Morgunblaðið - 24.09.1997, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Nýir eigendur Hótels Bláfells á Breiðdalsvík
Ætluðu að kaupa bú-
jörð en enduðu á hóteli
Morgunblaðið/jt
NÝJU eigendurnir í barnum á Hótel Bláfelli,
þau Helga E. Jónsdóttir og Vilhjálmur H.
Waltersson.
NYIR eigendur tóku við
rekstri Hótels Bláfells á
Breiðdalsvík í sumar, hjónin
Helga Elísabet Jónsdóttir og
Vilhjálmur H. Waltersson,
sem bæði hafa lengst af alið
manninn á suðvesturhorni
landsins. „Við höfðum um
skeið íhugað að kaupa bújörð
og gerðum nokkur tilboð sem
öllum var hafnað svo það
má eiginlega segja að við
höfum ætlað að kaupa bújörð
en endað á hótelkaupum,"
segir Vilhjálmur í samtali við
Morgunblaðið.
„Eg hafði oft gist hér á
reglulegum ferðum mínum
sem sölumaður og sá að fyrri
eigendur, Skapti Ottesen og
Guðný Jónasdóttir höfðu nóg
að gera. Hér er mikil umferð
ferðamanna á sumrin," segir
Vilhjálmur. „Eitt skiptið
spurðu þau hvort ég vildi
ekki kaupa hótelið en ég gaf
lítið út á það þar sem við höfðum
frekar áhuga á búskap og bauðst ég
til að skrá það á sölu í Reykjavík. I
næstu ferð spurðu þau enn og eftir
að við hjónum höfðum hugsað málið
ákváðum við að skoða það af alvöru.“
Vilhjálmur lauk söluferðinni, kom
til Reykjavíkur á föstudagskvöldi og
næsta morgun óku þau áleiðis til
Breiðdalsvíkur og tóku fasteignasala
með. Lauk málinu þannig að klukkan
3 aðfaranótt sunnudagsins lá fyrir
samþykkt kauptilboð og ekki varð
aftur snúið. Þetta var í maí. Næstu
tvær vikur fóru í að pakka saman
búslóðinni í Mosfellsbænum og 18.
júní tóku þau við rekstrinum.
Vilhjálmur fékk sig lausan úr sölu-
mannsstarfmu, átti ótekið sumarfrí
og naut einnig velvildar vinnuveit-
anda og Helga sem vann þá ekki
utan heimilis þurfti ekki langan fyrir-
vara. Bömin eru ijögur, 5, 11, 13
og 17 ára og er það elsta í skóla í
Reykjavík í vetur og segja þau að
þau kunni breytingunni vel. Og ekki
kviðu hjónin samvinnunni:
„Nei, við höfum áður unnið sam-
an, vomm með fatahreinsun í Mos-
fellsbænum og kunnum hvort á ann-
að. Þetta byggist mikið á eigin vinnu
og góðum starfskröftum sem voru
hér fyrir. Helga sér um eldhúsið og
ég um innkaup, bókhald og fleira og
bæði erum við í framreiðslunni. I
sumar vorum við fleiri og verður svo
aftur næsta sumar og við fáum líka
aukafólk þegar mikið er um að vera,“
segir Vilhjálmur.
Nýtinguna segir hann þokkalega
góða og nokkuð hefur verið
um að hópar af Austurlandi
hafí komið og muni koma til
að halda árshátíðir eða önnur
stefnumót sín. Þá hefur Vil-
hjálmur þegar fengið hópa
veiðimanna, bæði laxveiði-
menn í sumar og skotveiði-
menn í haust. Nokkrar breyt-
ingar eru ráðgerðar á hús-
næðinu í vetur og síðan hefur
Vilhjálmur hugmyndir um
stækkun en í dag eru her-
bergin 15 með 28 rúmum.
Bláfell er eitt af tíu Regn-
bogahótelum sem eru víðs
vegar um landið.
„Fyrri eigandi benti á að
hagkvæmast væri að stækka
hótelið nokkuð til að geta
tekið á móti stærri hópum frá
ferðaskrifstofunum og ég er
búinn að sjá að það er nauð-
synlegt. Best væri að geta
stækkað til dæmis um 20
herbergi með því að reisa
nýja álmu við núverandi byggingu.
Það eru ýmsir möguleikar á aukinni
ferðaþjónustu hér og vaxtarmögu-
leikarnir eru meðal annars í veiðinni.
Þröstur Elliðason, fiskeldisfræð-
ingur, hefur ásamt okkur tekið Breið-
dalsá á leigu og verður sleppt 35
þúsund seiðum á hveiju ári næstu
sjö árin. í tengslum við það þyrfti
að stækka hótelið til að hýsa veiði-
menn, innlenda sem erlenda, sem
dvelja hér nokkra daga í senn. Ég
er bjartsýnn á að okkur og öðrum
takist að fá fleiri til að staldra við á
Breiðdalsvík og dvelja um tíma,“
sagði Vilhjálmur að lokum og nefndi
að hann hefði þegar séð fyrir afleys-
ingafólki þegar þau hjónin þyrftu að
komast í fri - fyrri eigendur væru
meira en til í að leysa þau af!
