Morgunblaðið - 30.09.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 B 5
Mi !
[ ' p % 1 ,-íip^plll
Reuter
Ólafur lék vel
ÓLAFUR Stefðnsson áttl mjög góöan leik gegn Svlsslendlngum í Sursee, skoraðl sjö mörk.
Hér sæklr hann að svlssnesku vörnlnnl, Robble Kostadlnovlc er tll varnar.
Bættum fyrir
slakan
leik heima
SVISSLENDINGAR fóru að spila öðruvisi eftir að Baumgartner
var rekinn út af. Þeir eru vanir að bíða eftir því hvað hann gerir
- svipað og mér fannst KA-menn oft gera þegar Duranona var
með þeim - en þegar Baumgartner var farinn urðu hinir að
treysta meira á sjálfa sig. Við vorum einum fleiri, en á sama tíma
og það kom aukakraftur í þá sof nuðum við svolítið á verðin-
um,“ sagði Dagur Sigurðsson.
Eg er mjög ánægður með að við
skyldum ná að rétta úr kútnum
eftir slæma kaflann; eftir að þeir
gerðu fjögur mörk í röð og komust
tveimur yfir. Markvarslan var mjög
góð og varnarleikurinn líka þó við
fengjum svona marga brottrekstra
- sem voru oft skrýtnir. Dómararn-
ir ætluðu að taka voðalega hart á
öllu strax frá byijun, og gerðu það,
en dæmdu alls ekki öðru hvoru lið-
inu í hag. Svisslendingar eru ekki
vanir svona dómgæslu frekar en
við en miðað við þá línu sem þeir
fóru fannst mér rauða spjaldið á
Baumgartner rétt.“
Það hlýtur að vera mikill léttir
að sigra hér á útivelli.
„Já, sannarlega og bætir fyrir
slakan leik heima. Mér fannst hann
reyndar ekkert rosalega slakur,
sóknin að minnsta kosti, þó vörnin
hafi ekki verið góð. Við erum, að
mínu mati, sífellt að ná betri tökum
á þessu frjálsa spili okkar, erum
farnir að gera ýmislegt nýtt og
fengum t.d. mörk frá Geira í byijun
og Róberti í lokin með þeim hætti.
Boris (Abkashev, aðstoðarmaður
Þorbjöms landsliðsþjálfara) hefur
einmitt lagt_ áherslu á þetta og það
gefst vel. Ég held við séum með
mannskap til að leika með þessum
hætti; við eram vanir þessu, Valsar-
arnir, og Julian (Duranona) er líka
sterkur í stöðunni maður á móti
manni. Að ég tali nú ekki um Pat-
rek - þetta hentar honum mjög
vel,“ sagði Dagur.
Spumlng um hugarfar
„Þetta var fýrst og fremst spum-
ing um hugarfar hjá mér. Leikmenn
í handboltaliði á heimsmælikvarða
geta dottið niður, eins og við Gummi
gerðum báðir heima, en ég náði
mér miklu betur á strik í dag,“
sagði Bergsveinn markvörður Berg-
sveinsson, sem lék vel. „Ég er samt
ekki ánægður að öllu leyti, ég varði
nokkur erfíð og mikilvæg skot en
það er of mikið að fá 27 mörk á
okkur. Þess ber þó að geta að þetta
era erfíð skot frá Svisslendingum;
þeir skjóta mikið mjög nálægt vörn-
inni, skjóta í mjaðmarhæð vamar-
manna, markvörðurinn sér ekki
skothöndina og þar af leiðandi er
mjög erfitt að gera sér grein fýrir
hvar skotið kemur. Við Gummi
fengum mikla gagnrýni eftir leikinn
heima, gagnrýni sem ég tel sann-
gjama, og því var ekkert annað að
gera en taka til hjá mér. Þegar við
eram í svona sterku liði era gerðar
kröfur til okkar,' við stóðum ekki
undir væntingum heima og hefði
annað hvor okkar ekki svarað þeirri
gagnrýni hér með því að leika vel
hefði mátt segja að við ættum alls
ekki heima í liðinu. Við erum alltaf
annaðhvort skúrkar eða hetjur -
það er ekkert þar á milli.“
Mjög mikil
vonbrigði
Sýndu and-
legan styrk
að eru mjög mikil vonbrigði að
tapa heima. Við vildum auð-
vitað sýna áhorfendum að við gæt-
um spilað vel og sigrað mjög sterk-
an andstæðing. En þó það tækist
ekki heldur lífið áfram og við verð-
um að leggja enn harðar að okkur
en áður. Horfa fram á veginn en
ekki til baka. Við verðum reynsl-
unni ríkari næst og náum þá
kannski að sigra,“ sagði Marc
Baumgartner fyrirliði Svisslendinga
og helsta skytta við Morgunblaðið.
