Morgunblaðið - 30.09.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.09.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ■ GUÐJÓN Guðmundsson alþing- ismaður er formaður íþróttanefndar ríkisins, sem skipuð var fyrir helgi til þriggja ára. Auk hans eru í nefnd- inni Friðjón B. Friðjónsson, til- nefndur af íþróttasambandi Is- lands, og Hafsteinn Þorvaldsson tilnefndur af Ungmennafélagi Is- lands. Reynir G. Karlsson, íþrótta- fulltrúi ríkisins, er varaformaður og aðrir varamenn Ellert B. Schram og Pálmi Gíslason. ■ GUÐNI Bergsson iék allan leik- inn með Bolton er liðið mætti Cryst- al Palace á laugardaginn. Arnar Gunnlaugsson var á varamanna- bekknum og kom ekki inn á. Her- mann Hreiðarsson var hins vegar í byrjunariiði Crystal Palace þriðja leikinn í röð. Leiknum lauk með jafn- tefli, 2:2. ■ HERMANN og Guðni fengu ágæta dóma fyrir leik sinn. Þeir fengu báðir 6 i einkunn hjá fímm blöðum en Hermann fékk 7 hjá People og Guðni 6. ■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék með Stoke sem tapaði fyrir Nott. Forest á útivelli, 1:0. Lárus Orri fékk áminningu á næstsíðustu mín- útu leiksins. Hann var besti leikmað- ur Stoke og fékk m.a. 8 í einkunn hjá dagblaðinu People. ■ ÓLAFUR Gottskálksson stóð sig vel í marki Hibernians í útileik á móti St. Johnstone. Hann fékk 7 í einkunn fyrir frammistöðu sína í sama blaði. Leikurinn endaði með 1:1 jafntefli og var markið sem St. Johnstone gerði talið mark umferð- arinnar í úrvalsdeildinni í Skotlandi - þrumuskot af 20 metra færi í samskeytin og inn. ■ RAGNA Lóa Stefánsdóttir og Arna Steinsen verða þjálfarar ís- landsmeistaraliðs kvenna hjá KR næsta tímabil. Ragna Lóa var þjálf- ari liðsins á nýliðnu tímabili en Arna þjálfaði liðið þegar það varð íslands- meistari 1993. Að sögn Karólínu Jónsdóttur, formanns kvennaráðs, er gert ráð fyrir að flestar ef ekki allar stúlkurnar, sem spiluðu með KR í sumar, haldi áfram auk þess sem fleiri bætast í hópinn. ■ GUÐMUNDUR E. Stephensen, sem leikur með danska úrvalsdeild- arliðinu OB Óðinsvé í borðtennis, lék á sunnudag með liðinu í 6:4 sigri á Baondíaslov, sem er meistari síðasta árs. Guðmundur sigraði í tveimur einliðaleikjum og einum í tvíliðaleik. OB Óðinsvé er efst í úrvalsdeild- inni, með 6 stig eftir þijár umferðir. ■ ELIJAH Lagat, hlaupari frá Kenýa, sigraði í Berlínar-maraþ- oninu sem fram fór um helgina og náði besta tíma ársins í maraþoni. Hann hljóp á 2:07.41 klst. og fékk 43.200 dollara (rúmar 3 milljónir króna) í verðlaun. „Ég hefði getað hlaupið enn hraðar, en vildi ekki skilja vin minn, Sammy Lelei, eft- ir,“ sagði Lagat eftir hlaupið en aðeins munaði 13 sekúndum á þeim félögum. 