Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ I KVIKMYNDIR Riddarar bresku bylgjunnar Breskar bíómyndir hafa vakið mikla at- hygli undanfarin misseri og notið vin- sælda að sögn Arnalds Indriðasonar. Þrír kvikmyndagerðarmenn hafa verið áber- andi í bresku uppsveiflunni og áttu stóran þátt í að hrinda henni af stað en þeir hafa nú nýlokið við að gera sína fyrstu mynd í Bandaríkjunum. FJÓRIR vinir; leikarinn McGregor, framleiðandinn Macdonald, handritshöfundurinn Hodge og leikstjórinn Boyle. NÝJA myndin, „A Life Less Ordinary“; McGregor og Cameron á barnum. HLUTI af bresku bylgjunni; „Train- spotting“ og „Shall- ow Grave“ BRESK kvikmyndagerð er í mikilli uppsveiflu og hefur verið það undanfarin miss- eri. Hver breska myndin á fætur annarri slær aðsóknarmet í Bretlandi nú síðast Með fullri reisn eða „The Full Monty“ en þar áður myndir eins og „Bean“, „Train- spotting“ og Fjögur brúðkaup og jarðarfór. Einnig hefur þessum myndum vegnað vel á alþjóðlegum mörkuðum. Aðrar breskar myndir hafa unnið til verðlauna og hlotið fá- dæma góðar undirtektir jafnt gagn- rýnenda sem áhorfenda, nú síðast Leyndarmál og lygar, sem sigraði á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Þrír bíóbræður Hér á landi hafa breskar myndir orðið talsvert áberandi. Nýlega var Háskólabíó með kvikmyndahátíð sem kölluð var Breska bylgjan. Þar var m.a. á dagskrá hin frábæra mynd „Brassed Off‘. Stjömubíó sýnir bráðlega bresku myndina „Shooting Fish“ og á Kvikmyndahá- tíð í Reykjavík vöktu breskar myndir athygli, m.a. Söngur Cörlu eftir Ken Loach. Bretar em sögu- fræg kvikmyndaþjóð sem átt hefur heldur bágt um langa hríð en er að uppgötva á ný getu sína með nýrri kynslóð kvikmyndagerðarmanna. Þrír bíóbræður eiga talsverðan þátt í hinni bresku nýbylgju en það era mennirnir á bak við myndirnar „Shallow Grave" og „Trainspott- ing“. Þeir era framleiðandinn Andrew Macdonald, handritshöf- undurinn John Hodge og leikstjór- inn Danny Boyle. Með þeim í kompaníi er leikarinn Ewan McGregor, sem ásamt Robert Car- lyle hefur orðið mest áberandi leik- ari bresku uppsveiflunnar. Fjór- menningamir hafa þegar farið til Bandaríkjanna þar sem þeir luku nýlega við myndina „A Life Less Ordinary“ og næsta vor hefjast tök- ur á myndinni „The Beach“ í Tælandi. Þeir hafa gert myndir sem almenningur vill sjá og fjallað um breskan nútíma með einstökum hætti. „Þú verður að skilja að breskir áhorfendur höfðu glatað trúnni á breska kvikmyndagerðar- menn og gættu þess vandlega að fara ekki á breskar myndir," er haft eftir David Aukin hjá Rás 4, sem lagt hefur fé í myndir leikstjóra á borð við Mike Leigh, Nicholas Hytner og Danny Boyle. „Danny, John og Andrew hafa gert breskar myndir spennandi á ný.“ Hópvinna Framleiðslufyrirtæki þremenn- inganna heitir Figment Films og þeir virðast geta framleitt hvaða tegund mynda sem er af sama ör- ygginu. „Þess vegna ber ég meiri virðingu fyrir þeim en nokkrum öðrum,“ er haft eftir Ewan McGregor í samtali við kvikmynda- blaðið Premiere. „Þeir reyna að takast á við ólíkar tegundir mynda. Yið höfum átt frábæra spennu- myndaleikstjóra og frábæra ástar- myndaleikstjóra en þessir gera allt frábærlega." Hann ætti að vita það. Ewan hefur orðið einn eftir- sóttasti leikari vesturheims á fáein- um áram og það er ekki síst sam- starfinu við þremenningana að þakka. Hann mun á næstunni leika Ben Kenobi fyrir George Lucas í fyrstu myndinni af þremur sem áætlað er að gera í Stjörnustríðs- bálknum. McGregor og Boyle urðu vinir þegar þeir æfðu fyrir „Shallow Gra- ve“ en leikstjórinn og leikararnir bjuggu um tíma saman í fjögurra herbergja íbúð í Glasgow til þess að lifa sig inní myndina, sem fjallaði um leigjendur er finna lík í íbúðinni sinni. Macdonald og Hodge hittust fyrst árið 1991 þegar sá fyrrnefndi starfaði hjá BBC og Hodge stund- aði læknanám í Edinborg. Macdon- ald las handrit Hodge að „Shallow Grave“ og hreifst af því. „Okkur fannst að breska kvikmyndagerð vantaði allan metnað," segir Hodge. „Við höfðum aldrei neinn áhuga á að búa til list- I rænar myndir sem allir Iitu já- I kvæðum augurn." „Ég hef I ekkert gaman að illskiljanleg- I um, listrænum evrópskum I myndum," er haft eftir ■ Macdonald. „En myndir eins og „Twister“ og Júragarður- inn 2 era jafn óbærilegar.