Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 23 ERLENT STÉLHLUTI vélarinnar var heillegur eftir en búkurinn brotnaði í sex hluta og brann að mestu. Reuter BJÖRGUNARMENN bera lík fólks sem fórst með vélinni. GUAM GUAiy!/- ^Seoul SUÐUR - KÓREA Boeing 747-300 þota KAL var afhent flugfélaginu í desember 1984 og hafði flogið tæplega 50 þúsund stundir í tæplega 8500 flugferðum. KYRRA Korean Air Lmes Boeing 747-300 FILIPPSEYJAR w1 1.500 km Dededo—^ Agana -V-T' Y- *• "v- Þotan fórst í vonskuveðri, rigningu og þoku, og rakst á olíuleiðslu þegar hún kom niður ekki fjarri þéttbýlasta hluta eyjarinnar Guam. Guam er bandarískt yfirráðasvæði og 450 ferkílómetrar að stærð. Höfuðborgin er Agana. íbúar eru alls rúmlega 132 þúsund, flestir bandarískir ríkisborgarar. Eyjan er vinsæll ferðamannastaður. REUTERS Talofofo ®-y Slysstaðurinn um það bil fimm kílómetra frá alþjóðaflugvellinum á Guam Slysatíðni hjá KAL þykir tiltölulega há Seoul. Reuter. FLUGSLYSIÐ á Guam, þegar rúm- lega 200 manns fórust með Boeing 747-300 þotu suður-kóreska flugfé- lagsins Korean Air Lines (KAL), var fyrsta slys sem verður í flugi á vegum KAL síðan 1989. Slysatíðni hjá flugfélaginu er álitin tiltölulega há. Marty Salfen, varaformaður Al- þjóðasamtaka flugfarþega, segir að slysatíðnin hjá KAL sé 1,91 á hverja milljón brottfara. Meðaltalið í heim- inum er 0,581 á hverja milljón brottfara. Flugfélagið veitir engar upplýsingar um slysatíðni. í tölum þeim, er Salfen, nefnir er ekki tek- ið með í reikninginn þegar Boeing 747 þota KAL var skotin niður af rússneskum herþotum 1983 og allir sem um borð voru, 269 manns, fór- ust. Nokkrum klukkustundum eftir að Boeing vél félagsins fórst á Guam sneri Airbus A300 vél félags- ins við 20 mínútum eftir flugtak frá Kansaiflugvelli við Osaka í Japan þegar vart varð vélartruflana. Síðast varð slys í flugi á vegum KAL 27. júlí 1989 þegar McDonn- ell Douglas DC-10 þota félagsins með 199 manns innanborðs brot- lenti nærri flugvellinum í Trípólí í svartaþoku. 80 fórust, þar af nokkr- ir sem voru á jörðu niðri, og 70 slösuðust. Yfirvöld í Suður-Kóreu komust að þeirri niðurstöðu að áhöfn vélarinnar hefði orðið á „skelfileg mistök" og virt að vett- ugi þijár aðvaranir áður en vélin brotlenti. Flugstjórinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Talsmaður fjármálafyrirtækis, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði í gær að slysið á Guam myndi skaða ímynd flugfélagsins. „Korean Air er þekkt meðal farþega erlend- is sem eitt af hættulegri flugfélög- um.“ Fulltrúi flugfélagsins sagði að orðspor þess hefði verið svert á ósanngjarnan hátt. Undangengin slys hafi átt sér pólitískar rætur. Af 10 stærstu slysum sem orðið hafa í flugi á vegum KAL frá því 1969 tengjast fimm hermdarverk- um af hálfu Norður-Kóreu eða flugi inn á rússneskt yfirráðasvæði. Ekki er enn Ijóst hverjar orsakir slyssins á Guam eru. Sérfræðingar í fjármálaviðskiptum fullyrða að farþegar muni halda tryggð við KAL. „Suður-kóreskir ferðamenn eru ekki líklegir til að snúa sér til erlendra flugfélaga. Þeir vilja nota félög frá Suður-Kóreu vegna tungumálsins og kunnuglegrar þjónustu.“ „Þá kom hvellur og vélin rakst í jörðina“ Seoul. Reuter. Gerry Adams hittir Mo Mowlam Bretar fari frá N or ður-Irlandi Belfast. Reuter. HONG Hyon-song, 35 ára gam- all Suður-Kóreumaður, komst lífs af úr slysinu. I viðtali við suður-kóreska sjónvarpsstöð lýsti hann því hvernig hann hjálpaði illa brenndri konu út úr flaki vélarinnar áður en hann forðaði sér sjálfur, og hvernig eldur og reykur kom í veg fyrir að hann gæti hjálpað fleirum. „Ég ætlaði að flýta mér út úr vélinni, hræddur um að hún myndi springa í loft upp, en þá fann ég að einhver tók í fótinn á mér,“ sagði Hong. „Það var algert myrkur en ég áttaði mig á því að þetta var kona. Ég tók í hendurnar á henni, fór út og ýtti trjágreinum frá.