Morgunblaðið - 24.09.1997, Page 24

Morgunblaðið - 24.09.1997, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 25 < STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. KOZYREV OG SAM- STARF í NORÐRI SAMSTARFSMÖGULEIKAR íslendinga og Rússa eru miklir og mikilvægt að samskiptin séu góð. Andrei Kozyrev, þingmaður frá Múrmansk og fyrrverandi utanrík- isráðherra Rússlands, lagði áherslu á þetta í ræðu, sem hann flutti á mánudag, og ítrekaði mikilvægi samstarfs í norðri. Dæmi um slíkt samstarf er sjávarútvegssamningur ís- lenskra og rússneskra stjórnvalda, sem gerður var í ágúst. Hann getur reyndar haft víðtækara gildi og átt þátt í að koma Norðmönnum að samningaborðinu á nýjan leik í Smugudeilunni. Þótt Kozyrev hafi ekki viljað taka undir það, að Norðmenn hefðu reynt að tryggja hag sinn í Smugu- deilunni með því að reka fleyg milli Islendinga og Rússa, sagði hann, að með samstarfssamningnum og væntanlegum stjórnarskiptum í Noregi ykjust líkur á þríhliða viðræðum um Smuguna. „Stundum virðist rússneskum stjórnvöldum sem Norð- menn grípi til einhliða aðgerða og stundum virðist þeim sem íslendingar grípi til einhliða aðgerða," sagði Kozyrev í sam- tali við Morgunblaðið. „Það er nokkuð, sem þyrfti að forð- ast. Allir þrír aðilar þurfa að taka á vandanum.“ Kozyrev var hins vegar ekki aðeins með hugann við haf- ið. Þingmaðurinn, sem í utanríkisráðherratíð sinni átti hvað mestan þátt í að móta utanríkisstefnu Rússa eftir hrun Sovétríkjanna, sýndi mikinn áhuga á samstarfi um húshit- un. Þessi áhugi kom fram í viðræðum Kozyrevs við yfirvöld og athafnamenn á Akureyri, sem er vinabær Múrmansk. Vildi hann fá að vita um hitun húsa, uppbyggingu slíkra kerfa, orkusparnað og einangrun með það fyrir augum að hefja samstarf við íslensk fyrirtæki jafnt sem opinbera að- ila. Hann nefndi einnig möguleika á samstarfi í skipasmíðum og umhverfismálum. Heimsókn jafn áhrifamikils rússnesks stjórnmálamanns sem Kozyrevs er fagnaðarefni, enda hlýtur hún að beina sjónum íslendinga að þeim miklu tækifærum, sem samstarf við þá getur skapað, ekki síst á sviði sjávarútvegs á heima- slóðum hans í Múrmansk. Samskiptin eru þegar orðin allum- fangsmikil, en eru þó enn aðeins vísir að því sem getur orðið. Sjálfsagt er fyrir íslensk stjórnvöld að greiða fyrir samskiptum fyrirtækja beggja landa sem kostur er. Þá er og mikilvægt, að reynt verði að setja niður deilurnar við Norðmenn um veiðar í norðurhöfum sem fyrst. Náið sam- starf við Rússa getur stuðlað að því, að Norðmenn láti af óbilgirni sinni í garð íslendinga. LÍFSHÆTTA í MIÐBORGINNI ARÁS á TVÆR stúlkur aðfaranótt sunnudags í miðborg Reykjavíkur sýnir, að ástandið þar er gjörsamlega óviðunandi. Fólk kann að leggja líf sitt í hættu með því að vera á ferli um og eftir að vínveitingastöðum er lokað. Hætturnar minna orðið á ástandið í ýmsum stórborgum heims, ekki sízt hafnarborgum. Viðstöðulausar hávaðasam- komur í miðborginni eru á góðum vegi með að breyta henni í slíkt umhverfi. Yfirvöld ættu t.a.m. að taka þá ábendingu alvarlega að loka ekki öllum öldurhúsum samtímis - og banna hávaða við íbúðarhús. Tvítug stúlka særðist lífshættulega er maður á fimmtugs- aldri lagði til hennar með hnífi og stakk í hjartastað. Nokkru áður hafði hann lagt hnífnum til sautján ára stúlku. Þessir voðaatburðir gerðust um klukkan fimm aðfaranótt sunnu- dags. Því miður eru þessi árásarmál ekki einsdæmi. Ofbeldi hefur orðið sýnilegra undanfarin ár og yfirleitt er því beitt að næturlagi. Oftast má rekja