Morgunblaðið - 30.09.1997, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER1997 B 9
stöðvaði
Man. Utd.
Arsenal komið í efsta sætið hjá veð-
bönkum í London
MEISTARAR Manchester United máttu sætta sig við fyrsta tap-
ið á tímabilinu og þeir fengu fyrsta markið á sig á útivelli þegar
þeir sóttu Leeds heim um helgina. Heimamenn unnu 1:0- fyrsti
heimasigur þeirra á tímabilinu - en Arsenal gerði 2:2 jafntefli
við Everton í Liverpool og er með eins stigs forystu á toppi
ensku úrvalsdeildarinanr. Arsenal er nú efst hjá veðbönkum í
London íveðmálum um meistarat
kemur næst með 7-4 og Liverpool
United sótti stíft í Leeds, fékk
t.d. sjö hornspyrnur á móti
einni, en heimamenn héldu fengn-
um hlut eftir að David Wetherall
hafði skorað með skalla 10 mínút-
um fyrir hlé. George Graham,
stjóri Leeds og fyrrverandi stjóri
Arsenal, hafði ástæðu til að gleðj-
ast og sagði þetta stærstu stund
síðan hann tók við stjórninni hjá
félaginu en tók sigrinum engu að
síður með stóískri ró. „Við lifum
í heimi þar sem menn eru skúrkar
þegar þeir tapa og hetjur þegar
þeir sigra. Þess vegna stekk ég
hvorki í hæstu hæðir né fell í
þunglyndi. Margt gott er að ger-
ast hjá Leeds en við verðum ekki
bestir á svipstundu. Það tekur
tíma.“ Norðmaðurinn Ole Gunnar
Solskjær lék með United á ný eft-
ir að hafa verið frá vegna meiðsla
en fyrirliðinn Roy Keane fór
meiddur af velli í seinni hálfleik.
Arsenal hefur gert flest mörk
og er á toppnum en missti tveggja
marka forystu niður í jafntefli á
Goodison Park. Ian Wright gerði
áttunda mark sitt á tímabilinu eft-
ir undirbúning Hollendingsins
Dennis Bergkamps og skömmu
síðar sendi hann á Marc Overm-
ars, sem skoraði. Michael Ball
minnkaði muninn snemma í seinni
hálfleik og Danny Cadamarteri
jafnaði stuttu síðar.
Deildameistarar Leicester unnu
2:0 í Barnsley og fóru í þriðja
sætið. Ian Marshall skoraði með
skalla í seinni hálfleik og Graham
Fenton bætti öðru marki við eftir
að markvörður heimamanna hafði
varið frá honum vítaspyrnu en
ekki haldið boltanum. „Við höfum
trú á að við getum spilað vel,“
sagði Matt Elliott, varnarmaður
itilinn, með 6-4, Man. Utd.
er í þriðja sæti með 5-1.
hjá Leicester. „Hvort við ljúkum
keppni í þessari stöðu er annað
mál en er á meðan er og við njót-
um þess.“
Chelsea skaust í fjórða sætið
með 1:0 sigri á Necastle en
Gustavo Poyet gerði eina mark
leiksins stundarfjórðungi fyrir
leikslok. „í fyrri hálfleik vorum við
sjálfum okkur verstir því við send-
um boltann á mótheija hvað eftir
annað,“ sagði Ruud Gullit, stjóri
Chelsea.
Paul Ince fór fyrir Liverpool í
London hjá West Ham þar sem
hann hóf ferilinn í atvinnumennsku
en hafði ekki erindi sem erfiði -
West Ham vann óvænt 2:1.
Derby vann Southampton 4:0
og komu öll mörkin á átta mínútna
kafla seint í seinni hálfleik. ítalinn
Stefano Eranio braut ísinn með
umdeildri vítaspyrnu stundaríjórð-
ungi fyrir leikslok, Paolo Wanc-
hope frá Kosta Ríka bætti öðru
marki við, ítalinn Francesco Ba-
iano gerði þriðja markið og Lee
Carsley átti síðasta orðið.
Stan Collymore lék með Aston
Villa en skoraði ekki í 2:2 jafn-
tefli við Sheffield Wednesday í
Birmingham.
Tottenham og Wimbledon gerðu
markalaust jafntefli í daufum leik
á White Hart Lane og sömu úrslit
urðu í viðureign Blackburn og
Coventry. Dion Dublin fékk rauða
spjaldið rétt fyrir hlé en heima-
mönnum tókst ekki að nýta sér
liðsmuninn. Coventry hefur ekki
skorað á útivelli á tímabilinu en
Gary McAllister var nálægt því,
skaut í slá í fyrri hálfleik. „Co-
ventry hefur átt erfitt uppdráttar
hérna, samanber úrslitin í fyrra,“
sagði McAllister.
