Morgunblaðið - 26.08.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIDJUDAGUR 26. ÁGÚST 1997 B 7
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Golli
kagamanna með því að vippa knettinum yfir Albert Sævarsson, mark-
víkingum á sunnudag. Kári Steinn skoraði tvö mörk í leiknum.
r Stjaman
Morgunblaðið/Jim Smart
Stjörnunnar, nær hér ekki að
n,m leikmann Fram.
Liðið er þó farið að skora mörk en
það er til lítils þegar andstæðingarn-
ir skora fleiri. Bestur hjá Stjörnunni
í þessum leik var Hermann Arason,
sem átti ágætan leik á miðjunni. En
þrátt fyrir dökkt útlit var Ingi Björn,
þjálfari Stjörnunnar, bjartsýnn að
íeik loknum: „Það hlýtur alltaf að
styttast í sigurleikinn. Ég lagði upp
með sóknarleik eins og varð reyndin.
Við tókum áhættuna en þetta gekk
ekki upp í dag.“ Varðandi framhald-
ið sagði Ingi Björn: „Ég sé enn fyrir
mér sæti í efstu deild."
1B^%Á 5. mínútu náði Mihajlo
■ %#Bibercic knettinum við
vítateig Framara eftir klaufaleg mi-
stök Jóns Sveinssonar. Bibercic lék
inn í vítateiginn og skaut að marki.
Ólafur Pétursson varði en náði ekki
að halda knettinum og Bibercic fylgdi
vel á eftir og skoraði með föstu hægri
fótar skoti yfir Ólaf.
Árni Ingi Pjetursson skaut
1:1
föstu skoti að marki
Stjörnunnar, sem Árni
Gautur Arason, varði en boltinn barst
til Ágústs Ólafssonar, sem var einn
og óvaldaður á fjærstönginni og átti
ekki í neinum erfiðleikum með að
setja boltann í netið. Þetta gerðist á
11. mínútu.
Ii^Á 24. minútu geystist Ág-
mmmúst Ólafsson upp vinstri
kantinn og sendi fasta sendingu þvert
fyrir mark _ Stjömunnar, þar sem
Ragnar Árnason, varnarmaður
Stjörnunnar, kom á ferðinni með Þor-
bjöm Atla fyrir aftan sig. Ragnar
reyndi að koma knettinum út fyrir
fjærstöngina en ekki tókst betur til
en svo, að hann sendi knöttinn í eigið
mark.
2b ■J^Þegar hálf minúta var liðin
■ mmaí síðari hálfleik átti Her-
mann Arason góða sendingu inn á
vítateig Framara, þar sem Valdimar
Kristófersson tók boltann niður og
sendi hann með hægri fæti í hægra
homið fram hjá Ólafi í markinu.
2«o
■w
Á 59.
mínútu skoraði
Ólaukur Hauksson, þá
nýkominn inn á sem varamaður, sig-
urmark Fram með skoti af markteig
eftir að Þorbjörn Atli Sveinsson hafði
átt í baráttu við varnarmenn Stjörn-
unnar.
Dökktútlití
Boraamesi
EYJAMEIMIM tróna enn á toppi
Sjóvár-Almennra deildarinnar í
knattspyrnu eftir að þeir sigr-
uðu Skallagrím, 3:0, ífremur
bragðdaufum leik í Borgarnesi
á laugardag. Eyjamenn þurftu
þó að hafa heldur meira fyrir
sigrinum en tölurnar gefa til
kynna og greinilegt er að Borg-
nesingar ætla ekki að láta sæti
sitt í úrvalsdeildinni af hendi
baráttulaust.
Eyjamenn byijuðu leikinn af
krafti og strax á 3. mínútu lá
knötturinn í marki Borgnesinga
eftir laglegt skot frá
Sigurgeir Tryggva . Guð-
Guðlaugsson mundssym. Heinm-
skrifar menn voru nokkuð
slegnir út af laginu
við þessa góðu byijun gestanna og
skömmu síðar sluppu þeir með
skrekkinn þegar Sigurvin Ólafsson
skallaði rétt framhjá marki þeirra
eftir sendingu frá Leifi Geir Haf-
steinssyni. Leifur Geir átti síðan
skot í stöng skömmu síðar en aftur
höfðu heimamenn heppnina með
sér.
