Morgunblaðið - 14.08.1997, Blaðsíða 8
KNATTSPYRNA
Beckham kom inn á til
að skora sigurmarkið
" ■ * gtk
TEDDY Sheringham, miðherji Man. Utd., sæklr að markl Sc Reuter luthampton.
Stjömumprýtt lið
Rangers kjöldregið
DAVID Beckham, er kominn aft-
ur á fulla ferð - eftir að hafa
verið úti í kuldanum. Alex Fergu-
son, sem hefur látið hann verma
varamannabekkinn, setti hann
inn á á tfundu mín. seinni hálf-
leiks í gærkvöldi gegn Sout-
hampton - hann þakkaði fyrir
sig með því að tryggja meistur-
um Man. Utd. sigur á Old Traf-
ford, 1:0. Beckham skoraði
markið tólf mín. fyrir leikslok
með góðu vinstrifótarskoti. Ray
Giggs, sem var potturinn og
pannan f leik United, sendi
Beckham knöttinn og hann skor-
aði af átta metra færi fram hjá
Paul Jones markverði.
Fyrir leikinn fékk Alex Ferguson
viðurkenningu fyrir að hafa
verið útnefndur knattspyrnustjóri
' ársins. Norðmaðurinn Henning Berg,
sem Ferguson keypti á fimm millj.
punda á mánudaginn, stóð sig vel í
vöminni.
Chris Sutton skoraði þrennu fyrir
Blackburn, sem vann óvæntan stór-
sigur á Aston Villa á Villa Park, 4:0.
Llverpool fékk skell
Paul Ince, nýi fyrirliðinn hjá Liv-
erpool, hélt vupp á það að leika sinn
fyrsta leik á Anfield Road, með því
að skora. Það dugði ekki, þar sem
Leicester fagnaði sigri, 2:1. Leik-
menn Liverpool máttu hirða knöttinn
úr netinu hjá sér eftir aðeins 72.
sek. Matt Eliott skoraði markið eftir
sendingu frá Emile Heskey, sem
. sendi knöttinn yfir David James,
markvörð Liverpool til Eliott.
Leikmenn Leicester, sem með
smáheppni hefðu átt að vinna stærri
sigur, léku vel og fengu þeir Ince,
Þjóðveijinn Karlheinz Riedle og hinn
ungi Michael Owen lítinn frið til að
byggja upp leik Liverpool. Evans
knattspymustjóri breytti leikskipu-
lagi Liverpool í byijun seinni hálf-
leiks - sendi Danny Murphy inn á
fyrir Stig Bjömeby og lét lið sitt leika
4-4-2. Þetta var eftirminnileg stund
fyrir hinn 20 ára Murphy sem var
keyptur frá Crewe í sumar fyrir 1,5
millj. punda.
Les Ferdinand skoraði fyrsta mark
sitt fyrir Tottenham en það dugði
skamm - West Ham fagnaði sigri,
2:1. John Hartson skoraði fyrra
mark „Hammers“ eftir aðeins fjórar
mín. Eyal Berkovic skoraði seinna
markið á 70. mín. Sol Campbell,
miðvörður Tottenham, meiddist í
leiknum - tognaði á hné á 16. mín.
og fór af velli. Derby lék sinn fyrsta
heimaleik á nýa vellinum, Pride Park,
sem kostaði 20 millj. pund. Þegar
liðið hafði yfir 2:1 gegn Wimbledon,
var leiknum hætt þar sem flóðljós
biluðu á tólftu mín. í seinni hálfleik.
24.571 áhorfendur biðu í 32 mín.
eftir að reynt var að tendra ljósin á
t ný en það tókst ekki.
Portúgalski miðvallarleikmaður-
inn Bruno Ribeiro, sem Leeds keypti
frá Vitoria Setubal, lék stórt hiutverk
þegar Leeds lagði Sheffield Wed,
3:1. Hann lagði upp fyrsta markið
sem Rod Wallace skoraði og skoraði
síðan þriðja mark liðsins.
að má segja að IFK Gautaborg
hafi kjöldregið skosku meist-
arana í Glasgow Rangers með því
að vinna 3:0 á heimavelli í fyrri
leik liðanna í Evrópukeppni bikar-
hafa í gærkvöldi. Oll mörkin gerð
í síðari hálfleik. Róðurinn gæti
reynst erfiður hjá skoska liðinu sem
hefur ekki riðið feitum hesti frá
leikjum sínum í Evrópukeppninni
undanfarin ár þrátt fyrir stjörnum-
prýtt lið.
