Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 37

Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 37 MINNINGAR STEINUNN FINNBOGADÓTTIR + Steinunn Finn- bogadóttir var fædd 19. júlí 1916 á Stapa í Tálknafirði og lést að heimili sínu Eyrarhúsum, Tálknafirði 28. júlí 1997. Foreldrar Steinunnar voru hjónin Helgi Finn- bogi Guðmundsson bóndi f. 21.6. 1879, d. 3.5. 1923 og Vig- dís Helga Guð- mundsdóttir, f. 4.1. 1887, d. 14.8. 1983. Börn þeirra voru átta, auk Steinunnar þau Krist- ín, f. 14.10. 1909, Olafur, f. 31.10. 1910, Andrés Þorbjörn, f. 19.12. 1911, Sigurður, f. 19.9. 1913, Guðmundur, f. 16.12. 1914, Guðmunda, f. 19.6. 1918 og Bjarni Hermann, f. 27.7. 1920. Tvö hálfsystkini, börn Finnboga, voru María Petrína, f. 28.11. 1898 og Finnbogi, f. 5.11. 1897. Þijú systkinanna eru á lífi, Kristín, Andrés og Bjarni Hermann. Fóstursystkini Steinunnar á Suðureyri við Tálknafjörð, börn Gróu Indriðadóttur og Jóns Jónsens, voru Jóna Þórdís, Guðrún, Þórarinn, Margrét, þorleifur, Marta, þórður, Samú- el, Steinunn og Einar. Þrjú þeirra eru á lífi, Margrét, Stein- unn og Einar. Steinunn giftist 18. nóvem- ber 1937 Albert Guðmundssyni kaupfélagsstjóra og bónda, f. 5.11. 1909, d. 24.6. 1967, syni Guðríðar Guðmundsdóttur og Guðmundar Jónssonar bónda á Sveinseyri. Sonur þeirra er Vilhjálmur Auðunn Alberts- son, f. 14.1. 1947, kvæntur Jónínu Haraldsdóttur, f. 30.4. 1948 og eru börn þeirra þijú: 1) Haraldur Þór, f. 13.2. 1974, 2) Kol- brún, f. 27.3. 1976 og 3) Tinna Rós, f. 13.4. 1986. Fóstur- dóttir Steinunnar og Alberts er Ester K. Celin, f. 21.2. 1940, gift Braga Friðfinnssyni, f. 30.7. 1934 og eru þeirra börn fjögur: 1) Albert, f. 26.4. 1962, kvæntur Karin Pedersen, f. 30.10. 1964; þeirra börn eru: Maja Liv, f. 25.9.1992 og Símon Bragi, f. 21.7. 1996; 2) Finnur, f. 2.8. 1969; 3) Stein- unn Braga, f. 4.1. 1968, gift Bryryari Jóhannessyni, f. 10.11. 1963; þeirra börn eru: Hulda Björk, f. 6.8.1985, Viktor Bragi f. 30.10. 1989 og Ester Rós f. 14.4.1996; 4) þórir Karl, f. 25.6. 1971. Steinunn ólst upp á Suður- eyri við Tálknafjörð, stundaði nám við Húsmæðraskólann á ísafirði og bjó með Alberti fyrst á Sveinseyri og síðan á Eyrar- húsum. Eftir lát Alberts gerðist hún ráðskona við mötuneyti Hraðfrystihúss Tálknafjarðar í mörg ár og starfaði á haustin sem kokkur við hótelið í Flóka- lundi. Hún tók mikinn þátt í félagsstörfum og var formaður Kvenfélagsins Hörpu um tvo áratugi. Utför Steinunnar fer fram frá Stóra-Laugardalskirkju í dag klukkan 14.00. Drottning Tálknafjarðar! - Þannig heyrði ég unga maorí-stúlku ávarpa hana á förnum vegi í Reykjavík en sú hafði verið við vinnu vestra um skeið. Hún hafði nokkuð til síns máls. Því þótt Stein- unn Finnbogadóttir hefði ekki auð og völd var hún höfðingi í lund og sópaði að henni heima og heiman og hún réð lengstaf því sem hún vildi ráða. Steinunn fæddist og óx upp fyrstu árin með átta systkinum í Krossadal við Tálknafjörð. Barnung missti hún föður sinn sem drukkn- aði, heimilið leystist upp, móðirin hélt tveim yngstu börnunum, hinum var komið í fóstur og vinnumennsku þeim elstu, um fermingu. Steinunn