Morgunblaðið - 09.11.1997, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.11.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 B 19 Á GULLBRÚÐKAUPSDEGI afa og ömmu, Kristínar Arnoddsdóttur og Þorleifs Jónssonar, en Kristinn er skírður í höfuðið á þeim. Anna Guðríður systir Kristins stendur á milli gömlu hjónanna. Fyrir aftan Guðrún Ágústsdóttir, Ásgeir Hallsson, Kristinn og Hallur Þorleifsson. FRUMHERJAR óperunnar í La Bohéme 1955. Fv. Guðmundur Jóns- son, Guðrún Á. Símonar, Magnús Jónsson, Þuríður Pálsdóttir, Jón Sig urbjörnsson og Kristinn. I : 1 ( : ( ( < HÁTÍÐARSTUND í Þjóðleikhúsinu. Vilhjálmur Þ. Gíslason, Thor Vil- hjálmsson, Stina Britta Melander, Róbert A. Ottósson, Dóra Þórhalls- dóttir forsetafrú, Kristinn og Ásgeir Ásgeirsson forseti íslands. BRÚÐHJÓNIN Bryndís Sigurð- ardóttir og Kristinn Hallsson árið 1947. upp í þennan ágæta sófa og við Þuríður stumrum yfír henni. Ég var þá að mestu búinn með mína rullu, þurfti bara að vera á sviðinu og var ákaflega feginn yfir að hafa komist slysalaust í gegnum sýning- una. Kom þá allt í einu Guðmundur Jónsson labbandi til mín, sem hann 1 átti ekkert að gera, og hvíslaði: „Mikið afskaplega er hún veik.“ I „Já, það er nú meira," hvíslaði ég á móti. „Heldurðu ekki að við ættum að fara með hana til tannlæknis,“ hvíslaði Guðmundur, sem að sjálf- sögðu vissi allt um erfiðleika mína. Ég réð ekki við mig, fékk hlátur- skrampa og Guðmundur byrjaði líka að hristast. Jón Sigurbjörnsson var staddur nærri okkur, ég ská- skaut mér til hans og endurtók orð Guðmundar. Jón fór að hlæja og ég hugsaði með mér að best sé að Magnús Jónsson fái einnig að heyra þetta. Sem Rudolfo, ástmög- ur Mimiar, átti Magnús í sömu andrá að uppgötva að hún er að deyja og hlaupa að sófanum með örvæntingarfullum hrópum: „Mimi, Mimi, Mimi!!!“ Magnús gusaði þessu út úr sér með hlátursrokum og svo stóðum við allir fjórir við dánarbeð Mimiar og skulfum og hristumst hver öðr- um meira. Guðrún og Þuríður skildu hvorki upp né niður í þessum titringi, en héldu ótrauðar sínu striki. Sem betur fór snerum við baki í áhorfendur svo fíflagangurinn varð ekki til að eyðileggja hryggðar- stemmninguna yfir andláti Mimiar. Þvert á móti var hægt að túlka skjálftann í okkur sem ekkasog, enda komu tvær leikkonur til okkar á eftir og kváðust aldrei fyrr hafa séð önnur eins sálarátök á sviði. Okkur hefði tekist hreint ótrúlega vel að koma harminum til skila. Svona er bilið skammt á milli hláturs og gráts. Trúin og góða skapið Kristinn hefur orðið fyrir þung- um áfollum í lífínu. Hann missti eig- inkonu sína, Hjördísi Sigurðardótt- ur, úr krabbameini árið 1983 og tæpum sex árum síðar tók krabb- inn einnig líf Ágústu næstelstu dóttur þeirra. Hún lét eftir sig 5 ára dóttur, Hjördísi, sem Kristinn og Sigurður sonur hans hafa alið upp síðan. Haldreipi Kristins í þrengingum lífsins eru jákvætt hugarfar og sterk trú: Kristin trú hefur verið mér ákaf- lega mikils virði í lífinu. Ég hefði tæpast sloppið heill í gegnum mín- ar þyngstu raunir án styrksins sem trúin veitti mér. Trú mín er hin einlæga trú bamsins. Ég hef lítið gert af því að stúdera guðfræðikenningar. Þær útlistanir á guðdóminum sem ég fékk í æsku frá foreldrum mínum, ömmu Önnu Benediktsson, séra Friðriki Friðrikssyni og séra Bjarna Jónssyni, mótuðu trúarvit- und mína og hún hefur lítið breyst síðan. Ég man enn vel eftir þegar séra Bjami fór með okkur strákunum í KFUM yfir innihald faðirvorsins og boðorðanna tíu. Fyrir mér em þeir textar undirstaðan í lífi hins kristna manns. Séra Bjarni lagði til dæmis ríka áherslu á að setning faðirvors- ins: „Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni“ - þýddi að við gætum ekki krafist neins af Guði. Það verður endanlega hans vilji sem ræður, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þegar við missum ástvini er það hans vilji og ekki hægt að berjast