Morgunblaðið - 30.09.1997, Side 12
totom
FOLK
AKSTURSIÞROTTIR
Meistaratilillinn er
gott veganesti
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÁHAFNIRNAR tvær sem börðust; Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson unnu melstaratitllinn, en
Hlörtur P. Jónsson og ísak Guöjónsson urðu í öðru sæti og unnu titil í flokki einsdrifsbíla.
FEÐGARNIR Rúnar Jónsson og
Jón Ragnarsson unnu sinn
fjórða Islandsmeistaratitil í röð
með sigri í rallkeppni bflasöl-
unnar Brautar á laugardaginn.
Þrír áttu möguleika á titli fyrir
keppnina, en reynsla feðganna
og nýtt Subaru ökutæki skilaði
þeim að settu marki. Meistarar
íflokki Norðdekk bfla urðu
Garðar Þór Hilmarsson og
Guðni Þorbjörnsson á Toyota
Corolla.
Strax á fyrstu sérleið virtist
stefna í hörkuslag, feðgarnir
voru með tveimur sekúndum betri
tíma en Sigurður
Gunnlaugur Bra^ Guðmundsson
Rögnvaldsson °S Rognvaldur
skrifar Pálmason á Metró,
en þeir áttu mögu-
leika á meistaratitlinum ásamt Hirti
P. Jónssyni og ísaki Guðjónssyni á
Nissan. En á næstu leið kom babb
í bátinn. „Þetta var ieiðindamál fyr-
ir okkur. Á miðri ísólfsskálaleið
brotnaði framöxull og bíllinn fór að
láta illa,“ sagði Sigurður Bragi, „ég
vissi ekki hvað var að og við héldum
fullri ferð, sem við hefðum ekki átt
að gera. Fórum við útaf einu sinni
og svo aftur skömmu síðar á leið
upp brekku við bæinn ísólfsskála
og skemmdum bílinn. Við náðum
ekki að halda áfram, gættum ekki
að okkur í hita leiksins og var refs-
að grimmilega. Eftir á að hyggja
hefðum við kannski átt að slaka
• aðeins á, en titillinn hvarf okkur
þarna sjónum, sem voru talsverð
vonbrigði."
Á afturdrifnum bíl áttu Hjörtur
og ísak ekki möguleika á að veita
fjórhjóladrifnum bíl feðganna veru-
lega mótspyrnu, héldu þeim þó við
efnið. Þrátt fyrir að sérleiðirnar
væru blautar, þá voru þeir að bæta
aksturstíma sína. „Við gerðum okk-
ur grein fyrir því að möguleikar
okkar fælust í því að bíll feðganna
yrði fyrir bilun eða óhappi. Á einum
stað hélt ég að við myndum enda úti
í hrauni, þegar bílinn tók heljar ras-
saköst. Eg hugsa að grillið hafi risp-
ast, því bíllinn stóð upp á framend-
an, en ég náði einhvern veginn að
- stýra bílnum eftir veginum," sagði
Hjörtur, „ég skipti um bíl í vor og
það hefur verið góð reynsla að aka
Nissan bílnum, þó hugurinn leiti
vissulega núna að öflugra fjórhjóla-
drifnu ökutæki. Ég mun skoða hvaða
möguleikar eru fyrir hendi fyrir
næsta ár. Við erum mjög ánægðir
að hafa unnið titil einsdrifsbíla, hinn
titillinn hefði bara verið góður bón-
us.“
Eitt skref í einu
Rúnar hefur náð góðum tökum á
nýja bílnum og nú er möguleiki fyr-
ir hann og föður hans að leita á
erlenda grund. Bíllinn er gjaldgeng-
ur í erlend mót og kominn tími til
að breyta um áherslu hjá þeim feðg-
um, sem hafa unnið samtals 20
meistaratitla hérlendis á ferlinum.
