Morgunblaðið - 14.08.1997, Page 2
2 C FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
í fótspor
Framara og
Skaga-
manna
EYJAMENN feta í fótspor
Framara og Skagamanna, sem
hafa leikið Evrópuleiki á Möltu.
Fram lék gegn Hibemians í
Evrópukeppni bikarhafa 1971
- tapaði fyrri leiknum, 0:3, en
vann seinni leikinn 2:0 með
mörkum Erlendar Magnússon-
ar. Þetta var fyrsti sigur hjá
íslensku liði í Evrópukeppni.
Framarar léku báða leikina
á Möltu og það gerðu Skaga-
menn einnig f Evrópukeppni
meistaraliða sama ár, er þeir
mættu Sliema. Skagamenn töp-
uðu 0:4 og gerðu jafntefli 0:0.
Hibs stefnir á tveggja
marka sigur á Möltu
Hibernians varð meistari á
Möltu 1995 og 1996 undir
stjórn Englendingsins Brians Tal-
bots, sem lék m.a. með Arsenal
og Ipswich, en gekk illa á liðnu
tímabili. Þá varð Valletta tvöfaldur
meistari, vann Hibs 2:1 í bikarúr-
slitum, og því er síðarnefnda liðið
í Evrópukeppni bikarhafa að þessu
sinni.
Keppnistímabilið á Möltu bytjar
Hibernians frá Möltu tekur á móti ÍBV í Evrópu-
keppni bikarhafa í dag. Charles Camenzuli
hefur eftir þjálfara Hibs að liðið verði að halda
hreinu og sigra ÍBV með a.m.k. tveggja marka
mun í kvöld til að eiga möguleika á að komast
áfram í 1. umferð.
í lok mánaðarins en Hibs bjó sig
undir Evrópukeppnina með þátt-
töku í tveimur mótum á Möltu.
Fyrri keppnin var sem martröð.
Liðið gerði jafntefli, 2:2, við Birkir-
kara, sem varð í öðru sæti í deild-
inni, en tapaði síðan 9:0 fyrir Vall-
etta - stærsta tapið í sögu Hibs.
í seinna mótinu vann Hibs Pieta’
Hotspurs 2:1 með mörkum frá
Charles Scerri og Stefan Farrugia,
tapaði 2:1 fyrir Birkirkara og vann
Sliema Wanderers 3:2 en Roderick
Baldacchino, Darren Attard og
Englendingurinn Mark Wally
gerðu mörkin.
Millertók við afTalbot
Englendingurinn Mark Miller
tók við stjórninni, þegar Talbot
ákvað að hætta og flytja aftur til
Englands. Nokkrar breytingar
urðu á hópnum og reyndist erfitt
að fylla skörð þeirra sem fóru
enda fáir frambærilegir leikmenn
á markaðnum á Möltu. Eigi að
síður eru menn með mikla reynslu
í fararbroddi, landsliðsmenn eins
og markvörðurinn Mario Muscat,
sem verður reyndar ekki með í
kvöld vegna meiðsla að sögn Mill-
ers, og varnarmennirnir Silvio
Vella, Edwin Camilleri, Charles
Scerri og Lawrence Attard, sem
hefur reyndar verið meiddur.
David Carabott, sem hefur leikið
með liðinu undanfarin 12 ár, er
kjölfesta þess en reynt hefur verið
að styrkja það með erlendum leik-
mönnum. Félagið fékk Wally, sem
er 20 ára, frá Nottingham Forest
og Lea Paul Barkus frá Fulham
í sumar en þeir hafa ekki náð sér
almennilega á strik og sá síðar-
nefndi er farinn. Ónefndir eru
miðjumaðurinn Fadel Ben Amar
frá Líbýu og sóknarmaðurinn
Chuchinera Ndwybysi, „WoWo“,
frá Nígeríu, en gera má ráð fyrir
að þeir verði í byrjunarliðinu í
kvöld.
EYJAMENN fögnuðu síðast sigri í Eyjum. Fagna þeir á Möltu í dag?
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
FRJALSIÞROTTIR
*
FRI heldur upp á 50 ára afmæli á Bikarkeppninni um helgina
Sigrar FH enn og aftur?
Bikarkeppni Fijálsíþróttasam-
bandsins hefst á Laugardals-
velli annað kvöld. Nú eru 50 ár lið-
in síðan sainbandið var stofnað og
hyggjast forráðamenn þess minnast
tímamótanna á mótinu. Átta lið
munu etja kappi í fyrstu deild yfir
helgina, en enn er óvíst hvort Jón
Arnar Magnússon úr UMSS og
Ármenningamir Guðrún Arnardótt-
ir og Pétur Guðmundsson geti verið
með.
Tvö neðstu liðin falla niður í 2.
deild, þar sem keppni fer fram í
Borgarnesi, og jafnmörg taka sæti
þeirra. Liðin sem keppa í 1. deild
að þessu sinni eru FH, Ármann, IR,
UMSK, UMSS, HSK auk sameigin-
legra liða UMSE og UFA annars
vegar og USAH og USVH hins
vegar.