Barcelona með
fullt hús
M ALLORC A hefur komið nokkuð á óvart í spænsku knattspyrn-
unni það sem af er. Um helgina sigraði liðið Tenerife 4:1. Argent-
ínumaðurinn Oskar Mena gerði tvö marka liðsins sem er nú tveim-
ur stigum á eftir Barcelona, sem vann Sporting Gijon með sömu
markatölu. Barcelona hefur unnið alla fjóra leiki sína í deildinni
og er með markatöluna 12:2. Real Madrid, sem vann Valencia
2:0, er með 10 stig eins og Mallorca.
Rivaldo, sem var keyptur í stað Ronaldos sem fór til Inter
Milau, gerði tvö mörk fyrir Barcelona og hin tvö setti Luis
Enrique. Börsungar verða því að teljasttil alls líklegir í vetur.
Raul skoraði fyrra mark Real Madrid í sigrinum á Valencia
og lagði það síðara upp fyrir Predrag Mijatovic. Javi Navarro,
leikmaður Valencia, var rekinn útaf á 63. mínútu og þá var
markalaust. En eftir það gengu meistararnir á lagið. Atletico
Madrid náði aðeins jöfnu á heimavelli gegn Celta Vigo, 3:3.
Hin „heilaga þrenning“
IAN Wright fagnar marki sínu fyrir Arsenal gegn Everton, hitt markiið skoraði Marce Overt-
mars, sem er Wright á vinstri hönd. ÞriðJI leikmaðurinn á myndinní er Dennls Bergkamp, en
þessir þrír leikmenn hafa skorað 20 af 22 mörkum Arsenal í ensku úrvalsdelldlnni.
Eyjólfur tryggði
Hertha sigur
Fyrsti sigur liðsins í 1. deild síðan 1991
EYJÓLFUR Sverrisson tryggði Hertha 1:0 sigur á Köln að við-
stöddum 35.000 áhorfendum á ólympíuleikvanginum í Berlín um
helgina, þegar hann skoraði með skalla á 35. mfnútu eftir auka-
spyrnu frá Norðmanninum Kjetil Rekdal. Þetta varfyrsti sigur
Hertha í deildinni á heimavelli síðan 1991 þegar liðið féll en það
tryggði sér sæti í efstu deild á ný í vor. Jafnframt var þetta fyrsta
mark Eyjólfs fyrir liðið í deildinni en áður gerði hann 21 mark
fyrir Stuttgart.
Jjjjjyjólfur var miðherji í fyrri hálf-
Frá Jóni
Halldór
Garðarssyni
i Þýskalandi
leik en fór í vörnina eftir hlé
og var besti maður leiksins. „Ég
er mjög ánægður
með sigurinn og lið-
ið er betra en stigin
sýna,“ sagði hann í
sjónvarpsviðtali.
Hann var spurður hvort hann vildi
spila áfram í fremstu röð og ekki
stóð á svarinu. „Ég er vanur að
spila frammi en mér er alveg sama
hvar ég leik - ég geri það sem þjálf-
arinn segir.“
Kaiserslautem tapaði óvænt 3:1
fyrir Werder Bremen en er áfram í
efsta sæti. Olaf Marschall skoraði í
bytjun leiks - áttunda mark hans á
tímabilinu - en Bmno Labbadia,
Havard Floh og Dieter Frey svöruðu
fýrir Bremen í seinni hálfleik. „Við
gerðum ekki nóg til að sigra,“ sagði
Otto Rehhagel, þjálfari Kaiserslaut-
em. „Við vomm of ánægðir með
sjálfa okkur eftir að hafa náð foryst-
unni. Fljótlega mátti sjá að Werder
var á sigurbraut og ég sagði við
mína menn í hálfleik að þeir yrðu
að vera ákveðnari." Rehhagel var
þjálfari Bremen í 14 ár og Wolfgang
Sidka, sem nú stjómar liðinu, var
aðstoðarmaður hans í fimm ár.
„Mikill þrýstingur var á okkur að
sigra," sagði Sidka. „Við mættum
ákveðnir til leiks og sýndum í seinni
hálfleik hvers við emm megnugir.“
Dortmund mátti sætta sig við
3:2 tap heima á móti 1860 Múnch-
en. „Erfitt er að vera jákvæður eft-
ir svona tap,“ sagði Nevio Scala,
þjálfari Dortmund, sem varð meist-
ari í Meistaradeild Evrópu á liðnu
vori undir stjórn Ottmars Hitzfelds.
„Við lékum illa í fýrri hálfleik og
gerðum mörg mistök. Ólánið eltir
okkur þessa dagana en við verðum
að leggja mikið á okkur og hafa
trú á framtíðinni. Þetta á örugglega
eftir að batna.“
Áhangendur Dortmund sættu sig
ekki við úrslitin og heimtuðu þjálf-
arann í burtu en Gerd Niebaum
sagði að leikmenn yrðu að læra að
takast á við vandann. „Við vorum
á hæsta tindi heims en leikmenn
verða að hætta að hugsa um foma
frægð og snúa sér að veruleikanum.
Þessari deyfð verður að linna.“
Scala, sem tók við af Hitzfeld, sagði
að leikmennirnir ættu við andlegt
vandamál að stríða. „Liðið er of
værukært, menn eru ekki lengur
hungraðir í árangur.“