Morgunblaðið - 02.09.1997, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Prentsmlðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 2. september 1997
Blað C
Þak-
rertnur
ÞAKVATN skal leitt í holræsi, en
á því er mikill brestur í eldri
hverfum flestra bæja hérlendis,
segir Sigurður Grétar Guð-
mundsson í þættinum Lagna-
fréttir. Hver hefur ekki séð vatn
fossa í rigningartíð úr þakniður-
falli á gangstétt? / 20 ►
Orsakir
rakabletta
KOMA þarf í veg fyrir
kuldapolla í húsum, þar sem
rakinn þéttist. Ef einangrun er
ónúg í plötu eða útvegg, þarf
ráð til úrbóta, segir Bjarni
Ólafsson í þættinum Smiðjan,
þar sem hann fjallar um
rakabletti í húsum. / 31 ►
Ú T T E K T
Nýbygging
við Skúla-
götu
SMÍÐI á nýju atvinnuhús-
pæði hefur tekið vel við
sér í takt við aukin um-
svif í þjóðfélaginu og góðar
efnahagshorfur, enda framboð
á slíku húsnæði ólikt minna en
áður. Við Skúlagötu 17 eru nú
hafnar framkvæmdir við 2.300
'ferm. skrifstofu- og þjónustu-
byggingu, sem verður á tveim-
ur til þremur hæðum fyrir ut-
an kjallara og öll hin vandað-
asta.
Byggingin verður stað-
steypt fyrir utan rishæð, sem
verður úr timbri, en gólfplöt-
ur úr forsteyptum holplötum.
Jafnframt verður byggingin
einangruð að utan og klædd
með vandaðri álklæðningu,
auk þess sem hluti hennar
verður klæddur graníti. Þak-
efni verður úr Iituðu stáli.
„Byggingin stendur á áber-
andi stað og við hönnun henn-
ar var lögð sérstök áherzla á
hið mikla útsýni og nálægðina
við sjóinn," segir Frans K.
Jezorski, húsasmíðameistari
og einn eigandi hlutafélagisins
Skúlagata 17 ehf., sem byggir
húsið, en það er hannað af
arkitektunum Baldri Ó.
Svavarssyni og Jóni Þór Þor-
valdssyni.
Að sögn Franz er markmið-
ið með byggingunni að koma
upp afar vönduðu skrifstofu-
húsnæði, sem er ætlað til
leigu en ekki til sölu. / 18 ►
íbúðaverð í Kópa-
vogi allt að 20%
hærra en á Akureyri
TALSVERÐUR munur er á fer-
metraverði í fjölbýlishúsum í stærstu
byggðarlögunum á höfuðborgar-
svæðinu annars vegar og Akureyri
og Reykjanesbæ hins vegar, eins og
fram kemur á teikningunni hér til
hliðar. Þar er byggt á upplýsingum
frá Fasteignamati ríkisins um íbúðir
í steinhúsum byggðum eftir 1940,
sem skiptu um eigendur á tímabilinu
frá júlí 1996 til júní 1997.
Fermetrastærðir eru séreignarfer-
metrar og sameignarfermetrar ekki
taldir með. Dýrast er fermetraverðið
í 2ja herb. íbúðunum, en fer síðan
lækkandi eftir því sem íbúðimar eru
stærri.
Hæst er fermetraverðið í Kópa-
vogi. Þannig var fermetraverð í
tveggja herb. íbúðum þar að meðal
tali 81.740 kr., í Hafnarfirði 80.441
kr. og í Reykjávík 79.529 kr. Á Akur-
eyri var það 70.351 kr. og í Reykja-
nesbæ 63.485 kr.
I þriggja herb. íbúðum var fer-
metraverðið 74.472 kr. í Kópavogi,
74.415 kr. í Reykjavík og 71.778 kr. í
Hafnarfirði. Á Akureyri var fer-
metraverðið í þriggja herb. íbúðum
65.353 kr. og í Reykjanesbæ 61.203
kr.
Miðað við þessar tölur er meðal-
verð á fermetra 16% hærra í 2ja
herb. íbúðum í Kópavogi en á Akur-
eyri, 14% hærra í 3ja herb. og um
20% hærra í 4ra og 5 herb. íbúðum
Þessar fjárhæðir miðast við stað-
greiðslu og eru meðalverð. Frávik írá
þeim geta þvi verið mikil. Ibúðarhús-
næði er ekki staðlað og misjafnt, hve
mikið er í það borið, hvort sem það er
gamalt eða nýtt.
Skýringin á hinu háa fermetra-
verði í Kópavogi kann að felast í því,
að hvergi er meira byggt hlutfalls-
lega en þar. Fermetraverðið er að
sjálfsögðu hæst í nýjum íbúðum og
byggingaraðilamar byggja til þess að
selja. Hlutfall nýrra íbúða af þeim
íbúðum, sem skipta um eigendur um
þessar mundir, er því sennilega
hvergi hærra en í Kópavogi.
Húsnæðisverð í fjölbýii í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri og
Reykjanesbæ Meðalverð á hvern fermetra
Tveggja herbergja
REYKJAVIK
PAVOGUR
HAFNARFJORÐUR
AKUREYRI
REYKJANESBÆR
Þriggja herbergja
REYKJAVIK
KÚPAVOGUR
HAFNARFJORÐUR
AKUREYRI
i— ____ijnaaaa
Fjögurra herbergja
REYKJAVIK
KOPAVOGUR
HAFNARFJORÐUR
AKUREYRI
REYKJANESBÆR
Fimm herbergja
REYKJAVIK
KÓPAVOGUR
HAFNARFJÖRDUR
AKUREYRI
REYKJANESBÆR
179.529 kr.
_____! 81740
80.441
170.351
63.485
74.415 kr.
____ 74.472
_ 71.778
_ 65.353
61.203
169.299 kr.
I 70.231
62.495
158.499
48.698
163.881 kr.
163.002
160.527
! 56.188
52.851
Kynntu þér kosti
Fasteignalána
Fjárvangs hjá
ráðgjöfum Fjárvangs
í síma 5 40 50 60
Dasmi um mánaðarlegar afborganir af
1.000.000 kr. Fastcignaláni Fjárvangs*
\factír(%) 10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafhgreiðslulán.
*Auk verðbóta
Laugavegi 170,105 Reykjavík, sími 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is
[Tm-
FJÁRVANGUR
L 0 G SIL T VIBIBRÍFAFVRIRIftl