„Meistaratitillinn er mikilvægur fyr-
ir okkur, þar sem hugur okkar
stefnir utan næsta vor. Hann gefur
okkur réttindi, sem gefa okkur betri
rásröð í erlendum rallmótum. En ég
er ekki með neina stjörnudrauma,
við tökum eitt skref í einu að vel
athuguðu máli,“ sagði Rúnar, meist-
ari í áttunda sinn. í fjórða skipti sem
ökumaður.
„Það er gífurlegt stökk að komast
á svona sérsmíðaðan keppnisbíl, með
vél og drifbúnað til að skila toppár-
angri. Reynslan úr rallinu kennir
manni að bera virðingu fyrir öku-
tækinu, læra almennilega á það áður
en allt er sett á fulla ferð. Þess vegna
er gott að kynnast bílnum í rallmót-
um hérlendis, áður en haldið er á
erlenda vegi, þar sem allar aðstæður
eru gjörólíkar. Líklega tekur 1-2
keppnistímabil að ná fullkomnum
tökum á nýjum keppnisbíl. Ég var
villtari ökumaður þegar ég var yngri,
er núna fjölskyldumaður og ber mig
öðruvísi að. Hins vegar truflar það
mig ekkert á sérleiðunum, þá er allt
á fullu allan tímann, einbeitingin
algjör.
Eg væri alveg tilbúinn að stunda
rallakstur sem vinnu, ef góð laun
væru í boði. Hef verið heillaður af
þessu lengi og er alltaf að læra eitt-
hvað nýtt. I rallinu um helgina slak-
aði ég aðeins á í lokin og þegar svo
ber undir fer maður að heyra alls
kyns hljóð í bílnum. Spáir í hvort
eitthvað geti nú gefíð sig á loka-
sprettinum. í alþjóðarallinu fór gír-
kassinn og í ljós kom að um steypu-
HAGUR kanadíska ökuþórsins
í Williams-liðinu, Jacques Ville-
neuves, í keppninni um heims-
meistaratignina íformúlu-1
kappakstrinum vænkaðist
mjög á sunnudag er hann fór
með sigur af hólmi í Lúxem-
borgarkappakstrinum. Með því
hefur hann 9 stiga forskot í
einvíginu við Michael Schu-
macher hjá Ferrari sem varð
fyrir því óláni að verða hætta
vegna bilunar í upphafi keppni.
ar sem illmögulegt er að kom-
ast fram úr á braútinni í Nur-
burgring reyndu ökumenn að ná
sem bestu sæti strax
er rásmerki var gef-
ið. Við það myndað-
ist örtröð í fyrstu
beygju en þar skullu
Jordan-bílarnir gulu saman með
galla í tannhjóli var að ræða. Það
var því gaman að vinna rallið um
helgina og tryggja meistaratitilinn á
nýja bílnum. Það verður gott vega-
nesti á næsta ári á nýjum slóðum."
þeim afleiðingum að annar þeirra,
með Ralf Schumacher innanborðs,
skall utan í Schumacher. Ferrari-
bifreið hans laskaðist og neyddist
hann til að hætta. Spurningin er
því hvort yngri bróðirinn eigi eftir
að kosta hann heimsmeistaratign
ökuþóra. Verður allt að ganga Schu-
macher í haginn í Suzuka í Japan
og Jerez á Spáni ætli hann að eiga
möguleika á að ná Villeneuve. Hefur
Villeneuve 77 stig gegn 68 stigum
Sehumachers, en fyrir sigur fást 10
stig, 6 fyrir annað sætið, 4 fyrir
þriðja og síðan 3-2-1.
Finninn Mika Hakkinen fékk ekki
þá afmælisgjöf, sem hann óskaði
sér helst. Hann hóf keppni á fremsta
rásmarki í fyrsta sinn á ferlinum
og varð 29 ára á sunnudag. Tók
hann forystu og stakk aðra keppi-
nauta af en hugsanlegt er að hann
hafí ofgert bíl stnum því Mercedes
■ SIGHVATUR Sigurðsson ók
Jeep Wrangler í rallinu ásamt
Andrési F. Gíslassyni. í alþjóðar-
allinu lenti hann harkalega útaf
ásamt Úlfari Eysteinssyni sem er
enn að jafna sig af bakmeiðslum
sem hann hlaut.
