Morgunblaðið - 24.09.1997, Side 21

Morgunblaðið - 24.09.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. SEPl'EMBER 1997 21 LISTIR Spuni undir jökli FRÁ kirkjunni að Ingjaldshóli á Snæ- fellsnesi berasttónar djassspuna. Inn- andyra standa yfir upptökur á fyrstu sólóplötu Óskars Guðjónssonar saxafón- leikara. Þeir Óskar, Hilmar Jensson gít- arleikari, Matthías Hemstock trommu- leikari, Skúli Sverrisson bassaleikari og upptökusljóri og Ivar Bongó upptöku- maður dvelja í vikutíma í þessari ein- angruðu kirkju á hólnum sem jafnframt er elsta steinsteypta kirkja landsins. Við blasir fegurð hafs og sveitar og tónlista- mennirnir segjast sækja krafta sköpun- arinnar til jökulsins. Reyndar er ofsögum sagt að náttúru- kyrrð staðarins sé alger. Svo vill til að verið er að leggja lokahönd á fram- kvæmdir við nýtt safnaðarheimili In- gjaldshólskirkju en sóknarnefnd stað- arinns ásamt séra Ólafi Jens Sigurðs- syni hefur gætt þess að fullt tillit sé tekið til starfa tónlistarmannanna og hefur hávaðasömum verkum verið sleg- ið á frest fram yfir upptökur. Dagurinn hófst þó með óvæntum endurbótum á veginum upp að kirkjunni. Skelfingar- svipur kom á andlit manna þegar vinnu- vél ein tók til starfa og sendi frá sér ámátlegt væl í hvert sinn sem henni var bakkað. Þegar Ivar upptökumaður hafði gengið úr skugga um að þetta óvænta aukahljóð hefði ekki nægan styrk í samleik við önnur hefðbundnari hljóðfæri var hægt að halda vinnu áfram. Tildrög upptökunnar eru útskriftar- tónleikar Óskars Guðjónssonar frá FIH í vor, þar sem hann lauk einleikara- prófi í saxafónleik. Á efnisskrá tónleik- anna voru frumsamin verk eftir Óskar en slíkt er einsdæmi hjá skólanum og þótti hugrekki af ungum einleikara. Tónlistinni var vel tekið og Óskar seg- ir að þegar hann hafi fundið þessa já- kvæðu strauma hafi hann Iangað til að Morgunblaðið/Ásdís í KIRKJUGARÐINUM á Ingjaldshóli, fremstur stendur Hilmar Jensson, þá Skúli Sverrisson, Óskar Guðjónsson og Matthías Hemstock. vinna verkin frekar og lagði hann drög að útgáfu hljómplötu með liðsinni þeirra innlendu tónlistarmanna sem höfðu haft mest áhrif á hann sjálfan. Óhefðbundinn djass í óhefðbundnu umhverfi „Hugmyndin var sú að fara út á land þar sem við gætum dvalið saman í ein- hvern tíma í friði og fallegri náttúru," segir Óskar. „Ég fór í ferðalag og end- aði á þessum stað.“ Þeir segja að óneit- anlega sé mikill munur á því að vakna upp af værum svefni á kirkjuloftinu og líta út til Snæfellsjökuls og að þeys- ast af stað í einhvert upptökuverið í borginni og spila inn á plötu á meðan klukkan tifar. „Það er auðvelt að ferð- ast með upptökubúnað nú til dags og við vildum losna úr stressuðu umhverfi borgarinnar sem hefur ákveðin áhrif á tónlistarsköpunina," segir Skúli. Þeir segjast ná meiri einbeitingu ogtengj- ast betur innbyrðis í þessu afslappaða vinnuumhverfi. Skúli segir að þó djassinn hafi legið beinast við hjá þeim öllum vegna hljóð- færanna sem þeir leika á sé sameigin- legt markmið þeirra að búa til nýja tónlist, óháða hefðbundnum skilgrein- ingum á tegundum tónlistar. „Óskar setur fram skýra stefnu í verkum sínum og við hinir reynum svo að hlúa að hans hugmyndum og styrkja í túlkun okkar,“ segir Skúli. Tónlist á eigin forsendum Óskar segir að með tónlistarsköpun sinni sé hann einfaldlega að reyna að skapa sér umhverfi þar sem honum líði vel. „Tónlistin er grundvölluð á minni eigin þekkingu, tilfinningum og tján- ingu og opnar mér leið til að spila tón- list sem er algjörlega eftir mínu eigin höfði,“ segir Oskar. Hann segist hafa öðlast nýja sýn á djasstónlist við það að kynnast spunanum og tónlist manna á borð við Keith Jarrett og Paul Mot- ian. „Ég