Morgunblaðið - 14.08.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997 C 3
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Reuter
WILSON Bolt Klpketer, Kenýa, fagnar hér tvelmur áföngum vlö marklfnuna, fyrsta heimsmetiö á ferllnum og í
fyrsta sinn undir átta mínútum f 3000 m hlndrunarhlaupl.
Ottey og Jones í
sviðsljósinu
MERLENE Ottey sigraði í 100 m hlaupi á
mótinu í Zttrich í gærkvöldi á 10,96 sek. og
andstæðingar hennar voru ekki af verri end-
anum, Marion Jones heimsmeistari, Gail De-
vers, Gwen Torrence, Zhanna Pintusevich og
Christine Arron. Ottey, sem enn einu sinni
beið lægri hlut á stórmóti er hún var í úrslit-
um 100 m hlaupsins sýndi að þessu sinni að
hún er hvergi nærri dauð úr öllum æðum.
Önnur varð Jones og Devers varð þriðja.
Jones, sem á besta tíma ársins í 200 m hlaupi
22,17 sek., tók ekki þátt í greininni á HM, lét
100 m duga. Hún keppti hins vegar í báðum
greinum í gærkvöldi og hljóp glæsilega eftir
tapið í 100 m. Hún stakk heimsmeistarann
Pintusevich bókstaflega af á síðari 100 m og
kom í mark á 21,76, sem er 5. besti tími sem
náðst hefur í greininni frá upphafi vega.
„Hversu hratt get ég hlaupið? Miklu hraðar,“
sagði Jones að hlaupinu loknu.
Þróun heimsmetsins í
800 m hlaupi karla
14.9. “72
19.6. “73
27.6. “73
25.6. “75
1.7. “75
28.7. “76
13.5. “78
3.7. "89
19.8. “92
16.8. “95
13.8. “97
14.9. “72
20.9. “72
5.7. “77
8.4. “78
13.9. “81
7.7. “82
27.7. “85
22.7. “87
4.6. “94
8.6. “95
16.8. “95
13.8. “97
(taflan hér að neðan sýnir, tíma í mín., nafn, þjóðerni og
dagsetningu metanna):
1:43.50............Álberto Juantorena (Kúbu) 25.7. '76
1:43.44.........................Juantorena 21.8. '77
1:42.33...........Sebastian Coe (Bretlandi) 5.7. ’79
1:41.73................................Coe 10.6. ’81
1:41.73...........Wilson Kipketer (Denmark) 7.7. ’97
limsmetsins í
hindumarhlaupi
..Anders Garderud (Svíþjóð)
..Benjamin Jipcho (Kenýa)
.................Jipcho
...............Garderud
................Garderud
...............Garderud
......Henry Rono (Kenýa)
.......Peter Koech (Kenýa)
...Moses Kiptanui (Kenýa)
...............Kiptanui
filson Boit Kipketer (Kenýa)
leimsmetsins í
í hlaupi karla
....Lasse Viren (Finnlandi)
....Emiel Puttemans (Belgíu)
.....Dick Quax (N-Sjálandi)
.......Henry Rono (Kenýa)
...................Rono
....David Moorcroft (Bretl.)
....Said Aouita (Marokkó)
..................Aouita
.Kipketer 13.8. ’97
.Haile Gebrselassie (Eþíópíu)
....Moses Kiptanui (Kenýa)
...............Gebrselassie
.Gebrselassie
Veisla var í Ziirich
AÐEINS þremur dögum eftir að heimsmeistaramótinu í frjáls-
íþróttum í Aþenu lauk, móti sem olli mörgum vonbrigðum vegna
þess að þar voru engin heimsmet sett, slógu bestu frjálsíþrótta-
menn upp veislu á „gullmóti" Alþjóða frjálsíþróttasambandsins
í Ziirich i gærkvöldi. Þar voru slegin þrjú heimsmet, þar á með-
al elsta heimsmetið sem í gildi var er Daninn Wilson Kipketer
bætti heimsmet Bretans Sebastians Coe um tæpa hálfa sek-
úndu, hljóp á 1.41,24 mín.
Nafni hans og fyrrum landi,
Wilson Boit Kipketer frá
Kenýa, gaf tóninn snemma móts
er hann undirstrikaði að sigur hans
í 3.000 m hindrunarhlaupi á heims-
meistaramótinu var ekki tilviljun
og setti heimsmet 7.59,08 mín. og
varð annar maðurinn til þess að
hlaupa þessa vegalengd með hindr-
unum á undir átta mínútum.
Haile Gebrseiassie heimsmethafi
í 5.000 og 10.000 m hlaupi og
heims- og ólympíumeistari í síðar-
nefndu greininni sýndi og sannaði
að hann er einstakur í sinni röð.
Heimsmeistarinn í 5.000 m hlaupi,
Kenýamaðurinn Daniel Koeman,
hefur síðustu vikur storkað heims-
methafanum með hótunum um að
slá met hans í 5.000 m hlaupinu.
En er þeir mættust í Ziirich í gær
sýndi Gebrselassi hver er bestur.
Hann hljóp að því er virtist
áreynslulaust og kom í mark á
12.41,86 mín. og bætti eigið met
verulega en það var 12.44,39.
Hápunktur kvöldsins var samt
hlaup Kipketers hins danska í 800
m hlaupi. Lengi hefur legið í loftinu
að hann myndi slá 16 ára gamalt
heimsmet Bretans Coe í greininni
og nærri fór hann á fyrsta „gullmót-
inu“ á Bislett-leikvanginum í júlí-
byrjun. Þá jafnaði hann á sama tíma
og gildandi heimsmet, 1.41,73 mín.