■ STEINGRÍMUR Ingason ók
Honda Civic og átti góða spretti á
mörgum leiðum. Með honum fór
að þessu sinni nýliði, Guðmundur
Björnsson, sem sagðist stundum
hafa hugsað hvemig Steingrímur
ætlaði að redda málunum, slíkur
var hraðinn stundum fyrir beygjur.
Rallið hefði verið skemmtileg
reynsla þótt þeir mættu sín lítils
gegn öflugri bílum, en þeir urðu í
fimmta sæti.
■ VÉSTEINN Gauti Hauksson
og Stefán Ágeirsson enduðu þátt-
töku sína utanvegar eftir að brems-
ur biluðu. Vésteinn ók í alþjóðarall-
inu og kútvelti bílnum, þannig að
Mitsubishi Starion hans hefur lík-
lega endað lífdaga sína, miðað við
ástandið eftir þessa keppni.
■ VIGGÓ Viggóson á Honda XR
500 vann erfíða mótorhjólakeppni
á vegleysum við Hengil og Mos-
fellsheiði á laugardaginn. Þijátíu
keppendur þeystu 50 km leið um
illfæra vegi, slóða og ár. Einar
Sigurðsson á Honda XR varð ann-
ar og Reynir Jónsson þriðji.
■ HEIMIR Barðason fyrrum
krossmeistari á Husaberg mótor-
hjóli endastakk hjóli sínu og varð
að hætta keppni. Karl Gunnlaugs-
son sveif af hjóli sínu á mikilli ferð
og það festist í botni. Þegar Karl,
lurkum laminn, reyndi að reisa það
við, tók hjólið völdin og æddi 15
metra leið. Lagðist þar á hliðina
og spólaði í hringi.
■ KARL náði að lokum að yfir-
buga hjólið, en varð að hætta
keppni. Einnig hætti Davíð Ólafs-
son eftir að vélin í Honda hjóli
hans gaf upp öndina, eftir ágætan
akstur Davíðs.
■ FINNINN Tommi Makinen er
með forystu í heimsmeistarakeppni
rallökumanna með 52 stig. Hann
ekur Mitsubishi Lancer en Carlos
Sainz á Ford Escort er honum
næstur að stigum, með 44, en hann
vann síðustu keppni, sem fór fram
í Indónesíu. Náði Ford þar fyrsta
og öðru sæti.
■ SKOTINN Colin McRae á Sub-
aru er þriðji að stigum, en feðgarn-
ir Rúnar og Jón aka Subaru sem
Colin keppti á og varð breskur
meistari á árið 1992.
Benz-mótorinn í McLaren-bíl hans
sprakk eftir 43 hringi af 67. Einum
hring áður gaf mótorinn í bíl félaga
hans, Dave Coulthard, sig einnig
en þeir höfðu haft forystu frá upp-
hafí. Náði Coulthard ævintýralegu
viðbragði og komst úr sjötta sæti í
annað á fyrstu metrunum. Er þeir
féllu úr leik var Villeneuve allt í
einu orðinn fyrstur og ógnaði enginn
því sæti hans.
Margir ökuþóranna gerðu tvisvar
hlé á akstrinum til að taka eldsneyti
og skipta um dekk. Áætlun heims-
meistarans Damon Hills var að
stoppa aðeins einu sinni og stóð hann
vel að vígi lengst af. Óheppnin elti
hann hins vegar er hann staðnæmd-
ist því þá drapst á bílnum. Við það
tapaði hann hálfri til heilli mínútu.
Ók hann allt hvað af tók, dró á keppi-
nautana en endaði áttundi aðeins 44
sekúndum á eftir fyrsta manni.
Ágúst
Ásgeirsson
skrifar