Morgunblaðið - 24.09.1997, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 24.09.1997, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ •í! 4 * € „Bláu drengirnir“ NÚ ERU haust- laukamir óðum að berast til landsins. Oft er sagt að haustlaukamir séu loforð um litríkt vor. Þeir félagar Garðyrkjufélags- ins, sem pöntuðu haustlauka, ættu að geta lagt lauka í moldu um næstu helgi ef vel viðrar. Alltaf best að koma laukunum í mold sem fyrst svo þeir nái að ræta sig áður en frost kemst í jörð. Ein af mínum uppáhalds blómabókum fjallar svo til ein- göngu um blómlauka. Ein grein- in í henni ber heitið „De blá drenge“. Þetta skemmtilega heiti fínnst höfundi að þurfí nánari skýringar við. Orðið er komið úr orðabók yfir dönsk plöntunöfn (Johan Lange) og er í henni talið alþýðlegt sam- heiti yfír ijöldann allan af bláum vorblómum. Hér á eftir verður sagt örlítið frá fjórum af þessum „bláu drengjum". Við notkun fyrirsagnarinnar er að vísu einn galli, sem sé sá að í skrám yfír íslensk plöntuheiti eru „bláu drengirnir" kvenkenndir og bera lilju- eða stjörnu- nöfn. En ef við höf- um í huga að þetta eru jú allt saman laukar - karlkyns- orð - má réttlæta að nota drengjatitil- inn á greininni. Ýmsa góða kosti eiga þeir bláu sam- eiginlega, t.d. koma þeir upp snemma vors og lífga upp á umhverfíð meðan trén eru varla farin að laufgast. Þeir eru afar harðgerðir, þurftarlitlir og lítið þarf fyrir þeim að hafa, gera sig ánægða með venju- lega garðmold, vel framræsta þó og sólelskir eru þeir í meira lagi. Gróður- setningardýptin er 5-7 cm. Þeir eru liljuættar og flestir eiga til stórra ætt- kvísla að telja og eru meira eða minna skyldir. Ræktunaraf- brigði eru fleiri en unnt er að koma tölu á. Þegar þeir eru lagðir í mold er gott að hafa þá nokkra saman í holu t.d. 10 stk. Þannig sjást þeir betur, enda eru blóm „bláu drengj- anna“ flest svo fíngerð að einn og einn drengur (les. laukur) verður ósköp lítið áberandi. Með árunum mynda þeir stórar breiður og njóta sín síðan víða í garðinum ekki síst undir trjám. Ég er ekki grunlaus um að þeir þroski fræ, a.m.k. hef ég fundið þessa vini mína töluvert dreifð- ara í garðínum en mig rekur minni til að hafa sett þá sjálf niður. Hæð þeirra er svipuð, um það bil 10-15 cm. Stjömulilja - Scilla. Blöðin eru nokkur saman í hvirfingu, blómleggimir em blaðlausir. Blómin eilítið drjúpandi, fallega blá og fara sérlega vel með pá- skaliljum eða öðmm gulblóm- strandi vorblómum. Hér á landi mun algengust í ræktun tegund- in Síberíulilja - Scilla sibirica. Afbrigðið „Spring beauty" þykir sérlega fallegt. Scilla sibirica alba ber hvít blóm. Önnur og stórvaxnari tegund af Scillu er Scilla campanulata, Spánarlilja. Hún er með breytilegum litum en þó algeng- ust í bleiku, ljósbláu eða hvitu. S. camp- anulata blómstrar síðari hluta júní og er 30 - 40 cm á hæð. Snæstjama - Chionodoxa er meðai fegurri smá- lauka sem hér eru ræktaðir og teg- undin Chionodoxa lucilae er algeng- ust. Blómin em stjömulaga, og blómstjömumar snúa upp, en hinir „bláu drengimir" em með lútandi blómskipanir. Blóm snæstjömunnar em skærblá með hvitri miðju. Til em af- brigði með hvítum og rósbleik- um blómum, ekki siður falleg og ennþá fíngerðari en bláa af- brigðið. Perlulilja - Muscari ber nafn með rentu því blómin em perlum líkust þar sem þau sitja á stöngl- inum í þéttum sterkbláum klös- um, einna líkast sem þama sé þyrping smágerðra blóm- klukkna. Fagurbláu blómklukk- umar em stundum bryddaðar með hvítu, sem ekki dregur úr fegurð þeirra. Blaðhvirfíngarn- ar em fagurgrænar og standa langt fram eftir sumri. Tegund- ir Muscari armeniacum og ýmis afbrigði hennar eru algengust í ræktun hér. Afbrigði af tegund- inni M. botryoides er með hvít- um blómum. Postulínslilja - Puschkinia. Til þeirrar ættkvíslar teljast aðeins fáar tegundir og hér er helst ræktuð Puschinia scilloides einkum afbrigðið frá Libanon. Blómin em tiltölulega stór og mörg saman í þéttum klasa