áttaði mig á því að samkvæmt forsendum þessara manna gæti ég sam- ið mína eigin tónlist og í raun gert hvað sem er,“ segir Óskar. Hilmar lýsir tónlist Óskars sem stefnu sem reiði sig mjög á spunann. „Það er mikið af laglínum í hveiju verki og uppbyggingin er skýr en leið- irnar sem hægt er að fara eru líka margar," segir Hilmar. Tónlistin á plöt- unni endurspeglar víðfeðmt tónlistar- umhverfi flj’tjendanna og höfundsins. Skúli bendir á að tónlistarspuni tengist ekki eingöngu djassinum heldur öllum lifandi formum tónlistar. „Við leggjum áherslu á upprunalega hugmynd djass- ins sem listform spuna og samspils flytj- enda og áhorfenda en ekki ákveðinn og fastmótaðan flutning djasstónlistar eins og hann hefur þróast með árunum. Við hættum okkur út í óvissuna í von um að gera nýjar uppgötvanir,“ segir Skúli. „Enda er það eina leiðin til að halda formi djasstónlistar lifandi." Óskar segir að áhrifavaldar í tónlist- arsköpun sinni komi úröllum áttum og að þær fjölmörgu tónlistarstefnur sem uppi eru í dag séu allar jafnathygl- isverðar og gefandi. „Ég legg enga áherslu á að tónlist mín sé skilgreind sem djass frekar en hvað annað og vonandi höfða lögin til allra sem áhuga hafa á nýrri tónlist,“ segir Óskar. Eftir hádegismat í hálfkláruðu safn- aðarheimilinu er kveikt á reykelsi og kertum í kirkjunni og merki gefið um að upptökur geti hafist á ný. Utandyra mala vinnuvélar í kyrrðinni. Heimsókn þingmanna á Uesturland Þingmenn jafnadarmanna veröa á ferd um Vesturland dagana 25. og 26. september nk. Akranes fimmtudaginn 25. september Þingmennirnir Gísli Einarson, Sighvatur Björgvinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ágúst Einarsson, Össur Skarphéðinsson og Svanfríður Jónasdóttir heimsækja vinnustaði og funda með stjórn verkalýðsfélagsins á fimmtudeginum fyrir hádegi. Borqarnes fimmtudaginn 25. september Á fimmtudaginn eftir hádegi verða þingmennirnir á ferð í Borgarnesi og heimsækja vinnustaði. Stykkishólmur fim. 25. og fös. 26. september Á fimmtudagskvöldið kl. 20.00 verður haldinn fundur með heimamönnum á Hótel Stykkishólmi, allir velkomnir. Gísli Einarsson, Sighvatur Björgvinsson, Svanfríður Jónasdóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttirog Ágúst Einarsson heimsækja vinnustaði á föstudeginum. Snæfellsbær föstudaginn 26. september Á föstudeginum verður haldinn fundur þingmanna með bæjarstjórnarmönnum og vinnustaðir heimsóttir. Þingflokkur jafnaðarmanna Tnnii ISLENSKA OPERAN sími 551 1475 Hin glæsilega ópefa Mozarts sýnd í fyrsta sinn á íslandi COSI FAN TUTTE „Svona eru þær allar66 Frumsýning 10. október 1997 Tónlist: W.A. Mozart. Texti: Da Ponte. Islensk þýðing: Óskar Ingimarsson. Hljómsveitarstjóri: Howard Moody. Leikstjóri: David Freeman. Leikmynd og búningar: David Freeman. Aðstoðarhönnuður: Hulda Kristín Magnúsdóttir. Lýsing: David Freeman. Aðstoðarljósahönnuður: Benedikt Axelsson. Sýningarstjóri: Kristín S. Kristjánsdóttir. Æfingarstjóri: Claudio Rizzi. Söngvarar: Sólrún Bragadóttir, Ingveldur Ýr Jónsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Björn Jónsson, Loftur Erlingsson og Bergþór Pálsson. Hljómsveit Islensku óperunnr. Frumsýning föstudaginn 10. október, hátíðarsýning laugardaginn 11. október, 3. sýn. fös. 17. okt, 4 sýn. lau. 18. okt Sýningar hefjast kl. 20.00. Nýjung: Óperufordrykkur og kvöldverður í Sölvasal, fjölbreytt tilboð íslensku óperunnar og Sólon íslandus. Styrktarfélagar íslensku óperunnar eiga forkaupsrétt til 26. september. Miðasala er opin alla daga nema mánudaga kl. 15—19, sýningardaga kl. 15—20, sími 551 1475, bréfsími 552 7382. Greiðslukortaþjónusta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.