Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP REYKVÍSK ungmenni klædd samkvæmt nýjustu tísku á amerískum bíl. FINNUR Jóhannsson sýnir snilldartakta. Blossi gæti gerst hvar sem er - FJallar Blossi um heim ís- lenskra ungmenna eins og Veggfóð- ur? „Myndin fjallar um reykvísk ung- menni á villigötum. Það má ekki halda að þetta sé sama mynd og Veggfóður þótt hún fjalli um reyk- vísk ungmenni. Þær eru heldur ekki byggðar á eigin reynslu. Eg geri bara myndir um það sem mig lang- ar að upplifa sjálfur. Blossi og Veggfóður eru mjög ólíkar myndir, ■r þó að sögusviðið sé Reykjavík, ís- land í dag. Myndin getur samt gerst hvar sem er. Þetta gætu verið bresk ungmenni eða jafnvel japönsk. Myndin gæti þess vegna gerst á Mars eða tunglinu. Það sést að myndin er tekin hér á landi, en ís- land er sums staðar eins og írland, aðrir staðir eins og Mars og aðrir staðir eins og Reykjavík." - Eru öll ungmenni í heiminum orðin eins? „Það er visst alþjóðlegt yfirbragð yfir reykvískum ungmennum, eins og þeim í myndinni. Þau eru klædd samkvæmt nýjustu tísku, þau hlusta á nýjustu tónlistina, sem eru alþjóðlegar stórhljómsveitir eins og ,> Primal Scream og Prodigy. Þau keyra um á amerískum bílum. Það sem þau hugsa og dreymir um er mjög alþjóðlegt líka. Robba, sem Páll Banine leikur, langar til að verða „tölvuvírusahitman“, sem ferðast á milli landa og drepur vír- usa í tölvum. Og Stellu, sem Þóra Dungal leikur, hana langar að verða geimfari." - Á þetta alþjóðlega yfirbragð að selja myndina betur? „Yfírbragðið er meira hluti af því sem við viljum segja um ört smækk- andi mynd alheimsins. Á hveijum Blossi 810551 verður frumsýnd 14. ágúst. Það er önnur kvikmynd leikstjórans Júlíusar Kemp. Aður gerði hann myndina Veggfóður sem vakti mikla athygli. Hildur Loftsdóttir tók herrann tali. degi dregst heimurinn saman. Þú ert ekki einangraður þótt þú búir á íslandi eða í Kongó. Einangrunin er að hverfa, og gömul séríslensk gildi einnig. Það er eðlileg þróun, en annað mál hvort manni fínnst það skemmtilegt. Mér fínnst það ekki, en ég berst samt ekki gegn því.“ - Veggfóður fór um allan heim á kvikmyndahátíðir. Mun Blossi gera það líka? „Best væri að Blossi yrði meiri söluvara, en gjafa- og kynningar- vara sem kvikmyndahátíðamyndir eru oft. Það er lítill „bisness" í því, en meira kynning á leikstjóranum eða á landi og þjóð, og getur þess vegna skemmt fyrir sölu á mynd- inni. Blossi er það dýr mynd að við verðum að selja hana erlendis. Myndin er á mjög lágum opinberum styrkjum, þannig að við þurfum að fá fólk í bíó og selja hana erlendis til að ná endum saman. Kvikmynda- sjóður mun hjálpa okkur inn á kvik- mynda- og söluhátíðarnar í Cannes og Berlín. Ég held að hægt verði að selja þessa mynd, því hún er mjög vel gerð. Það er hvergi til sparað í vinnslu, hvorki á hljóði né útliti, því það þýðir ekki að bjóða Ljósmynd/Spessi JÚLÍUS Kemp kvikmynda- leikstjóri. íslenskum bíóförum upp á neitt hálfkák. Auk þess ætti Blossi að geta höfðað til unglinga víða um heiminn." - Hvar funduð þið aðalleikarana þau Þóru og Pál? * ks JShHHí PÁLL Banine og Þóra Dungal í hlutverkum sínum. „Við vissum að Palli gæti passað í þetta hlutverk, þar sem við þekkt- um hann. Það komu nokkrir strákar til greina, og eftir töluvert af pruf- um, völdum við Palla. Aðalleikarinn þurfti líka að vera dökkur yfírlitum, því pabbi hans á að vera Ameríkani. Hins vegar leituðum við lengi að stelpunni, og vorum orðnir mjög stressaðir yfir því að finna hana ekki. Stelpan sem leikur Stellu þarf nefnilega að hafa ákveðna eigin- leika. Svo fundum við Þóru í sjoppu á Laugaveginum, og hún stóðst kröfurnar fullkomlega. Finnur Jóhannsson handbolta- kappi er líka með stórt hlutverk í myndinni. Hann leikur geggjað spíttfrík og gerir það alveg frábær- lega.