Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 44

Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ Matur og matgerð Farið vel með grillið ykkar Ekki er dvöl kríunnar hér á norðurslóðum löng. Krístín Gestsdóttir segir kríuna lagða af stað í ferð sína suður á bóginn. 1-2 tsk. salt mikið af grófmöluðum svörtum pipar örþunnar ræmur af appelsínuberki Grilllögur (marínering) Rifínn börkur af hálfri og safi úr einni appelsínu 1 dl þurrt hvítvín eða 1 msk. sítrónusafi 3 sm bútur chilepipar, klofinn og steinar fjarlægðir ferskt blóðberg eða 1 tsk. timian 1 tsk. hunang 1 'A dl ólífuolía (hún þolir meiri hita en önnur oiía). 1. Blandið öllu saman og þeytið örlítið með pískara. Penslið T-beins- teikurnar vel með leginum og leggið þétt i skál eða djúpt fat. Geymið í kæliskáp í 6 klst. eða á eldhúsborð- inu í 1-2 klst. 2. Hitið grillið, hafið mesta hita á gasgrilli en nálægt glóð á kola- grilli. Smyijið grindina á grillinu með olíu. 3. Þerrið kjötið með eldhúspapp- ír og setjið á grindina, snúið við eftir 2 mínútur. Snúið síðan aftur við eftir aðrar 2 mínútur. Penslið kjötið með grillleginum, grillið á fyrri hliðinni í 5-6 mínútur, snúið við og stráið salti og pipar á. Reyn- ið að láta piparinn festast við kjöt- ið. Þrýstið því niður með spaða. Grillið á síðari hliðinni í aðrar 5-6 mínútur. 4. Setjið örþunnar ræmur af app- elsínuberki ofan á sneiðarnar til skrauts þegar þetta er borið fram. Meðlæti: Kartöflur, heilar eða í sneiðum bakaðar á grillinu (þær penslaðar með olíu og uppáhalds- kryddinu ykkar stráð á) hrásalat, kryddsmjör og brauð, sem vafið er í álpappír og hitað á grillinu. AÐ MORGNI 30. júlí gekk ég eins og venjulega yfir Garða- holtið, logn var og blíða en undar- lega hljótt. Hverju sætti þetta, var krían virkilega horfin af holtinu? Hún hefur ekki langa viðdvöl en fer niður að sjónum um leið og nætur gerast dimmar, brátt hefst hin langa för hennar á suðurslóð- ir. Þótt sumri sé að ljúka hjá kríunni er því ekki lokið hjá mér - og grillsumarið mitt rétt að byija. Þegar ég tók fram grillið snemma í sumar kom í ljós að ýmsir hlutar þess voru ryðgaðir í sundur, svo sem brennarinn og allir takkar orðnir fastir. Mér fannst þetta fullsnemmt af þriggja ára gömlu grilli og það í dýrari kantinum og taldi mig geta gengið að varahlutum þar sem ég keypti grillið, en ekki aldeilis. Þar feng- ust engir varahlutir sem pössuðu. Nú hófst þrautaganga milli alls konar fyrirtækja, ýmislegt var keypt og prófað en passaði ekki. Kostnaðurinn var farinn að nálgast sjöunda þúsundið, þegar loks ný- lega náðist í það sem til þurfti og það fékkst alls ekki allt á sama stað. Og hlaupin og vinnan við þetta - best að tala ekki um það. Því segi ég: „Farið vel með grillin ykkar og látið þau ekki standa úti að vetrinum, jafnvel þó hlífin sé góð. Mín er sérsaumuð úr þykkum dúk. Grillið komst loksins í lag og ég hélt upp á það með dýrindis T-beinsteik og það á venjulegum þriðjudegi, enda einn besti dagur sumarsins. Við borðuðum að sjálf- sögðu úti. Þegar við höfðum notið góðrar máltíðar og sátum yfir kaff- inu, heyrðum við allt í einu gamal- kunnugt hljóð - krí, krí, tvær síð- búnar kríur flugu yfir höfðum okk- ar en hurfu svo úr augsýn. í sömu andrá dró fyrir sólu og mörg ský hrönnuðust upp á himininn - góða veðrið var búið. Vindsveipur fór um veisluborðið, dúkurinn lyftist upp og diskur lenti á pallinum og fór í mask. Grilluð T-beinsteik Grillið aldrei frosið kjöt, þíðið það áður. Farið aldrei frá grillinu meðan kjötið er að grillast. Skerið upp í fituröndina. Minnkið hana ef hún er mjög þykk. Ef kviknar í fitunni, þarf að færa kjötið strax frá eldinum. Skvetta má örlitlu vatni á eldinn. Brennt kjöt er afar óhollt. 