Morgunblaðið - 24.09.1997, Page 35

Morgunblaðið - 24.09.1997, Page 35
> MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 35 I I & I ; > . i i i i \ > \ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Svar til Júlíönu Guðmunds- dóttur Bender Frá Þórí Guðmundssyni: í MORGUNBLAÐINU þann 12. sept. síðastliðinn sendir frú Júlíana Guðmundsdóttir Bender stjórn Líf- eyrissjóðs leigubifreiðastjóra opið bréf. Ég þakka fyrir bréfið og það yljar vissulega um hjartarætur þegar maður finnur að það sem reynt var að byggja upp á sínum tíma er fólki einhvers virði. Ég verð þó að láta það koma strax fram að ekki nema lítill hluti bréfs- ins á erindi til stjórnar lífeyrissjóðs- ins því allir aðrir sjóðir sem taldir eru upp í bréfinu t.d. byggingasjóð- ur, sjúkrasjóður, ekknasjóður, af- mælissjóður og húseignasjóður eru stjórn Lífeyrissjóðs leigubifreiða- stjóra algjörlega óviðkomandi. Og séu allir þessir sjóðir til, sem vel getur verið, er trúlegt að þeir séu í eign og vörslu bifreiðastjóra á þeirri stöð sem var vinnustaður Ingólfs Bender á hans löngu starf- sævi. En þá að málefnum sem varða lífeyrisrétt leigubifreiðastjóra. Líf- eyrissjóður leigubifreiðastjóra var stofnaður um 1970 fyrir forgöngu Bergsteins Guðjónssonar, þáver- andi formanns Bifreiðastjórafé- lagsins Frama, Bergsteinn hafði varið stórum hluta starfsævinnar í þágu bifreiðastjóra, hann byggði upp flest það sem bifreiðastjórum hefir verið til hagsbóta í sínu starfi og á þeim langa tíma sem hann var í forystu stéttarinnar horfði hann upp á það að margir hættu störfum vegna aldurs eða heilsu- brests fátækir og réttlausir og vildi bæta úr því og barðist fyrir sjóðn- um við mikið skilningsleysi stéttar- innar. Með lögum um starfskjör launafólks og eftirlaun til aldraðra, sem tóku gildi á miðju ári 1980, varð öllum skylt að greiða í lífeyris- sjóð. Ingólfur Bender var mikill heiðursmaður skilvís, vinnusamur og löghlýðinn og þegar skylt var orðið að greiða í lífeyrissjóð gerði hann það skilvíslega en þá voru fá ár eftir af hans starfsævi og greiðslur hans í sjóðinn því ekki miklar. Það sem greitt hefir verið til baka í formi lífeyris er þó meira en fimm sinnum meira en iðgjöldin sem greidd voru og vonandi á sjóð- urinn eftir að greiða mörg ár enn lífeyri vegna þeirra iðgjalda sem Ingólfur greiddi af sinni miklu skil- vísi. í árslok 1990 var sjóðnum lokað (hætt að taka við iðgjöldum) þá var orðinn til sá sjóður sem í dag stendur undir lífeyrisgreiðslum til þeirra sem greitt hafa í sjóðinn. Við þessa breytingu var á aðal- fundi sjóðsins árið 1990 samþykkt breyting á reglugerð hans sem heimilar stjórn sjóðsins að skerða greiðslur úr sjóðnum ef þurfa þyk- ir, sé það gert er það í samráði við tryggingafræðing og þar farið að ráðum sérfræðings. Það er hlut- verk stjórnar sjóðsins að tryggja sem besta ávöxtun eigna, lág- marka rekstrarkostnað og tryggja að allir sem eiga í þessum sjóði fái greiðslur frá sjóðnum þegar þar að kemur. Þegar sjóðnum var lokað skapaðist réttur fyrir leigubifreiða- stjóra til að greiða í Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, það er mjög sterk- ur sjóður og vel rekinn. Söfnunar- sjóðurinn átti í árslok 1996 ellefu og hálfan milljarð, náði ávöxtun upp á 7,34% umfram vísitölu neysluverðs, rekstrarkostnaður árið 1996 var 3,56% af iðgjöldum eða um 0,17% af eignum, þar að auki hefir reglugerð söfnunar- sjóðsins verið breytt þannig að sjóðsfélögum er heimilt að hefja töku lífeyris 67 ára án skerðingar en var 70 ára áður. I þennan sterka sjóð eiga leigubílstjórar rétt á að greiða en staðreyndin er sú að í dag nota sér aðeins um 20 leigubíl- stjórar þennan rétt. Trúlega greiða einhveijir í séreignasjóði en undir- ritaður óttast að of margir sinni þessum málum ekki og ef svo er spyr maður hvers vegna, er skiln- ingur fólks engu meiri á þessum málum í dag en þegar Bergsteinn Guðjónsson háði sína baráttu fyrir lífeyrissjóði fyrir stéttina. Trúlega á einhvern þátt í þessu erfið af- koma og það er nú svo að þegar erfitt er að ná endum saman vilja þessir hlutir sitja á hakanum og því miður virðist afkoma margra fyrst og fremst byggjast á því að heilsa og vinnuþrek endist. Það er rétt hjá Júlíönu að í mörgum tilvikum er ekki úr of miklu að spila hjá ekkjum leigubíl- stjóra og svo mun einnig vera hjá mörgum öldruðum bifreiðastjórum sem hættir eru störfum og mun það eiga einhvern þátt í því hve margir eiga erfitt með að sætta sig við að þurfa að hætta störfum við ákveðin aldursmörk. Það er þó ekki við stjórn Lífey.rissjóðs leigu- bifreiðastjóra að sakast í því efni því enginn byggir upp neitt í and- stöðu við þá sem eiga að njóta þess og ef fólk hugar ekki að þess- um málum fyrr en komið er að starfslokum verður árangurinn samkvæmt því. Ég legg því til að þeir sem búa við þá reynslu að eiga lítinn sem engan lífeyrisrétt og hafa úr litlu að spila haldi áfram að skrifa opin bréf en beini þeim skrifum til þeirra sem enn eiga möguleika og tíma til að koma líf- eyrismálum sínum í lag. ÞÓRIR GUÐMUNDSSON, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs leigubifreiðastjóra, Brekkubæ 33, Reykjavík. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjðrn 569 1329, fréttir 569 1181, iþrðttir 669 1156, sðrblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 669 1115. NETFANG: MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið. ÉGHELD AP £(5 FAfí/ FfíAMHTA c'' '-s'La. P 'OSkrA- O 'f O(8RJJKiMU(l_0 þADE-fí ÖPýfíAfíA AÐ MOfA ST7ÖÆHU- jlt J2e \0 'OGkr/\ - Q 'Q&fíUtvNUfí. O >199€ 996 Tribune Media Services, Inc. All Rights Reserved, Grettir Ljóska l/Æ) SVMah a »4 Éq nf/t þesso. drs\ í//na þtgor j aUt cnctarnú GtSi e/é ir- haraons og q . naraons ot U icmgarC \ S v&éur.' Ferdinand Smáfólk Ég á mér ný einkunnar- Gerðu þetta! Gerðu hitt! Hvers Ef þú færðir þig svolítið þá sæi ég á sjón- orð: „Hvers vegna ég?“ vegna ég! Farðu hingað! Farðu varpið ... Hvers vegna ég? þangað! Hvers vegna ég?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.