Morgunblaðið - 30.09.1997, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HAIMDKNATTLEIKUR
Yfirveguð og öguð liðsheild lagði grunn að sigri á Sviss í Evrópukeppninni
Baldur fór
heim!
BALDUR Guðnason, sem
nýkominn er inn í stjórn
HSÍ, var fararstjóri með
landsliðinu í fyrsta skipti í
ferðinni til Sviss. Hann lýsti
því yfir við leikmenn við
komuna til Ziirich á föstudag
að hann færi ekki heim aftur
nema liðið næði í tvö stig.
Baldur, sem er fram-
kvæmdasljóri hjá Samskip-
um, mætir væntanlega í vinn-
una á ný í dag - sigur vannst
og hann fór því heim með
liðinu!
Óku til
Wuppertal
LEIKMENNIRNIR þrír frá
Wuppertal í Þýskalandi, Geir
Sveinsson, Dagur Sigurðsson
og Ólafur Stefánsson, óku
frá Sursee, eftir að hafa
snætt með öðrum í landsliðs-
hópnum á sunnudagskvöld.
Ólafur þurfti að vera mættur
í þýskupróf í gærmorgun,
æfing var á dagskrá í gær-
kvöldi og í kvöld taka þeir á
móti Talant Djushebaev,
besta handboltamanni heims,
og samherjum hans í Nett-
elstedt í þýsku 1. deildar-
keppninni.
Bergsveinn
góður
BERGSVEINN Bergsveins-
son stóð í marki Islands allan
tímann, nema hvað Guð-
mundur Hrafnkelsson reyndi
að veija eitt vítakast. Berg-
sveinn varði alls 13 skot, sex
langskot, fjórum sinnum skot
úr horni, eitt eftir hraðaupp-
hlaup, eitt af línu og eitt eft-
ir gegnumbrot.
Lýstá
þremur
stöðvum
ÞRÍR íslenskir útvarpsmenn
voru að störfum á leiknum í
Sursee og er það í fyrsta
skipti sem handboltaleik er-
iendis er lýst á fleiri en tveim-
ur útvarpsstöðvum í einu.
Adolf Ingi Erlingsson lýsti á
Rás 2, Guðjón Guðmundsson
á Bylgjunni og Sigurður Val-
ur Sveinsson, fyrrum landsl-
iðskappi, lýsti fyrir íslenskan
miðil - á FM 957.
Valdimar
öruggur
ÍSLAND fékk fjögur vítaköst
í leiknum og Valdimar
Grímsson skoraði úr þeim
öllum, þar af þremur í seinni
hálfleik. Hann kom aðeins
inná í þessi fjögur skipti;
Bjarki Sigurðsson lék allan
tímann í hægra horninu. Þeir
sem fengu vítin voru Ólafur
Stefánsson, eftir að hafa
brotist inn úr horni - þegar
Islendingar voru tveimur
færri, Dagur og Konráð, eft-
ir að hafa brotist í gegnum
miðja vörnina og Bjarki, sem
fór inn úr horninu.
Sexaf línu
DAGUR Sigurðsson átti
þrjár línusendingar sem gáfu
mark; tvær á Geir og eina á
Róbert. Ólafur átti tvær - á
Geir og Gústaf, og Duranona
átti eina: á Róbert. Mörkin
af línunni urðu því sex.
Öruggt og sann-
færandi í Sursee
Skapti
Hallgrimsson
skrifar
frá Sursee
ALLT annað var að sjá til is-
lensku landsliðsmannanna i
handknattleik gegn Sviss i
Sursee á sunnudag en í Laug-
ardalshöll í síðustu viku. Eftir
jafntefli - sem liðið var heppið
að ná - ífyrri leiknum, mættu
íslendingar vel stemmdir til
leiks í Sviss og sigruðu, 29:27.
Liðið er þar með komið með
þrjú stig í öðrum riðli Evrópu-
keppninnar eins og Júgóslavía,
en Sviss og Litháen eru bæði
með eitt stig.