Baumgartner sagðist hafa vonast
til þess að lið hans gæti fýlgt góðum
árangri á íslandi eftir með sigri á
heimavelli. „Stundum er betra að
spila á heimavelli en stundum ekki;
þegar fjolskyldan, kona og börn,
og vinir og kunningjar eru að horfa
á heimaleik er pressan oft meiri en
á útivelli. En það sem skipti mestu
í dag var að íslenska liðið var mun
betra en í fýrri leiknum. Markvörð-
urinn var miklu betri - íslensku
markmennirnir voru slakir í fyrri
leiknum - og vörnin mun ákveðn-
ari. Liðið var greinilega mun betur
undirbúið en í Reykjavík. Það lék
ekki vel á íslandi en ég vissi alveg
að þetta gæti gerst hér. íslendingar
urðu í fimmta sæti á HM þannig
að ég bjóst við 7-8 marka tapi I
Reykjavík. Ég var því sérstaklega
ánægður með jafnteflið þar en gerði
mér jafnframt grein fyrir því að
ísland myndi ekki spila svo illa tvo
leiki í röð og það kom á daginn."
Rautt í fyrsta sinn
Spurður um rauða spjaldið sem
hann fékk í seinni hálfleik, sagði
Baumgartner að honum hefði
„kannski" fundist dómaramir full
strangir. „En þeir ákváðu að sýna
mér rautt og það var auðvitað slæmt
því við áttum möguleika á að sigra.
Ég hef aldrei áður fengið rautt spjald
en einhvern tíma verður allt fyrst.
Ég er bara leikmaður, ekki dómari,
og hef því ekki meira um þetta at-
vik að segja.“ Baumgartner sagði
dómara alltaf mismunandi og parið
sem dæmdi í Reykjavík hefði að sínu
mati verið mun betra. „Þeir dómarar
vora afslappaðri, sussuðu bara á
okkur ef við voram aðeins að kvarta
en í dag vora þeir of harðir. Menn
máttu varla hreyfa varimar eða sýna
skoðanir sínar með látbragði - þá
vora þeir reknir útaf.“
Svissneski fyrirliðinn sagðist ekki
eiga von á að lið hans kæmist í
úrslitakeppnina, þó hann gæfi að
sjálfsögðu ekki upp vonina, en
kvaðst hins vegar viss um að ísland
færi áfram. „Liðið á að sigra Lithá-
en í báðum leikjunum og það á að
nægja að minnsta kosti til að ná
öðru sæti í riðlinum."
að var mjög nauðsynlegt að
sigra hér. Við klúðruðum
leiknum heima, vorum heppnir
að ná einu stigi en erum nú
komnir í mun betri stöðu. Það
gæti orðið nóg að vinna leikina
við Litháen til að komast áfram
í úrslitakeppnina," sagði Þor-
björn Jensson landsliðsþjálfari
eftir sigurinn.
