Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 23. september 1997
Blað C
Haust-
laukar
ALLIR geta gróðursett haust-
lauka, segir Hafsteinn Hafliða-
son í þættinum Gróður og
garðar. Þar fjallar hann um
tiílípana, sem eru vinsælasti og
litskrúðugasti flokkur haust-
laukanna og með mismunandi
blómgunartíma. / 28 ►
Nýtt gler
í glugga
GAMLAR tvöfaldar rúður, þar
sem móða er komin á milli
laga, hafa lítið einangrunar-
gildi, segir Bjarni Ólafsson í
þættinum Smiðjan, Oft vill það
dragast furðu lengi að skipta
um gler í glugga, þó að illa
sjáist út. / 30 ►
Bryggju-
hverfi
j RYGGJUHVERFI við
kGullinbrú verður engu
"öðru líkt, sem byggt er
hér á landi nú á dögum, en
þar eiga að fléttast saman
smábátahöfn, íbúðarsvæði og
verzlunar- og skrifstofuhús-
næði. Alls er byggingarsvæðið
um 8 hektarar og þegar það
er fullbyggt, gætu búið þar
um 600-900 manns.
Dýpkunar- og sandsölufyrir-
tækið Björgun ehf. skilar lóð-
unum að mestu eða öllu full-
búnum sem lóðarhafi og
skipulagsaðili, en Björn Ólafs
arkitekt hefur skipulagt
hverfíð. Búið er að grafa báta-
höfnina og grjótverja hana. I
höfninni er gert ráð fyrir sex
flotbryggjum og í lienni eiga
að geta rúmazt allt að 200 bát-
ar.
Fleiri einstaklingar
sækja um húsbréf
vegna nýbygginga
MIKIL aukning varð í húsbréfaum-
sóknum vegna nýbyggipga einstak-
linga í júlí og ágúst. Á sama tíma
varð miidll samdráttur í húsbréfaum-
sóknum byggingaraðila. Aðalskýr-
ingin kann að liggja í því, að mikil
sala hefur verið í nýjum íbúðum að
undanfórnu, en íbúðirnar seldar á
meðan þær eru í byggingu.
Þá eru íbúðirnar ekki orðnar láns-
hæfai- og það kemur því í hlut kaup-
andans að sækja um húsbréfalánið
en ekki byggingai’aðilans. Þetta kann
líka að benda til meiri áhuga á nýju
sérbýli, einkum raðhúsum, sem mikil
eftirspum er eftir nú, en þau eru að
talsverðu leyti byggð á vegum ein-
staklinga.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa er nú
lægri en hún hefur verið lengi og
afföllin um leið. Þetta kemur sér vel
fyrir bæði seljendur og kaupendur
og getur vel verið ein ástæðan fyrir
aukningu í húsbréfaumsóknum ein-
staklinga, sem hyggjast kaupa eða
eru í byggingarhugleiðingum.
Að sögn Jóns Guðmundssonar, for-
manns Félags fasteignasala, eru ekki
líkur á verðhækkunum á íbúðarhús-
næði á meðan ávöxtunarkrafan helzt
óbreytt, þar sem seljendur fá hærra
raunverð fyrir eign sína en áður, þar
sem þeir fá meira fyrir húsbréfin.
„Á meðan má vart búast við nafn-
verðshækkun, þó að erfítt sé að spá
um slíkt með vissu í slíkri uppsveiflu,
sem nú er almennt í þjóðfélaginu,“
sagði Jón Guðmundsson.
Að sögn Jóns er nú mikil eftir-
spurn eftir atvinnuhúsnæði og fyrir-
sjáanlegt, að svo verði um nokkurn
tíma. En talsvert er þegar í gangi af
nýbyggingum og því líklegt, að fram-
boð aukist á ný, þegar frá h'ður.
Það er ekki nýtt að húsbréfaum-
sóknir frá byggingaraðilum sveiflist
nokkuð. Þær jukust mjög í ágústmán-
uði í fyrra en drógust svo saman að
sama skapi í september og október,
unz þær jukust svo í nóvember á ný.
Afgreiðslur í húsbréfakerfinu
í janúar- ágúst 1997 breyting frá sama , C tímabili 1996 Innkomnar umsóknir / Notað húsnæði L Endurbætur Nýbyggingar einstaklinga Nýbyggingar byggingaraðila BRÉhj 5000 \ Breyting jan.-ág. 1997/1996 +6,3% +14,9% +21,9% -19,8%
Samþykkt skuldabréfaskipti
Notað húsnæði - fjöldi +6,4%
Notað húsnæði - upphæðir +7,0%
Endurbætur - fjöldi -11,1%
Endurbætur - upphæðir +1,2%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöldi +9,4%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæðir +17,6%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi +3,7%
Nýbyggingar byggingaraðita - upphæðir +7,5%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæðir +9,4%
Útgefin husbréf
Reiknað verð +1,8%
Aðkoma að Bryggjuhverfi
verður að norðanverðu frá
Höfðabakka og að sunnan-
verðu frá Sævarhöfða. I fyrsta
áfanga verður byggt á þeim
ióðum, sem eru næst sjónum.
Að sögn Sigurðar Helgason-
ar, framkvæindastjóra Björg-
unar, verður byrjað á gatna-
gerð í nóvember og stefnt að
því að gera þennan áfanga
byggingarhæfan fyrir áramót.
Falleg hús verða áberandi í
Bryggjuhverfi, en lóðirnar eru
seldar med sainræmdum
teikningum til þess að tryggja
að hverfíð fái heillegt yfir-
bragð og njóti sín sem bezt.
Lóðir í Bryggjuhverfi eru
til sölu hjá fasteignasölunni
Borgum. / 18 ►
Fastdgpiaíán
Fjárvangs
Kynntu þér kosti
Fasteignalána
Fjárvangs hjá
ráðgjöfum Fjárvangs
í sirna 5 40 50 60
Dæmi um mánaðaricgar afboiganir af
1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs*
\fcxtir(%) 10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafngreiðslulán.
*Auk verðbóta
rnTP'
FJÁRVANGUR
lOEEIH VERflBREFAFYRIRTÆK!
Laugavegi 170,105 Reykjavík. slmi 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is