Morgunblaðið - 07.08.1997, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Nýtt punktakerfi vegna umferðarlagabrota tekur gildi 15. september:
RÉTT skal vera rétt, sýsli minn. Það var ég sem fann upp punktakerfið, góði.
Sýningu
frá Everest
að ljúka
LJÓSMYNDASÝNINGU um
ferð þeirra Björns Ólafssonar,
Einars K. Stefánssonar og
Hallgríms Magnússonar á tind
Everest, hæsta fjalls heims,
lýkur á morgun. Sýningin,
sem er í anddyri Morgunblaðs-
hússins, Kringlunni 1, hefur
verið vel sótt og fengið já-
kvæða umfjöllun.
Ljósmyndirnar sýna m.a.
ferð þeirra félaga á tindinn
21. maí sl., aðdraganda ferð-
arinnar og heimkomu. Einnig
er hluti búnaðar þeirra til sýn-
is, eins og tjald, súrefnisgrím-
ur, eldunarbúnaður, fatnaður
o.fl.
Morgunblaðið flutti í vor
ítarlegar fréttir af baráttu
fjallgöngumannanna við Ever-
est, en blaðið var í stöðugu
símasambandi við þá í gegnum
gervihnött. Auk þess sendu
þeir heim daglega pistla í
gegnum alnetið þar sem þeir
röktu gang mála.
Fjallgöngugarparnir og að-
stoðarmenn þeirra, Hörður
Magnússon og Jón Þór Víg-
lundsson kvikmyndatökumað-
ur, þurftu að yfirstíga marg-
víslega erfiðleika áður en þeir
náðu markmiði sínu. Þrálátt
kvef gerði þeim lífið leitt.
Hluti búnaðarins kom of seint
á staðinn. Þeir lentu í erfið-
leikum með súrefnistækin.
Erfiðast viðureignar var þó
veðrið, en slæmt veður olli því
að þeir þurftu að bíða aðgerð-
arlausir dögum saman. Þegar
þeir lögðu í síðasta áfangann
á tindinn urðu þeir að snúa
við vegna slæms skyggnis og
hvassviðris. Daginn eftir var
varla stætt í efstu tjaldbúðum,
en með þrautseigju og dugn-
aði náðu þeir á toppinn eftir
13 tíma göngu.
Sýningunni í Morgunblaðs-
húsinu lýkur kl. 18 á morgun.
Morgunblaðið/Bjöm Ólafsson
SÍÐASTI þröskuldurinn á tind Everest er Hillary-þrepið, kennt
við Edmund Hillary, sem fyrstur kleif tindinn.
„Tveir fyrir einn“ tilboð Flugleiða
Sætum bætt við vegria
mikillar sölu
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að
bæta við nokkur hundruð sætum
í ferðatilboðið „tveir fyrir einn“ til
Bandaríkjanna sem gildir fyrir
ferðir þangað á tímabilinu 15. sept-
ember til 30. nóvember, miðað við
síðustu heimferð 10. desember.
Boðin voru í fyrstu þtjú þúsund
sæti til þeirra fimm borga í Banda-
ríkjunum sem Flugleiðir fljúga til
og voru aðeins örfá óseld í gær
eftir tveggja daga sölu. Tilboðið
er bundið við að tveir ferðist sam-
an og greiðir þá annar þeirra fullt
almennt fargjald en hinn ekkert.
Sé fargjaldinu deilt á tvo má sem
dæmi nefna að farmiði milli Kefla-
víkur og New York kostar þá á
mann 23.720 kr., með flugvalla-
sköttum, eða 25.970 kr.
Tónlistarkeppni Ríkisútvarpsins
Vildum opna gáttir
SENN líður að því að
úrslit ráðist í Tón-
Vakanum, tónlist-
arkeppni Ríkisútvarpsins,
en fimm keppendur eru
eftir af sautján, sem hófu
keppni í vor. Þessi fimm
eru Ásgerður Júníusdótt-
ir, messósópran úr
Reykjavík, Peter Tompk-
ins, óbóleikari úr
Garðabæ, Þórunn Ósk
Marínósdóttir, víóluleikari
frá Akureyri, W. Keith
Reed, baríton frá Egils-
stöðum, og Þórunn Stef-
ánsdóttir, messósópran úr
Hafnarfirði. TónVakinn
skiptist í þrjá hluta og
verður síðasta hlutanum
útvarpað á Rás eitt 9., 10.
og 16. ágúst. Sigurvegar-
inn heldur tónleika í útvarps-
húsinu við Efstaleiti sunnudag-
inn 17. ágúst og kemur að auki
fram með Sinfóníuhljómsveit-
inni á tónleikum 30. október
næstkomandi. Guðmundur Em-
ilsson, tónlistarráðunautur Rík-
isútvarpsins, hefur annast
framkvæmd keppninnar frá
upphafi, en hún hóf göngu sína
árið 1992.
En hvaða tilgangi þjónar
keppni á borð við TónVakann?
Að mati Guðmundar skorti vett-
vang fyrir óþekkt tónlistarfólk
til að láta til sín taka svo alþjóð
vissi af. „Við hjá RÚV vildum
opna gáttir til að efnilegt tón-
listarfólk ætti greiðari aðgang
að okkur og þar með þjóðinni.