það til neyzlu vímu- eða fíkni- efna. Þetta ástand kailar á aukna löggæzlu á þessum tíma, þegar margmenni er á ferli í miðborginni og misjafnlega gengur að komast heim. Ekki er langt síðan ungur maður lézt eftir misþyrmingar á veitingahúsi við Laugaveg. Fyrir nokkrum árum réðust nokkrar unglingsstúlkur á jafnöldru sína, að fjölda manns ásjáandi, með þeim afleiðingum, að hún mun seint, ef nokk- urn tíma, bíða þess bætur. Enginn þeirra, sem á horfðu, kom stúlkunni til hjálpar. Þannig mætti lengi telja. Dæmin eru mýmörg. Ofbeldið virðist ekki eiga sér nein takmörk. Er ekki komið meira en nóg af þessari skrílmenningu? Stóriðja eða ekki stóriðja á Austurlandi Framtíðin er eitt atvinnusvæði og meiri fjölbreytni ÍBÚUM á Fáskrúðsfirði hefur fækkað úr 711 í 657 frá 1995. Bjóða verður ný atvinnutækifæri víða á Aust- fjörðum ef takast á að snúa vöm í sókn varð- andi flutning íbúa af svæðinu. Jóhannes Tómasson ræddi við sveitarstjórnarmenn um atvinnumálin en menn leita nýrra tækifæra jafnt í smáfyrirtækjum og stóriðju. ATVINNA er nátengd bú- setu og samgöngumálum og á Austurlandi er gjarnan rætt um þessa hluti í sömu andrá. Austfirðingar standa frammi fyrir því að reyna að halda í fólk sitt og vinnuafi en á síðasta aldarfjórðungi hefur íbú- um fjórðungsins aðeins fjölgað um 0,5% en fjölgun á landsvísu er um 1%. Stóriðja hefur verið til umræðu af og til í meira en þrjá áratugi, allt frá því fyrst var gerð úttekt á hugsanlegu álveri í Reyðarfirði árið 1960. Rúmum áratug síðar hefst síðan uppbygging togaraflota lands- manna og flest sjávarplássin fengu sinn togara nema Reyðfirðingar sem áttu að fá stóriðjuna og vinnuaflið varð að vera tiltækt, að sögn ísaks J. Ólafssonar sveitarstjóra. I fram- haldi af hugmyndum um álver var rætt um kísilmálmverksmiðju í nærri áratug áður en hún var lögð til hlið- ar og aftur er nú rætt um álver sem einn kost. Fara einmitt þessar vik- urnar fram miklar athuganir og við- ræður milli fulltrúa Markaðsskrif- stofu iðnaðarráðuneytis og Lands- virkjunar og Norsk Hydro um stærð og staðsetningu, raforkuverð og skattamál. Er stefnt að lokum þess- ara tæknilegu viðræðna á næstu vikum. Samstaða er góð meðal sveitar- stjórnarmanna á Austurlandi, m.a. í orku- og stóriðjunefnd Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, um að iðnaðarlóðum verði haldið til haga með stóriðju í huga, ekki síst á Reyð- arfírði. „Það var ekki óeðlilegt að ráðherrar skyldu hafa beint allri nýsköpun á suðvesturhornið þar sem fjöldinn er, en ekki í fámennið til okkar,“ segir ísak Ólafsson, sveitar- stjóri á Reyðarfirði, en bendir jafn- framt á að fiskimjölsverksmiðjurnar á Austurlandi séu stóriðja sem þurfi sitt vinnuafl og orku. Æ meira sé t.d. horft til þess að raforka verði notuð í fiskimjölsverksmiðjunum, a.m.k. náist samningar um viðun- andi verð. Jafngilt atvinnusvæði og aðrir staðir „Við höfum ekki sett upp neina forgangsröð um hvað menn vildu helst fá. Aðallega vilja menn benda á þetta sem jafngilt atvinnusvæði og hvaða annað svæði sem er á landinu. Þótt aðeins búi tæplega 700 manns á Reyðarfírði er byggðin í kring eitt atvinnusvæði og það hefur nú alltaf sýnt sig að fólk flytur líka milli bæjar- félaga eftir því sem vinnan og aðrar aðstæður bjóða í þessum fjórðungi eins og öðrum. Við höfum líka gnægð lóða og ódýrt er að útbúa byggingar- land,“ segir ísak ennfremur. ísak segir að nokkuð hafi komið á óvart að ráðherra skyldi ræða um hugsanlega þátttöku Norsk Hydro í virkjana- og stóriðjuáformum á