fór til skyldmenna sinna hinum megin fjarðar, á Suðureyri, Gróu Indriðadóttur og Jóns Jónsen, ólst þar upp í stórum systkinahópi og taldi alla tíð gæfu sína að hafa lifað æskuna þar. Á þessum tíma var mannmargt á Suðureyri, bæði á heimilinu sjálfu og við hvalstöðina þar sem oft voru tugir manna við störf, úr firðinum og aðkomumenn. Ung stúlka stundaði Steinunn tilfallandi vinnu bæði á heimaslóð- um og einnig í Reykjavík, var fyrst í vist og starfaði síðan í mötuneyti og voru kostulegar sögurnar sem hún sagði af þeim vettvangi. Hún nam við Húsmæðraskólann á ísafirði og naut þess enda varð búrekstur og heimilisstjórn aðal- ævistarf hennar. 21 árs giftist hún Albert Guðmundssyni kaupfélags- stjóra og áttu þau fyrst heima á Sveinseyri í sama húsi og foreldrar Alberts en hófu síðan eigin búskap með kindur og kýr að Eyrarhúsum. Á þeim bæ var ærið að starfa, því auk búskaparins hafði Albert í mörg horn að líta sem kaupfélags- stjóri, helsti frammámaður sveitar- innar og aðalhvatamaður að upp- byggingu frystihúss og fiskiðnaðar. Steinunn skipulagði og stóð fyrir veitingum á öllum helstu hátíðum, sundprófinu, íþróttamótinu, afmæli kaupfélagsins og mætti lengi telja. Á Eyrarhúsum var tekið á móti flestum gestum sem erindi áttu í fjörðinn, hvort sem voru opinberir embættismenn, mótframbjóðendur Alberts í kosningum, erindrekar Samvinnuhreyfingarinnar eða þeir sem komu til ýmissa tímabundinna starfa, auk vina og vandamanna. Má segja að heimilið hafi oft verið sem hótel, rekið frá því voraði langt fram á vetur. Alltaf var líka margt í heimili, vinnumenn og auk sonar og fósturdóttur dvöldust mörg börn hjá Steinu og Albert á sumrin, þar á meðal undirrituð í fjölda ára og er eilíflega þakklát að hafa barn eignast yndislegan sumarpabba og sumarmömmu og fullorðin elskaða vinkonu sem aldrei gleymist. Það er ekki ofsagt að Steinunn hafi verið rómuð myndarhúsmóðir og frábær kokkur hvort sem var á eigin heimili eða vinnustað og ham- hleypa til allra verka. Eftir að Al- bert féll frá fyrir aldur fram fór hún að stunda vinnu utan heimilis, gerðist ráðskona í mötuneyti Hrað- frystihúss Tálknafjarðar og kokkur á hótelinu í Flókalundi á haustin í mörg ár auk þess sem sóst var eft- ir henni til að matreiða fyrir vinnu- flokka og standa fyrir veislum. Alls staðar eignaðist hún vini, félags- lynd og kát. Hún var einn aðal- hvatamaður að stofnun Kvenfélags- ins Hörpu í Tálknafírði og formaður þess í tvo áratugi, síðustu árin heið- ursfélagi, en vann þó og var virk í félagsstarfínu eftir sem áður. Margir munu sakna Steinu og myndirnar hrannast upp í minning- unni: Steina í flaksandi víðu pilsi með homaboltahúfu að mála tröppuhandriðið, Steina með snæri og öngul á kústskafti að keppa með yngstu sveitungunum í marhnúta- veiði, Steina með vindilinn í gleð- skap á góðri stundu, Steina að hressa sig á sterku eftir bað í pollin- um um miðja nótt, Steina moldug að laga til í blómabeðunum, Steina brunandi á bílnum upp í þorp í öðr- um, mesta lagi þriðja, Steina með hattinn á leið í kaffihús í Reykja- vík, Steina á kafí í matarvinnslu: Slátur, kæfa, sulta, kökur, - allt