og krónan vel útbreidd. Blómin eru fölblá, næstum hvít með blárri rák eftir miðju. Postulínsliljan er sérlega falleg og blómin minna á smækkaða útgáfu af hyasintum. Eins og ég sagði í upphafi em „bláu drengirnir" allir harð- gerðir og nægjusamir og dug- legir að fjölga sér. Þeir sóma sér vel hvort heldur er í stein- hæð, txjábeði eða grasflöt. Séu þeir hafðir í grasflöt þarf aðeins að muna að hlífa þeim við slætti fram eftir sumri, svo þeir nái að safna forða í laukinn. Þá munu þeir gleðja okkur vor eft- ir vor. BLÓM VIKUNNAR 370. þáttur llmsjón Ágústa B j ö r n s d ó tt i r EINN „bláu drengjanna“, vínperlulilja - Muscari aucheri (tubergenianum). I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Þakklæti fyrir gott golfmót MIG langar að koma á framfæri þakklæti til forráðamanna golfmóts- ins sem haldið var í Hvammsvík um sl. helgi. Þetta var fyrirtækjamót, parakeppni Proback. Það sem vakti aðallega at- hygli mína var að þama var svo góður andi sem sveif yfir vötnum. Þama var rétti fþróttaandinn á sveimi. Eg vil einnig óska þeim sem unnu keppnina til hamingju með sigurinn. Guðmundur. Hvar fæst Renapur? ÉG keypti í sumar efni sem heitir „Renapur". Ég fékk þetta efni við söluborð í Borgarkringl- unni. Þetta er leðurfeiti og er í hvítri dollu með svampi og þetta gefur bæði gljáa og feiti. Veit einhver hvar hægt sé að nálgast þetta efni? Ef einhver getur gefíð upp- lýsingar um þetta er hann vinsamlega beðinn að hringja í Katrínu í síma 551—1992. Alnet - víðnet - net ORÐIÐ Intemet fer illa í íslensku máli og því mönnum nokkur vor- kunn að þeir reyni að færa til betri vegar. Flestir þeir sem litla eða enga reynslu hafa af tækniundri þessu kjósa að nefna það alnet. Orðið alnet virkar á flesta sem e-ð endanlegt eða e-ð sem rúmast inn- an tiltekins ramma. Þetta er óheppilegt með því að þróun er ör; tækn- inýjungar koma fram með einum eða öðmm hætti hvem einasta dag. Meginókostur þess er svo sá að það er ótækt í samsetningum. Orðið víðnet er gagn- sætt, lýsir nákvæmlega því sem um er að ræða; viðfangi er nær vítt og breitt yfír án tiltekinna endimarka. Orð þetta er hins vegar ótækt í sam- setningum. Orðið net er öllu ris- lægra en hefur þann meginkost, auk þess að spanna það svið sem að framan greinir, að vera þjált í samsetningum. Oftast er víðneti skipt svo: 1. vefur. 2. ftp-svæði og gopher. 3. póstur. 4. ráðstefnur. Ekki verður annað séð en það gangi prýðilega að tala annars vegar um víðnet og nota seinni lið orðsins til að mynda samsetningar svo sem hér er sýnt fram á: 1. net. 2. netsvæði. 3. netpóstur. 4. netstefnur. Guðni Björgólfsson, Reykhólaskóla. Dýrahald Kettlingur í óskilum DÖKKUR kettlingur með hvítar loppur, hvítt trýni og háls er í óskilum í Hvömmunum í Hafnar- fírði. Uppl. í síma 555-4307. SKAK Umsjón Margelr Pétursson STAÐAN kom upp í einvígi Hollendinganna Loek Van Wely (2.655) og Jeroen Piket (2.630) sem er nýlok- ið í Mónakó. Van Wely hafði hvítt og átti leik í þessari stöðu. 39. Rxf5! (Nú hrynur svarta staðan, því 39. - Hxf5 gengur ekki vegna 40. Hd5. Svartur reyndi:) 39. - h4 40. Hd5 - Dc7 (40. - hxg3+ 41. Hxg3! - Dc7 42. Rd6! var engu betra.) 41. De3 - Hf6 42. Kgl - hxg3 43. Rxg3 og svartur gafst upp. Þessi skák var einnig til umfjöllun- ar hér í skákhominu á laugardaginn var, en birtist þá með rangri stöðumynd. Sú átti við textann á sunnudaginn. Einvíginu lauk með jafn- tefli 4-4. Piket lenti tveimur vinningum undir, en vann fimmtu og sjöundu skákina og jafnaði metin. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst á sunnu- daginn kemur og er skrán- ing hafín í síma TR: 568 1690. Tefldar verðar ellefu umferðir og er raðað niður í flokka eftir skákstig- um. Öllum er heimil þátt- taka. Að jafnaði er teflt á sunnudögum kl. 14 og mið- vikudags- og föstudags- kvöldum frá kl. 19.30. BRIPS Umsjön Guömundur Páll Arnarson í GÆR sáum við ítalska Evrópumeistarann Alfredo Versace leika listir sínar í vöminni. Hér er hann í hlutverki sagnhafa. Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♦ 42 ? D7 ♦ G109843 4 Á83 Vestur Austur 4 ÁD9 4 G65 ? K9854 II y G3 ♦ Á ♦ 7652 4 K1097 4 G642 Suður 4 K10873 4 Á1062 ♦ KD 4 D5 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta 2 tíglar Pass 2 hjörtu Dobl 3 tíglar Pass 3 grönd Pass Pass Pass Hjartafjarki kom út og drottning blinds átti slaginn. Versace sá undir eins að hann væri í allt að því von- lausu spili, því annað hvort myndu andstæðingamir gefa tígulinn tvisvar, eða drepa strax og ráðast á inn- komuna. í vöminni voru sterkir spilarar, Cedolin og Mariano, og það vafðist ekki fyrir Cedolin að slá út lauf- kóngi þegar hann komst inn á tígulás. Versace dúkkaði og fékk næsta slag á laufdrottningu. Útlitið var ekki gott, en eitt- hvað varð að gera. Versace ákvað að geyma tíguldrottn- inguna og fara í spaðann af krafti. Hann spilaði kóngnum, eins og hann ætti KG10. Cedolin drap og spil- aði í sakleysi sínu laufí áfram, því hann sá ekki betur en að liturinn væri ennþá stíflaður. En stíflan var auðhreinsuð: Versace henti tíguldrottningunni í laufásinn og tók næstu fímm slagi á tígul. Hjartaásinn beið svo heima sem níundi slagur. HVÍTUR leikur og vinnur. Víkveiji skrifar... VIÐTAL við Jón Sigurðsson, fráfarandi forstjóra Jám- blendiverksmiðjunnar á Grundar- tanga og fýrrverandi ráðuneytis- stjóra í fjármálaráðuneytinu, sem birtist í Morgunblaðinu sl. sunnu- dag, var um margt fróðlegt. Við- horf Jóns til lífs og starfs virðast vera afar heilbrigð og skynsamleg. Hvað skemmtilegast þótti Víkveija að lesa frásögn Jóns af samstarfí hans við Magnús Jónsson frá Mel, en Jón starfaði með Magnúsi í fjár- málaráðherratíð hans. Hann lýsir honum á þann veg, að á engan ráðherrann sé hallað, þótt hann segi að þeirra eftirminnilegastur hafí verið Magnús frá Mel. xxx AÐ, að meginreglumar skiptu máli og það ætti að stánda við þær, var ríkur þáttur í viðhorfum Magnúsar. Ég kunni því vel, ég vil að hlutimir séu skýrir í þessum efnum, mér fínnst skelfílegt ef ráðherra Iætur aðgerðir sínar stjómast af vináttusjónarmiðum eða því að einn kemur að ræða við hann en annar ekki. Tíminn leið og það komu nýir ráðherrar. Ég hef ekkert nema gott um þá að segja - hins vegar breyttist mjög mikið viðhorfið til fjármála ríkisins eftir að Magnús Jónsson hætti. Allar rík- isstjórnir frá 1971 hafa í raun og veru látið reka á reiðanum í fjármál- um ríkisins og það skiptir hundruð- um milljónum króna... Ætli það sé ekki nærri lagi að allan þennan tíma hafi menn ekki aflað tíundu hverrar krónu sem þeir hafa eytt,“ sagði Jón meðal annars í ofan- greindu viðtali. xxx RAUNAR gefur Jón það sterk- lega til kynna að léleg fjár- málastjórn hins opinbera hafí verið ein ástæða þess að hann söðlaði um og hætti sem ráðuneytisstjóri ijármálaráðuneytisins. Líklega væri hið opinbera mun betur statt í dag, ef fleiri hefðu haft jafn íhaldssamt viðhorf til eyðslu og þeir Magnús Jónsson frá Mel og Jón Sigurðsson höfðu, þegar þeir störfuðu saman í fjármálaráðuneytinu. FRIÐUR hefur verið tryggður til þriggja ára á leikskólum þessa lands, með kjarasamningum sveitarfélaga við leikskólakennara, sem undirritaðir voru snemma á laugardagsmorgun og er það vel. Leikskólakennarar hafa í baráttu sinni að undanförnu lagt áherslu á að þeir séu ekki einungis að sinna gæslustörfum á leikskólum lands- ins, heldur fari uppeldis- og fræðslustarf einnig fram inni á leik- skólunum. Á baksíðu Morgunblaðs- ins sl. laugardag birtist skemmtileg ljósmynd af litlu barni á leikskóla, þar sem það stóð undir tilkynningu frá leikskólakennurum, sem Vík- verji telur að hafí ekki verið á boð- legri íslensku. Tilkynningin var svo- hljóðandi: „Ef að fyrirhuguðu verk- falli leikskólakennara verður, mun leikskólanum verða lokað á meðan verkfalli stendur!!!" Getur þetta tal- ist boðlegur texti frá stétt sem kennir sig við uppeldis- og mennt- unarstörf?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.