Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ 'ðv' ■■ r V 1 1 1 1 1 i i 1 ; ■; . Bob Dylan er mönnum mikil ráðgáta og flestir töldu að hans saga væri öll þegar hann fékk hjartaígerð á síðasta ári. Árni Matthíasson hlustaði á nýútkomna plötu Dylans og komst að því að hann er enn í fullu fjöri og hefur ekki verið betri í aldarfjórðung. EGAR Bob Dylan hélt tónleika í Laugardals- höll á Listahátíð fyrir mörg- um árum þusti að fólk sem kom til að sjá mótmæla- söngvarann og skáldið anno 1965; kom til að sjá sjálft sig upp fullt með bjartsýni og trú á framtíðina. Því urðu margir fyrir vonbrigðum þegar þar stóð maður á miðjum aldri sem sneri útúr lögunum hjartfólgnu, ýmist hreytti út úr sér textunum heilögu eða söng þá eins og þeir hefðu hvorki merkingu né inntak. Þeir sem fylgst höfðu með Dylan í gegnum árin komu aftur á móti til þess að sjá Bob Dylan okkar tíma, mann í sífelldri leit að sjálfum sér sem velti fyrir sér gömlum sannleik og orð- um til þess að spegla í þeim eitthvað nýtt og hann brást ekki vonum. Fyrir skemmstu sendi Dylan svo frá sér breiðskífu; þá fyrstu með frumsaminni tónlist í sjö ár og gagnrýnendur standa á öndinni, ýmist af hrifningu yflr nýju meist- araverki eða af létti yfir því að ekki sé sá gamli dauður úr öllum æðum. Fyrir langa löngu var rekið vestur í bæ bókasafn á veg- um bandarísku upplýsinga- þjónustunnar. Þar mátti meðal annars komast í plöt- ur með bandarískri tónlist, sumt allfornfálegt, til að mynda frábærar upptökur með Washboard Sam og Big Bill Broonzy, en líka með nýrri listamönnum eins og Bob Dylan, og gleymist aldrei upplifunin við að hlusta á mótmælaplötur Dylans, eins og The Times They Are a-Changin’. Síðar lærðist að meta meira meistaraverkin Highway 61 og Blonde on Blonde og þjóðlagasöngvarinn Bob Dylan hvarf í skuggann af súrrealistanum sem spann svo þéttan orðavef að gat þýtt hvað sem er; verið öll- um allt. Með tímanun breyttist smekkurinn og Dylan breyttist einnig. Ólíkt flestum samtímamönnum sínum í tónlist var hann sí- fellt að horfa fram á veginn, ekki endilega að elta tækja- eða útsetningartísku, heldur með því að leita sífellt betri leiða til að fága tónmálið og miðla hugsun, hvort sem hann var í pólitískum er- indagjörðum líkt og á Desire, eða í sárum vegna skilnaðar líkt og á Blood on the Tracks. að orð hefur farið af Bob Dylan að hann gefí ekki út sín bestu lög, þau ýmist rykfalli í segulbanda- safninu eða séu einfaldlega aldrei tekin upp. Benda má á ýmislegt því til stuðnings; til að mynda lagið um Willie McTell, blússöngvarann blinda, sem Dylan tók út á síðustu stundu af breiðskíf- unni Infidels og gaf svo út í safninu The Bootleg Series löngu síðar. Frábær hylling frábærs listamanns sem hafði mikil á hrif á Dylan á mótunarskeiði hans sem tónlistarmanns og hefur enn, eins og heyra má á plötunni nýju. I viðtölum hefur Dylan lýst því að síð- ustu ár hafi hann sótt æ meira í gamlan söngvasjóð, leitað aftur í uppruna sinn í tónlist og ef menn kunni að meta plötuna nýju þá sé það vegna þess að hann byggi hana á traustum grunni. „Ég er ekkert sérstakur lagasmiður og ég er ekkert skáld,“ sagði hann nýverið í viðtali, „en það að lög mín lifa og að fólk er enn að hlusta á þau og flytja er vegna þess að þau eru reist á traustum grunni; reist á tónlist manna eins og Muddys Waters, Lonnies Johnsons, Blind Willies