fyrir verðandi gesti. Hún lærði aldr- ei að lifa smátt ein á litlu heimili. Til þess var hún of mikill höfðingi og of félagslynd. Þarna var ekki til hálfvelgja: Til- + Þorbjörg Ing- ólfsdóttir fædd- ist á Akranesi 14. desember 1919 og lést á Sjúkrahúsi Akraness 31. júlí sl. Foreldrar hennar voru Ingólfur Sveinsson, bóndi í Múlakoti í Staf- holtstungum, og Ástrós Þorsteins- dóttir frá Dals- mynni í Norðurár- dal. Eiginmaður hennar er Páll Egg- ertsson frá Sólmundarhöfða, Innri-Akraneshreppi. Barn þeirra er Erling Þór, skipstjóri, fæddur 5. nóvember 1953. Eig- inkona Erlings er Jóna Björg Kristinsdóttir og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju í dag klukkan 14. Við fráfall systur minnar, Þorbjargar Ingólfsdóttur, streyma fram minningar og er mér efst í huga sú vin- átta og fómfysi er hún átti í ríkum mæli og ég naut í bemsku og á unglingsárum. Sjálf- sagt hefur verið erfitt að hemja fríska stráka sem höfðu ýmislegt fyrir stafni, t.d. að reyna að ýta árabátn- um hans Odds í Hliði úr vör eða fara í lengri rannsóknarleiðangra um Skagann án þess að tilkynna það sérstaklega. Þetta blessaðist nú allt saman og átti Bogga systir stór- an þátt í því. Bogga og Palli vora samhent og stórhuga þegar þau lögðu upp í þá ferð sem nú er á enda rannin eftir liðlega hálfrar ald- ar samveru. Palli var rétt liðlega tvítugur nýútskrifaður húsasmiður er hann tók að sér stórverkefni fyr- ir Finnboga Guðlaugsson i Borgar- nesi, en það var bygging Bifreiða- og trésmiðju Borgarness og lauk hann því verki á tæpu ári. Síðar tók Palli að sér að reisa súrheysturna fyrir Vestlendinga. Við þessar fram- kvæmdir og síðar, er þau réðust í að byggja nýbýlið Lindás í Innri- Akraneshreppi og byggðu þar upp kjúklinga- og svínabú, sem þau ráku af miklum myndarskap, var hlutur Boggu mikill. Með eljusemi, trú- mennsku og afburða snyrtimennsku vann hún að búi þeirra af mikilli alúð. Á haustdögum árið 1953 kom sólargeisli inn í líf þeirra er Erling Þór fæddist og hefur hann reynst foreldrum sínum hinn besti sonur, en hann hefur búið í Lindási ásamt eiginkonu sinni, Jónu Björgu Krist- insdóttur, og börnum þeirra. Síðustu árin hafa verið Boggu og Palla erfið, en þessi dugmiklu hjón þurftu að rifa seglin og slá undan eftir hagstæðan byr. Ég vil að leið- arlokum færa Boggu systur minni þakkir fyrir það sem hún var mér á unglingsárum mínum og votta Palla, Erlingi Þór, Jónu Björgu og bömum þeirra og barnabörnum mína dýpstu samúð. Kæra systir, vertu að eilífu Guði falin. Aðalsteinn Dalmann Októsson. ÞORBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR finningarnar á fullu, sár, reið, spil- andi kát, - líka óþolinmóð ef hlut- imir gengu ekki nógu hratt. Það sem henni datt í hug átti að gerast strax. Þannig var hún sjálf, full af eldmóði og gekk með krafti til allra verka og af sömu elju til ferðalaga og skemmtana. Var á kafi í því sem hún tók sér fyrir hendur og ekki var hægt annað en hrífast með hvort sem það þýddi að grípa am- boðin og reyna á kraftana, aka yfír hálft landið eða djamma og dansa út nóttina. Og svo allt í einu: Horfin, farin. Þótt