Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 12

Morgunblaðið - 31.07.1997, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Álagningarskrá á Norðurlandi eystra KEA og Þorsteinn Már greiða mest ÁLAGNINGARSKRÁ fyrir árið 1996 í Norðurlandi eystra var lögð fram hjá skattstjóraembættinu á Akureyri í gær. Akureyrarbær greiðir hæstu skatta lögaðila, rúm- ar 95 milljónir króna og Þorsteinn Már Balövinsson framkvæmdastjóri Samherja greiðir hæstu skatta ein- staklinga, 6,2 milljónir. Eftirfarandi er listi yfir 10 skattahæstu lögaðila og einstaklinga í umdæminu. Einstaklingar: Þorsteinn Már Baldvinsson, Akureyri, 6.266.467. Auðunn Benediktsson, Kópaskeri, 6.014.150. Þorsteinn Vilhelmsson, Akureyri, 5.808.760. Böðvar Jónsson, Akureyri, 5.671.244. Kristján V. Vilhelmsson, Akureyri, 5.594.606. Lárus Grímsson, Þórshöfn, 5.490.992. Stefán Óskarsson, Reykjahreppi, 5.248.098. Ólafur Ármann Sigurðsson, Húsavík, 4.414.072. Þórarinn B. Jónsson, Akureyri, 4.384.494. Sigmundur Sigfússon, Akureyri, 4.038.134. Lögaðilar: Akureyrarkaupstaður, Akureyri, 95.377.917 Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri, 82.683.397 Samheiji, Akureyri, 72.016.582 Fjórðungssjúkrahúsið á Ak., Akureyri, 64.419616 Útgerðarfélag Akureyringa, Akureyri, 47.370.176 Skinnaiðnaður, Akureyri, 38.961.828 Kísiliðjan, Akureyri, 33.567.625 World Minerals ísland, Húsavík, 27.414.554 Valtýr Þorsteinsson ehf., Akureyri, 22.112.250 Sæberg, Ólafsfirði, 21.204.456 Schola Cant- oruin syngur í EQjóðaklettum LISTA97 SUMAR FIMMTA og síðasta tónleikahelgi Sumartónleika á Norðurlandi verð- ur um verslunarmannahelgi. Flytj- endur í þessari síðustu lotu verða Schola Cantorum sem er Kammer- kór Hallgríms- kirkju, ásamt _________ ________ stjórnanda, Herði AKUREYRI Áskelssym. Á efnisskránni verða íslensk og erlend kirkjutónlist og íslensk ver- aldleg tónlist m.a. eftir Byrd, Purc- ell, Bach, Jón Leifs, Þorkel Sigur- björnsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Emil Thoroddsen, Þórarin Guð- mundsson og fleiri. Sungið í Hljóðaklettum Tæki gefin til rann- sókna fíkniefnamála SVAVAR Sigurðsson afhenti lög- reglunni á Akureyri öflugan búnað til rannsókna í fíkniefnamálum en hann er að verðmæti um hálf millj- ón króna. Um er að ræða myndaeftirlits- búnað, m.a. myndavél sem notuð er á vettvangi og myndbandstæki sem tekur upp allt að 900 klukku- tíma. Daníel Snorrason lögreglufulltrúi hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Akureyri sagði að um vönduð og góð tæki væri að ræða og myndu þau auðvelda störf lögreglunnar við rannsókn fíkniefnamála, m.a. yrði hægara um vik að fylgjast með þeim stöðum þar sem vitað væri að neysla og sala á fíkniefnum ætti sér stað. Fíkniefnamálum fjölgar Að sögn Daníels hefur fíkniefna- málum á Akureyri fjölgað ört á síð- ustu árum, árið 1994 komu 10 mál til kasta lögreglu, þau voru 20 árið á eftir og í fyrra alls 40. „Það sem er alvarlegast er að aldur neytenda færist sífellt neðar, við höfum haft afskipti af unglingum um 14 ára aldur vegna neyslu fíkniefna," sagði Daníel og þá benti hann á að þróun- in væri því miður öll til verri veg- ar, m.a. væri farið að flytja fíkni- efni beint frá útlöndum inn á svæð- ið. Morgunblaðið/Björn Gislason Sumar o g sól FÓLK sem sat í makindum á Ráðhústorgi á Akureyri í gær- dag trúði ekki sínum eigin augum þegar það leit á hita- mælinn. Eitthvað hefur hann ruglast í ríminu, kannski feng- ið sólsting, en um tíma reyndi hann að telja sóldýrkendum trú um að þriggja stiga frost væri á torginu. Því bar hreint ekki saman við stemmninguna sem þar ríkti eftir hádegið í gær enda var hitinn þá 26 stig. Margir stóðust ekki freisting- una og kældu sig með ís. Fyrstu tónleikarnir í röðinni verða i