Um miðjan fyrri hálfleik fóru
Skallagrímsmenn þó að beijast af
meiri krafti og þeir voru óheppnir
að jafna ekki metin þegar Valdimar
Sigurðsson átti ágætt skot að marki
eftir glæsilegan undirbúning Hjart-
ar Hjartarsonar, en G.unnar Sig-
urðsson, markvörður ÍBV, sýndi
hvers hann er megnugur og varði
með tilþrifum.
Borgnesingar komu síðan
ákveðnir til leiks í síðari hálfieik
og á 63. mínútu skaut Sindri Grét-
0B 4 Á 3. mlnútu gaf ívar
■ | Bjarklind góða send-
ingu fyrir mark Skallagríms frá
hægri. Steingrímur Jóhannes-
son beið við nærstöng og skall-
aði knöttinn aftur fyrir sig á
Tryggva Guðmundsson, sem
skoraði örugglega með hægri
fæti.
Om*%k 80. mínútu tók
■ JæiGuðni Rúnar Helga-
son góðan sprett upp hægri
kantinn og sendi síðan fyrir
markið. Þar kom Steingrímur
Jóhannesson aðvífandi, kastaði
sér fram og skallaði knöttinn í
homið vinstra megin.
0B*J|Á 83. mínútu sendi
■ ■IpTryggvi Guðmunds-
son knöttinn fyrir mark Skalla-
gríms frá vinstri. Sverrir
Sverrisson var réttur maður á
réttum stað, skoraði með lag-
iegu skoti og gulltryggði þar
með sigur Eyjamanha.
arsson rétt framhjá marki Eyja-
manna úr góðu færi. Eyjavörnin var
hins vegar föst fyrir og braut flest-
ar sóknarlotur heimamanna á bak
aftur, en Gunnar í markinu þurfti
þó að taka á honum stóra sínum
til þess að veija fasta aukaspyrnu
Björns Axelssonar um miðjan síðari
hálfleik.
Á lokamínútum leiksins gerðust
hlutirnir svo hratt og á 80. mínútu
kom Steingrímur Jóhannesson
Eyjamönnum í 2:0 eftir góða send-
ingu frá Guðna Rúnari Helgasyni.
Aðeins mínútu síðar var dæmd víta-
spyrna á Eyjamenn, en Gunnar Sig-
urðsson gerði sér lítið fyrir og varði
frá Sigurði Sigursteinssyni. Eyja-
menn lögðu af stað í sókn og á 83.
mínútu gulltryggði Sverrir Sverris-
son sigur þeirra með skoti frá mark-
teig eftir sendingu frá Tryggva
Guðmundssyni.
„Þetta var erfiður leikur því
Borgnesingar eru að beijast fyrir
lífi sínu í deildinni og þótt við höfum
haft tögl og hagldir í fyrri hálfleik
voru þeir grimmir í þeim síðari,"
sagði Hlynur Stefánsson, fyrirliði
ÍBV, eftir leikinn.
„KR-ingar misstu af íslands-
meistaratitlinum í fyrra því þeir
voru að tapa stigum á móti liðum
í neðri hluta deildarinnar og við
vorum ákveðnir í að láta það sama
ekki henda okkur,“ sagði Hlynur.
Valsmenn af
hættusvæðinu
VALSMENN unnu geysilega
mikilvægan sigur á Keflvíking-
um að Hlíðarenda á sunnudag.
Með sigrinum stigu Vaismenn
stórt skref að því takmarki að
halda sæti sínu í efstu deild
en Keflvíkingar virðast hins
vegar ætla að gefa eftir á loka-
sprettinum og eru komnir niður
í fimmta sæti.
Borgar Þór
Einarsson
skrifar
Keflvíkingar gátu ekki teflt fram
sínu sterkasta liði, þar sem
þrír leikmenn voru í banni og tveir
meiddir. Þrátt fyrir
það var Eysteinn
Hauksson ekki í
byijunarliði þeirra
og verður það að
teljast afar hæpin ráðstöfun þjálfar-
anna, sérstaklega í ljósi þess, að
Eysteinn hefur verið einn besti leik-
maður liðsins í sumar. Það kom líka
á daginn að Keflvíkingar áttu í
miklum erfiðleikum á miðsvæðinu
í byijun leiksins. Valsmenn náðu
forystunni óvænt strax á 2. mínútu
og voru sterkari allan fyrri hálfleik.
