Morgunblaðið - 14.08.1997, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST1997 C 7
ÍÞRÓTTIR
SKOTFIMI
HÖGNI E. Gylfason frá Akureyrl mundar hér haglabyssuna í keppnlnni um íslandsmeistaratltil-
inn í Leirdal á sunnudaginn. Sigur hans kom nokkuð á óvart.
GOLF
Síðast og síst
BANDARÍSKA PGA-meistara-
mótið í golfi hefst f dag á Win-
ged Foot-vellinum nærri New
York. Um er að ræða síðasta
mót þeirra fjögurra stærstu á
hverju ári, en það þykir einnig
sfst þeirra allra. Það hefur ver-
ið nær einokað gegnum árin
af lítt þekktum kylfingum, t.d.
Mark Brooks, sem sigraði f
fyrra.
Ahugi almennings á PGA-meist-
aramótinu hefur ávallt verið
fremur lítill, miðað við hin þrjú stór-
mótin. Ástæða þess
Edwin ^ ef fil vil1 1
Rögnvaldsson framkvæmd mots-
skrifar ins þegar golf varð
vinsælt sjónvarps-
efni snemma á 6. áratugnum. Þá
var leikin holukeppni á mótinu og
oftar en ekki kepptu minni spámenn
til úrslita um sigurlaunin. Annar
þeirra hafði gjarnan yfirburði í úr-
slitaleiknum og lauk honum því
snemma. Áhorfendum þótti þeir fá
lítið fyrir sinn snúð.
PGA-meistaramótið hefur litla
sem enga sérstöðu, nema að bikar-
inn sem keppt er um er umfangs-
mesti verðlaunagripur stórmótanna
fjögurra. Árið 1958 ákváðu móts-
haldarar að leikinn skyldi höggleik-
ur, en ekki holukeppni eins og áð-
ur. Þannig gátu áhorfendur fylgst
með frægum kylfingum, þótt j)eir
væru ekki í toppbaráttunni. Áður
voru þeir úr leik um leið og þeir
áttu slæman dag. Eigi að síður
voru flestir sigurvegaranna eftir
breytinguna lítt þekktir kylfingar.
Winget Foot-völlurinn var hann-
aður af A.W. Tillinghast, sem var
einn fremsti golfvallahönnuður á
fyrstu áratugum aldarinnar. Vell-
irnir eru í raun tveir, en Winged
Foot vestri hefur ávallt verið notað-
ur í stórmót, en opna bandaríska
mótið hefur ijórum sinnum farið
fram á honum.
Hann er mjög erfiður, um 6.300
metrar og par 70. Síðustu þrjár
holurnar eru allar par 4 brautir
lengri en 400 m. Aðeins tvær par
5 holur eru á vellinum.
Mót hinna minni spámanna
Mark Brooks á titil að verja í ár,
en hann hefur ekki látið mikið á
sér bera í mótum ársins á banda-
rísku PGA-mótaröðinni. Hann er
því ekki líklegur til sigurs.
Sigurvegarar
Árið 1957 var keppninni
breytt í höggleik, en áður
hafði verið leikin holukeppni.
1996..................Mark Brooks
1995.......Steve Elkington
1994............Nick Price
1993...........Paul Azinger
1992............Nick Price
1991............John Daly
1990............Wayne Grady
1989..................Payne Stewart
1988...................Jeff Sluman
1987...........Larry Nelson
1986............Bob Tway
1985.................Hubert Green
1984....................Lee Trevino
1983....................Hal Sutton
1982 ........Raymond Floyd
1981...........Larry Nelson
1980 .........Jack Nicklaus
1979.........David Graham
1978........John Mahaffey
1977.........Lanny Wadkins
1976..........Dave Stockton
1975 .........Jack Nicklaus
1974....................Lee Trevino
1973 .........Jack Nicklaus
1972...................Gary Player
1971..........Jack Nicklaus
1970..........Dave Stockton
1969............Ray Floyd
1968...........Julius Boros
1967...........Don January
1966..........A1 Geiberger
1965............Dave Marr
1964..................Bobby Nichols
1963 .........Jack Nicklaus
1962...................Gary Player
1961..................Jerry Barber
1960....................Jay Hebert
1959..........Bob Rosburg
1958.......Dow Finsterwald
Nauðsynlegt er að hitta brautirn-
ar á Winged Foot, því grasið utan
brauta er 11 til 15 sm hátt. Glomp-
urnar á vellinum eru margar og
nokkuð djúpar. Því er gott að geta
slegið þokkalega upp úr þeim. Auk
þess þurfa kylfingarnir að eiga góða
daga á flötunum, því þær eru hrað-
ar og hallinn á þeim er illsjáanlegur.
