Morgunblaðið - 07.08.1997, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
verkið alltaf aftur eins og sagan
er til vitnis um. Það er mikið verk
framundan, við að veita blóði, tár-
um og svita inn í íslenzkt sýningar-
líf, sem er að verða að lognmollu
síbyljunnar, gerist ekki með orð-
ræðu, orðgjálfri og fundahöldum
heldur með því að taka hraustlega
á verki, samræðan er svo lífrænust
á sjálfum myndfletinum.
Það sem ber helst að biðja um
eru svipmiklar blóðríkar athafnir
er rumska við fólki, vekja upp
áleitna forvitni og beina því í aukn-
um mæli inn í listhús og listasöfn
borgarinnar. Og ekki stundinni
lengur því lífsnauðsyn krefur.
Bragi Ásgeirsson
Djass á
Blúsbarnum
GUNNLAUGUR Guðmundsson og
Agnar Már Magnússon leika djass
á Blúsbarnum í kvöld, fimmtudag.
Þeir eru báðir við nám í djassfræð-
um í Hollandi, Gunnlaugur á
kontrabassa í Konunglega Konser-
vatoríinu í Haag en Agnar í Tónlist-
arháskólanum í Hilversum. Á efnis-
skránni verða lög eftir Kern,
Hammestein og Rowles. Leikur
þeirra hefst kl. 22.
Ljós og láð í
Lundi,
Varmahlíð
LJÓS og láð er yfirskrift á sýningu
Guðmundar Ármanns, sem opnuð
verður í ASH galleríinu, Lundi,
Varmahlíð, á morgun, föstudag, kl.
U.
Á sýningunni eru átta tréristur,
sem eru allar unnar á þessu ári og
eru þær þrykktar í tveimur til sex
litum, frá einu og upp í þrjú eintök.
Þema sýningarinnar er landslagið.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 10-18 og stendur til 24. ágúst.
Matthíasdóttir með heilan vegg (og
hrifmikinn), en hins vegar eru
flestir aðrir kynntir með einni til
þrem myndum, en oftast tveim,
þar á meðal Ásgrímur og Jón Stef-
ánsson. Á suðurvegg rýfur mál-
verk Hauks Dórs allt samhengi því
hann er af annarri og yngri kyn-
slóð en Svavar, Kristján Davíðsson
og Steinþór Sigurðsson við hliðina,
auk þess sem málunarmátinn
stingur mjög í stúf við hinar mynd-
irnar, er hvassari, hrárri og ógn-
þrungnari. Myndir SUM kynslóð-
arinnar njóta sín engan veginn á
móti hinni risastóru ógnvægu
myndasöguflóru Errós, sem geng-
ur með sprengikrafti yfir þvert
tengirýmið.
Fingurbrjótamir í upphenging-
unni eru þannig margir, en á móti
kemur að innan um er margt gull-
fallegra mynda og sumar hefur
maður ekki séð í háa herrans tíð.
Ættu þó á einhvern hátt að vera
Vilt þú heiðra Ivar
Eskeland sjötugan?
I tilefni sjötugsafrnælis Ivars Eskelands hinn 30. nóvember næstkomandi
gefur Det Norske Samlaget út bók með úrvali greina (káseria) sem Ivar hefúr
skrifað undanfama tvo áratugi. Sumar greinamar hafa áður birst á prenti, en
aðrar hafa ekki birst áður. Bókin hefur hlotið nafhið Norska þjóðarsálin.
Þeir, sem vilja heiðra Ivar sjötugan geta gerst áskrifendur að bókinni og verða
nöfn þeirra birt í Tabula Gratulatoria í bókinni.
Áskrifendur fá bókina á NOK 160 (burðargjald innifalið).
Verð í bókaverslunum verður NOK 248. Svarfrestur er til 15. ágúst.
ÞEIR SEMAHUGA HAFA VINSAMLEGA FYLLIEFTIRFARANDI ÚT
MEÐ HASTÖFUM:
--------------------------------------
JA, ég vil heiðra Ivar Eskeland sjötugan og panta hér með ...
eintök af bókinni Norska þjóöarsálin á NOK160, buröargjald er innifaliö.
Nafn:
Heimili:
Póstnr./staður:
Undirskrift:
Sendlst tpústi eða sem simbréf tll: Det Norske Samlaget, v/Nina Tandberg,
4672 Solienberg, 0506 Ósló, Noregi. Fax: 0047 2268 7502. Slmi 00 47 2268 7600.
Elnnlg má hafa samband vlð skrifstofu Norræna hússlns I Reykþvlk. Slmi 5517030.
Fax 552 6476.
Sumarsýning
Kjarvalsstaða
SJÓNMENNTIR
Kjarvalsstaöir
ÍSLENZK MYNDLIST
VESTURSALUR/GANG-
UR/TENGIRÝMI
Opið alla daga frá kl. 10-18. Til 31.
ágúst. Aðgangur 300 krónur.
EINS og telja má rétt og eðli-
legt yfir sumartímann hefur allt
rými Kjarvalsstaða verið undirlagt
framkvæmd sem skarar íslenzka
myndlist, allt frá upphafi aldarinn-
ar til nútímans. Framkvæmdinni
er skipt í tvo afmarkaða hluta,
vestri helmingur hússins ásamt
tengirými markar yfirlit fram til
SÚM hópsins, en eystri helmingur
er tileinkaður yngri kynslóð. Þeim
hluta mun Hulda Ágústsdóttir
væntanlega gera skil.