4T
Islenska liðið var kraftmikið á
sunnudag, liðsheildin geysilega
sterk og andlega var hver og einn
greinilega eins vel
búinn undir átökin
við heimamenn og
kostur er. íslending-
ar byrjuðu með
knöttinn, Ólafur Stefánsson lauk
fyrstu sókninni með þrumuskoti í
þverslá og Svisslendingar voru á
undan að skora. Þannig gekk leik-
urinn fyrir sig framan af; heimaliðið
komst yfír en íslendingar jöfnuðu
jafnharðan. Jafnt var á öllum tölum
frá 4:4 upp í 9:9 og þegar rúmar
sjö mín. voru eftir af hálfleiknum
komust íslensku strákarnir yfir í
fyrsta skipti með marki Geirs fyrir-
liða. Þar var um sannkallaða Wupp-
ertal-samvinnu að ræða; Ólafur
Stefánsson ógnaði vörninni hægra
megin, sendi inn á miðjuna á Dag
og Geir, sem reif sig lausan á lín-
unni, fékk sendinguna frá Degi og
skoraði örugglega. íslendingarnir
höfðu frumkvæðið það sem eftir var
til leikhlés, voru ýmist einu eða
tveimur mörkum yfir og það var
Duranona sem gerði síðasta mark
hálfleiksins á lokasekúndunni með
skoti utan af velli. Staðan í leikhléi
14:12.
Bæði lið léku flata vörn allan fyrri
hálfleikinn og þrátt fyrir að hafa
fengið á sig 12 mörk er ekki hægt
að segja annað en íslenska vörnin
hafi verið góð. Heimaliðið gerði sjö
mörk utan af velli, eitt eftir gegnum-
brot, eitt eftir hraðaupphlaup og
þrjú úr vítakasti. Það háði íslenska
liðinu nokkuð að leikmenn þess voru
utan vallar í samtals tíu mínútur í
hálfleiknum eftir brottvísanir en
heimamenn í fjórar. Dómararnir
voru mjög _________________
Reuter
RÓBERT Julian Duranona á leiðinni framhjá Matthias Zumstein, sem náði ekkl að stöðva hann
þrátt fyrir átök - knötturinn hafnaði í netinu.
í fyrri hálfleik - og það gaf góða
raun. Hann hafði raunar þegar gert
eitt mark utan af velli þegar gripið
var til þessa ráðs, gerði brátt ann-
að; strax eftir aukakast þegar stillt
var upp fyrir hann og loks það þriðja
úr vítakasti. Þá var staðan 18:19
íslandi í hag og stutt í einkennilegan
vendipunkt; þegar Baumgartner
fékk rautt spjald fyrir gróft brot og
var þar með útilokaður frá frekari
þátttöku. Þá voru 18,38 mín. eftir
og staðan 19:20.
Duranona var rekinn út af í stöð-
unni 18:20, Geir skipti þá við Kon-
ráð - sem ekki hafði komið inná í
leiknum en skundaði nú til leiks og
fór í stöðu leikstjórnanda. Fáeinum
sekúndum síðar braust hann glæsi-
lega í gegnum
16.000
DAGUR Sigurðsson skoraði 16.000
landsliðsmark Islands í handknatt-
leik, er hann jafnaði 6:6 gegn Sviss-
lendingum. Fyrstur til að skora
mark fyrir ísland var Sveinn Helga-
son, Val, sem skoraði í leik gegn
Svíum í Lundi 1950, sem Svíar
unnu 15:7. Síðan þá hefur landslið-
ið leikið 751 landsleik og skorað
16.023 mörk.
strangir; hafa
greinilega lesið
reglurnar vel yfir
fyrir leikinn og
túlkuðu þær
breytingar sem
gerðar hafa verið
á þeim á annan
og strangari hátt
en menn eiga að
venjast. Dagur
og Júlíus fóru
báðir tvisvar útaf
í tvær mín. í fyrri
hálfleik og Geir
einu sinni, og
báðar brottvísan- mmmmmmmmm^m
ir Dags voru fyr-
ir Iitlar sakir, satt að segja. Önnur
fyrir brot en hin fyrir að segja dóm-
aranum með handahreyfingu að
hann teldi að einn mótherjanna hefði
tekið of mörg skref.
Vendipunktur...