“ Boyle las „Shallow Grave“ handritið árið 1992 og var einn af mörgum leikstjóram sem fannst það spennandi v(;rkefni. „Macdonald var að leita að einhverjum sem var tilbúinn í hópvinnu," segir Boyle. „Hann vildi ekki vinna með leikstjór- I um á borð við Stephen Frears eða Terry Gilliam sem mundu I vilja ráða ferðinni algerlega I sjálfir. Ég sagði þeim að mér I sýndist sagan vera bresk út- I gáfa af „Blood Simple" Coen- I bræðra." Hann hreppti starf- ið. Krafturinn og sköpunargleðin og uppreisnarandinn í ungum Bretum hefur fremur fundið sér farveg í tón- listariðnaðinum en í kvikmyndunum. „Ef þú ert hæfileikaríkur, ungur og uppreisnargjam og býrð í Bret- landi.“ segir Bovle. „bá stofnarðu hljómsveit - nema þú sért gersam- lega laglaus eins og ég. I Bandaríkj- unum fer þetta fólk í bíómyndagerð. Krafturinn í unga fólkinu í Bretlandi fer ekki í kvikmyndimar heldur hljómsveitir. Ef meðlimir Oasis eða Blur hefðu orðið kvikmyndagerðar- menn væri breski kvikmyndaiðnað- urinn hinn líflegasti.“ Ekkert venjulegt líf „A Life Less Ordinary" er fyrsta bíómyndin sem félagarnir gera í Bandaríkjunum. McGregor leikur húsvörð í Salt Lake City sem er rekinn þegar vélmenni er sett í starf hans en rænir dóttur yfir- manns síns í hefndarskyni. Camer- on Diaz leikur hana en Holly Hunt- er og Delroy Lindo fara með hlut- verk engla er hafa það verkefni með höndum að koma þeim saman. Fað- ir stúlkunnar, sem Ian Holm leikur, heldur að englamir séu leigumorð- ingjar og ræður þá til þess að senda fyrram starfsmann sinn í Edens fína rann. Hodge hafði í fyrstu látið mynd- ina gerast í Evrópu en vegna þess að sagan krafðist þess að persón- urnar létu vopnin tala virtist rök- réttara að hafa sögusviðið í Banda- ríkjunum. Hann hafði alltaf hugsað sér McGregor í aðalhlutverkið og þremenningarnir horfðu á nokkrar senur í spennumyndinni Nætur- verðinum, fyrstu bandarísku mynd leikarans sem þá var í tökum, til þess að vita hvort hann réði við bandaríska hreiminn. „Þeir létu mig hanga í lausu lofti í tvo eða þrjá daga,“ segir leikarinn. Hann fékk hlutverkið en þremenningarnir ákváðu að sleppa bandaríska hreimnum og halda sig við uppruna- legu útgáfuna þar sem persóna McGregors var Skoti. Boyle hafði allan sinn fróðleik um Bandaríkin úr bíómyndum og tókst á hendur tíu daga ferðalag um Bandaríkin að kynnast landi og þjóð. Hann varð ekki fyi-ir vonbrigðum. „Það sem mér kom mest á óvart var hvað fólkið í miðríkjunum var jákvætt og bjartsýnt. Það má enn finna anda landnemanna í fólkinu og það fannst mér heillandi.“ Eins konar Paradís Næsta mynd þríeykisins er Ströndin eða „The Beach“ eins og áður sagði en hún er byggð á sögu eftir Alex Garland og segir af ferða- löngum í leit að einskonar paradís í Suðaustur-Asíu. Hún mun kosta á bilinu 10 til 15 milljónir dollara, sem er dýrasta mynd félaganna til þessa, og í henni kemur fram al- þjóðlegur hópur leikara; Ewan McGregor gæti orðið einn af þeim en það er óvíst vegna anna leikar- ans. „Ég væri hæstánægður með að flytja texta Hodges það sem ég á eftir ólifað,“ segir leikarinn. „Og Danny er sá sem dregur allt það besta fram í mér.“ Macdonald segir: „Hversu mörgum myndum hefur De Niro leikið í fyrir Scorsese? Eða Mastroianni fyrir Fellini? Danny og Ewan eiga eftir að bralla margt saman.“ I I t ! I í ! I I i * t fi I f < Í i ( i i i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.