Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 2

Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Var villtur í þrjá sólarhringa í frumskógi í Guatemala Fannst þrekaður eftir mikla leit EINAR Ágústsson, 24 ára maður, sem út- skrifaðist frá Háskóla íslands síðastliðið vor, fannst á lífí á þriðjudag en þrekað- ur mjög eftir að hafa villst í frumskógi í Guatemala í Suður- Ameríku. Hann hélt kyrru fyrir í frum- skóginum í þrjá sól- arhringa og var illa bitinn af moskítóflug- um og með snert af malaríu þegar hann fannst. Ágúst Einars- son þingmaður, faðir Einars, þakkar íslenskum stjórnvöldum og stjórnvöldum í Guatemala það að pilturinn komst lífs af úr þessum háska. Einar leggur stund á spænskunám við bandarískan skóla í Guatemala. Síðastliðinn laugardag fór hann í ferð inn að frægum Maya-rústum í frumskógi í vesturhluta Guatemala. Hann hafði með sér hálfa vatnsflösku og var án matar enda hafði hann fengið upplýsingar um að færi hann ákveðna slóð kæmist hann í vatnsból. Áður en hann komst að vatnsbólinu villtist hann. Ágúst segir að auðvelt sé að villast á þessum slóðum, þarna sjáist ekki til sólar og erfítt sé yfirferðar. „Hann gerði það eina rétta í stöðunni þegar hann uppgötvaði að hann var villtur, með því að halda kyrru fyrir. Það Einar Ágústsson uppgötvaðist hins vegar ekki fyrr en sólarhring síðar að hann var týndur og hófst þá fyrsta leit. Við fréttum af þessu hér heima á mánudaginn í gegnum skólann. Talið var langlíklegast að hann hefði farið inn að rústunum og villst. Það hefur komið fyrir að ferðamenn hafa villst þarna,“ sagði Ágúst. Ágúst talaði við Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á mánudaginn og hét hann strax fullum stuðningi íslenskra stjórnvalda. Atli Ásmundsson í ráðuneytinu vann að málinu ásamt Einari Benediktssyni sendiherra í Washington og Sveini Björnssyni sendiráðsritara. Ákveðið var að Sveinn færi strax til Guatemala og haft var samband við sendiherra Guatemala í Washington og bandaríska sendiherrann í Guatemala. Leit hófst á þriðjudag Ágúst segir að leitin hafi ekki hafíst af fullum krafti fyrr en á þriðjudag. Kallaðar voru út hersveitir á mánudag og viðbótarhersveitir og þyrlusveitir á þriðjudag. Þyrlur flugu yfír svæðið, einkum í þeim tilgangi að Einar heyrði í þeim og vissi þá af því að leit væri í gangi. Ágúst segir að Einar hafi orðið var við þyrlurnar og haldið áfram kyrru fyrir. „Hann fannst síðan eftir hádegi á þriðjudag og hafði þá verið þijá sólarhringa í skóginum. Hann fékk strax aðhlynningu og var fluttur í nálæga borg. Síðan var flogið með hann til Guatemalaborgar og gekkst hann undir læknisskoðun þar. Hann flýgur síðan ásamt Sveini Björnssyni til Bandaríkjanna og þaðan til íslands þegar fyrir liggur að hann sé nægilega heill heilsu til að þola þann flutning,“ sagði Ágúst. Sjö ára sótti dúkkukerru og setti bíl af stað Siglufirði. Morgunblaðið. MANNLAUS bíll fór af stað um hádegisbil í gær og rann um 100 metra eftir Laugaveginum á Siglufirði og endaði ferðina á hvolfí ofan í garði við íbúðarhús. Ekki urðu slys á fólki en nokkrir krakkar voru að leik þarna hjá. Tildrögin voru þau að sjö ára dóttir eigandans hafði farið inn i bflinn til að ná í dúkkukerru sem þar var og sennilega rekið kerruna í gírstöng bflsins þannig að hann hrökk í frígír með fyrrgreindum afieiðingum. Bifreiðin, sem er af gerðinni Toyota Hilux, er talin ónýt eftir óhappið. Einnig brotnaði girð- ing sem bfllinn fór í gegnum áð- ur en honum hvolfdi. Moi-gunblaðið/Sigrfður Ingvarsdóttir Frosti hf., Miðfell hf. og Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal Hluthafar samþykkja sam- einingu fyrirtækjanna ísafirði. Morgunblaðið. Á HLUTHAFAFUNDI sem hald- inn var í Frosta hf. í Súðavík á þriðjudag var sameining fyrirtæk- isins við Miðfell hf. og Hraðfrysti- húsið hf. í Hnífsdal samþykkt sam- hljóða. I gærdag var einnig leitað afstöðu hluthafa tveggja síðar- nefndu fyrirtækjanna til samein- ingarinnar og var hún samþykkt samkvæmt upplýsingum blaðsins. Þar með hafa samþykktir stjórna fyi-irtækjanna frá því í vor um sameiningu fyrirtækjanna verið staðfestar og þau þvi verið rekin sem eitt frá 1. maí sl. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins munu hluthafar í Frosta hf. Hlutur Frosta rúm 41% og hinna rúm 58% eignast 41,6% hlut í hinu nýja fyr- irtæki og hluthafar í Miðfelli og Hraðfrystihúsinu 58,4%. Hið nýja fyrirtæki verður rekið undir nafni Hraðfrystihússins hf. og mun Kon- ráð Jakobsson, núverandi fram- kvæmdastjóri þess, gegna stöðu framkvæmdastjóra nýja fyrirtæk- isins. Óvíst er á þessari stundu hverjir munu gegna öðrum stjórn- unarstöðum í fyrirtækinu. Hið sameinaða fyrirtæki verður annað stærsta sjávarútvegsfyrir- tækið á Vestfjörðum með um sjö þúsund þorskígildistonna kvóta og veltu upp á rúma tvo milljarða á ári. Fyrirtækið hefur yfir að ráða þremur skipum, ísfísktogaranum Páli Pálssyni og frystitogurunum Bessa og Andey. I Súðavík á fyrir- tækið eina fullkomnustu rækju- verksmiðju landsins og í Hnífsdal er fullkomin bolfiskvinnsla. Þá á fyrirtækið mjölvinnslu til jafns við Ishúsfélag ísfirðinga hf. Lenti á einum hreyfli Áfyllingar- lok fyrir ol- íu var laust VTÐVÖRUNARLJÓS um lág- an olíuþrýsting á vinstri hreyfli kviknaði við brottfór TF-ELK, ICB-700, flugvélar íslandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli um kl. 8.09 í gærmorgun. Flugvélin sneri til baka og kom í ljós við skoðun að áfyllingarlok fyrir ol- íu var laust. Sigfús Sigfússon, markaðs- stjóri, sagði að flugstjórinn hefði brugðist við með því að slökkva ó hreyflinum í um 400 feta hæð og gefa flugturni til- kynningu um að hann hygðist koma aftur inn til lendingar þegar viðbúnaður væri til taks. Lendingin var með eðlileg- um hætti og var vélin þegar tekin til skoðunar. í ljós kom að áfyllingarlok fyrir olíu var laust og hafði nokkur olía lekið út. Eftir að bætt hafði verið á olíu og hreyfillinn reyndur fannst ekkert athugavert við flugvélina og var hún því tekin í notkun á ný. Allir héldu áfram Sigfús sagði aðspurður að flugvél væri fullkomlega örugg á einum hreyfli og farþegar fyndu ekki muninn. Enginn hefði orðið skelkaður og allir haldið til Alrureyrar á ný eftir um 45 mínútna töf. TF-ELK er 46 manna farþegaflugvél. Nýir menn í stjorn Flug- félags fslands NÝIR menn hafa verið skipaðir í stjórn Flugfélags íslands í kjölfar úrskurðar áfrýjunar- nefndar samkeppnismála um að rjúfa tengsl stjórnenda Flug- leiða við Flugfélag íslands. í nýju stjórninni eru fjórir starfsmenn Flugfélags ís- lands. í aðalstjórn eru Sigurð- ur Aðalsteinsson formaður, en hann er flugrekstrarstjóri fé- lagsins, Páll Halldórsson fram- kvæmdastjóri og Hlynur Elís- son fjármálastjóri. í varastjórn sitja Thor Ólafsson, sölu- og markaðsstjóri, og Torfi Gunn- laugsson, starfsmaður Flug- málastjórnar á Akureyri. Þessi stjórn var kjörin á hluthafa- fundi félagsins í síðustu viku. Áður sátu í aðalstjórn þeir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Halldór Vilhjálms- son, framkvæmdastjóri fjár- málasviðs, og Halldór Halldórs- son, stjórnarmaður hjá Flug- leiðum. Ákveðið hefur verið að skjóta niðurstöðu áfrýjunar- nefndar samkeppnismála til dómstóla. Lögreglu- menn lentu í sjonum SJÖ félagar í sérsveit lögregl- unnar lentu í sjónum skammt frá Saltvík í gær þegar gúmbát- ur sem þeir voru á hvolfdi. Einn mannanna saup talsverðan sjó en þeii' björguðust allir um borð aftur í aðra gúmbáta sem voru á svæðinu. Mennirnir voru vel útbúnir, með björgunarbelti og hjálma á höfði, en voru ekki í blautbún- ingum. Óhappið varð um miðj- an dag í gær þegar sérsveitin æfði meðferð gúmbáta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.