Jón Arnar meiddist eins og kunn-
ugt í hástökkskeppni tugþrautar-
innar á heimsmeistaramótinu í
Aþenu í síðustu viku, en hugsanlegt
er að hann geti keppt í nokkrum
greinum. Umboðsmaður Guðrúnar
Arnardóttur er að reyna að tryggja
henni þátttökuleyfi á stigamóti al-
þjóða fijálsíþróttasambandsins í
Mónakó á morgun, en ef það geng-
ur ekki eftir kemur Guðrún heim í
dag og keppir með Ármenningum
í bikarkeppninni.
Pétur Guðmundsson kúluvarpari
á við meiðsl að stríða í bijóstvöðva,
en Katrín Sveinsdóttir, þjálfari Ár-
mennninga, segist eiga von á að
hann geti a.m.k. kastað kúlunni
einu sinni, en geti ekki beitt sér í
sleggju- og kringlukasti. Mótshald-
arar höfðu einnig hug á að láta
Þóreyju Eddu Elísdóttur úr FH etja
kappi við Völu Flosadóttur úr ÍR í
stangarstökki, en Vala er meidd í
baki og verður ekki með. Þórey
hefur hæst stokkið 3,80 m, en ÍR-
ingar höfðu vonast til að Vala gæti
keppt í nokkrum öðrum greinum,
t.d. langstökki og hástökki.
Mikil óvissa ríkir því um þátttöku
þriggja af okkar fremstu fijáls-
íþróttamönnum um helgina, en eigi
að síður er sveit FH talin sigur-
stranglegust í karlaflokki. „Það er
engin launung að FH-ingarnir eru
langsterkastir," sagði Þráinn Haf-
steinsson, þjálfari hjá IR, á frétta-
fundi FRI í gær. Egill Eiðsson, þjálf-
ari hjá UMSK, tók í sama streng
og byggði þá skoðun sína á því að
Jón Ámar gengi ekki heill til skógar.
Ragnheiður Ólafsdóttir, þjálfari
hjá FH, var ekki alveg sammála
þeim Agli og Þráni. „HSK er með
sterkt og samheldið lið. Ég tel að
við munum eiga í harðri keppni við
þá sveit,“ sagði hún. „Það hefur
skapast mjög góð stemmning í okk-
ar liði og okkar fólk stendur saman
og gerir sitt besta,“ bætti hún við,
en FH-ingar hafa nú sigrað þijú ár
í röð og fímm sinnum af síðustu
sex skiptum. Lið HSK rauf sigur-
göngu þeirra árið 1993.
„Kvennalið okkar hefur aldrei
unnið og það væri mjög ánægjulegt
fyrir okkur ef það tækist nú,“ sagði
Ragnheiður, en auk samanlagðrar
keppni er einnig keppt um bikar í
karla- og kvennaflokki. Búast má
við að FH-ingar fái harða keppni
frá Ármenningum og liði HSK í
keppni um kvennabikarinn.
„Við munum reyna að gera þetta
mót að góðri afmælishátíð,“ sagði
Jónas Egilsson, sem var kjörinn
formaður Fijálsíþróttasambandsins
í síðasta mánuði. „Síðar á árinu
gefum við einnig út veglegt afmæl-
isrit og afrekaskrá," sagði formað-
urinn. Markmið sambandsins á
þessum tímamótum eru, að sögn
Jónasar, að bæta aðstöðu til fijáls-
íþróttaiðkunar á landsbyggðinni.
„Áhuginn er til staðar hjá krökkun-
um til að byija með, en með aldrin-
um sjá þau að aðrar íþróttagreinar
bjóða upp á mun betri aðstöðu til
æfinga," sagði Jónas.
Jafnir möguleikar
Mikill munur var á Hibs í fyrr-
nefndum mótum og framfarirnar
augljósar. Þjálfarinn Mark Miller
sagði í gær að venjulega ætti Hibs
jafna möguleika á móti óþekktari
liðum. „Heimaleikurinn í Evrópu-
keppninni að þessu sinni er mjög
mikilvægur fyrir félagið og ef við
ætlum áfram í næstu umferð verð-
um við að vinna að minnsta kosti
2:0. Það verður erfitt en mikilvæg-
ast er að fá ekki á okkur mark á
Möltu.“
33 gráðu hiti
og 70% rakastig
Leikurinn hefst kl. 19.30 að
staðartíma og gera heimamenn sér
vonir um að aðstæður bitni á gest-
unum en rakastigið er um 70% og
hitinn um 33 gráður á celsíus.
Hibs leggur yfirleitt áherslu á
sterkan varnarleik en með orð
þjálfarans í huga má ætla að liðið
sæki á móti ÍBV á heimavelli og
reyni að leika 4-4-2.
í kvöld
Knattspyrna
NM félagsliða kvenna:
Kópav.: KSÍ úrval - Fortuna.16
Kópav.: Breiðablik - Helsinki ..18.30
2. deild karla:
Reyðarfj.: KVA - Völsungur..19
Handknattleikur
Ragnarsmót á Selfossi:
HK-Haukar...................19
Selfoss - UMFA...........20.30
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI BIKARHAFA