Samkvæmt tölfræðinni er Nick
Price frá Zimbabwe sigurstrangleg-
ur. Hann hittir margar brautir, leik-
ur vel úr glompum og er með tiltölu-
lega fá pútt að meðaltali á hring.
Þjálfari Tiger Woods, Claude
„Butch“ Harmon, ólst upp á Winged
Foot og þekkir hvern krók og kima
á vellinum. Hann leiðbeindi læri-
svein sínum þegar hann lék æfinga-
hringi fyrir mótið og bjó hann und-
ir átökin. Ef Woods hittir brautirn-
ar, verður hann tvímælalaust í topp-
baráttunni.
Þeir Ernie Els frá Suður-Afríku
og Bandaríkjamennirnir Fred
Couples, sem hefur sýnt gamla og
góða takta á ný að undanfömu,
Davis Love þriðji, sem þarf að halda
vel á spöðunum til að halda sér í
sæti sem gefur sjálfkrafa sæti í
Ryder-liðinu, og gamla kempan
Tom Watson, sem lék vel á opna
breska mótinu, eru einnig líklegir
til að blanda sér í baráttuna um
titilinn.
Svo virðist sem tími yfirburða-
kylfinga sé liðinn. Áður fyrr gátu
golfáhugamenn treyst á nokkra
menn til að vera í toppbaráttunni
í hverju stórmóti fram á síðustu
brautirnar, t.d. Jack Nicklaus og
Arnold Palmer á 7. og 8., Seve
Ballesteros, Tom Watson, Nick
Faldo og Greg Norman á 9. ára-
tugnum.
Lítt þekktir kylfingar verða
eflaust í nokkrum af efstu sætunum
eins og áður, líkt og Mark Brooks
í fyrra. Margir frægir kylfingar
hafa átt slæma daga undanfarið,
t.d. Faldo og Norman, en þeir og
aðrir úr þeirra hópi geta náð sér á
strik.
HELGARGOLFIÐ
Sveitakeppni GSÍ
Keppni hefst á morgun í öllum deildum
nema þeirri sjöundu. í henni hefst keppni
á laugardag. Liðin í fyrstu deild leika í
Vestmannaeyjum. Einnig er keppt í 2. -
7. deild víðsvegar um landið.
Hvaleyri
Opna SPH-mótið fer fram hjá Keili á laugar-
dag. 18 holur með og án forgjafar.
Heiðmörk
Opið mót verður hjá Golfklúbbnum Oddi í
Urriðavatnsdölum á laugardag. Þetta er
fyrsta opna mótið á nýjum 18 holu velli.
18 holur með og án forgjafar.
Stykkishólmur
Opna Golfhandbókarmótið verður haldið hjá
Mostra á laugardag. 18 holur með og án
forgjafar.
Djúpivogur
Opna Múlastálsmótið fer fram hjá Golf-
klúbbi Djúpavogs á laugardag. 18 holur
með og án forgjafar.
Kiðjaberg
Opna Byko-mótið verður á Kiðjabergi á
sunnudag. 18 holur með og án forgjafar.
Einherjar
30 ára afmælismót Einhetja verður haldið
á Nesvellinum á sunnudag.