McTells, Bills Monroes og Charlies Pattons." Vissu- lega hefur hann nokkuð til síns máls; kannski voru plötumar sem menn ekki kunnu að meta á níunda áratugnum slakar vegna þess að hann missti sjónar á upprunanum. Reyndar hef- ur hann sagt svo frá sjálfur að fyrir áratug eða svo hafi hann verið að því kominn að hætta að fást við tónlist; að draga sig í hlé frá heimsins glaumi. á var það að Jerry Garcia taldi hann á að taka upp þráðinn og hefja tónleikahald að nýju. Tón- leikaferðin með Grateful Dead var heldur misheppn- uð, eins og heyra má á öm- urlegri tónleikaplötu sem kom út tveimur árum síðar, en það skipti ekki máli því hafin var tónleikaferð sem hefur staðið meira og minna síðan, ferðin endalausa eins og menn skemmta sér við að kalla hana. í viðtali við viku- ritið Time segir Dylan svo frá að hann hafi fengið hug- ljómun þar sem hann stóð á sviðinu með hljómsveit Toms Petty í Locamo í október 1987 og áttað sig á því að tónlistin var einhvers virði og það væri skylda hans að leika hana sem víð- ast sem hann hefur gert upp frá því. Sjálfur segir Dylan að „ferðin endalausa" hafi ekki staðið nema í fjögur ár, en þó er ekkert lát á tón- leikahaldinu, því hann leik- ur að jafnaði á 100 tónleik- um á ári og tekur ekki frí, nema þegar hann fékk ígerð í hjarta á síðasta ári. Kannski hafði sú reynsla eitthvað að segja með plöt- una nýju, því á henni er dauðinn áleitið yrkisefni, ekki síður en óendurgoldin eða glötuð ást. Eins og getið er í upphafi hafa síðustu ár eða ára- tugir verið Dylan-vinum erfiðir, því þótt hann hafi verið duglegur að gefa út plötur hafa þær flestar þótt heldur klénar og stefnu- lausar og gagnrýnendur telja iðulega Blood on the Tracks, sem kom út 1975, síðustu góðu plötuna hans. Dylan-fræðingar og þeir sem hlustað hafa á plöturn- ar sautján sem komið hafa út síðan vita þó betur, því margar skífurnar voru stórlega vanmetnar, eða þá lagðar á vogarskálar for- dóma og vanþekkingar. Þannig eru inn á milli mol- ar eins og Slow Train Com- ing, Infidels, Knocked Out Loaded, Down in the Groove og Oh Mercy, en Daniel Lanois, sem stýrði upptökum á plötunni nýju, vann einmitt með honum síðastnefndu skífuna. Sumir hafa reyndar vilj- að halda því fram að platan nýja sé einskonar framhald Oh Mercy, því lögin séu sterk og grípandi líkt og þá og textarnir ekki síður beittir og djúphugs- aðir. Ogetið er síðan tveggja afbragðsskífna sem komu út 1992 og 93, Good as I Been to You og World Gone Wrong, þar sem Dyl- an rifjaði upp þau lög sem heilluðu hann sem ungan mann og komu honum út í tónlistina. Á ferðinni endalausu óx Dylan stöðugt ásmegin og þannig voru tónleikar með honum í Lundúnum skömmu eftir uppljómunina minnisstæðir fyrir það hvað þeir voru leiðinlegir; Roger MacGuinn var hápunktur tónleikanna og hann hitaði upp, einn með gítar, en Dyl- an, studdur af Tom Petty og hljómsveit, var aftur á móti þreyttur og að því er virtist áhugalaus. Á íslandi löngu síðar var hann aftur á móti í fullu fjöri, kraftmikill og upp fullur með kímni og leikgleði. Eftir því sem áheyrendur hrifust og fögn- uðu meira efldist hann og vel studdur af hljómsveit sinni, meðal annars með frá- bærum gítarleikara, var sem hann væri að segja gamlan sannleika upp á nýtt. Gítarieikari sveitarinnar sagði í spjalli að Dylan færi aldrei á svið með laga- listann ákveðinn, hann léki bara það sem