Morgunblaðið - 14.12.1997, Side 6

Morgunblaðið - 14.12.1997, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Eru líkþornin þín föst í vítahring? Compeed plástur fjarlægir líkþorn án þess að særa húðina! Allt við Comppeed plásturinn er byltingarkennt. Nútímalegt teyjuefnið. Náttúruleg sáragræðing. Þú losnar strax við sársaukann. Þegar þú hefur einu sinni notað Compeed plástur á líkþorn viltu varla annað. Það er vegna þess að þú finnur strax fyrir léttinum. Hið hlýja og raka umhverfi fer strax að mýkja hamaða húðina og vinnur smátt og smátt á líkþominu. Compeed líkþomaplásturinn færð þú í apótekum. ÖSSUR. HJÁLPARTÆKJABANKINN Ingólfsapóteki í Kringlunni l mánudag og þriðjudag kl. 14-18 báða dagana INGOLFS APOTEK Kynnxng a fiIodcnG sokkabuxum Könnun á kvenímyndum í breskum kvennatímaritum Einsleit ímynd grundvöll- uð á sjálfselsku ríkjandi London. Reuters. SJÁLFSE LSKAR, yfirborðsleg- ar og gagnteknar af kynlífi. Þess- ir eru helstu þættir þeirra mynd- ar sem dregin er upp af konum í Bretlandi í helstu kvennablöðum er gefin eru út þar í landi. „Nú á dögum eiga breskar konur ekki börn, stendur á sama um allt og hafa enga ábyrgðartil- fínningu. Líf þeirra snýst ein- vörðungu um glys og dekur. Þær hugsa lítið, nema þá um kynlíf," segir í niðurstöðum könnunar, er birtar voru fyrir skömmu, á ell- efu mest seldu kvennatímaritum í Bretlandi. Könnunin var gerð á vegum óháðs rannsóknar- og menntamálasjóðs er nefnist Soci- al Affairs Unit. „[Konur] hafa gaman að fylliríshrekkjum sem hafa löng- um talist sérsvið sti’áka og kalla slíkt „stelpuvald“. Eina siðferðis- gildið sem þær hafa í heiðri er að forðast að fella dóma; ráðgjöf er svarið við hverjum vanda,“ segir ennfremur í niðurstöðum könn- unarinnar. Hvergi minnst að siðferðismál Könnunin fór fram með þeim hætti að athuguð voru ítarlega tímarit fyrir konur á aldrinum 20-40 ára, er seljast samtals í um 3,7 milljónum eintaka. I ljós kom að myndin sem dregin er upp af konum í þessum ritum einkennist af hégómaskap og hvergi er minnst á siðferðismál. Böm em sjaldan nefnd í sumum tímarit- um, farið er með harmleiki eins og afþreyingarefni og sambönd virðast snúast eingöngu um kyn- líf. „í ljósi þess að spumingin um hvenær rétt sé að eignast bam og hvernig hægt sé að halda jafn- vægi milli vinnu og bai’na er megin áhyggjuefni flestra kvenna finnst mér undarlegt að hvergi sé minnst á slíkt,“ sagði Ann Applebaum, sem meðal ann- arra vann að rannsókninni. „Tímaritskonan" Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar hefur kynlíf enga merkingu fyrir „tímaritskonuna" svonefndu nema sem hverfult gaman og engar afleiðingar nema sjúkdóma og fóstureyðingar. „Hún er, í stuttu máli, jafn mddaleg, svívirðileg og óvið- kunnanleg og verstu karlmenn," segir í niðurstöðum könnunarinn- ar. Tímaritskonunni er illa við að leggja nokkuð á sig, nema í „musteri sjálfsdýrkunai-innar, heilsuræktinni“. Rannsakendum þótti einna verst hvemig tímaritin fjölluðu um harmleiki í lífi einstaklinga. „Undarlegri eða skelfilegri ógæfu annarra er oft snúið upp í smekklausan skrípaleik." Einsleit mynd Tekið er fram, að tímaritin séu að vísu mismunandi, en þegar dregið sé saman komi í ljós harla einsleit mynd. Vera kunni að tímaritin dragi ekki upp rétta mynd af breskum konum, en samt sé varasamt að hafna því al- farið að kvenímyndin í tímaritun- um eigi samsvömn í raunveru- leikanum. „Að svo margir skuli lesa [þessi tímarit] að staðaldri er einskonar stuðningsyfirlýsing. Eru lesendur ánægðir með þessa mynd af nútímakonum; hafa tímaritin í raun og veru dregið upp sannferðuga mynd af bresk- um konum?“ er spurt í niðurstöð- um könnunarinnar. Bókin er prýdd fjölda skýringarmynda og er 957 bls. Verd 7.900 kr. Bókin á geisladiski Verð 9.900 kr. Sé bókin keypt ásamt geisladiski er veittur 15% afsláttur. Hagskinna í fyrsta sinn á íslandi, söguleg tölfrœöihandbók, byggð upp á skýran og einfaldan hátt. „Hún treystir grundvöllinn undir skynsamlegum umrœðum og ákvörðunum um efnahagsmál á íslandi. Hún varpar skýru Ijósi liðins tíma á líðandi stund. Hún er beinlínis bráðskemmtileg og öllum aðstandendum sínum til sóma. “ Þorvaldur Gylfason í Morgunblaðinu 21. ágúst 1997 „... fullvíst má telja að hún eigi eftir að nýtast vel bœði hérlendis og erlendis um ókomin ár, ekki síst útgáfan á geisladiski. “ Kristinn Briem í Viðskiptablaði Morgunblaðsins 10. júlí 1997 „Hagskinnu á hvertheimili..." Guðrún Pétursdóttir formaður dómnefndar um fræðibækur, við tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna 8. desember 1997 Fæst í bókaverslunum og á Hagstofu Islands Skuggasundi 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.