6 T-beinsteikur ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Góð þjónusta hjá Sjóvá- Almennum „ÉG LENTI í því að brotist var inn hjá mér og mikið skemmt og var ég með tryggt hjá Sjóvá-Almenn- um. Ég vildi þakka Sjóvá-Almennum fyrir frábæra þjónustu og fagmönnum sem gerðu við skemmdimar fyrir skjót og góð vinnubrögð. Þar sannaðist máltækið: „Maður tryggir ekki eftirá“. Jónína D. Hilmarsdóttir. Gamli bærinn á Húsafelli EINAR hafði samband við velvakanda og vili hann lýsa yfir ánægju sinni með viðgerðina á gamla bænum á Húsafelli. Þar er líka kominn góður veitingar- staður í eldhúsinu í gamla bænum. Hann vill hvetja fólk til að skoða þetta. Sóðaskapur AÐ MORGNI 1. ágúst ók ég austur Miklubraut um kl. 11 og á undan mér ók bíll, drapplitaður, eldri gerð af Mitsubishi. Er við komum á móts við Miklat- ún sá ég skyndilega box undan mjólkurhristingi koma fljúgandi út um gluggann og hafna í rennusteini. Athygli mín vaknaði á farþegum bílsins og sýndist mér þar sitja ungar stúlkur. Er við kom- um yfir gatnamót Miklu- brautar og Kringlumýrar- brautar beygði bíllinn í átt að Kringlunni. Ég þykist vita að þær stúlkur sem í bílnum sátu hafi verið snyrtar hið ytra en hugs- unarháttur þeirra mætti vera snyrtilegri gagnvart umhverfinu því svona nokkuð gera aðeins sóðar. Vegfarandi. Tapað/fundið Símboði týndist SÍMBOÐI týndist föstu- daginn 1. ágúst, líklega á U mferðarmiðstöðinni. Skilvís finnandi vinsam- lega hafi samband við Gunnar í síma 569-8302 eða 551-0064. Dökklitaður jakki týndist DÖKKLITAÐUR jakki týndist föstudaginn 1. ágúst í Tunglinu. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 555-4104. 3 peysur týndust í Vestmannaeyjum ÞRJÁR peysur, ein svört Everlast hettupeysa, blá hettupeysa og blár Regata flísjakki, týndust úr tjaldi í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Skilvís finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 554-3354. Dýrahald Svartur kettlingur hvarf í Kópavogi SVARTUR kettlingur með hvítt trýni og hvíta bringu hvarf frá Furugrund 22 22. júlí. Hann er ómerktur og ólarlaus. Þeir sem hafa orðið varir við kisu eru beðnir að hringja í síma 554-5380 eða 554-1956. Högni hvarf frá Artúnsholti HANN Papillion, 4ra ára gamall högni, hvarf frá heimili sínu á Ártúnshólti hinn 26. júlí sl. og er hans sárt saknað. Hann er brúnbröndóttur með ljósa höku og gulan kvið og er bæði eyrnamerktur og með svarta hálsól. Hann er einstaklega blíður og gegnir nafni sínu. Ef einhverjir hafa orðið varir við hann eða vita um stað þar sem hann gæti hafa lokast inni eru þeir vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 562-1200, 587-2040 eða 854-3737. Tveir kettlingar óska eftir heimili TVEIR vel upp aldir og kassavanir kettlingar vilja eignast gott heimili. Uppl. í síma 552-0834. Svört og hvít læða týndist frá Akraseli SVÖRT og hvít fjögurra ára læða með hvíta ól um hálsinn og eymamerkt R-2196 tapaðist frá Akraseli 2 fyrir hálfum mánuði. Þeir sem hafa orðið varir við hana hafí samband í síma 557-8419 eða ! Kattholt. SKÁK Umsjón Margelr Pétursson STAÐAN kom upp á sumar- skákmóti skáksambandsins í Kaupmannahöfn í sumar. Daninn Carsten Hai (2.420) var með hvítt, en Þröst- ur Þórhallsson (2.510) hafði svart og átti leik. 33. - Bxg2+! 