18.514 hlauparar frá 74 þjóðum tóku þátt í hlaupinu. ■ CATHERINA McKiernan frá írlandi sigi'aði í kvennaflokki á 2:23.44 klst. og setti nýtt brautar- met. Madina Biktagirova frá Hvíta- Rússlandi varð önnur, tæplega tveimur mínútum á eftir. Á meðal þeirra sem tóku þátt í hlaupinu var Waldemar Cierpinski, sem varð Ólympíumeistari í maraþoni 1976 og 1980 fyrir Austur-Þýskaland. UPPST0KKUN Islandsmótinu í knattspymu iauk greiða aðgangseyri að kveðjuat- um helgina og voru lokin frek- höfninni fynr utan 40 ársmiða- ar snubbótt. Hápunkturinn var í hafa. Ekki kom stafur frá félaginu 17. og næst síðustu umferð, þegar um að þessi tímamót væru í að- Eyjamenn fengu bikarinn og gull- sigi. Ekkert var gert til að minna in, en lítið var um fagnaðariæti í stuðningsmenn á að ástæða væri lokaumferðinni nema helst í Ólafs- til að þakka fyrirliðanum fyrir vel fu-ði þar sem Leifturs- menn tryggðu sér þátt- tökurétt í Getrauna- Frestun á Meistara- sumar og Eyjamaðurinn keppilÍVlllí I kliatt- Tryggvi ---------J---- jafnaði efstu de Deyfðin að öðru leyti hlýtur að unnin störf með því að mæta á vera umhugsunarefni. Ein skýring völlinn og kveðja hann á viðeig- er sú að liðin séu ekki nógu áhuga- andi hátt. Þetta er iangt því frá verð. Ef svo er, er illa komið fyrir að vera einsdæmi og getur hver félögunum. Þau eru það sem þau litið í sinn barm í því efni. eru og skána ekki við áhugaleysi I þriðja iagi má nefna keppn- áhangenda. Hins vegar geta þeir istimabilið. Þó „indjánasumar“ lagt sitt af mörkum í þeirri von geti verið að hausti til er algeng- að lyfta liði sínu á hærra plan, ara að vel blási í mismikilli úrkomu skapað jákvæða ímynd um það, á þessum árstíma. Meðan öll félög samanber stuðningsmenn Eyja- bjóða ekki upp á mannsæmandi manna og Þróttar í Reykjavík. aðstæður fyrir áhorfendur, í það Leikmenn verða líka ávallt að sýna minnsta yfirbyggðar stúkur og að þeir hafí gaman af þessu og helst með hitablásurum, er ekki leggja sig fram sem best þeir geta. hægt að ætlast til að fólk mæti á Um tvennt er að ræða: Að vera vöilinn í kulda og trekki. eða vera ekki. Annaðhvort þrífast Tími er kominn til að stokka menn í hópi eða ekki og víst er upp spilin. Knattspyma er að ieikgleði og árangur eiga ávallt skemmtilegur leikur en til að við- samleið. Spurt hefur verið af halda ánægjunni og auka gleðina hveiju fleiri mæta á St. James’ verða allir sem hlut eiga að máli Park í Newcastle þegar búningar að byija á því að taka til hjá sjálf- félagsins eru hengdir upp til þerr- um sér. Mótanefnd KSI gaf tóninn is en á ieiki margra annarra fé- i gær þegar hún í samráði við ÍBV laga. Því hefur verið til svarað að og Keflavík ákvað að fresta fyrir- félagið, búningurinn, sé áhang- huguðum leik liðanna í Meistara- endunum allt. Burtséð frá ár- keppninni til vors. Best fer á því angri. Sama hvernig gengur. Með að tímabiiið hefjist í maí með öðrum orðum hefur samheldnin Meistarakeppninni vor hvert og allt að segja, ekki síst þegar á ljúki með bikarúrslitaleik, þar sem móti blæs. leikið er til þrautar, ekki síðar en Sinnuleysi félaganna getur ver- ura miðjan september. Aðstæður ið um að kenna. Fyrirliði Vals- leyfa ekki lengra tímabil. manna og leikmaður vel á annan . áratug lék kveðjuleik sinn en að- Stempor eins 28 manns sáu ástæðu til að Guðbjartsson markametið í spymu góðs vitf Hefurmarkakóngurinn TRYGGVIGUÐMUNDSSON áhuga á öðrum fþróttum? Nærri farinn í handboKann TRYGGVi Guðmundsson tryggði sér á laugardaginn marka- kóngstitilinn í knattspyrnu, gerði 19. mark sitt í sumar á Ólafs- firði