“ Hong sagði að skrokkur vél- arinnar hefði rifnað beint fyrir ofan sæti hans í röð þijú. „Eg var heppinn. Ég er bara dálítið marinn á bijósti en annars er ég í lagi.“ Hann sagði að konan, sem hann dró út úr flakinu, hafi ver- ið illa brunnin og mátt bíða í myrkri í fulla klukkustund áður en henni var komið til bjargar. Sagðist hann hafa kveikt í fatadruslum og veifað til þess að vekja athygli manna á björg- unarþyrlum. Hong sagði að slösuð flug- freyja hefði beðið sig að fara aftur að flakinu og hjálpa fleir- um út. „Ég æpti inn í flakið hvort einhver væri þar og börn kölluðu á hjálp. Ég spurði hve mörg og þau sögðu fjögur. Það var hræði- legt en ég gat ekki farið inn í flakið aftur vegna þess að sprengingar inni í því kveiktu elda.“ Hong sagði að farþegum hafi ekki verið tilkynnt umað neitt væri að í aðfluginu. „Eg er viss um að ég fann þegar lend- ingarhjólin voru sett niður. Ég hélt að vélin væri að fara út af brautinni út í grasið umhverfis. En þegar ég leit út sá ég tré fara fram hjá glugganum. Síðan kom skyndilega hvellur og vélin rakst í jörðina." Njósnavél- ar en ekki geimverur Washington. Reuter. BANDARÍSKIR embættis- menn fóru með skipulagðar lygar til þess að geta gefið sennilegar skýringar á því sem margir töldu vera fljúgandi furðuhluti, þegar kalda stríðið stóð sem hæst, að því er banda- ríska leyniþjónustan, CIA, greindi frá fyrir skemmstu. Athuganir, sem gerðar hafa verið á vegum CIA leiða nú í ljós í fyrsta skipti, að banda- ríska stjórnin sló ryki í augu almennings hvað þetta varðar. Fram kemur að flestar þær til- kynningar sem bárust um að fólk hefði séð fljúgandi furðu- hlut hafi átt sér þær forsendur að sést hafi til njósnaflugvéla Bandaríkjahers, U-2 og SR-71 Blackbird, sem voru háleynileg vopn á þeim tíma. Frekar en að gera uppskátt um tilvist þessara flugvéla kom herinn af stað sögusögnum, segir í niðurstöðum athugana CIA. GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein, stjómmálaflokks írska lýðveldis- hersins (IRA), ræddi í gær í fyrsta sinn við Mo Mowlam, sem fer með málefni Norður-írlands í stjórn breska Verkamannaflokksins. Hann hvatti stjórnina til þess að beita sér fyrir samkomulagi um að endi yrði bundinn á bresk yfirráð yfir Norður-írlandi. „Sinn Fein kemur til viðræðn- anna sem flokkur írskra lýðveldis- sinna er ieitast við að ná fram því markmiði þjóðernissinna að binda enda á bresk yfirráð á írlandi," sagði Adams við Mowlam á fyrsta fundi þeirra eftir að IRA lýsti yfir vopnahléi að nýju 20. júlí. „Þótt ég fagni Mowlam sem fyrstu konunni í þessu ráðherraembætti vonast ég til að hún verði sú síðasta.“ Adams hvatti stjórn Verka- mannaflokksins til að fá mótmæl- endur, sem eru 60% íbúa Norður- írlands, til að fallast á endursamein- ingu írlands. Bresk og írsk stjórn- völd hafa sagt að ekki verði hægt að breyta stöðu Norður-írlands nema meirihluti íbúanna samþykki það. Adams sagði hins vegar að íbúar írsku eyjunnar allrar ættu að taka ákvörðun um framtíð Norður- írlands. Mowlam sagði að Sinn Fein fengi að taka þátt í friðarviðræðunum, sem eiga að hefjast í næsta mán- uði, ef IRA stæði við vopnahlésyfir- lýsingu sína. Hún bætti við að breska stjórnin vildi að IRA og hreyfingar mótmælenda létu vopn sín af hendi áður en viðræðunum lyki. Adam tók hins vegar skýrt fram að IRA myndi ekki fallast á afvopn- un fyrr en samkomulag næðist um sameiningu írlands. VFNFIRÐINGAR ÚTSALAN HELDUR ÁFRAMl uÁAnAmiAm 20-50% AFSLATTUR 3i NAGRANNAR! adidas
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.