Það er til marks um getuleysi Kefl-
víkinga, að þeir áttu einungis eitt
skot að marki Valsmanna allan
hálfleikinn. Ragnar Steinarsson fór
meiddur af leikvelli á 24. mínútu
og kom Eysteinn í hans stað. Nokk-
uð meiri festa færðist í leik liðsins
við það en undirtökin voru Vals-
manna og bættu þeir við öðru marki
rétt fyrir leikhlé.
Allt annað var að sjá til Keflvík-
inga í síðari hálfleik, enda hafði
Sigurður Björgvinsson gert gagn-
gerar breytingar á liðsuppstillingu
í leikhléi. Ekki liðu nema þijár mín-
útur þar til Keflvíkingar minnkuðu
muninn í 2:1. Valsmenn bökkuðu
mikið og Keflvíkingar tóku öll völd
1BJ%Þegar Gunnar Odds-
■ \#son átti gjörsamlega
misheppnaða sendingu til baka
á 2. mínútu var Salih Heimir
Porca fyrstur að átta sig. Hann
iék boitanum inn í vítateiginn
og skaut með hægri fæti í
vinstra homið og fór boltinn I
stöngina og inn.
2Bf\Á 45. mínútu sóttu
■ ^#Valsmenn að marki
Keflvíkinga og sendi Hörður
Magnússon fyrir markið frá
vinstri. Á ijærstönginni tók
Hólmsteinn Jónasson við knett-
inum og átti þrumuskot að
marki, sem Bjarki Guðmunds-
son varði vel, en hann hélt ekki
boltanum og fylgdi Jón Grétar
Jónsson vel á eftir og kom bolt-
anum yfír marklínuna.
2:1
B v A 48. mínútu átti
■ I Þórarinn Kristjáns-
son góða sendingu inn á vítateig
Valsmanna vinstra megin, þar
sem Eysteinn Hauksson tók
við knettinum og spymti honum
í hægra hornið, framhjá Lárusi
Sigurðssyni í markinu.
á vellinum en gekk þó illa að skapa
sér marktækifæri. Éysteinn komst
næst því að jafna en Lárus varði
þrumuskot hans meistaralega í
þverslána. Valsmenn komust meira
inn í leikinn á lokakaflanum og
voru nálægt því að auka forystuna
þegar Jón Grétar skaut í stöng úr
þröngu marktækifæri.
Valsmenn fögnuðu ákaflega þeg-
ar Kristinn Jakobsson flautaði til
leiksloka, enda langþráður sigur í
höfn; hinn fyrsti eftir að Þorlákur
Árnason tók við liðinu og var hann
að vonum ánægður að leik loknum:
„Fyrsti sigurinn er vissulega mjög
ánægjuiegur. Þegar hugarfarið er'
í lagi þá gengur þetta upp.“ Gunn-
ar Oddsson, leikmaður og þjálfari
Keflvíkinga, var ekki eins glaðbeitt-
ur: „Ég held að það séu ekki mörg
lið á íslandi sem mættu við því að
missa sex menn úr byijunarliðinu.
Við sýndum þó í seinni hálfleik að
við erum miklu betri en þeir. Það
var klaufaskapur að ná ekki að
skora fleiri mörk.“ Aðspurður um
þá ráðstöfun að láta Eystein Hauks-
son ekki heija leikinn sagði Gunn-
ar: „Við vildum brýna Eystein enn
frekar." Næsti leikur Keflvíkinga,,
er bikarúrslitaleikurinn gegn ÍBV
um næstu helgi. Þrátt fyrir slæmt
gengi að undanförnu leist Gunnari
vel á þann leik: „Við höfum viku
til að stappa stálinu I okkar menn
og mætum svo kátir I Laugardal-
inn. Við komum til með að taka vel
á Eyjamönnunum, það er ljóst."
I