Það er víða afburðafólk við nám
og störf úti á landi og í útlönd-
um, sem lítið ber á. Þó alltaf
megi deila um keppni í listgrein-
um, var það þetta sem kveikti
í okkur, og ef marka má við-
brögðin frá upphafi er keppni
af þessu tagi af hinu góða. En
þetta er ekki eingöngu spurning
um keppnina sem slíka, heldur
ýmislegt í kringum hana sem
hefur áhrif á samfélagið. Til
dæmis nefni ég að Miklos
Dalmay, sem sigraði í fyrra og
starfar á Flúðum, er að margra
mati orðinn einn af menningar-
oddvitum Árnessýslu. Þeir sem
komist hafa í úrslit keppninnar
hafa jafnan hlotið ýmiss konar
menningarstyrki og uppörvun
frá sveitungum sínum; bæjum,
borg og ríki.
Enn fremur er unnið starf á
sviði tónvísindanna í tengslum
við TónVakann. í reglum
keppninnar segir að þriðjungur
efnisskrár skuli vera eftir núlif-
andi íslenskt tónskáld. Þetta
hefur orðið til þess að tónlistar-
menn hafa dregið fram í dags-
ljósið tónverk sem annars hefðu
kannski legið óhreyfð. Svo er
líka nokkuð um það að pöntuð
séu ný verk frá tónskáldum til
flutnings; keppnin hefur því
hvetjandi áhrif á tónskáldin
okkar.“
- Hefurðu merkt einhverja
þróun í keppninni undanfarin
ár? _________
„Já, framganga
listamannanna finnst
mér einkennast af
meiri fagmennsku,
allt frá því sótt er um
þátttöku og til loka.
Fólk gerir sér grein fyrir því
að samkeppnin er mikil og að
hvert smáatriði getur skipt
sköpum, hvort heldur það er
uppröðun á efnisskrá, val á
meðleikara eða sviðsframkoma
svo ekki sé talað um sjálfan
tónlistarflutninginn. Ég heyri
líka að keppendur gera sér æ
betur grein fyrir mikilvægi sam-
Guðmundur Emilsson
► Guðmundur Emilsson
hljómsveitarstjóri er fæddur
árið 1951 í Reykjavík. Hann
lauk tónmenntakennaraprófi
frá Tónlistarskólanum í
Reylqavík árið 1971 og BM-
gráðu frá tónmenntadeild East-
man School of Music, Univers-
ity of Rochester í New York
árið 1975. Frá tónvísindadeild
sama skóla lauk Guðmundur
síðan MM-gráðu árið 1979 og
enn síðar doktorsprófi í kór-,
óperu- og hljómsveitarstjórn
við Indiana University í Bloom-
ington í Indiana. Doktorsrit-
gerð Guðmundar fjallar um
pólska samtímatónskáldið
Penderecki. Guðmundur á þeg-
ar að baki langan starfsferil,
bæði sem fjölmiðlamaður,
kennari og hljómsveitarstjóri,
hér á landi og í útlöndum. Hann
var stofnandi og framkvæmda-
stjóri íslensku hljómsveitarinn-
ar frá 1981 og tónlistarstjóri
RÚV frá 1989. Guðmundur hef-
ur staðið fyrir ýmsum tónlistar-
viðburðum á vegum RÚV, eins
og RúRek-djasshátíðinni, Nord-
Sol tónlistarkeppninni, ísMús
tónmenntadögunum og Tón-
Vakanum, og hefur hvatt til
mjög aukinna samskipta við
erlendar útvarpsstöðvar. Guð-
mundur er kvæntur Valgerði
Jónsdóttur músikþerapista og
eiga þau tvö börn, Jón Emil
tólf ára og Álfheiði Erlu þriggja
ára.
Fagmennska
keppenda
eykst með
ári hverju
spils meðleikara og þeirra
sjálfra sem aftur má rekja til
aukinnar tónlistarkennslu í
landinu.“
- Hvernig er framkvæmd
keppninnar háttað í megindrátt-
um?
„í fyrsta hluta keppninnar
berast okkur heimatilbúin hljóð-
rit keppenda, sem gefa til kynna
í stórum dráttum hvort viðkom-
andi er hæfur til þátttöku. Þessi
hluti er öllum opinn og engin
aldurstakmörk. Við höfum vilj-
andi reynt að hafa keppnina
eins opna og hugsanlegt er til
að hvetja sem flesta til þátt-
töku. Þegar búið er að dæma
________ frammistöðu hvers og
eins hefjast bréfa-
skriftir um það sem
mætti verða tónlistar-
mönnunum til fram-
dráttar í öðrum hluta
“ keppninnar. Þá er
dómnefnd kölluð til, en höfð að
tjaldabaki meðan keppendur
flytja efnisskrár sínar. Þeir sem
komast í þriðja áfanga flytja
hins vegar efnisskrár sínar fyrir
dómnefnd í sal. Við höfum mik-
il samskipti við keppendur og
reynum að vaka yfir þeim til
að koma í veg fyrir augljós mis-
tök.“