Morgunblaðið - 14.08.1997, Page 6
6 C FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UNGLINGAR
Góð þátttaka á Paejumótinu á Siglufirði
YNGSTU sparkarar mótsins voru í 5. flokki KS en þar fór aldurinn niður í
5 ár. Þessar hressu stúlkur, sem eru á myndinni hér fyrir ofan, höfðu
fengið að æfa fótbolta á leikjanámskeiði og því ekki annað en sjálfsagt að
fá að taka þátt í Pæjumótinu. Þær sögðu að þær væru búnar að spila
flóra leiki og tapa þeim öllum en það skipti ekki öllu máli því að þetta
væri svo ofsalega gaman.
Skemmtilegast
á ballinu
FJÓRÐI flokkur ÍR gæddi sér á
HI-C og samlokum milli leikja.
Þær voru mættar í annað skiptið
á Pæjumótið á Siglufirði ásamt
fararstjóranum Brynju Guð-
mundsdóttur og áttu þær ekki
orð til að lýsa hversu frábært
þetta allt saman hefði verið.
Brynja sagðist einnig hafa verið
á mótinu í fyrra og stefndi að
því að koma aftur að ári. Stelp-
urnar sögðu að keppnin hefði
verið skemmtileg en ballið á
laugardagskvöldinu með Átta-
villt hefði verið enn skemmti-
legra og endirinn á ballinu hreint
stórkostlegur. Þá dönsuðu allir
konga og söngkonurnar sungu
og dönsuðu með aila strolluna á
eftir sér út á flöt þar sem kveikt
var brenna. ÍR-stelpurnar sögðu
að þjálfarinn þeirra, Magnús Þór
Jónsson, hefði verið aðal töffar-
inn á ballinu „hann dansaði sig
svo sveittan að við þurftum að
vinda hann á eftir“.
Fylkirvann
fém verðlaun
Morgunblaðið/Sigriður
STUND milli stríða hjá stúlkunum úr 4. flokkf ÍR.
METÞÁTTAKA var í Pæjumóti
Þormóðs ramma-Sæbergs á
Siglufirði sem haldið var um
síðastliðna helgi en alls tók 61
lið þátt í mótinu, þar af tvö
gestalið frá Færeyjum. Þátttak-
endur voru um 550 og auk
þeirra voru foreldrar, farar-
stjórar og þjálfarar um 250 -
300.Þetta var í sjöunda skiptið
sem Pæjumótið var haldið á
Sigluf irði og hefur þátttaka
stöðugt verið að aukast.
Að sögn Friðfínns Haukssonar,
framkvæmdastjóra mótsins,
gekk mótið í alla staði mjög vel
en sérstök pæjumótsnefnd hefur
annast alla fram-
Sigríður kvæmd þess enda í
Ingvadóttir mörg hom að líta
skrifarfrá er svo stór hópur
Siglufirði kemur í bæinn.
Friðfínnur sagði að
með góðra manna hjálp hefði
gengið vel að koma öllum kepp-
endum fyrir. Og síðan hafí mömm-
ur, pabbar, ömmur og afar verið
fús til að veita hjálparhönd við
hvaðeina sem á hefur þurft að
halda svo allt gangi sem best.
í 2. flokki kvenna bar lið gest-
anna, EB frá Eyði í Færeyjum,
sigur úr býtum, FH hafnaði í öðra
sæti og heimstúlkur úr KS hrepptu
bronsverðlaun. Stjaman varð
sigurvegari í keppni A-liða 3.
flokks, lið Fjölnis varð í öðra sæit
og Tindastóll í því þriðja. Hjá B-lið-
um sama aldursflokks stóð lið
Fjölnis uppi sem sigurvegari,
Stjaman varð að gera sér annað
sætið að góðu og BÍ frá ísafirði
það þriðja. í 4. flokki A-liða sigr-
aði Stjarnan en Haukar höfnuðu
í öðru sæti og Breiðablik í því
þriðja. FH sigraði hins vegar í 4.
flokki B-liða þar sem Stjaman
varð í öðra sæti og Haukar í þriðja.
Liðsmenn Fylkis vora sigursælir í
5. flokki. Hjá A-liðum stóð félagið
uppi sem sigurvegari, Þór varð í
öðra sæti og Bolungarvík í þriðja.
í keppni B-liða varð Fylkir2 í
fyrsta sæti, Fylkir3 í öðra sæti
og Fylkirl í þriðja sæti.
Dagskrá mótsins hófst kl. 16 á
föstudag og lauk klukkan 16 á
sunnudag og auk allra kappleikj-
anna vora á dagskránni sundferð-
ir fyrir keppendur og foreldra,
sameiginlegar máltíðir, bíósýning,
vítaspymukeppni, dansleikur o.fl.
Og það vora þreyttar en ánægðar
pæjur sem héldu burt frá Siglu-
firði seinnipart sunnudags eftir vel
lukkað Pæjumót þar sem veður-
guðimir léku við mótsgesti.
Morgunblaðið/Sigríður
SIGURLIÐ Fylkis í 5. flokkl, A-lið ásamt þjálfara sínum.
Morgunblaðið/Sigríður
ÞRJÚ efstu lið í 4. flokki, B-liða. í efstu röð eru FH-ingar sem höfnuðu í 1. sæti, mlðröðlna
sklpa silfurlið Sjörnunnar og fremst er llð Hauka er hafnaðl f þrlðja sæti.
Snorri varð um
miðjan hóp
SNORRI Valdimarsson 17 ára
siglingamaður úr Ými varð í 36.
sæti af 60 keppendum á Norður-
landamóti unglinga í siglingum á
Evrópu-kænu en mótið fór fram
f Horten í Noregi á dögunum.
Lítll vindur var þegar mótið fór
fram og setti það nokkurt strik
í reikninginn hjá siglingamönn-
unum auk þess sem nokkur
straumur var sem ekki hjálpaði
heldur upp á. Norðurlandameist-
ari varð Norðmaðurinn Richard
Nilsen. Fyrirkomulag mótsins var
þannig að hverju landi var heim-
ilt að senda 15 keppendur í hveij-
um flokki en einnig var keppt á
„optimist“-bátum. Enginn kepp-
andi var frá íslandi í þeim flokki.
Snorri dvelur nú í Tönsberg í
Noregi við æfingar fyrir Evrópu-
meistaramót unglinga í siglingum
á E-kænum, sem þar fer fram á
næstu dögum.