Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 20
.20 B SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTÓNLIST
istinn
Morgun«J‘“Vi*'" —
Einn
Svanur Kristbergsson.
Öflug safnskífa
x EINN helsti dansklúbbur Bretíands til margra ára er
x Ministry of Sound. Þó stundum hafi staðið styi i um uauu
xverður því varla neitað að hann hefur haldið velli í harðrij
x__ samkeppni og virðist heldur bæta við sig en hitt. Liður í
x starfi Ministry of Sound er að gefa út safnskífur með því |
x. helsta sem ber fyrir eyru gesta staðarins og fyrir
X skemmstu kom út tvöföld safnskífa, nefnist Northern
X Exposure og Þruman dreifir. Skífustjórar eru Sasha og J
x John Digweed, en þeir ráða yfir sínum disknum hvor
X Yekur athygli fslendinga að upphafslag fyrri disksins er
xBelieve Gus Gus flokksins knáa, og síðar á þeim sama diskj
C er annað Gus Gus lag, Purple. Þetta verður að teljast
,_T '~T-Zn~-------------_ur-~7~~ v ~r
xþarla vel af sér vikið því engin sveit önnur á tvö lög
inu og eru þó margar þær helstu í dansheiminum
X til að mynda Spooky, Fluke, Speedy J og Sven Vath. %
20 ómissandl lög
FÁIR HAFA lagt annað eins til íslenskrar poppsögu og
Magnús Eiríksson sem samið hefur fleiri vinsæl lög en
tölu verður á komið. Dugði og ekki til að gefa safn hans
helstu laga út á einum disk.
Fyrir stuttu kom út diskurinn Magnús Eiríksson, 20
ómissandi lög. Sá er einskonar viðbót við fyrri
safndisk helstu laga Magnúsar, enda gefur augaleið að
ekki væri hægt að koma vin-
sælustu lögum hans fyrir á
einni plötu. Þannig enj _ á
disknum nýja lög eins og Ég JlV Í*-
er á leiðinni, Einbúinn, Lifði
og dó í Reykjavík, Þjóðveg-
urinn, Aldrei of seint, Sam- mM&Íii&tplm
ferða, Göngum yfir brúna, aðp||||||
Sönn ást, Línudans, Hudson Íl
Bay, Haltu mér fast og
Ómissandi fólk svo fátt eitt
sé talið. Lögin flytja ýmsir helstu söngvarar þjóðarinn-
ar og eru reyndar öll í upprunalegri gerð, utan eitt, Ég
er á leiðinni, sem hljóðritað var í haust fyrir þessa
plötu, en Pálmi Gunnarsson er þar söngvari sem forð-
um.
Elstu lögin á plötunni eru frá fyrstu skífu Manna-
koma sem kom út 1975, en síðan eru þau úr öllum átt-
um og af mismunandi plötum, allt fram á síðasta ár, því
lokalag plötunnar, Ómissandi fólk, var einmitt lokalag
samnefndrar skífu sem Magnús og Kristján „KK“ Kri-
stjánsson sendu frá sér á síðasta ári.
EIN SÉRKENNILEGASTA hljómsveit síðustu ára
er japanska sveitin Pizzicato Five. Hún hefur verið
ein vinsælasta hljómsveit Japans í fjölda ára og hef-
ur sótt í sig veðrið víðar undanfarið.
Fyrir skemmstu kom út ný breiðskífa Pizzicato Fi-
ve á vegum Matador-útgáfunnar bandarísku. Sveit-
in, sem velunnarar hennar kalla iðulega P5, er skip-
uð pilti og stúlku sem stendur, Yasuharu Konishi og
Maki Nomiya. Þrátt fyrir nafn sveitarinnar er hún í
raun dúett þeirra Konishi og Nomiya og semur
Konishi alla tónlist og stýrir upptökum. Þau hafa
gefíð út grúa af smáskífum í heimalandinu og fjórt-
án breiðskífur, en minna hefur verið um útgáfu á
Vesturlöndum og þá helst útgáfa á samansafni af
eldra efni sem þau hafa gefið út í Japan.
Fyrir stuttu gaf Matador út fyrstu breiðskífuna
með nýju efni Pizzicato Five vestan hafs, sem finna
Meira myrkur
Sérkennlleg Maki
Nomiya og Yasuharu
Konishi = Pizzicato Five
má meðal annars f Hljómalind, og heitir Happy End
of the World. Skífan er að nokkru frábrugðin því
sem sveitin hefur áður sent frá sér, meðal annars
fyrir það hversu Konishi nýtir takta og breakbeat
lipurlega í bland við hefðbundið P5 gleðipopp. Kon-
ishi hefur verið að hasla sér völl sem plötusnúður
sem skýrir kannski dansáhrifin, en hann bendir á
að sveitin hefur verið að nota breakbeat sfðan
1990.
Pizzicato Five vakti fyrst athygli fyrir lag-
ið góða Twiggy Twiggy/
Twiggy vs. James Bond fyrir
tveimur árum, en Konishi
segir að ekki geti menn vænst
þess að japanskar sveitir séu all-
ar uppfullar af kæruleysislegri glað-
værð. „Það er vissulega meira myrkur á
plötunni nýju, og það á eftir að berast
meira af slíkri tónlist frá Japan; Vestur-
landabúar gera sér litla grein fyrir því
sem þar er á seyði í músík.“
Skeggprúðlr Tveir meðlimir Led
Zeppelin á góðri stundu.
■ BRESKA rokksveitin Led Zepp-
elin hefur slegið öllum við í sölu og
á nú aðeins eftir að velta Bftlunum
af stalli. Alls hafa ellefu breiðskífur
með nafni sveitarinnar selst í 63,8
milljónum eintaka, en í uppgjöri
sem birt var vestan hafs kemur í
ljós að fjórða breiðskífa Zeppelin
hefur selst í 17 milljónum eintaka.
Annars er sala á skífunum svo í
milljónum talið: Led Zeppelin, sex
miHjónir eintaka. Led Zeppelin II
átta, Led Zeppelin III fjórum,
fjórða breiðskífan sautján, Houses
Of The Holy, átta, Physical Graffiti,
níu, Presence þremur, In Through
The Out Door sex, Led Zeppelin
fjögurra diska kassi, sex, Re-
Masters tveimur, The Complete
Studio Recordings, tlu diska kassi,
milljón, Coda, milljón og The Song
Remains the Same fjórum.
■ ÚTGÁFURÖÐ Smekkleysu,
Skært lúðrar hljóma, er runnin sitt
skeið á enda, í bili að minnsta kosti.
Til að fagna útgáfunni verður sér-
stakt Smekkleysukvöld í Þjóðleik-
húskjallaramim á miðvikudag þar
sem útgáfan verður kynnt. Fram
koma PPPönk, _ Sigurrós, Soðin
fíðla, Berglind Ágústsdóttir, And-
héri og Á túr, en hljómplata síðast-
töldu sveitarinnar kom út í vikunni.
Eina sveitin sem ekki kemur fram að
þessu sinni er Kvartett Ó. Jónsson &
Grjóni, sem hætti fyrir stuttu, en í
hans stað kemur leynigestur.
■ SÁLIN HANS Jóns mlns hyggst
leika á nokkrum tónleikum fyrir jól-
in. Næstkomandi föstudag leikur
hljómsveitin í Sjallanum á Akur-
eyri, annan í jólum verður hún á
Selfossi og gamlárskvöld í Ing-
ólfscíifé.