Sagt hefur verið um Kipketer, sem
búið hefur í Danmörku sl. 7 ár að
hann sé slíkur yfirburðamaður í
greininni að hann geti slegið metið
hvenær sem er og hann ráði stað
og stund. Greinilegt var i gærkvöldi
að nú var staðurinn og stundin.
Frábærir móthetjar hans, þ.á m.
Ólympíumeistarinn Vebjorn Rodal
frá Noregi, höfðu frá fyrsta skrefi
ekkert í félagsskap Kipketers og
„hérans“ Joseph Tengelei að gera
og „hérinn“ stóð fyrir sínu. Hann
hljóp fyrstu 400 m á 48,10 sek.,
og Daninn var í humátt á eftir á
48,5. Þegar Coe setti met sitt hljóp
hann fyrri 400 m á 49,7. Heimsmet
lá í loftinu. Daninn hélt sínu striki
og aðrir keppendur urðu hans ekk-
ert varir. Einn og yfirgefmn geyst-
ist Kipketer áfram vel studdur af
25.000 áhorfendum og heimsmetið
varð staðreynd við marklínuna,
1.41,24.
„Allar aðstæður voru eins best
var á kosið að þessu sinni,“ sagði
Kipketer. „Áhorfendur, veðrið og
ekki síst hérinn. Mér fannst umræð-
an um heimsmet vera orðin leiði-
gjörn svo ég ákvað að grípa í taum-
ana. Hitt má hver vita að nú hef
ég fengið nóg, ég ætla ekki að
hlaupa undir 1,40, þetta nægir.“
Rangur maður!
Þeir voru ekki margir á leik-
vangingum í Zúrich sem reiknuðu
með að verða vitni að öðrum ósigri
Kiptanuis í röð í 3.000 m hindr-
unarhlaupi enda hefur hann verið
ókrýndur konungur þessarar
greinar undanfarin ár og eini mað-
urinn sem hlaupið hefur undir 8
mínútum og það í tvígang. Allra
síst að raunin yrði sú að ef sett
yrði heimsmet í að þá yrði Kipt-
anui ekki að verki, en sú varð raun-
in.
Þremenningarnir frá Kenýa tóku
strax forystuna í hlaupinu og ljóst
að þeir yrðu í sérflokki eins og fyrr.
Eftir 2 km var tíminn 5.21,40 sem
var 4 sekúndum yfir tímanum þeg-
ar Kiptanui setti heimsmet sitt á
sama velli fyrir nákvæmlega tveim-
ur árum. Þegar bjallan gaf merki
um að einn hringur væri eftir voru
liðnar 7,01 mín. frá því byrjað var
og ljóst að vel yrði að halda á spöð-
unum á lokahringnum. Þremenn-
ingarnir hlupu í einum hnapp allt
þar til 200 m voru eftir. Þá brun-
aði heimsmeistarinn fram úr félög-
um sínum, Kiptanui og Bernand
Barmasai. Kipketer hljóp síðustu
200 m á um 27 sekúndum og kom
í mark á 7.59,08 mínútum og bætti
heimsmet Kiptanui um 10/100 úr
sekúndu. Þá bætti Kipketer sinn
fyrri árangur í greininni um þijár
sekúndur.
„Ég vona að bræður mínir átta
og systur mínar þijár fagni með
mér,“ sagði Kipketer að hlaupinu
loknu. „Nú verð ég þjóðhetja. Mér
leið vel í hlaupinu og ákvað að reyna
hvað ég gat og niðurstaðn varð
þessi en virðing mín fyrir Kiptanui
landa mínum er mikil.“
„Ég er reiðubúinn að hlaupa
undir 12,40 mínútum takist ein-
hveijum að slá út þennan árangur
á næstunni," sagði brosmildi
Eþíópíumaðurinn Gebrselassie eft-
ir að hann hafði kastað mæðinni
að loknu 5.000 m hlaupi og heims-
meti. „Kenýamennirnir settu upp
gott hlaup og veðrið var einstakt
svo aðstæðurnar hjálpuðu vel.“
Koeman
tromplaus
Fyrsti 3 km héldu „hérar“ uppi
dampi í hlaupinu og fyrsti kíló-
metrinn var hlaupinn á 2.33,64
mín. og eftir 2 km var tíminn
5.06,11. Þegar Koeman tók við
forystunni að loknum 3 km var
tíminn 7.38,07 og ljóst að allt var
opið. Gebrselassi fylgdi honum
hvert fótmál og að loknum 4 km
var tíminn 10.12,89. Þegar einn
hringur var eftir, 400 m, var tíminn
11,46 mín. og alltaf var Koeman
með forystu. En þegar 250 m voru
eftir stakk heimsmethafinn sér
fram úr heimsmeistaranum og
sigldi ákveðið að marki, staðráðinn
í að sýna hver væri bestur. Það
kom í ljós, tíminn 12.41,86 mín,
gamla metið 12.44,39. Koeman,
sem þráði svo að eignast heimsmet-
ið, varð annar á 12.44,90. Hann
átti ekkert tromp eftir á lokasprett-
inum. Frábæru hlaupi var lokið
með sigi-i einstaks manns með ein-
stökum árangri, annað féll í skugg-
ann.