Morgunblaðið - 14.12.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 B 5
geggjun í gangi en menn höfðu áð-
ur heyrt og á köflum var mjög
erfitt að skilja textana, svo
nykraðir voru þeir og flæktir. 01’
Dirty Bastard hefur reyndar sagt
í viðtölum að hann sé orðinn leiður
á að vera alltaf í hlutverki hirð-
fíflsins og meðal annars er síðasta
viðurnefni hans, Osiris, til marks
um það. Sumt af því sem hann hef-
ur látið frá sér fara hefur mátt
skrifa á drykkjulæti, og víst hefur
hann átt í erfiðleikum með brenni-
vínið; í haust gafst sveitin upp á
tónleikaför með Rage Against the
Machine meðal annars vegna þess
að 01’ Dirty Bastard drakk sig út
úr hópnum, en nýjustu fréttir
herma að það sé ekki vandamál
lengur.
Only Built 4 Cuban Linx með
Raekwon kom næst þar sem Ghost
Face Killah sló í gegn. Reyndar
svipar skífunni svo mjög til fyrri
Wu-Tang skífunnar að nánast má
telja hana hljómsveitarskífu. Á
mynd inni í umslagi birtist og
mynd af öllum liðsmönnum, þó
ekki séu þeir allir með á plötunni.
Þá kom sólóskífa Genius, Liquid
Swords, sem margir telja bestu
skífuna til þessa. Líkt og á öllum
plötunum er RZA við stjórnvölinn
og eins og hann hafi lagt meira á
sig fyrir sinn gamla félaga. Platan
er meðal annars minnisstæð fyrir
það að lagalisti á umslagi er allt
annar en röðin á plötunni og skýr-
ingar á því óteljandi.
Síðasta sólóskífa þein-a félaga að
sinni er plata Ghost Face Killer,
Ironman, sem kom út á síðasta ári.
Á þessum tíma hefur sveitin líka
sent frá sér grúa af smáskífum og
tekið þátt í óteljandi sérverkefn-
um, kvikmyndum og komið fram
sem gestir á skífum annan’a.
Veigamest hliðarverkefnanna er
samstarf RZA við Prince Paul og
forðum meðlim Stetsasonic, Fruit-
kwan, einnig forðum Stetsasonic-
manns, og Too Poetic, sem var í
Brothers Grimm. Gravediggaz
hafa gefið út tvær breiðskífur,
Niggamortiz/Six Feet Deep og The
Pick, The Sickle, and the Shovel.
Sú fyrrnefnda kom út 1994 en sú
síðari seint á þessu ári.
Framundan eru því fjórar sóló-
plötu til, en einnig eru væntanlegar
plötur frá þeim sem þegar hafa
gefið út, til að mynda átti plata að
koma út með Method Man í þess-
um mánuði en var frestað fram yfir
jól. Mest er beðið eftir plötu frá
RZA, en hann gerði snemma á ár-
inu útgáfusamning og fékk milljón
dala fyrirframgreiðslu fýrir. Sú
plata átti að koma út á árinu en
engin dagsetning hefur heyrst sem
mark er á takandi.
Rappið er lífsstíll
Wu-Tang Clan hefur haft gríð-
arleg áhrif á þróun rappsins og
víða má heyra áhrif, meðal annars
hjá þeim rappsveitum íslenskum
sem hita upp fyrir þá 01’ Dirty
Bastard og Inspectah Deck í
Laugardalshöll á laugardag, Qu-
arashi og Subterranean. Starf
þeirra og lífsspeki undirstrikar að
rappið er meira en tónlistarform
eða söluvarningur, það er lífsstíll
sem hefur haft mikil áhrif á líf
unglinga hvarvetna í hinum vest-
ræna heimi. Þau áhrif eru ekki í
rénun eins og sést af gríðarlegum
áhuga á tónleikum þeirra félaga í
höllinni sem verður ekki jafnað við
neitt nema eftirminnilega heim-
sókn Led Zeppelin hingað til lands
fyrir langa löngu. Rapptónleikar
eru sérkennileg upplifun, því þeir
eru ekki eins og hverjir aðrir tón-
leikar, heldur eru þeir líkari sam-
komu eða skemmtun þar sem allir
leggjast á eitt um að skapa
stemmningu. Þó ekki sé allur Wu-
Tang flokkurinn á ferð, hefði
væntanlega kallað á fjörutíu til
fimmtíu mannahóp hið minnsta,
þá eru þeir félagar 01’ Dirty Bast-
ard og Inspectah Dek verðugir
fulltrúar lífsstílsins og lífsspekinn-
ar sem fleytt hefur Wu-Tang Clan
á toppinn um heim allan.
Jólagleði fjölskyld-
unnar í Hellisgerði
SU NÝBREYTNI hefur verið tekin
upp í Hafnarfirði að vera með
skemmtun fýrir alla fjölskylduna í
Hellisgerði sem er skrúðgarður
Hafnafirðinga og er hann staðsett-
ur í hjarta bæjarins.
Aðventusunnudagarnir fjórir
hafa verið valdir fýrir þessar
skemmtanir. Nú þegar hafa verið
haldnar tvær skemmtanir og hafa
komið á milli 5-6 þúsund gestir til
að skemmta sér og eiga góðan dag
með sínum nánustu, segir í fréttatil-
kynningu.
Margir listamenn hafa komið í
garðinn. Næg bílastæði eru á hafn-
arbakkanum og í miðbæ Hafnar-
fjarðar sem er í 100 metra fjarlægð
frá garðinum. Fyrir skemmtuninni
standa Hafnarfjarðarbæ, Æsku-
lýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarð-
ar, Atvinnumálanefnd Hafnarfjarð-
ar, Rafveita Hafnarfjarðar og Garð-
yrkjustjórinn í Hafnarfirði.
Jólagjöf
íþróttamannsins
oq þá sem vilja
vera í formi
Nýjar gerðir
nýtt útlit.
P. Ólafsson hf.
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði, sími 5651533
púlsmælar