Sami munur hélst framan af
seinni hálfleiknum, ísland einu til
tveimur mörkum yfir og leikur liðs-
ins sannfærandi. Þorbjörn breytti
vöminni snemma hálfleiksins, Ólafur
Stefánsson lék framariega gegn
Baumgartner - sem gerði sex mörk
miðja vörn Sviss-
lendinga, Baumg-
artner tók það til
bragðs að reyna
að stöðva hann,
en gerði það
klaufalega - reif
aftan í hönd Konr-
áðs sem var í
dauðafæri - og
vrtakast og rautt
spjald óumflýjan-
legt. Valdimar
skoraði úr vítinu
(19:21) og staða
Islands virtist
mmm^^mmmm vænleg. Brottvís-
unin var vissulega
vendipunktur, en ekki á þann hátt
sem vænta mátti. Svisslendingar
minnkuðu strax muninn, þó_ þeir
væru einum færri, og eftir að Ólafur
kom íslandi í 22:20 kom hræðilegur
kafli íslenska liðsins - Sviss gerði
fjögur mörk í röð; tvö eftir hraðaupp-
hlaup, þvínæst eitt úr víti og loks
af línu án þess að ísland næði að
svara. A þessum kafla fór allt í
handaskolum í sóknarleiknum, vörn-
in var sofandi og heimamenn voru
skyndilega komnir tveimur mörkum
yfir. Staðan var ótrúleg; í stað þess
að íslensku strákarnir næðu að
hagnast á því að Baumgartner var
ekki lengur með voru það samhetjar
hans sem fóru að láta ljós sitt skína
frekar en áður og sýndu fram á að
þeir þurfa ekki alltaf að treysta á
hann.
Yfirvegaðir
Viljastyrkur íslensku leikmann-
anna var hins vegar mikill og sjálfs-
traustið til staðar og hægt og rólega
komust þeir yfir áfallið. Jöfnuðu
fljótlega og rúmlega tveimur og
hálfri mín. fyrir leikslok komust
þeir yfir á ný - 27:26 - og þá var
ljóst hvert stefndi. Næstu tvö mörk
voru einnig íslensk en heimaliðið
átti síðasta orðið. Sanngjarn og
sannfærandi sigur var í höfn; ís-
lenska liðið sýndi hvers það er megn-
ugt. Þegar á móti blés spýttu menn
í lófana og unnu sig út úr erfiðri
stöðu. Liðsheildin var mjög sterk,
bæði í vörn og sókn, liðið var yfirveg-
að og agað, lék af festu og grimmd
án þess að leikmenn væru grófir,
og segja má að það hafi haft töglin
og hagldirnar lengstum. Hafi stjórn-
að leiknum síðari hluta fyrri hálf-
leiks og allan þann síðari, ef undan
er skilinn kaflinn sem nefndur var
áðan. Sigurinn var mikilvægur og
gefur góð fyrirheit um framhaldið;
takmarkið að komast í fyrsta skipti
í úrslitakeppni Evrópumótsins ætti
að nást. Liðið byrjaði ekki vel í haust
en þetta var besti leikur þess síðan
á HM í Kumamoto. Því er reyndar
ekki að Ieyna að liðið getur enn
betur en það sýndi á sunnudag en
það er á uppleið og þegar Patrekur
Jóhannesson (sem er meiddur) mæt-
ir aftur til leiks styrkist liðið enn til
muna.
Svissneska liðið lék að mörgu leyti
vel á sunnudag. Markvarslan var
reyndar slök, vörnin í góðu lagi á
köflum og liðið sýndi á stundum góð-
an sóknarleik. Staðreyndin er einfald-
lega sú að Svisslendingar mættu
ofjörlum sínum og því fór sem fór.
SOKNAR-
NÝTING
Jl___
SVISS
Mörk Sóknir %
ÍSLAND
Mörk Sóknir %
12 22 15 25 54% F.h 14 60% S.h 15 23 61% 24 62%
27 47 57% Alls 29 47 62%
11 Langskot 12
3 Gegnumbrot 2
3 Hraðaupphlaup 4
2 Horn 3
6 Llna 1
4 Víti 5
Rúnar ekki
með í Sursee
ÞEIR sem hófu leikinn voru
Bergsveinn í markinu, Bjarki
og Gústaf í hornunum, Ólafur
og Júlíus í skyttustöðunum,
Dagur á miðjunni og Geir á
línu. Þeir léku líka allir í vörn.
Bergsveinn, Bjarki og Ólafur
léku allan tímann, Dagur því
sem næst en Duranona kom
inná fyrir Júlíus þegar á leið
hálfleikinn og var inná megn-
ið af þeim seinni Iíka. Róbert
skipti við Geir undir lok leiks-
ins og Konráð leysti Gústaf
af hólmi um stund í seinni
hálfleik.
Rúnar Sigtryggsson úr
Haukum lék ekki með á
sunnudag. Þrettán leikmenn
voru í ferðinni en Rúnar var
ekki á skýrslu og fylgdist með
leiknum úr áhorfendastæð-
um.