höfuðlínusónar. Tækið sam- anstendur af höfuðlínusendi, stjóm- tæki, skjá og spenni. Höfuðlínusend- irinn er búinn tveim augum (botn- stykkjum) þar sem annað horfir upp frá höfuðlínu en hitt niður frá henni. Þá eru nemar fyrir hita og dýpi þ.e. dýpi frá yfirborði sjávar. Þessu til viðbótar er svo sónarinn sem er 160kHz og starfar á sama hátt og hefðbundinn „skanning“-sonar. Honum er hægt að „tilta“ frá +15° til -90° auk þess sem hann skannar allan hringinn. Á skjá eru síðan tveir lausir bendlar sem gefa mælingar þannig að lesin er fjarlægð í bendil frá höfuðlínumiðju (höfuðlínusendi) og eins fjarlægðin milli þeirra. Ef tek- ið er dæmi af framskönnun, hler- arnir sjást, sinnhvor bendill settur yfir hlerana og þar með fæst fjar- lægð í þá og milli þeirra. Sama á við um mælingar í lóðningu sem sæist framundan. HK800/1600-6 sónar frá WESMAR er í raun neðansjávar- radar. Þessi sónar er skanning-sónar með tíðnina 160kHz og er „dómur- inn“ (kúlan) 6 tommur í þvermál. Hífíbúnaðurinn er vökvadrifmn og fylgir dæla og mótor ásamt öllum lögnum og lagaefni sem þarf til að koma tækinu fyrir í skipinu að und- anskildum brunni. Þessi sónar er arftaki næstu kynslóða á undan í sónarfjölskyldunni frá WESMAR. 160kHz tækið er í Noregi nær eingöngu tekið sem köstunarsónar og sónar til að nota við togveiðar á uppsjávarfiski (síld, loðnu, makr- íl). Tækið samanstendur af niður- fara, sendi/móttakara, stjómtæki og 17 tommu skjá. Sýnir hraða og stefnu straumlaga JLN-627 straumlogg frá JRC. Eitt slíkt hefur verið sett í bát hér á landi en mörg í Noregi. Tækið vinnur á 125kHz og sýnir hraða og stefnu straumlaga sem það nemur auk þess með sama hætti að taka mið af físktorfu sem það sér. Það notar botnsýn til að reikna hraða en ef það missir botn þá tekur sjálf- virkt við tenging við GPS-tæki skips- ins. Framleiðandi gefur upp að tækið nái botni á allt að 400 metra dýpi og samkvæmt upplýsingum skip- stjórans á Hugin VE, sem er sá eini hér á landi með tækið, stenst það fyllilega." Reuter Nauðlending í Flórens Málar bæ- inn rauðan Manila. Reuter. ALFREDO Lim, borgarstjóri Manila, hefur í fylgd lögreglu tekið til við að mála viðvaranir í rauðum lit á hús meintra fíkni- efnasala í fátækrahverfum borgarinnar. Herferðin hefur sætt gagn- rýni Mannréttindanefndar Filippseyja, sem segir fram- göngu borgarstjórans minna á þá aðferð nasista að merkja hús gyðinga með Davíðsstjörn- unni. Borgarstjórinn kveðst gáttaður á þessari gagnrýni og segir herferðina hafa borið góð- an árangur, því 60% íbúa þeirra 200 húsa, sem hafa verið merkt, hafi flúið borgina. SLÖKKVILIÐSMENN að störf- um við flak ATR-42 farþega- flugvélar sem brotlenti utan brautar á flugvellinum við Flór- ens í gær. Að minnsta kosti fimm manns slösuðust, þar af einn alvarlega. Vélin er í eigu franska flugfélagsins Littoral og var að koma frá Nice. Með henni voru 14 farþegar og þriggja manna áhöfn. Síðdegis í gær höfðu engar fregnir borist af orsökum slyssins, en vélin mun hafa farið út af enda flug- brautar eftir að hún lenti, og hafnað í kanti fjölfarins vegar. Slökkviliðsmenn björguðu flug- mönnunum út úr stjórnklefan- um, og er annar þeirra í dái á sjúkrahúsi. Farþegar yfirgáfu vélina um bakdyr, en enginn þeirra virtist alvarlega slasaður, að sögn lækna. Flugfreyja var einnig um borð. Fulltrúi fram- leiðanda vélarinnar, sem er fransk/ítölsk, sagði í gær að beðið væri nánari upplýsinga frá flugféiaginu, og væri ekkert hægt að segja um hugsanlegar orsakir fyrr en þær hefðu borist. Nýtt fjármálahneyksli vindur upp á sig í Japan Stór fjármálafyrirtæki sæta hörðum refsingum Tókýó. Reuter. STJÓRN Japans tilkynnti í gær að tveimur af stærstu fjármálafyrir- tækjum landsins yrði refsað harka- lega vegna ólöglegra greiðslna til svokallaðra „sokaiya“, eða fjárkúgara sem hafa heijað á jap- önsk fyrirtæki. Fj