hún væri komin yfir áttrætt held ég að okkur flestum sem eftir sitjum hafi fundist að við mundum alltaf eiga hana. En þannig hefði hún sjálf áreiðanlega kosið að fara, skyndilega og án biðar. Mitt í önn- um, gestir að kveðja sama dag eft- ir nokkurra daga dvöl og von á öðram fljótlega. Hún hefði illa unað að þurfa að vera upp á aðra komin eða þurfa að yfirgefa sín elskuðu Eyrarhús og dveljast annars staðar síðustu árin. En söknuðurinn er sár. Vilborg Harðardóttir. Elsku amma, okkur langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Það fyrsta sem kom í hugann, þeg- ar mamma hringdi og sagði að þú værir farin var lyktin þín, fjörið í kringum þig, blómin í garðinum og öll skemmtilegu orðatiltækin. Það var aldrei lognmolla í kringum þig og alltaf stutt í grínið, við eigum eftir að minnast þín þegar við finn- um vindlalykt eða sjáum stjúpur í görðum og sérstaklega ef fallegar smákökur verða á vegi okkar, von- andi komumst við uppá lag með að gera jafn fallegt og gott „bakkelsi" og þú. Það mátti aldrei neinn vera svangur í kringum þig, þá kipptirðu því í lag og yfirleitt með stórveislu. Þá komu þessar skemmtilegu setn- ingar: „í guðanna bænum borðið þið þetta á meðan það er heitt;“ eða þegar kökur voru á borðum: „Elskurnar mínar, klárið þið þetta, það er ónýtt hvort sem er.“ Þetta vora ömmusetningar. Elsku amma, takk fyrir að vera Amma okkar. Kveðja, Albert, Steinunn, Finnur og Þórir. I dag er kvödd Steinunn Finn- bogadóttir, sem var stofnandi og fyrsti formaður félagsins okkar og bar hag þess mjög fyrir bijósti alla tíð. Af mikilli elju og áhuga stóð hún fyrir því að félagið festi kaup á gömlu „stúkuhúsi“, sem síðan þjónaði Tálknfirðingum sem sam- komustaður á fjórða áratug og enn er mikið notað. Steinunn var for- maður hátt á annan áratug og vann félaginu ætíð af miklum heilindum og fórnfysi. Þó að sagt sé að maður komi manns í stað þá vitum við að sæti Steinunnar verður aldrei fyllt. Sá kraftur og kjarkur, sem hún bjó yfir, var okkur hinum sífelld hvatn- ing. Við færum Steinu hjartans þakk- ir okkar allra fyrir einstæða og lit- ríka samvera í gegnum tíðina og óskum henni velfarnaðar á nýjum leiðum. Félagskonur í Kvenfélaginu Hörpu, Tálknafirði. Afmælis- og minn- ingar- greinar MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvem einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálk- sentimetrar í blaðinu). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þijú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinun- um. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í text- amenferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í sím- bréfi - 569 1115 - og í tölvu- pósti (minning@mbl.is). Vin- samlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. í stórum og rúmgóðum sýningarsal okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða. Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára reynsla Verið velkomin til okkar, eða fáið myndalista. SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP., SIMI: 557-6677/FAX: 557-8410 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.