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HALLDÓR Baldursson skýtur af nýju fallbyssunni.
Fallbyssa sett upp
á Skansinum
Morgunblaöið/Steinunn Ósk
FRAMKVÆMDIR við viðbyggingu Sláturfélags Suðurlands.
Vestmannaeyjum - Á laugardag
var þess minnst í Vestmannaeyj
um að á þessu ári eru 370 ár frá
Tyrkjaráninu. Menningarmála-
nefnd Vestmannaeyjabæjar stóð
fyrir uppákomunni en hápunktur
hennar var þegar Vestmanna-
eyjabæ var afhent fallbyssa að
gjöf til að hafa á Skansinum.
Dagskráin byrjaði með því
fólki var boðið í rútuferð þar sem
komið var við á merkum sögustöð-
um sem tengjast Tyrkjaráninu.
Viðkomustaðir voru við Fiskhella,
Hundraðmannahelli, Sængur-
konustein, Prestastein og Ræn-
ingjatanga þar sem sögð var saga
þessara staða. Að rútuferðinni
lokinni var haldið í virkið á Skans-
inum þar sem Unnur Tómasdóttir,
formaður menningarmálanefnd-
ar, flutti ávarp en síðan rakti
Arnar Sigurmundsson sögu
Skansins.
Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ísfélagsins, flutti
siðan ávarp og afhenti Vest-
mannaeyjabæ forláta fallbyssu að
gjöf frá fyrirtækinu en fallbyssan
er talin svipaðrar gerðar og fall-
byssurnar sem voru á Skansinum
þegar Tyrkirnir frömdu ránið.
Guðjón Hjörleifsson bæjarsljóri
tók við gjöfinni og þakkaði fyrir
hönd bæjarins.
Síðan var þremur skotum
hleypt af fallbyssunni, tveimur
púðurskotum og einu föstu. Hall-
dór Baldursson læknir sá um að
skjóta af byssunni en Halldór er
eini maðurinn hériendis sem hefur
leyfi til að skjóta úr byssu af þess-
SIGURÐUR Einarsson,
framkvæmdastjóri ísfélags-
ins, afhendir Guðjóni Hjör-
leifssyni bæjarstjóra fall-
byssuna að gjöf.
ari tegund. Að lokinni athöfninni
á Skansinum var gengið að Safna-
húsinu með viðkomu á Stakka-
gerðistúni hjá höggmyndinni sem
reist var til minningar um Guðríði
Símonardóttur, Tyrlga-Guddu, en
í Safnahúsinu bauð bæjarstjórn til
kaffisamsætis. Að kaffisamsætinu
loknu var Már Jónsson sagnfræð-
ingur með erindi um Tyrkjaránið
og afleiðingar þess í Eyjum og
með erindi hans lauk þessari dag-
skrá menningarmáianefndar.
Fallbyssan, sem Isfélagið gaf
Vestmananeyjabæ, var síðan not-
uð aftur á sunnudag er hún var
flutt á vörubíl að íþróttavellinum
við Hástein þar sem skotið var af
henni þegar Eyjamenn höfðu ver-
ið krýndir Islandsmeistarar í
knattspyrnu.
Sláturfélagið
stækkar við sig
Hvolsvelli - Sláturfélag Suður-
lands hefur hafið byggingu á 1.800
fm viðbyggingu við kjötvinnslu sína
á Hvolsvelli. Aætlað er að viðbygg-
ingin verði tekin í notkun næsta vor
og verður að henni mikið hagræði
fyrir starfsemina. Ástæða stækkun-
arinnar er einkum mikil aukning í
framleiðslu á tilbúnum réttum, s.s.
1944-réttunum og einnig í hálftil-
búnum réttum.
Með tilkomu nýbyggingarinnar
verður öllum deildum utan einni
breytt og verður mikil áhersla lögð
á hagræðingu t.d. við flutninga og
fullkomna kælingu. Vinnslan verður
öll á einni hæð. Einnig er lagt út í
þessa framkvæmd til að fullnægja
kröfum ESB og verður öll hönnun
miðuð við ESB-staðla svo unnt verði
að flytja út á þeirra markaði unnar
kjötvörur og tilbúna rétti. Að sögn
talsmanna Sláturfélagsins hefur
starfsemi fyrirtækisins verið í örum
vexti undanfarin ár og hefur starfs-
mannafjöldi aukist ár frá ári sem
og þörfin fyrir stærra húsnæði. Það
er Byggingarþjónustan ehf. á Hvols-
velli sem annast mun framkvæmd-
irnar.