Morgunblaðið - 24.09.1997, Side 1

Morgunblaðið - 24.09.1997, Side 1
64 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 216. TBL. 85. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Skelfílegar lýsingar á morðæði bókstafstrúarmanna í Alsír Almenniug’iir sem lamaður af ótta París. Reuter. ALSIRSKIR bókstafstrúai-menn drápu 85 manns og særðu 67 í Baraki-héraði rétt við höfuðborg- ina, Algeirsborg, í fyrrinótt að því er fram kom hjá hinni opinberu fréttastofu landsins, APS. Aðrir segja, að meira en 200 manns hafi verið myrtir og eru lýsingar sjón- arvotta á gi-immdarverkunum skelfilegar. Tvísýnt um líf 31 hinna særðu Um er að ræða önnur mestu eða mestu fjöldamorð, sem íslamskir bókstafstrúarmenn í Alsír bera ábyrgð á í sex ára löngu stríði þeirra við stjórnvöld. I lok ágúst vor 98 manns drepnir og 120 særð- ir í Sidi Rais, sem einnig er rétt við höfuðborgina, en óbreyttir borgar- ar og óháðir fjölmiðlar fullyrtu þá, að mannfallið hefði fai-ið yfir 300. Að sögn yfirvalda er tvísýnt um líf 31 þeirra 67, sem voru særðir í fyrrinótt. Almenningur í Alsír er sem lamaður af ótta vegna þessara at- burða en sjónarvottar að morðun- um í fyrrinótt segja, að morðingj- arnir hafi skorið fólk á háls, afhöfð- að lítil börn, brennt suma lifandi og rist á kvið ófrískra kvenna. Tóku þeir með sér margar ungar stúlkur en þær nota þeir sem kynlífsþræla og myrða að lokum. Um er að ræða tvær meginfylk- ingar bókstafstrúarmanna í Alsír og stendur önnur þeirra fyrir morðæðinu. Hin, íslamska frelsis- fylkingin, fordæmdi hryðjuverkin í gær og skoraði jafnframt á Samein- uðu þjóðimar að skerast í leikinn í Alsír. Krafðist hún þess einnig, að ríkisstjómin og Liamine Zeroual, forseti landsins, segðu af sér vegna þess, að þau vildu ekki reyna að leysa málið með samningum. Ekki verður samið við frelsishreyfinguna Ahmed Ouyahia, forsætisráð- herra Alsírs, kom fram í sjónvarpi á sunnudagskvöld og viðurkenndi þá, að landsmenn væru skelfingu lostnir vegna morðæðis íslömsku bókstafstrúarmannanna. Hann sagði hins vegar, að ekki yrði sest að samningum við Islömsku frelsis- fylkinguna. Sögulegur fundur sambandssinna og Sinn Fein á N-frlandi Erkifiendur hittast í fyrsta sinn í 75 ár Reuter DAVID Trimble, leiðtogi flokks sambandssinna Ulster, fer fyrir sveit sinna manna er þeir ganga af fundi með Sinn Fein í Belfast. Ojöfnuður gagnrýndur LI Peng, forsætisráðherra Kína (t.h.), fagnaði efnahagslegum uppgangi í mörgum þróunar- löndum heims þegar ársfundur Alþjóðabankans og Alþjóðagjald- eyrissjóðsins var settur í Hong Kong í gær. Hann spáði örum hagvexti í Kína á næstu áratug- um og sagði að landið yrði á meðal helstu iðnvelda heims um miðja næstu öld. Hann sagði að 1,3 milljarðar manna lifðu undir fátæktarmörkum vegna órétt- látrar efnahagsskipunar í heim- inum og auðugustu ríki heims yrðu að gefa meiri gaum að fá- tækustu ríkjunum. James Wol- fensohn, forseti Alþjóðabankans, tók í sama streng og líkti efna- hagslegum og félagslegum ójöfn- uðinum í heiminum við tíma- sprengju. ■ Líkt við tímasprengju/25 Mús veldur töfum Jdhannesarborg. Reuter. MÚS sást skjótast milli sætaraðanna í þotu British Airways skömmu eftir að hún lenti á flugvellinum í Jóhannes- arborg í Suður-Afríku á mánu- dag og olli það sólarhringstöf á brottför á meðan eitrað var fyrir músinni í farþegarýminu. Vélin var að koma frá Gabo- rone í Botswana og átti að halda áfram til London á mánudags- kvöld. Að sögn fulltrúa flugfé- lagsins sást til lítils nagdýrs, sem talið var að væri mús, um borð og því þurfti að hreinsa farþegarýmið og athuga öll tæki vélarinnar. Hún fór því ekki af stað aftur fyrr en í gærkvöldi. Ekki hafa borist