Eftir rólegan fyrri hálfleik þar
sem Rangers virtist spila upp á jafn-
tefli fékk liðið á sig tvö mörk með
þriggja mínútna millibili í síðari
hálfleik. Stefan Petterson skoraði
fyrst með skoti af 20 metra færi
og síðan bætti Per Karlsson öðru
markinu við. Aðeins mínútu fyrir
leikslok gulltryggði varamaðurinn
Peter Eriksson sigurinn og gerði
um leið leikinn að martröð fyrir
skosku meistarana.
Paul Gascoigne, sem hafði aðeins
leikið einn hálfleik með Rangers á
tímabilinu, var ekki líkur sjálfum
sér - virkaði þungur og slakur.
Heppnin meó IMewcastle
Miðvallarleikmaðurinn John Ber-
esford skoraði bæði mörk New-
castle í 2:1 sigri á Croatia Zagreb
og Newcastle á því góða möguleika
á að komast áfram í Evrópukeppn-
inni því heimaleikurinn er eftir.
Beresford gerði fyrra markið um
miðjan fyrri hálfleik eftir undirbún-
ing Faustino Asprilla og Robs Lee.
Igor Cvitanovic jafnaði fyrir króa-
tíska liðið á 52. mínútu eftir send-
ingu frá Silvio Maric. Beresford
náði síðan að koma liði sínu aftur
yfir með marki stundarfjórðungi
fyrir leikslok eftir að Asprilla og
markvörðurinn Drazen Ladic höfðu
lent í samstuði. Leikmenn króatíska
liðsins mótmæltu markinu og sögðu
að Asprilla hefði hlaupið markvörð-
inn viljandi niður. Stöðva varð leik-
inn í tvær mínútur meðan verið var
að róa leikmenn. Það sem eftir lifði
leiks sóttu heimamenn mun meira
og sköpuðu sér færi og mátti New-
castle þakka fyrir að fara með sig-
urinn frá Króatíu.
Létt hjá Feyenoord
Feyenoord burstaði finnska liðið
Jazz Pori á heimavelli 6:2. Það bar
helst til tíðinda í leiknum að Henk
Vos, leikmaður Feyenoord, var rek-
inn út af í byijun síðari hálfleiks
og lék hollenska liðið því einum leik-
manni færra sem eftir var. Henk
Vos hafði reyndar sett mark sitt á
leikinn í fyrri hálfleik en þá gerði
hann tvö mörk, á 22. og 29. mínútu.
Steaua lenti tvisvar
undir en vann samt
Þrátt fyrir að Steaua frá Búkar-
est hafi tvívegis lent undir á móti
franska liðinu Paris St. Germain
vann það samt 3:2 á heimavelli.
Marius Lacatus, fyrirliði, skoraði
sigurmarkið þegar 11 mínútur voru
til leiksloka. Vincent Guerin náði
forystunni fyrir PSG á 19. mínútu.
Iosif Rotariu jafnaði með marki
beint úr aukaspyrnu á 54. mínútu.
Florian Maurice kom franska liðinu
aftur yfir 10 mínútum síðar eftir
sendingu frá Franck Gava, en Densi
Serban jafnaði á 71. mínútu eftir
undirbúning Lacatus, sem var besti
leikmaður vallarins.
„Ég er mjög ánægður að gera
þrjú mörk á móti einu besta félags-
liði Evrópu, en við þurfum að endur-
skipuleggja vörnina hjá okkur fyrir
síðari leikinn í París sem verður
erfiður," sagði Mihai Stoichita,
þjálfari Steaua. „Ég lofa því ekki
að við komumst í meistaradeildina,
en ég lofa betri leik heima í París
en hér í Búkarest,“ sagði Ricardo
Gomez, þjálfari PSG.