Sjómaðurinn
frá Akureyri
hitti best
Högni E. Gylfason, sjómaður
sem keppir _ fyrir Skotfélag
Akureyrar, varð íslandsmeistari í
leirdúfuskotfimi sem fram fór í
Leirdal um síðustu helgi. Hann
skaut 115 dúfum af 120 og síðan
22 dúfur í úrslitum eða samtals
137. Hann náði einu sinni 25 dúfum
í umferð og tvisvar 24. Árangur
Högna er einni dúfu betra en ólymp-
íulágmarkið í greininni.
Högni byrjaði að stunda skotfimi
fyrir aðeins þremur árum og þykir
árangur hans því athyglisverður.
Eins stundar hann sjómennsku og
getur því ekki æft sem skyldi. Besti
árangur hans fyrir íslandsmótið var
þriðja sæti á Eyjaleikunum 1995.
Ævar L. Sveinsson, Skotfélagi
Reykjavíkur, varð annar með 115
dúfur, eða jafn margar og Högni
eftir fimm umferðir, en skaut síðan
tveimur dúfum færra í úrslitum og
endaði með 135 dúfur. Alfreð K.
Alfreðsson, sem keppir einnig fyrir
SR og hefur verið einn besti skot-
maður landsins, varð þriðji með 135
dúfur eins og Ævar.
íslandsmethafinn, Víglundur G.
Jónsson, náði sér ekki á strik og
endaði í 10. sæti með 107 dúfur
eftir fimm umferðir, en þess má
geta að aðeins sex efstu eftir fimm
umferðir keppa í úrslitum.
Einnig var sveitakeppni háð og .
þar sigraði A-sveit SR með 335
dúfur. í sigursveitinni voru Alfreð
K. Alfreðsson (113), Víglundur G.
Jónsson (107) og Ævar L. Sveins-
son (115). B-sveit SR varð í öðru
sæti með 325 dúfur og A-sveit SA
í þriðja með 319 dúfur.
PER Swenson frá Svíþjóð
sem er fyrrum heirnsmet-
hafi t haglabyssu skotflml
og keppti á afmællsmótl SR.
Afmælismót Skotfélags Reykja-
víkur, sem er 130 ára á þessu ári
og er elsta sérsambandið innan ÍSÍ,
var einnig haldið um síðustu helgi.
Þar sigraði Ævar L. Sveinsson, SR,
með 139 (24-22-23-23-23 + 24).
Svíinn Per Swenson, sem er fyrrum
heimsmethafi í greininni, varð að
sætta sig við annað sætið með 137
dúfur (25-23-24-22-23 + 20). Björn
Stefánsson, SA, varð þriðji með 137
dúfur (21-23-24-19-25 + 25) eins
og Svíinn.
OPEN
Golfklúbburinn Oddur gengst fyrir opnu golfinóti á golfvelli
Oddfellowa, Urriðastöðum, laugardaginn 16. ágúst 1997.
Leikið verður i fvrsta sinn é glæsilegum 18. holu golfvelli sem án efa
er orðinn einn allra besti golfvðllur landsins.
Leikinn verður höggleikur með og án forgjafar. Hámarksgefin forgjöf er 25.
Ótrúlega vegleg verðlaun fyrir fyrstu þijú sætin með og án forgjafar. M.a.
Prestige golfsett, driverasett og pútterar. Gjafakörfúr fyrir lengsta
upphafshögg á 12. braut og nándarverðlaun á 4. og 13. braut. Einnig verður
dregið úr skorkortum
Tveimur timum fýrir verðlaunaafhendingu verður keppt í “drive keppni”.
Verðlaun fyrir lengsta drive á braut fær Prestige driver.
Þátttökugjald er aðeins Kr. 2000,-
Fjöldi þátttakenda er takmarkaöur við 200 keppendur og því er vissara að panta
rástíma sem fyrst hjá Jóhanni í síma 565-9092.
Styrktaraðili: Ásgeir Sigurðsson ehf:
|
LUX h
mentadent P
Œkwe
ORGÁNÍCS
Batc/ieíors
Tcwenefs