ný- afstöðnu þingi SSA. Kveðst hann fremur vilja túlka orð hans sem skilaboð um að verði virkjað á Aust- urlandi verði orkan nýtt til uppbygg- ingar orkufreks iðnaðar þar fremur en að Norsk Hydro stofnsetji fyrir- tæki þar. „Menn eiga eftir að finna þessa ákjósanlegu málamiðlun um virkjanir á Austurlandi því menn skiptast í tvo hópa, náttúruverndar- menn sem vilja helst varðveita allt og hina sem vilja virkja allt. Þessi sjónarmið verður að sætta. Miðað við allar þær framkvæmdir sem nú eru í gangi í þjóðfélaginu mun ekk- ert fara af stað hér, hvorki virkjanir né ný atvinnuuppbygging, fyrr en árið 1999 eða 2000.“ ísak segir einnig að þegar viðræð- ur við Atlantsál-hópinn stóðu yfír á sínum tíma hafi Austfirðingar bent á að mun ódýrara væri að reisa verksmiðju á Austurlandi, m.a. vegna ódýrari hafnaruppbyggingar, og ekki þyrfti þá að flytja orkuna um langan veg sem væri dýrt. Vinnuafl væri heldur ekki vandamál því það hefði löngum sýnt sig að mannskapur flytti sig milli lands- hluta eftir því sem verkefnin kölluðu á. „Fyrir okkur væri mjög gott að fá inn á þetta vinnusvæði vinnustað, iðjuver hvort sem það er álver eða annað, þar sem ynnu 50 manns eða fleiri á vöktum allan sólarhringinn og fengju sitt frí,“ segir ísak J. Ól- afsson. „Vaktavinnumenn vinna yf- irleitt kringum 190 daga á ári en í fiskinum hér eru menn að vinna all- an daginn sex daga vikunnar allt árið. Þetta er eitt af vandamálum landsbyggðarinnar, fólk hefur ekki þennan frítíma. Menn eru farnir að leggja meira uppúr því að eiga frí og geta verið með fjölskyldunni og svo framvegis. Mörg sjávarplássin eru hreinar vinnubúðir og menn endast ekkert í því alla ævi. Af hveiju er að fækka - það er bijáluð vinna? Af hveiju fjölgar mest á Egilsstöðum þar sem er mest at- vinnuleysi? Þannig spyija sveitar- stjórnarmenn og ég held að við þyrftum að fara í einhveija nafla- skoðun vegna þessara þátta. Menning, listir skipta meira máli en var og það er erfitt að halda slíku uppi í fámenni og þess vegna sækja menn suður í menningarferðir og flytjast þangað að lokum, elta börnin í skóla. Menningarstarfsemi er mikið styrkt og hún þyrfti að komast meira út um land.“ Á Eskifirði menn hafa litið björt- um augum til þess að einhvers kon- ar ný starfsemi kæmi á Reyðarfjörð. „Iðja en ekki endilega stóriðja enda hefur hún ekki verið mjög í umræð- Sum sjávar- plássin eru líkust vinnu- búðum Morgunblaðið/jt ALLS starfar nærri helmingur mannafla á Eskifirði á einn eða annan hátt við sjávarútveg. unni nema kannski síðustu vikurn- ar,“ segir Arngrímur Blöndahl, bæj- arstjóri á Eskifírði. „Menn hafa velt vöngum yfír alls konar minni iðjufyr- irtækjum sem geta verið orkufrekur iðnaður, það mætti þróa sjávarútveg og skapa þar meiri fjölbreytni. Það kunnum við best og kannski gáfu- legast að halda sig að því. Við erum svolítið undir einhæft atvinnulíf seld og viljum gjarnan bijótast út úr því.“ Hann bendir á að sjávarútvegsfyr- irtækin séu í stöðugri þróun og at- vinnulíf í sjávarútvegi sé tiltölulega fjölbreytt á Eskifirði með loðnufryst- ingu, síldarsöltun, frystihúsi og fleiru. „Fólk hefur lítið gefið sig að því að fínna ný atvinnutækifæri sem ekki tengjast sjávarútvegi. Hingað kom rækjuverksmiðja fyrir nokkrum árum og sífellt er reynt að vinna vöruna meira fyrir neytendamarkað. Við höfum einnig verið framarlega í síldarverkun og lausnarorðið hefur verið að koma afurðum á neytenda- markað til að fá sem mest fyrir hana.