„Strákunum fannst, eftir því
sem þeir horfðu meira á upptöku
frá leiknum heima, að þeir gætu
miklu meira en þá. Menn voru
sammála um að við þyrftum
ekki að vera hræddir að mæta
þeim aftur, jafnvel þó það væri
á útivelli því meirihluti leikja
okkar í gegnum árin hefur verið
einhvers staðar á útivelli - þetta
er bara svona og allir handbolta-
vellir eru eins! Við vorum því
ekkert smeykir, vorum vissir um
að leika betur en heima en
spumingin var sú hvort þeir
gætu líka bætt sig.“
Þorbjöm sagðist fyrst hafa
orðið hræddur þegar Baumg-
artner fékk rauða spjaldið, þó
það hljómi e.t.v. undarlega. „Það
er einhvern veginn þannig að
þegar svona gerist að andstæð-
ingarnir slaka oft á, þrátt fyrir
að ætla sér það alls ekki, en
þeir sem missa samheija út af
tvíeflast, og Svisslendingar fóra
að beijast af miklu meiri krafti
og spila öðruvísi. Jafnvel betur.
Þeir náðu skyndilega að jafna,
við misstum svo mann út af og
þeir komust tveimur mörkum
yfír. Þá var skyndilega orðið á
brattann að sækja hjá okkur,
öfugt við það sem verið hafði
áður. Strákarnir sýndu hins veg-
ar sem betur fer mikinn andleg-
an styrk og tókst að snúa leikn-
um okkur í hag aftur. Við voram
tveimur mörkum undir þegar
9,40 mínútur voru eftir og ég
vissi að það var nógur tími. Við
urðum bara að spila skynsam-
lega og það tókst."
Þorbjörn sagði miklu meira
sjálfstraust hafa verið í íslensku
vörninni nú en áður, „við sáum
eftir fyrri leikinn að við gætum
tekið Baumgartner fastari tök-
um því hann var að gera of
mikið af „aulamörkum" heima.
Við vitum að hann endar marg-
ar sóknir og svona maður gerir
alltaf 6-8 mörk í leik. Við vor-
um því í sjálfu sér ekki að reyna
að koma sérstaklega í veg fyrir
það heldur að stöðva hina. Hann
gerði tíu mörk heima en hinir
sautján og við vissum að næðum
við að taka betur á þeim gæti
dæmið gengið upp.“
Liðshelldln sterk
„Við ætluðum að ná fjóram stig-
um úr leikjunum við Sviss en ég
held við getum verið sáttir við þijú,“
sagði Júllus Jónasson. „Við vissum
eftir fyrri leikinn að þetta yrði erf-
itt hér en ég held að við höfum
spilað mjög vel. Liðsheildin var
sterk og einbeitingin allt önnur og
betri inni á vellinum en í leiknum
heima. Við náðum margfalt betur
saman og héldum út allan tímann.
Það kom reyndar slæmur kafli I
seinni hálfleiknum en mér fannst
mjög sterkt að vinna okkur út úr
því og ná að sigra eftir að hafa
lent undir. Liðsheildin skapaði sig-
urinn; allir börðust frá fyrstu mín-
útu til hinnar síðustu og þegar það
gerist næst góður árangur. Vörn
og markvarsla voru margfalt betri
en á miðvikudag og við vitum að
þegar þessir hlutir eru í góðu lagi
er erfítt að eiga við okkur."
Neyðln kennir naktri
konu aö spinna
„Við urðum að vinna og það er
gott mál að það tókst. Hefðum við
ekki unnið hefðum við nánast verið
búnir að missa af tækifærinu til að
komast í úrslitakeppnina,“ sagði
Ólafur Stefánsson. „Mér fannst liðs-
heildin góð og þess vegna vannst
sigur. Neyðin kennir naktri konu að
spinna; við vorum ekki að sýna það
besta í síðasta leik og urðum því að
leika betur núna. Sóknin var í lagi
og vömin þokkaleg og andinn í lið-
inu líka miklu betri. Við voram allir
betur innstilltir. Ég verð að segja
að líklega höfum við vanmetið þá I
fyrri leiknum. Við, þessir „kóngar“
frá Japan, en þeir vora ekki einu
sinni með á HM en það gengur auð-
vitað ekki að hugsa svona. Þá var
of mikið einbeitingarleysi I vöminni
en við eram með betra lið, ætluðum
að sýna það og gerðum það.“