þarsem meistararnirfrá Eyjum töpuðu 3:1. Tryggvi jafn- aði markamet þriggja markakónga liðinna ára, Péturs Péturs- sonar, Guðmundar Torfasonar og Þórðar Guðjónssonar, með markinu á laugardaginn en hefði gjarnan viljað skora eitttil viðbótar til að bæta metið. „Markið kom eiginlega upp úr engu og ég var að vona að það kæmi okkur inn í leikinn, því við voru hræðilega lélegir, en því miður gerði það það ekki," sagði Tryggvi. Tryggvi er 23 ára, fæddur 30. júlí 1974 hér í borg. Hann bjó í Vestmannaeyjum þar til hann varð fimm ára, flutti þá til höfuð- Skúla Unnar borgarinnar þar Sveinsson sem hann bjo til tiu ára aldurs er hann flutti á ný til Vestmannaeyja. Hann lék með Þór og Tý í yngri flokkunum, nokkkuð sem ekki er algengt með Eyjapeyja. Nú býr hann í Reykjavík ásamt unnustu sinni, Hrafnhiþdi Gunnlaugsdóttur úr Kópavogi. I desember útskrif- ast hann af félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla. „Ég hef ekki hugsað um fram- haldsnám að stúdentsprófinu loknu. Fótboitinn á hug minn allan og ég er alltaf að vona að einhver erlend lið fái áhuga á mér þannig að ég komist í atvinnumennskuna, það er það sem mann dreymir um, en það hefur ekkert félag haft samband." Hvernig gekk að hugsa ekki um markametið fyrir leikinn á Ólafsfírði? „Það gekk nú svona og svona. Auðvitað ætlaði maður ekki að hugsa um það og við spiluðum ekkert sérstaklega uppá mig, en ég átti afskaplega erfitt með að hugsa ekki um metið því fjölmiðl- ar ræddu varla um annað en þetta met og það var alltaf verið að spryja mig út í það.“ Hvernig tilfinning var að sjá boltann í netinu? „Hún var stórfín. Ég fékk iíka ágætt færi á móti vindinum í fyrri hálfleik en skotið fór rétt fram- hjá.“ Þú fékkst gult spjald þegar þú gerðist of nærgöngull við mark- vörðinn. Varstu orðinn dálítið gráðugur? „Nei, það myndi ég ekki segja og ég var afskaplega ósáttur við þetta spjald. Ég reyni auðvitað við alla bolta sem sóknarmaður og hann fer auðvitað í alla bolta sem koma inn í vítateiginn. Ég taldi að þetta hefði verið ósköp venju- legt samstuð." Nú ert þú örfættur, gerðir þú flest mörkin með vinstri? „Já, flest gerði ég nú með vinstri, en ég held að ég hafi gert ein fjögur með hægri og svo gerði ég nokkur með skalla. Eg held að þau hafi líka verið fjögur, þannig að þetta voru allskonar mörk.“ Hefurþú verið í öðrum íþróttum? „Jú, jú. Ég var í vinstra horninu í handboltanum en þegar ég kom í meistaraflokk varð ég að velja og knattspyrnan varð ofaná. Én það munaði engu að ég veldi hand- boltann vegna þess að ég hafði leikið með landsliðunum skipuðum leikmönnum undir 16 ára og líka undir 18 ára, en hafði í raun ekk- ert afrekað í fótboltanum. Ég fylg- ist enn mjög vel með handboltan- um og fleiri íþróttum." Þrátt fyrir áhugann á íþróttum ertu ekki á íþróttabraut? „Nei, félagsfræðibrautin varð ofaná og lífið er meira en íþróttir. Kærastan er fyrrum íslandsmeist- ari í fótbolta þannig að það kemur fyrir að við ræðum um fótbolta, en það er hægt að tala um annað, maður má ekki festast algjörlega í einhverju einu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.