honum dytti í hug í það og það skiptið og eins gott fyrir undirleikar- ana að vera vel með á nót- unum, að kunna öll lög Dyl- ans og grúa gamalla laga bandarískrar þjóðlaga- og blúshefðar að auki. Frægt var þegar Dylan hélt tvenna tveggja tíma tónleika í Lundúnum fyrir fáum árum og ekkert lag var endurtek- ið milli kvölda. Á þeim tíma urðu ýmsir til að gagnrýna Dylan fyrir að leika lög sín í fullnýstárlegum búningi og oft þannig að varla mátti þekkja þau: hér vantaði nokkur erindi, langur kafli snerist í eitt gítargrip og á köflum söng hann svo hratt að ekki var hægt að greina orðaskil, eða hann velti at- kvæðunum uppí sér þar til þau láku út. Dylan svaraði því svo til að lögin séu lif- andi og í raun eins og grunnteikning; það sé svo komið undir stund og stað hvemig þau komi út. í New York Times í haust sagðist hann vera knúinn til þess að leika á tónleikum; hann hati það og óttist að standa á sviði, en jafnframt sé það sá staður þar sem honum líði best; „það er eini staðurinn þar sem ég get verið sá sem ég vil vera“. að varð John Lennon til sáluhjálpar að taka upp gamla rokkslagara frá sín- um unglingsárum; hann náði áttum og sendi í kjöl- farið frá sér margt af sinni bestu tónlist. Líkt er því farið með Bob Dylan; síð- ustu tvær breiðskífur, sem getið er að framan, hafa verið honum einskonar alls- herjarhreingerning sálar- innar og fyrir vikið hefur hann uppgötvað sjálfan sig að nýju, farið að yrkja texta af meiri alvöru og lagt í hendur Lanois að gera að sem hann vildi að mestu leyti. Dylan segist svo frá að þeir Lanois hafi byrjað plötuvinnuna á því að ræða um lögin fram og aftur þar til þeir voru sáttir við hvaða stefnu þau ættu að taka. Hann segir plötuna byggjast meira á tón- list en textum, þó sumir vilji miða öll hans verk út frá textunum og Lanois tekur í sama streng, segir að í tónlistina sé meira lagt en oft áður og þó platan sé vissulega alvarlegt verk, sé ekki langt í spaug og- spé. Upptökurnar segja þeir hafa verið hina bestu skemmtun og þó textarnir séu víða myrkir og jafnvel drungalegir brýtur galsinn í tónlistinni stemmninguna upp og hljóðfæri detta inn í blönduna og út aftur, nán- ast eins og menn líti inn í heimsókn og séu svo kallað- ir óforvarandis á brott. Víða er vitnað í gamla blúsa eins og getið er og til að mynda stelur Dylan gítar- línu beint frá Charlie Patton í einu laganna á nýju plötunni. Sjálfur segist Dylan eng- an áhuga hafa haft á því að færa lögin í nýlegri bún- ing; annaðhvort séu lögin í lagi og geti þá staðið með lágmarksskrauti, eða ekki í lagi og þá taki hann þau ekki upp. „Lögin mín eru yf- irleitt vinnuteikningar en að þessu sinni vildi ég fullmóta þau, klappa þau í stein, og það gekk eftir.“ Margur hefur haft orð á því hve tón- list Dylans svipi til gamal- dags blús á Time Out of Mind og víða vitnar hann í texta, ekki síður en laglínur eða gítarstef, ejns og getið er að framan. í New York Times, og reyndar í fleiri viðtölum sem birst hafa undanfarna mánuði, leggur hann áherslu á að þessi gömlu lög, þjóðlög og frum- stæðir blúsar, séu hans trú- arrit; „allt sem ég kann hef ég lært af þessum lögum,“ segir hann á einum stað, „þau eru mér alfræðirit. Ég hlusta ekki á presta, rabbína eða prédikara; ef fólk spyr mig um trúna bendi ég því á að hlusta á Hank Williams."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.