á móti því. Við verðum að sætta okkur við tilveruna eins og hún er. Mér var líka kennt að mikilvægt væri að koma vel fram við annað fólk, eins og felst í annarri setningu í faðirvorinu: „Fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vomm skuldunautum." Séra Bjami sagði að í þessum orðum fælist að maður ætti að passa sig á að syndga ekki gagnvart öðram mann- eskjum, því erfiðara væri að fá fyr- irgefningu eftir slíkt. En Guði er allt mögulegt og ég hef aldrei verið hræddur um að hann fyrirgæfi mér ekki gerði ég einhverja vitleysu. Ég hef sjálfsagt á stundum verið dálítið lausbeislað- ur og ekki hagað mér í anda kristn- innar, en held mér hljóti að verða fyrirgefnar mínar syndir. Það er enginn maður syndlaus hafi hann skilað af sér góðu lífi. Ég trúi á líf eftir dauðann, en hvernig það er innréttað hef ég ekki hugmynd um. Ég veit ekki hvort ég eigi eftir að hitta aftur Hjördísi, Ágústu, foreldra mína og aðra vini og ættingja sem nú eru burtkallaðir, en get alveg eins látið mér detta í hug að það gerist. I því sambandi rifjast upp íyrir mér gi-áglettin saga af séra Matthí- asi Jochumssyni. Hann var að hug- hreysta mann sem lá á banasæng og benti honum meðal annars á að hann gæti glaðst yfir að fá nú bráð- um að sjá ástvini sína upp á nýtt: „Ja, það verður laglegt hjá þér,“ stundi þá aumingja maðurinn, „með þínar þijár eiginkonur!" Það em semsé ýmsir fletir á mál- inu. Gott skaplyndi var ein af vöggu- gjöfum mínum. Hún hefur enst ákaflega vel. Mér hefur ávallt reynst auðvelt að horfa fremur á bjartari hliðar tilvemnnar en þær dökku. Fyrir kemur að mér sárni eitthvað, en reiði er tilfinning sem ég varla þekki. Ég efast ekki um að sumt af því sem ég hef aðhafst um dagana hefði ég betur látið ógert. Og margt hef ég sjálfsagt viljað að færi á annan veg en það gerði. Minni mitt er hins vegar svo frá- bærlega innréttað, að allt slæmt og leiðinlegt sem ég hef upplifað er gleymt. Éftir situr það skemmtilega og góða. • Bókarheiti: Góðra vina fundur. Höfundur: Páll Kristinn Pálsson. Útgefandi: Forlagið. Bókin er 333 bls. ogprýdd fjölda Ijósmynda. MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI Skrifstof ubraut er tveggja anna braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar. Brautin er starfetengd og fara nemendur okkar í starfeþjálfun í ein bestu fyrirtækin í Kópavogi. Kennsla hefet í janúar en innritun stendur yfir til 10. nóvember. Upplýsingar gefur kennslustjóri bóknáms milli kl. 8.00 og 16.00. MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI v/uigranesveg - 20U Kópavogur, Sími 544 5530, fax 544 3961, netfang mk@lismennt.is Norræna félagið Hátíðardagskrá verður haldin á vegum Norræna félagsins og Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns í tilefni norrænu bókasafnavikunnar u „1 ljósaskiptunum - Orðið í norðri - Mánudaginn 10. nóvember 1997 í Þjóðarbókhlöðunni Kl. 17.30 Stutt ávörp. Tónlistaratriði - Camilla Söderberg og Guðrún Óskarsdóttir leika á flautu og sembal. Kl. 18.00 Rafljós verða slökkt og kveikt á kertum. Upplestur - frú Vigdís Finnbogadóttir les kafla úr Egilssögu. Leiklestur úr Laxdælu - Leikhópurinn Bandamenn. Tónlistaratriði - Camilla Söderberg og Guðrún Óskarsdóttir. Leiklesur úr Njálu - Leikhópurinn Bandamenn. Sýning á efni tengt Egilssögu. Ókeypis aðgangur — ollir velkomnir Landsbókasafn íslands- Norræna félagið Háskólabókasafn. Tengdó er að koma ...og hún ætlar að gista (þ)að er ánægjulegt þegar góðir gestir koma í heimsókn og gista í nokkra daga. Gestirnir vilja eflaust sjá sig um og þá er gott til þess að vita að bílaleigubíll í minnsta flokki í einn sólarhring með 100 km akstri og VSK. kostar aðeins 3.100 kr. Bílaleigubíll gefur öllum frelsi Sími: 50 50 600 - Fax: 50 50 650 Leiga á bílaleigubíl í minnsta flokki í einn sólarhring kostar aðeins 3.100 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.