Það gefur auga leið, að allar
slíkar framkvæmdir eru afar þýð-
ingarmiklar, þar sem um er að
ræða kynningu íslenzkrar listar
yfir ferðamannatímabilið, og skipt-
ir öllu að gengið sé hreint og af-
dráttarlaust til verks. Einkum í
ljósi þess að telja má að útlendir
nálgast þær með galopin augu og
dijúgri eftirvæntingu. En fljótlega
verður ljóst við skoðun úrtaksins,
að þótt sýningin standi óvéfengjan-
lega undir nafni sem íslenzk mynd-
list, að því leyti að hún er gerð
af listamönnum með íslenskt ríkis-
fang upp á vasann, er hér mun
frekar um handhófskennt dreifsýn-
ishorn að ræða en sannferðugt
yfirlit yfir það sem gerst hefur
innanlands. Ber mun meira svip
af hentisemi sýningarstjóra, en að
farið sé af hlutlægni í saumana á
þróuninni. Slíkar framkvæmdir eru
auðvitað fullgildar innan vissra
marka, en viðkomandi sýningar-
stjórar verða þá að koma til dyra
eins og þeir eru klæddir, standa
einarðlega að baki vali sínu og
skoðunum.
Hér er sá annmarkinn, að
gesturinn fær engar upplýsingar
milli handanna, engin sýningar-
skrá liggur frammi né fróðleikur
um einstaka listamenn né hvernig
staðið var að vali myndverkanna,
og þannig engar heimildir fyrir
framtíðina. Flestir útlendir koma
á staðinn alls ófróðir um íslenzka
myndlist, og þótt fáanlegt sé mikið
magn bóka í sölubúð kemur það
sýningunni sjálfri lítið við, enda
hefur skilvirk íslenzk sjónlistar-
saga frá upphafí til nútímans ekki
enn litið dagsins ljós. Hlýtur að
vera skylt að setja stórfram-
kvæmdir sem slíkar á þann veg
fram, að gesturinn velkist ekki í
vafa um að hveiju hann gengur,
þannig að hann fari ekki af vett-
vangi með ranghugmyndir um ís-
lenzka myndlist vegna ónógra upp-
lýsinga og hlutdrægs sögumats.
Það má nú einmitt gera ráð fyr-
ir að gesturinn geri, í ljósi þess
hve margt vantar í þessa saman-
tekt, auk þess að ófróður nær
naumast að átta sig á að hér er
um að ræða sérskoðanir, markaðs-
og óskhyggju fyrri sýningarstjóra.
Það er ekki aðeins, að margir
mikilvirkir listmenn hafa með öllu
verið sniðgengnir og upphengingin
sé á þann veg að drjúga athygli
hefur vakið, í senn ruglingsleg og
hlutdræg. Þá má alls ekki fara að
fara með málverk eins og gert er
á milliveggjum í tengirými, þar
sem þau njóta sín engan veginn,
auk þess sem bein sólarbirta á
myndverk skaðar þau einkum í
gegnum rúðugler, leysir upp litina,
þannig að jaðrar við skemmdar-
verk að hafa þau þar óvarin. Þeg-
ar gengið er inn í vestursal blasa
við heil ellefu málverk Kjarvals,
sem öll hafa verið sýnd endurtekið
á undanförnum árum, en er auðvit-
að í himnalagi er ókunnuga ber
að. Hins vegar vekur sú árátta
furðu að sumir virðast þurfa meira
rými og fleiri verk en aðrir á sam-
sýningum sem slíkum, sem ætti
frekar að vera öfugt í ljósi meintra
yfirburða þeirra. Má segja að þeir
séu mættir til myndræns pataldurs
með ofurefli liðs, þannig er Louisa
aðgengilegar allt árið því útlendir
eiga leið hér um á öllum árstíðum
og uppeldisgildi þeirra fyrir ungu
kynslóðina mikið. Undarlegt er oft
metnaðarleysið og tregðan þegar
um málverk á sígildum grunni er
að ræða, einkum er eldri kynslóðir
eiga í hlut og ekki skil ég hvernig
staðið er að kynningu verkanna
að Kjarvalsstöðum í ljósi heilsíðu-
greinar í Menningarblaðinu á dög-
unum. Núlistaskólar tímanna
kenna ekki að lesa í málverk, en
hér er um mikið og vandasmt verk
að ræða en ekkert sem hægt er
að hafa í flimtingum. Mikill mis-
skilningur að ein kynslóð geti úr-
kynjað það sem árþúsundir hefur
tekið að þróa, enda kemur mál-
Síðasta
sýning á
Hótel Heklu
í OPNU húsi í Norræna húsinu
í kvöld, fimmtudag, kl. 20,
verður þriðja og síðasta sýning
á leikþættinum Hótel Heklu,
sem leikhópurinn Fljúgandi
diskar hefur flutt.
Leikendur eru Þórey Sig-
þórsdóttir og Hinrik Ólafsson,
leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir
og Áslaug Leifsdóttir er útlits-
hönnuður sýningarinnar. Ylva
Hellerud hefur gert sænska
þýðingu. Söguþráðurinn er
byggður á 16 íslenskum ljóðum
sem eru ofin inn í spennandi
sögu, þar sem veruleiki og
draumur renna saman.
Linda Vilhjálmsdóttir og
Anton Helgi Jónsson sömdu
söguna í kringum ljóðin, sem
eru meðal annars eftir Sjón,
Diddu, Sigfús Daðason og
Steinunni Sigurðardóttur.
Kaffistofa Norræna hússins
býður upp á íslenska sérrétti
og er opið í kaffistofunni til
kl. 22.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.