Morgunblaðið - 07.08.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 39
MINNINGAR
KELD GALL
JÖRGENSEN
+ Keld Gall Jergensen fædd-
ist í Kaupmannahöfn I.
febrúar 1955. Hann lést 26.
júní síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Kirgegárds-kap-
elle í Oðinsvéum 1. júlí.
Fyrir tveimur árum minntist
ég í dagblöðum kennara míns,
danskrar ættar, sem lést í hárri
elli í Danmörku. Það var hún
Ragna Lorentzen, mag.art. Þegar
fólk er orðið háaldrað, sættum
við okkur fremur við dauða þess
en fólks, er kveður okkur á unga
aldri, og allt benti til að ætti lífið
framundan.
Keld Gall Jörgensen fæddist
1. febrúar 1955. Hann gekk
menntaveaginn. Hann hafði góð-
ar námsgáfur og almennar gáfur.
Hann átti ekki til menntamanna
að telja, en langalgengast er að
afkomendur þeirra stefni til
æðstu mennta. Það er gott verk,
þegar efnilegum unglingum eru
veitt tækifæri til að auka við
færni síma með skólanámi. Sem
betur fer eiga fáir nú á dögum
að þurfa að sæta því ömurlega
hlutskipti að þurfa að fara á mis
við menntun, eins og algengt var
fyrrum.
Keld lauk námi í bókmennta-
fræði í Danmörku, en hélt síðan
til íslands, þar sem hann lagði
stund á íslensku hér við háskól-
ann. Hann var eins og fleiri land-
ar hans þannig gerður, að læra
það, sem hann fékkst við, til hlít-
ar.
Ég naut kennslu Kelds í Há-
skóla íslands um fjögurra ára
skeið. Og þar er skemmst frá að
segja, að ég hlakkaði til hvers
tíma hjá honum. Hann var svo
einlægur og ljúfur í framkomu.
Og hvað gerði til, þó að hann
skrifaði með vinstri hendinni á
töfluna? Allt sem Keld sagði og
skrifaði komst til skila. Hann var
ágætur kennari.
Ekki fór á milli mála, að Keld
var róttækur maður í hugsun. Við
ræddum einu sinni sem oftar um
strauma og stefnur í bókmennt-
um. Þá sagði hann, að allir
fremstu rithöfundar, fyrr og síð-
ar, hefðu verið róttækir í hugsun.
Þessu gleymi ég ekki. Er ekki líka
trúlegast, að einmitt slíkir höf-
undar eigi einhver spor við tímans
sjá?
Keld var rólegur maður og
hvers manns hugljúfi. Þegar hann
kvaddi kennsluna í Háskóla ís-
lands og hélt til Danmerkur, var
samkoma honum haldin í Nor-
ræna húsinu. Þar lét ég nokkur
þakkarorð falla fyrir þá leiðsögn,
sem hann veitti okkur í dönskum
bókmenntum og fræðum þeim
skyldum. Hans sakna margir, því
að hann var orðinn mjög samgró-
inn íslenskri menningu og samtíð.
En tími hans sem lektors var út
runninn. Hann skilur eftir sig
mætar minningar hjá þeim, sem
honum kynntust hér á landi. Því
miður seig ævisól hans til viðar
allt of snemma. Nú kveð ég hann
með orðum Hávamála: „Orðstirr
deyr aldregi, hveim er sér góðan
getr.“
Auðunn Bragi Sveinsson,
B.A.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridshátíð á Sauðárkróki
DAGANA 22.-24. ágúst verður
haldið stórmót á Sauðárkróki í til-
efni 100 ára afmælis Sauðárkróks.
Spilað verður um silfurstig og veg-
leg peningaverðlaun.
Dagskrá mótsins verður þessi:
Föstudagur 22. ágúst.
Spiluð eru undanúrsiit, tvær 28
spila Mitchell-lotur og komast 24
efstu pörin í úrslit á laugardeginum,
en hin pörin komast í hliðartví-
menning.
Mótsetning er kl. 12,30 en síðan
hefst spilamennskan kl. 13 og áætl-
uð spilalok kl. 22.
Laugardagur 23. ágúst
Urslit, barómeter, 3 spil á milli
para. Spilamennskan hefst kl. 12
og áætlað að ljúka kl. 22.30.
Sárabótar-Mitchell, tvær 28 spila
lotur
1. umferð 13.00-17.00
2. umferð 18.00-22.00
Sunnudagur 24. ágúst
Sveitakeppni, Monrad, 7 umferð-
ir, 6 spila leikir.
1.-7. umf. 11.00-17.00
Verðlaunaafhending og mótslok
kl. 17.20
Skráning og nánari upplýsingar
gefur Kristján Blöndal, hs.
453-6146, vs. 453-5630, Ásgrímur
Sigurbjörnsson, hs. 453-5030; vs.
453-5353 og skrifstofu BSI, s.
587-9360.
Sumarbrids
Þröstur og Þórður eiga enn topp-
skorið í sumarbrids, 69,75% skor,
og vinninginn í Hornafjarðarleikn-
um en verðlaunin þar eru ferð á
Hornafiarðarmótið i lok september.
Þeir eru einnig efstir í keppninni
um vikuverðlaunin vikuna 28. júlí
til 3. ágúst en þar eru verðlaunin
matur fyrir tvo á veitingahúsinu
Þremur frökkum.