“ Eitt starf á Eskifirði jafngilt 100 störfum í Reykjavík Atvinnulífið víða á Austfjörðum er kröftugt, atvinnuleysi lítið og þeir sem vilja vinnu fá hana - hinir flytjast brott fremur en að vera at- vinnulausir í heimabyggðinni. En ekki tengjast öll ný atvinnu- tækifæri sjávarútvegi. í fyrra var stofnsett á Eskifirði lögfræði- og endurskoðunarskrifstofa þar sem einnig er rekin fasteignasala með fjórum til fimm starfsmönnum. „Þetta er ígildi þess að í Reykjavík yrði opnaður vinnustaður fyrir 400 til 500 manns - eitt starf hjá okk- ur er sama og 100 störf í Reykja- vík,“ segir Arngrímur. „Við leigjum þeim húsnæði og hvöttum þá til að koma hingað. Embætti sýslumanns er einnig mjög mikilvægt fyrir okk- ur en auk sýslumanns Suður-Múla- sýslu eru hér lögreglumenn og rannsóknarlögreglumaður, ýmis störf sem ekki tengjast fiskvinnslu og eru okkur mjög mikilvæg. Það á líka við um höfnina en nýlega VERIÐ er að reisa nýja mjöl- tanka fyrir SR á Seyðisfirði. Erfiðast verður að tengja Seyðisfjörð við atvinnusvæði nágrannabæjanna. ákvað Eimskip að gera Eskifjörð að útskipunarhöfn á strandleiðinni og þýddi það nokkur ný störf. Hér er því síðasta viðkomuhöfn áður en skipin sigla á Evrópuhafnir sem þýðir mikla möguleika. Hingað koma togarar til löndunar og eru því aðeins í þriggja til fjögurra daga fjarlægð frá markaðnum með fersk- an fisk sem er þeim mjög mikil- vægt. Þetta allt þýðir að höfnin verður að vera vel úr garði gerð, alvöru físki- og hafskipahöfn. Enn má nefna að Fiskistofa hefur komið sér fyrir á Eskifirði með einn starfs- mann.“ Spyija má hvort jarðgöng séu svo nauðsynleg ef vinnuaflið getur flust milli bæjarfélaga eftir því sem störf bjóðast. Þá benda sveitarstjórnar- menn á að vegna fjárfestinga, t.d. húsnæðis, yfirgefi menn ekki svo auðveldlega bæ sinn og ekki sé allt- af víst að bæði hjónin fái vinnu í nágrannabænum. Af þeim sökum sé nauðsynlegt að bæta samgöng- urnar - ekki aðeins ijúfa vetrarein- angrun heldur og gera íbúum kleift að ferðast örugglega og reglulega um allt svæðið. ísak Ólafsson bendir á að störfum sé að fækka í sjávarútvegi með sí- fellt meiri sjálfvirkni og hagræðingu og því vanti meiri breidd í atvinnulíf- ið og fleiri fyrirtæki í fjórðunginn sem laða myndu í Ieiðinni að sér önnur þjónustufyrirtæki en lítið hef- ur fjölgað í þjónustustörfum. Orku- og stóriðjunefnd SSA, At- vinnuþróunarfélag Austurlands og iðnaðarráðuneytið hafa í samvinnu við Fjárfestingarskrifstofu Islands og Markaðsskrifstofu iðnaðarráðu- neytisins og Landsvirkjunar verið með fjölmargar athuganir í gangi til að vekja áhuga fjárfesta til þátt- töku í atvinnulífi, ekki endilega stór- iðju. Sveitarstjórnir á Austurlandi ásamt Byggðastofnun efldu At- vinnuþróunarfélagið og stofnuðu Þróunarstofu með þremur og hálfum starfsmanni sem hefur aðsetur á Seyðisfírði. Allt er þetta því orðið markvissara og þarna koma sveitar- félögin myndarlega við sögu. Þátttaka í nýjum fyrirtækjum „Bæjarstjórn Egilsstaða hefur þá framtíðarsýn að gera sitt til að efla atvinnu á svæðinu og hefur verið að leggja verulega fjármuni í slíka uppbyggingu," segir Helgi Halldórs- son bæjarstjóri. „Eg nefni sem dæmi hlutabréfakaup í nýju hóteli og við höfum verið þátttakendur í nýju verkefni við framleiðslu á sótt- hreinsibúnaði að frum- ____________ kvæði bæjarins. Stofnað hefur verið fyrirtæki um þann rekstur þar sem í dag er unnið í samvinnu við nokkur fyrirtæki. Við höf- um einnig keypt hlut í “ rækjuverksmiðju sem taka mun til starfa í næstu viku í Fellabæ og við lítum svo á að það komi okkur til góða þrátt fyrir að það sé ekki stað- sett í bænum. Allt sem kemur á svæðið skiptir máli hvort sem það er innan eða utan landamerkja bæj- arins.