34. Kxg2 - Hd2+ 35. Kg3 (Eina leiðin til að forðast mát var að leika 35. Hf2, en þá er svarta staðan gjör- unnin eftir 35. — Hxf2+ 36. Kxf2 - Db2+ og hvíti hrókurinn á cl feli- ur.) 35. - Dg5+ og Hoi gafst upp, því hann er óveijandi mát í öðram leik. Þröstur var hálfum vinn- ingi fyrir neðan Hei áður en þessi skák var tefld í næstsíð- ustu umferð. Hann vann síð- an Tékkan Houska í síðustu umferð og sigraði á mótinu ásamt Dananum Erling Mortensen. Þeir Þröstur og Mortensen tefldu innbyrðis strax í fyrstu umferð og þá hafði Þröstur betur. SVARTUR leikur og vinnur. HEILRÆÐI ÖKUMENN! Forðist óþarfa hávaða, þar sem hestamenn eru á ferð. Akið aldrei svo nærri hesti að hætta sé á að hann fælist, og láti ekki að stjórn knapans. KOMUM HEIL HEIM Víkveiji skrifar... VONBRIGÐI með meiðsli tug- þrautarkappans Jóns Arnars Magnússonar eru mikil því sannar- lega voru gerðar miklar vonir um góðan árangur íþróttamanns árs- ins tvö síðustu ár á heimsmeistara- mótinu í Aþenu. Því má þó ekki gleyma að vonbrigði hans eru ör- ugglega mest, því hann og hans nánustu hafa lagt gífurlega mikið á sig til að komast í fremstu röð. Vonandi nær kappinn fljótt fullum bata svo hann komist sem allra fyrst á þann stað sem hann hefur áunnið sér meðal bestu íþrótta- manna í heimi í sinni grein. Sjónvarpið sýnir daglega frá heimsmeistarakeppninni og hefur verið gaman að fylgjast með nýju stjörnunum sem síðustu daga hafa bankað hressilega á dyrnar og sumar fara heim með góðmálma af einhverju tagi í farteskinu. I lýsingum sjónvarpsmanna hefur iðulega verið talað um silfurmeist- ara eða bronsmeistara. í huga skrifara er aðeins einn meistari; sá sem hlýtur gullið. Hinir eru einnig verðlaunahafar, en ekki meistarar. xxx NÆSTU vikur verða reyndar miklar íþróttavikur. HM í frjálsum íþróttum heldur áfram fram á sunnudag 0g verður þetta glæsilega mót vonandi til að vekja áhuga yngri kynslóðarinnar á frjálsum íþróttum. Lokaslagur knattspyrnumanna hófst í gær- kvöldi og framundan eru margir stórleikir í deild og bikar. Svo er stutt í landsleiki gegn Liechten- stein og Irlandi. xxx SANNAST sagna var Víkveiji orðinn heldur þreyttur á fréttum síðustu helgar um umferð og veðurfar, drykkjuskap og eitur- lyfjaneyslu, pústra og aðrar uppá- komur sem glumdu á öldum ljós- vakans alla verslunarmannahelg- ina. Var ekki nóg að varpa þessu yfir landslýð í fréttatímum? Var ástæða til allra þessara símtala og innskota í dagskrá að auki? Fólkið var þó bara í sumarfríi úti á landi. Hverjir áttu líka að hlusta á þetta? Fólkið í tjaldbúðunum eða þeir sem heima sátu? Að auki voru allar þessar frétt- ir og samtöl verulega misvísandi. Fréttamennirnir vildu margir hveijir hneyksli á hverjum degi, lögreglumenn greindu frá eins og þeir best gátu, en mótshaldarar sem þurfa að sýna hagnað af brölt- inu sáu helst ekki nema bjartar hliðar hvort sem var í mannlífi eða veðurfari - jafnvel þó bæði blési og rigndi. Myndin sem ljósvaka- neytandinn fékk var því vægast sagt einkennileg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.