■ NANTES í Frakklandi er á
höttunum eftir franska framheijan-
um Mickael Madar hjá Deportivo
la Coruna. Madar hefur einnig
vakið athygli forráðamanna Ever-
ton, en líklegra þykir þó að hann
fari til Nantes.
■ ÞÝSKA 1. deildarfélagið Werd-
er Bremen er reiðubúið að greiða
sem samsvarar um 224 milljónum
islenskra króna fyrir David Zitelli
hjá Strasbourg. Zitelli þykir mjög
skæður framheiji en hann skoraði
alls 19 mörk á síðasta keppnistíma-
bili í Frakklandi.
■ BOLTON hefur fengið franska
sóknarmanninn Marc Libra til
reynslu í annað sinn. Colin Todd,
knattspyrnustjóri Bolton, fékk
Libra til reynslu í tvo daga í byijun
þessa mánaðar með góðum árangri
og þykir nú líklegt að Frakkanum
verði boðinn samningur.
■ DEAN Saunders, sem kom inná
sem varamaður og skoraði þá tví-
vegis í 8:0 sigri Notthingham For-
est á Doncaster á dögunum, hefur
hótað að yfirgefa félagið fái hann
ekki fast sæti í byijunarliðinu.
■ PAUL Ince hefur lýst því yfir
við aðdáendur Liverpool að þótt
hann sé búinn að ganga til liðs við
félagið sé alls ekki öruggt að það
vinni enska meistaratitilinn.
■ JACK Walker, eigandi Black-
burn, hefur ákveðið að eyða 37
milljónum punda í að gera félagið
að stórveldi á ný. Blackburn fékk
samtals 12 milljónir punda þegar
það seldi Graham Le Saux til
Chelsea og Hennig Berg til Man.
Utd. og bætast þær við hinar upp-
haflegu 25 milljónir sem eyða átti.
■ DAVID Platt hefur tilkynnt að
hann hyggist ekki fara frá Arsenal
til Middlesbrough. Bryan Robson,
knattspyrnustjóri Boro, segist mjög
vonsvikinn yfir þessum fréttum og
segir jafnframt að Platt hefði orðið
félaginu mikill styrkur.
■ ÍRSKI landsliðsmaðurinn Mark
Kennedy hefur óskað eftir því við
forráðamenn Liverpool að hann
verði seldur frá félaginu. Kennedy,
sem er 21 árs gamall, hefur verið
orðaður við Wimbledon.
UMÓNAKÓ í Frakklandi hefur
keypt Bosníumanninn Muhamed
Konjic frá FC Ziirich. Konjic, sem
valinn var besti varnarmaður sviss-
nesku deildarinnar í fyrra, skrifaði
undir fjögurra ára samning.
■ BRIAN Laudrup getur ekki
leikið með danska landsliðinu á
móti Bosníu í undanriðli HM í
næstu viku sökum hlaupabólu.
Bróðir Brians, Michael, verður
hins vegar í liðinu á ný eftir langa
fjarveru vegna meiðsla.
■ FRANK Sinclair, varnarmaður
Chelsea, á von á ákæru frá enska
knattspyrnusambandinu fyrir
óprúðmannlega frarnkomu - sýndi
áhorfendum beran bossann eftir að
hafa skorað fyrsta mark liðsins í
3:2 sigri á Coventry um síðustu
helgi.
■ AITOR Karanka, einn af efni-
legustu varnarmönnum Spánveija,
mun líklega leika með Real Madrid
í vetur. Hann er 23 ára og hefur
verið leikmaður Athletic Bilbao
síðan hann var stráklingur. Hann á
að fylla skarð Rafaels Alkorta í
vörn Madridinga, en Alkorta var
seldur til Athletic Bilbao í júní.
■ PATRICK Vieira og Mathew
Upson, leikmenn Arsenal, hafa
verið úrskurðaðir í þriggja leikja
bann af aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins eftir að hafa
verið reknir út af í æfingaleik gegn
PSV Eindhoven í síðasta mánuði.
Bannið tekur gildi 25. ágúst.