“ Helgi segir einnig sífellt skoðað hvaða aðstöðu megi bjóða fyrirtækj- um til að laða þau til bæjarins. „Menn velta vöngum og margir eru þeirrar skoðunar að stóriðja sé vænlegur kostur með tilheyrandi stórvirkjunum. Aðrir segja að þetta sé ekki það sem við þurfum, nær væri að byggja fjórðunginn upp smám saman. Ljóst er þó að virkjun og stóriðja munu hafa gífurleg áhrif á atvinnuþróun og gjörbreyta öllum aðstæðum. Þá verður hér hröð upp- bygging og öll sveitarfélög myndu fá sinn skerf af henni, ekki síst ef tekst að bæta samgöngurnar. Glerverkstæði á Fáskrúðsfirði? Steinþór Pétursson, sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði, sagði að þar vant- aði fremur fólk en hitt en nefndi þó að ekki gætu allir alltaf fengið vinnu nákvæmlega við sitt hæfi. Það ætti t.d. við um fólk með ýmsa sérmenntun sem fengið gæti vinnu í sinni grein í plássinu en þá væri ekki víst að makinn fengi starf við hæfi sinnar menntunar. Atvinnulíf- ið væri einhæft, mest tengt sjávar- útvegi, en ef tækist að stækka at- vinnusvæðið yfir í næstu byggðar- lög mætti ná meiri fjölbreytni. Með- al nýrra vinnustaða á Fáskrúðsfirði má nefna að Netagerðin Ingólfur er með útibú í bænum og fyrr i sumar flutti heim í gamla plássið sitt glerlistakona sem hyggst koma sér upp verkstæði þar. „Atvinnulífið er brothætt, sveiflur í fiskinum geta komið illa niður á mjög mörgum hér og því er okkur nauðsynlegt að geta boðið upp á störf á fleiri sviðum. Álver er ekki einn kostur- inn af mörgum og mun slíkt fyrir- tæki hafa hér veruleg áhrif. Stór- iðja hlýtur að verða til framdráttar fyrir svæðið enda verða menn að ganga vel frá öllu er varðar meng- unar- og umhverfismál.“ íbúum á Fáskrúðsfirði hefur fækkað um nokkra tugi á liðnum árum og eru þeir nú 657. Nú er þar aðeins einn togari en þeir voru tveir fyrir fáum árum og 4-5 stórir vertíð arbátar. Þá hefur smábátum fækkað mjög. Munar um hvert starf Segja má að erfiðast verði að koma Seyðisfírði inn í þessa mynd um stækkað atvinnusvæði á Austurlandi þannig að menn gætu í auknum mæli sótt daglega vinnu til næstu bæja. Til að svo mætti verða þarf að ijúfa þá vetrareinangrun sem Fjarðarheiðin getur valdið því þótt hún sé rudd reglulega er hún farar- tálmi og færið ekki öruggt. Jónas Hallgrímsson, sem sæti á í bæjar- stjóm, segir þetta spurningu um hversu lengi fólk sættir sig við að búa við einhæft atvinnulíf og geta __________ ekki komist milli staða þeg- ar því hentar. Ekki dugi að segja að vegurinn sé mokaður, menn fari ekki að heiman ef óvíst er hvort þeir geti snúið til baka. Jónas bendir einnig á að með sameiningu geti sveitarfélög líka fremur ráðið sér nauðsynlega sér- fræðinga, sálfræðinga, félagsráð gjafa og aðra slíka sérmenntaða starfsmenn og í kringum slíkt bygg- ist oft upp meira starf sem mikið muni um í þessum litlu bæjum, þar muni um hvert nýtt starf sem hægt sé að laða til bæjarins. Ný störf vant- ar þar sem sí- fellt fækkar í sjávarútvegi Reuter FULLTRÚAR á ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins horfa á stóran skjá þar sem Tung Chee-hwa, Ieiðtogi Hong Kong, sést ávarpa fundargestina við setningu fundarins í gær. * Arsfundur Alþjóðabankans og Al- þjóðagjaldeyríssjóðsins í Hong Kong Qjöfnuði í heim- inum líkt við tímasprengju Forsætisráðherra Kína, sagði við setningu ársfundar Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins í gær að Kína yrði á meðal þróuð- ustu iðnríkja heims um miðja næstu öld. Forseti Alþjóðabankans, líkti efnahagslegum og félagslegum ójöfnuði í heiminum við tíma- sprengju og hvatti þjóðir heims til að berjast gegn honum áður en það yrði of seint. KÍNVERJAR eru nú í fyrsta sinn gestgjafar ársfundar Alþjóðabankans og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins og. hann er haldinn í Hong Kong nokkrum mánuðum eftir að breska nýlendan fyrrverandi varð aftur hluti af Kína. Li Peng, forsætisráðherra Kína, sagði að þar sem horfur væni á örum hag- vexti í landinu væri ljóst að landið myndi láta æ meira til sín taka á al- þjóðavettvangi á næstu áratugum. Gert væri ráð fyrir að hagvöxturinn yrði um 8% á ári til ársins 2000 og 7% á ári til 2010. Verðbólgan yrði hins vegar undir 5% til aldamóta. „Þannig að eftir þijá eða fjóra áratugi, eða um miðja næstu öld, mun Kína vera orðið efnað, lýðræðis- legt og menningarlega þróað sós- íalskt ríki,“ bætti hann við. Athyglin beinist að fátæku ríkjunum Li sagði að iðnríki heims yrðu að gefa fátækustu ríkjunum meiri gaum, ella væri hætta á að hagvöxt- ur þeirra minnkaði. „Hagsæld og velmegun fárra ríkja getur ekki varað lengi á grundvelli fátæktar og van- þróunar meirihluta ríkjanna." Li bætti við að þróuðu ríkin gætu séð fátæku löndunum fyrir tækni- þekkingu og fjármagni en þróunarlöndin gætu boðið upp á náttúruauðlindir, vinnuafl og nýja markaði. Forsætisráðherrann lagði áherslu á að auðugu ríkin gætu ekki ráðskast með fátæku ríkin, sem ættu að fá að velja eigið samfélagskerfí og þróa efnahag sinn með sínum eigin leiðum. Varað við sprengingu James Wolfensohn, forseti Al- þjóðabankans, fjallaði einnig um efnahagslega og félagslega ójöfnuð- inn í heiminum. „Við verðum að gera Þrír milljarðar manna lifa á minna en 140 krónum á dag okkur grein fyrir því að við stöndum frammi fyrir tímasprengju og hún gæti sprungið framan í bömin okk- ar, verði ekkert að gert,“ sagði hann. Wolfensohn sagði að þrír milljarðar manna þyrftu að lifa á andvirði 140 króna á dag eða minna, þar af 1,3^ milljarðar á innan við 70 krónum, 100 milljónir manna væru svangar á hverj- um degi og 150 milljónir fengju ekki tækifæri til að afla sér menntunar. „Þetta fólk á eitt sameiginlegt. Það vill ekki ölmusu. Það vill tækifæri,“ sagði Wolfensohn. Fyrir fundinn höfðu þegar verið samþykktar aðgerðir til að aðstoða skuldugustu ríki heims og ákveðið hefur verið að veita aukið fé í Alþjóð- legu fjárfestingarábyrgðarstofnun- ina (MIGA). Michaei Camdessus, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins, hefur einnig fagnað tillögu breskra stjórnvalda um að skuldug- ustu ríkjunum verði veitt aðstoð við að greiða skuldir sínar fyrir tilstiHji Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Spilling gagnrýnd Wolfensohn gagnrýndi ennfremur spillingu í mörgum þróunarlandanna, sem hann sagði hindra eðlilegan hag- vöxt og félagslegt réttlæti. Hann sagði að ef stjórnvöld í þessum löndum vildu ekki gera ráðstafanir til að stemma stigu við spilling- unni yrði Alþjóðabankinn að draga úr aðstoðinni við þau. Wolfensohn hvatti þjóðir heims til þess að hefja herferð gegn félagslegu og efnahagslegu óréttlæti í heimin- um. „Án efnahagslegrar vonar verður ekki friður. Án réttlætis verður ekki stöðugleiki í heiminum. Án meiri rétt- lætiskenndar verða borgimar okkar ekki öraggar og samfélög okkar verða án stöðugleika." ®

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.