ármálafyrirtækin eiga að sæta hörð- ustu refsingum sem beitt hefur verið fyrir brot á lögum um starfsemi banka og verð- bréfafyrirtækja. að refsa Nomura, einu af íjórum stærstu verðbréfafyr- irtækjum Japans, og einum af stærstu bönkum Iandsins, Dai-Ichi Kangyo (DKB). Nomura var m.a. gert að hætta hlutabréfaviðskiptum sínum þar til í lok ársins, hætta starfsemi eins af fyrirtækjum sínum þar til í desember og viðskiptum með ríkisskuldabréf til áramóta. DKB var bannað að veita ný lán innanlands önnur en húsnæðislán út þetta ár, auk þess sem bankanum var fyrirskipað að einskorða starf- semi sína erlendis við lánveitingar. Bankanum var ennfremur bannað að opna ný útibú þar til í ágúst á næsta ári. Erlend fyrirtæki hagnast Fréttaskýrendur sögðu að refs- ingarnar myndu líklega koma harðar niður á Nomura á þessu fjárhags- ári, sem lýkur í mars, og nokkrir þeirra töldu að fyrirtækið myndi missa marga viðskiptavini til er- lendra keppinauta og aldrei ná þeim aftur. Stórfyrirtækið Hitachi lýsti því t.a.m. yfir í gær að það myndi hér eftir skipta við erlend verðbréfa- fyrirtæki vegna ógagnsærra starfs- hátta japönsku fyrirtækjanna. Aðrir fréttaskýrendur sögðu þó að Nomura myndi endurheimta marga af viðskiptavinum sínum fljótlega eftir að refsingartímabilinu lýkur og að til lengri tlma litið myndu bæði fyrirtækin njóta góðs af mik- illi uppstokkun sem gerð yrði í yfir- stjórn þeirra vegna málsins. Þijú önnur liggja undir grun Fregnir hermdu I gær að Yama- ichi, annað af fjórum stærstu verð- bréfafyrirtækjum landsins, kynni einnig að vera viðriðið hneykslismál- ið. Saksóknarar hófu mikla leit að gögnum um meintar ólöglegar greiðslur til Ryuichi Koike, eins af „sokaiya“-fjárkúgurunum sem hafa heijað á japönsk fyrirtæki. Mál Nomura og DKB snýst einnig um greiðslur til Koike. Stjómin vill sýna að hún ætli að taka hart á slíkum lögbrotum og Hiroshi Mitsuzuka fjármálaráðherra sagði I gær að búast mætti við að Yamaichi yrði beitt hörðum refsing- um eftir að rannsókninni lyki. Japanskir fjölmiðlar sögðu að sak- sóknarar væru einnig að rannsaka hvort verðbréfafyrirtækin Daiwa og Nikko, sem eru einnig á meðal hinna „Fjóru stóru“, séu viðriðin málið. Blanda þorpara og slunginna endurskoðenda Fjárkúgararnir, eða „sokaiya", sem málið snýst um eru séijapönsk blanda af þorpurum og útsjónarsöm- um og hámenntuðum endurskoðend- um sem heija á fyrirtæki. Þeir eiga það til að hóta fórnarlömbunum of- beldi en beita þó yfírleitt þeirri að- ferð að kaupa hlutabréf í fyrirtækj- unum, rannsaka starfsemi þeirra mjög rækilega og hóta síðan að skýra frá glappaskotum stjómend- anna á hluthafafundum. Þessir menn lýsa sér sem bjarg- vættum japanskra hluthafa, sem stjómendur fyrirtækjanna hafí kom- ist upp með að hunsa með áratuga gömlu samtryggingakerfi sínu. Þeir segjast oft vita meira um fjárhags- stöðu fyrirtækjanna en æðstu stjóm- endur þeirra. Fjölmörg hneykslismál urðu til þess að árið 1983 voru sett lög sem banna greiðslur til „sokaiya“. Erfíð- lega hefur þó gengið að halda þeim í skefjum, enda hafa þeir beitt ýms- um kænskubrögðum til að afla fjár. Til að mynda er algengt að þeir gefí út fréttabréf eða lítil tímarit, sum aðeins með nokkrar síður af ljóðum, og fyrirtækin eru látin greiða sem svarar hundruðum þús- unda króna fyrir áskriftina. Nomura skýrði frá því nýlega að fyrirtækið hefði sagt upp 700 slíkum áskriftum. „Sokayiar" hafa einnig skipulagt „námskeið" sem fyrirtækin hafa greítt miklar fjárhæðir fyrir. Þeir eru einnig þekktir fyrir ofbeldi og lögreglan telur að „sokaiya" hafi myrt einn af framkvæmdastjórum ljósmyndafyrirtækisins Fuji árið 1994. Sérfræðingar telja að 500-600 stór fyrirtæki tengist enn þessum fjárkúgurum, þótt þeim hafí fækkað frá því lögin voru sett. Hiroshi Mitsuzuka Ákveðið var

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.