Þriðjudaginn 29. júlí spiluðu 32
pör Mitchell-tvímenning, meðalskor
364 og efstu pör í N/S riðli voru:
Þórir Sigursteinsson - Jón Þorvarðarsson 418
Hjálmar S. Pálsson - Páll Þór Bergsson 413
Ómar Olgeirsson - Vilhjálmur Sigurðarssonjr. 411
A/V riðill:
Björn Eysteinsson - Helgi Jóhannsson 424
Þórður Bjömsson - Þröstur Ingimarsson 422
Magnús Aspelund - Steingrimur Jónasson 420
Miðvikudaginn 30. júlí spiluðu
28 pör Monrad-barómeter, meðal-
skor 364. Efstu pör í N/S riðli:
Jakob Kristinsson - Sveinn R. Eiríksson 437
Jón Viðar Jónmundsson - Agnar Kristinsson 417
A/V riðill:
Jón Steinar Gunnlaugsson - Jón Alfreðsson 454
Jón Þorvarðarson - Hrólfur Hjaltason 413
Spilað er í húsnæði Bridssam-
bands Íslands, Þönglabakka 1, 3.
hæð.
Eiginmaður minn, + BJÖRN STEFÁNSSON fyrrv. kaupfélagsstjóri,
er látinn. Þorbjörg Einarsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN SiGURÐSSON,
Bolungarvik,
er andaðist é Sjúkraskýli Bolungarvíkur
1. ágúst, verður jarðsunginn frá Hólskirkju,
Bolungarvík, laugardaginn 9. ágúst kl. 14.00.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
JAKOBÍNA HALLDÓRA MARÍASDÓTTIR
frá Gullhúsá,
til heimilis á Njálsgötu 85,
áður til heimilis á Vesturgötu 26A,
sem andaðist þriðjudaginn 29. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
í dag, fimmtudaginn 7. ágúst, kl. 13.30.
Aðstandendur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
GYÐRÍÐAR SVEINSDÓTTUR,
Austurbrún 2,
Reykjavík.
Aðstandendur.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúó og hlýhug við andlát og útför
okkar yndislegu dóttur, systur og barnabarns,
LILJU ÓSKAR HILMARSDÓTTUR,
Háteigi 14F,
Keflavík.
Hilmar Th. Björgvinsson, Guðný S. Magnúsdóttir,
Hanna Björk Hilmarsdóttir,
Björgvin Th. Hilmarsson, Jóhanna S. Pálsdóttir,
Magnús Guðmundsson, Stella Björk Baldvinsdóttir.
ANDRÉS
JÓNSSON
+ Andrés Jónsson fæddist í
Reykjavík 27. október 1966.
Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 12. júlí síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Lágafells-
kirkju 22. júlí.
Það voru sorglegar fréttir sem
við fengum aðfaranótt laugardags-
ins 12. júní af fráfalli vinar okkar
Andrésar Jónssonar. Við vissum að
hann hafði átt við alvarleg veikindi
að stríða, en héldum að hann myndi
yfirstíga þau eins og hann hafði
gert svo oft áður.
Anni, eins og hann var kallaður,
var lífsglaður, litríkur, sterkur og
ákveðinn persónuleiki. Með öðrum
orðum maður með mikla útgeislun.
Oft á tíðum var hann hrókur alls
fagnaðar með einstakan húmor og
stríðni.
Á þeim tíma sem við þekktum
Anna fengum við að kynnast ýms-
um hliðum hans og þeim manni sem
hann hafði að geyma.
Með sorg í hjarta kveðjum við
góðvin okkar Anna og um leið vott-
um við fjölskyldu hans samúð okk-
ar.
Farðu í friði vinur besti
fagurt eigðu hinsta ból.
Vinarþakkir - veganestið -
verði þitt í himnasól.
Þínir vinir,
Eyþór Skúli og Hermann Páll.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíð-
um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað
við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför
SVANFRÍÐAR MARÍU ÁGÚSTSDÓTTUR
frá Ystabæ,
Hrísey.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis Skjaldarvíkur fyrir góða
umönnun.
Bræðrabörn.
+
Útför vinar míns, sonar, bróður og mágs,
SKÚLA JÓNS THEODÓRS
flugvélstjóra,
Rekagranda 2,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 1. ágúst síðastliðinn, fer
fram frá Dómkirkju Krists Konungs, Landakoti,
föstudaginn 8. ágúst kl. 13.30.
Þorbjörn Garibaldason,
Auður Ingibjörg Theodórs,
Arndís Gná Theodórs,
Elín Þrúður Theodórs,
Ásgeir Theodórs,
Guðlín Jónsdóttir,
Sigurður H. Björnsson,
Ingvar S. Hjálmarsson,
Guðmundur S. Pálsson,
Björg Kristjánsdóttir
og frændsystkini.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður og afa,
SAMÚELS HELGASONAR,
Borgarbraut 65A,
Borgarnesi.
Guðrún Samúlesdóttir,
Erlendur Samúelsson,
Helgi Samúelsson,
Sigurður Samúlesson,
tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, systur og ömmu,
VILBORGAR ÁMUNDADÓTTUR,
Tjarnargötu 35,
Keflavík.
Huxley Ólafsson,
Ámundi H. Ólafsson, Dagný Þorgilsdóttir,
Ólafur H. Ólafsson, Guðrún Árnadóttir
Guðný Ámundadóttir
og barnabörn.