kirkjunni í Hljóðaklettum í þjóðgarðinum við Jökulsárgljúfur þar sem flutt verða verk sem hæfa veðri og vindum. Að kirkjunni í Hljóðaklettum er um 20 mínútna gangur frá bílastæðunum og verður leiðin merkt. Tónleikarnir verða á morgun, föstudaginn 1. ágúst, og hefjast þeir kl. 14. Á laugardag, 2. ágúst, verða tón- leikar í Reykjahlíðarkirkju við Mý- vatn og á sunnudag syngur kórinn við messu í Akureyrarkirkju kl. 11 árdegis en kl. 17 verða lokatónleik- ar sumarsins. Á þeim tónleikum verður frumflutt nýtt tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld við texta úr 102. Davíðssálmi. ÞÚVELIiR: 4JÖRIÐ í MIÐBÆNUM -FRIÐSÆLDINAIRJARNASKÓGI -EDA LÁGA VERÐIÐ Á GISDHEIMILINU fiULU VILLUNNIGEGNT SUNDLAUGINNI Harpa HAFNARSTRÆTI 83 - 85 SÍMI 481 1400 Gjörbreyting í landvinnslu Útgerðarf élags Akureyringa Nýjar vinnslulínur spara tíma og bæta nýtingu Unnið á tveimur vöktum frá kl. 7 til 19 Morgunblaðið/Bjöm Gíslason UMFANGSMIKLAR breytingar hafa verið gerðar í frystihúsi ÚA en vinnsla hefst að nýju í húsinu eftir helgi. UMFANGSMIKLUM breytingum á frystihúsi Útgerðarfélags Akur- eyringa lýkur nú um helgina og hefst vinnsla að nýju í húsinu næsta þriðjudag, en starfsfólk frystihúss- ins hefur verið i sumarleyfi síðustu fjórar vikur. Nýjar vinnslulínur leysa þær gömlu af hólmi og sagði Guðbrand- ur Magnússon framkvæmdastjóri að annars vegar hefði verið sett upp ný vinnslulína fyrir hefðbundinn bolfísk; þorsk, ýsu og ufsa þar sem eru 36 snyrtistæði og þá hefur ver- ið sett upp karfavinnslulína. Áætlað er að ná um 70-75% af karfa gegn- um hraðsnyrtingu, en nýja karfa- vinnsluvélin, Baader 150, er þrefalt afkastameiri en eldri vél félagsins. „Með nýju vélinni fáum við betur snyrt flök og mun betri nýtingu en áður,“ sagði Guðbrandur. Frá hraðsnyrtingunni verður flökunum dælt beint inn í lausfrystingu eða í geymslutanka þar sem þau eru geymd í krapa. Nýjar vinnslulínur spara tíma Tvær nýjar vinnslulínur eru fyrir hefðbundinn bolfisk. Önnur er sér- hæfð í bitavinnslu og er byijað á því að skera sporðinn af áður en flökin fara í snyrtingu. Guðbrandur sagði ástæðuna þá að yfirleitt væru ekki gallar í þeim hluta fisksins og þannig sparaðist tími. Því næst fara flökin á flæðivog þar sem í ljós kemur þyngd hvers flaks og tölva stýrir þeim og úthlutar hveiju flaki þangað sem þess er þörf miðað við hveija pakkningu. Guðbrandur sagði að markmið með nýju lhunum væri að taka ekki inn á snyrtistæði þá hluta fisksins sa. : ekki þyrfti sérstaklega að snyrta. Þá myndi mun betri nýt- irg nást við það að flokka fiskinn „yrir flökun þar sem stillt er inn á sérstakar stærðir. Hann sagði að fólk vildi sífellt minni bita, 100 til 120 gramma bitar væru vinsælastir en á hinn bóginn væri fiskurinn að stækka. Hin nýja línan í hefðbundu vinnslunni er svipuð en þó ekki eins mikið um bitaskurðartæki á henni. Guðbrandur sagði að kosturinn við þessar nýju vinnslulínur væri m.a. sá að meðhöndlun á flökum yrði mun varfærnislegri en áður. Samhliða uppsetningu á línum var stórum hluta gamla frystihús- salarins breytt í fullvinnslusal þar sem sett var upp vinnslulína til að vinna fisk í raspi. Áætlað er að vinnsla hefjist þar um eða eftir miðjan ágúst. Kostnaður við þessar breytingar er um 230 milljónir króna. Marel hefur séð um þetta verkefni. Tvær vaktir Gerður hefur verið tveggja mán- aða reynslusamnignur milli ÚA og Verkalýðsfélagsins Einingar um nýtt vinnufyrirkomulag í tengslum við nýju vinnslulínurnar. Eftir helgj verður því unnið frá kl. 7 að morgni til 7 að kvöldi í húsinu. Unnið er á tveimur vöktum, á dagvakt sem stendur frá 7 til 15.30 vinna um 100 manns og á síðdegisvakt frá 15.30 til 19 verða um 30 starfs- menn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.