“ - Þú hefur kosið að vinna aftur með Jóni Karli Helgasyni sem tók Veggfóður fyrir þig? „Já, ég taldi hann hafa upp á að bjóða þann stíl sem mér fannst henta útliti þessarar myndar. Það er líka mjög fínt að vinna með hon- um. Þegar maður er með mikið af óvönu fólki í kringum sig eins og leikararana, er gott að vera með einstaklinga í starfsliðinu sem mað- ur hefur unnið með áður. Að vera eingöngu með óvant fólk í kringum sig getur oft endað illa. Það er líka mögulegt að hafa vana leikara og óvanan tökumann. Jafnvægi er lyk- ilorðið." - Hvenær hófst undirbúningur- inn að Blossa? „Hugmyndin kom hjá handrits- höfundinum Lars Emil 28. desem- ber 1990. Hann bræddi hana með sér í 2 ár, og hafði síðan samband við mig árið 1992. Við unnum stöð- ugt í henni og fengum ekki úthlut- að framleiðslustyrk úr Kvikmynda- sjóði fyrr en 1995. Fjármögnunin komst þá á fullt og í júní 1996 fór- um við í tökur. I rauninni er ég búinn að vinna að þessari mynd síðan ég kláraði Veggfóður, sem var frumsýnd 1992. Þetta er mjög eðlileg lengd á vinnslutíma á ís- lenskri kvikmynd. Ég ætla samt að reyna að frumsýna aðra mynd eftir tvö ár. Ég er búinn að vera með hugmynd í litla heilanum í þijú ár, og svo þegar ég vakna 15. ágúst, daginn eftir frumsýningu á Blossa, mun eiga sér stað flutningur á því verkefni yfír í stóra heila, og ég fer að vinna að því alveg eins og ber- serkur." > *» Frumraunir á Locarno-hátíðinni LOCARNO-kvikmyndahátíðin verður haldin dagana 6. til 16. ágúst. Opnunarmynd hátíðarinnar er í þetta sinn „Men in Black“, en hátíðinni lýkur með sýningu á „Conspiracy Theory" með Juliu Roberts og Mel Gibson í aðalhlut- verkunum. Stjórnendur Locarno-hátíðarinn- ar hafa í gegnum tíðina lagt áherslu á að þær myndir sem keppa um gullhlébarðann séu spennandi frumraunir eða myndir athyglis- verðra leikstjóra sem eiga ekki margar myndir að baki. I keppn- inni í ár eru t.d. íranski leikstjórinn Jafar Panahi með „The Mirror“, Cindy Sherman með hryllings- myndina „Offíce Killer" með Carol Kane, Molly Ringwald, og Jeanne Tripplehorn, og Lu Wei, handrits- höfundur „Farewell My Concubine" með frumraun sína sem leikstjóri, „Journey to the Tungut Empire". Aðrar myndir í keppninni eru: „The Mad Stranger" stýrt af Tony Gatlif, „Metropolitan Fables“ stýrt af Egidio Eronico, „Ocean Liner“ stýrt af Christine Laurent en Andre Techine skrifaði handritið, „The Bible and Gun Club“ í leikstjórn Daniel J. Harris, „We Ail Fall Down“ stýrt af Davide Ferrario, „Made in Hong Kong“ leikstýrt af Fruit Chan, og „Winter Sleeper" önnur mynd Tom Tykwer. Stærri nöfn má finna á myndun- um sem eru sýndar fyrir utan keppnina. Auk „MIB“ og „Con- spiracy Theory“ verða sýndar: „Face/Off“ John Woo hasarinn með John Travolta og Nick Cage, mynd Ang Lee „The Ice Storm“, „The Sweet Hereafter" leikstýrt af Atom Egoyan, „Career Girls" í leikstjórn Mike Leigh, og Cannes-verðlauna- hafínn „The Eel“ leikstýrt af Sho- hei Imamura. MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU Matthildur (Matilda)k ★ ★ Sonur forsetans (First Kidj'k ★ ★ 'h Leitin að lífshamingjunni (Unhook the Stars)★ ★ ★ 'h í deiglunni (The Crucible)-k ★ ★ 'h Tvö andlit spegils (The Mirror Has Two Faces)k ★ ★ Ógnarhraði (Runaway Car)k ★ Lífið eftir Jimmy (After Jimmy) ★ ★ ★ Bundnar (Bound)k ★ ★ Ókyrrð (Turbulence)'h Hatrinu að bráð (Divided by Hate)k 'h Gullbrá og birnirnir þrír (Goldilocks and the Three Bears)-k 'h
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.