fregnir af af- drifum músarinnar. Belfast. Reuter. FULLTRÚAR sambandssinna í viðræðum á Norður-írlandi sögðu í gær að leiðtogar Sinn Fein, sem eru lýðveldissinnar, væru „guðfeð- ur hryðjuverkanna". Fulltrúar þessara aðila hittust augliti til auglitis í gær í fyrsta sinn í 75 ár. Flokkur sambandssinna Ulster (UUP), sem er helsti málsvari mót- mælenda, sem eru í meirihluta á Norður-írlandi, skoraði í gær á bresk stjórnvöld að vísa fulltrúum Sinn Fein, stjómmálaarms Irska lýðveldishersins (IRA), frá viðræð- um um frið á Norður-írlandi. Kváðust fulltrúar UUP vænta ákvörðunar frá breskum og írskum stjómvöldum, sem standa fyrir við- ræðunum, í dag. Mo Mowlam, Norður-írlands- málaráðherra bresku stjórnarinnar sagði að tilkynnt yrði í dag hvort orðið yrði við kröfunni. Fulltrúar flestra flokka er taka þátt í viðræð- unum væntu þess þó að Sinn Fein yrði ekki vísað frá samningaborð- inu. Ræddu ekki beint við Gerry Adams David Trimble, leiðtogi UUP, sagði eftir fundinn í gær að fulltrú- ar flokksins hefðu ekki rætt beint við Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, á fundinum, er stóð í þrjá stundarfjórðunga. „Við lögðum áherslu á tengsl Sinn Fein og IRA og vöktum athygli á viðvera guð- feðra hryðjuverkanna [...] sem hafa skekið þennan landshluta í 25 ár,“ sagði Trimble við fréttamenn að fundinum loknum. Fulltrúar Sinn Fein segja flokk- inn lögmætan og ekki ráða neinu um vopnaeign IRA. Hafa leiðtogar flokksins ítrekað neitað því að þeir séu meðlimir samtakanna. Bretar veittu flokknum aðild að viðræðun- um í síðustu viku eftir að IRA af- lýsti baráttu sinni gegn breskum yfirráðum á Norður-írlandi. Sam- bandssinnar eru ósáttir við að IRA var ekki gert að afvopnast áður en Sinn Fein fékk aðild að viðræðun- um. Adams sagði í gær að sú ákvörðun sambandssinna að setj- ast við sama borð og lýðveldissinn- ar væri skref í rétta átt. Trimble tók af allan vafa um það, að þótt fulltrúum Sinn Fein yrði ekki meinað um þátttöku í viðræð- unum myndi UUP ekki fylgja for- dæmi sumra smærri, harðlínusinn- aðra flokka sem sniðganga friðar- viðræðurnar. Framleiðsla á plútoníum minnki Moskvu. Reuter. BANDARÍKIN og Rússland und- irrituðu í gær samkomulag sem miðar að því að stemma stigu við framleiðslu og útbreiðslu plúton- íums, sem hægt er að nota sem efnivið í kjarnorkusprengjur. „Eftir mikla fyi'irhöfn tókum við mikilvæga, jafnvel sögulega, ákvörðun," sagði A1 Gore, varafor- seti Bandaríkjanna, fréttamönnum að loknum fundi sínum með Viktor Tsjemomyrdín, forsætisráðherra Rússlands, í Moskvu í gær, þar sem þeir undirrituðu samkomulagið. Samkvæmt samkomulaginu skuldbindur Rússland sig til að þiggja hjálp Bandaríkjanna til að breyta fyi'ir aldamót þremur kjarnakljúfum, þar sem framleiðsla kjarnorkuvopna-plútoníums hefur farið fram, í venjulega kjarnakljúfa sem framleiða raforku til almennr- ar notkunar. Ennfremur heita Rússar því að taka ekki aftur í notkun 10 aðra slíka kjarnakijúfa sem þegar hefur verið lokað. Bandaríkjamenn heita því á móti að taka ekki aftur í notkun 14 plútoníum-kjarnakljúfa sem þeir lokuðu 1989. I samkomulaginu er einnig kveðið á um hvernig eftirliti með að því sé framfylgt skuli hátt- að. Mikilvægt skref í afvopnunarátt Sérfræðingar í afvopnunarmál- um telja samkomulagið vera mikil- vægasta skrefið í langan tíma í átt að því að minnka vopnabúnað risa- veldanna tveggja, auk þess sem það leggur sitt af mörkum til að minnka áhyggjur vestrænna ríkis- stjórna yfir því að geislavirk efni sem nýtzt geta til framleiðslu kjarnorkuvopna séu seld eftir ólög- legum leiðum frá áhrifasvæði Sov- étríkjanna fyrrverandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.