Morgunblaðið - 14.12.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 B 21
DÆGURTÓNLIST
MÖRGUM er minnisstæð breiðskífa hljómsveitarinnar Birthmark sem hét
eftir sveitinni. Sú þótti venju fremur vönduð á íslenskan mælikvarða og þó
hún hafi ekki selst eins og aðstandendur hennar, Svanur Kristbergsson og
Valgeir Sigurðsson vonuðu fór hróður þeirra víða. Ekki auðnaðist Birth-
mark að gera nema þessa einu skífu, því uppúr löngu samstarfi þeirra
slitnaði í kjölfarið. Valgeir hefur haldið áfram í tónlist, meðal annars starf-
að með Unun og Helga Björnssyni, en lítið hefur heyrst frá Svani þar til
hann sendi frá sér skífuna Sink fyrir skemmstu.
Svanur segir að þeir Valgen- hafi
lagt allt sitt í plötuna og „allt of
mikið undir“, segir hann. Hann bæt-
ir við að þó ekki hafi mikið heyrst frá
________ honum í Iqölfarið
hafi hann haldið
þeirri iðju sinni að
semja lög heima
fyrir, „enda má
segja að ég sé lík-
amlega háður því“.
Svanur segir að það
eflir Árno hafi síðan ekki ver-
Motthíasson ið fyrr en í upphafi
þessa árs að hann hafi farið að velta
fyrir sér hvaða leið hann vildi fara
með lögin.
„Ég var kynntur fyrir Jens Hans-
syni sem vænlegum samstarfsmanni
og við veltum fyrir okkur í samein-
ingu hvaða leið væri best. Við gerð-
um tilraunir annai's vegar með raf-
ræna útfærslu, sem mér fannst ekki
virka, og á hinn bóginn með útsetn-
ingu sem kalla má í anda Birthmark
plötunnar en þó með öðrum for-
merkjum, fonnerkjum myrkursins.
Við undirbúning fyrir upptöku lags-
ins Lifeboat to Memphis, sem til-
einkað er minningu söngvarans Jeffs
Buckleys, má segja að ég hafi fundið
útgangspunktinn. Það lag stendur
fyrir hið tvíeggja eðli tilverunnar
eins og hún blasir við mér sem
stendur. Að finna útgangspunktinn
skipti sköpum, að öðru leyti er tón-
list mín og verður alveg óákveðin,
landamæratónlist. í haust ákvað ég
síðan að láta verða af því að taka
þetta upp þó ég hafi strax áttað mig
á því að það yrði ekki nema hálf
plata; framhaldið kemur út í apríl.“
Svanur segir að upptökuvinnan
hafi gengið hratt og örugglega fyrir
sig þegar hún hófst, enda valinn
maður í hverju rúmi, Birgir Baldurs-
son barði trommur. Hann segir að þó
að hratt hafi verið unnið hafi þeir
Jens vandað sig við upptökurnar til
að tryggja að hljómur yrði sem best-
ur og líka hafi hann verið opinn fyrir
framlagi hljóðfæraleikararanna; ef
þeh' voru með góðar hugmyndir seg-
ist Svanur hafa tekið þeim vel. „Eg
var með ákveðna hugmynd um
hvernig lögin ættu að hljóma, en þeir
sem koma að flutningnum verða að
hafa eitthvað að segja og ekki skyn-
samlegt að nýta ekki hugmyndir
þeirra," segir Svanur, en segir að þó
það sé gott að vera einn á ferð sakni
hann þess vissulega að hafa ekki ein-
hvem til að prófa hugmyndir á og
helst vilji hann undirbúa næstu plötu
með hljómsveit og spila lögin á æf-
ingum og tónleikum áður en fai'ið er
í hljóðver. „Ég er öðrum þræði að
svipast um eftir mönnum í hljóm-
sveit til að starfa með eftir áramót.
Eftir á að hyggja heyri ég vitan-
lega að sitthvað hefði mátt fara betur,
en það veður að skilja við verkið á
einhverjum tímapunkti. Þetta er eins
og ala upp barn,get ég ímyndað
mér, þegar það er komið á
legg er oft seint að ætla að
fara að ala það upp eitthvað
öðruvísi, það er bara svona.
Það er alltaf eitthvað sem
hefði getað verið öðruvísi, en
það verður bara að stoppa og
gefa plötuna út eins og hún
er.“
Mörgum þótti dmngalegur
blær á Birthmark-skífunni, en
Svanur tekur ekki undir það að hann
sé að semja þunglyndislega tónlist.
„Ég held að ég sé að fara í hina átt-
ina, ég finna að ég er að fara að
brjótast úr adagio-hrynhætti og mér
finnst að laglínurnar séu að verða
þroskaðri og mótaðri. Ég sem lögin
kannski í svipuðum takti, en mér
finnst ég ekki vera bundinn við það
og vil gjama breyta útaf þegar á
reynir. Það er eitthvað dásamlegt
frelsi sem fylgir því að vita í raun
ekkert hvað maður er að gera.“
SAFNDISKARÖÐIN sem kallast
Pottþétt hefur gengið vonum betur
undanfarin misseri. Segja má að fastir
áskrifendur að diskunum, ef svo má að
orði komast, skipti þúsundum, því nán-
ast allir diskarnir hafa selst í fimm til
sex þúsund eintökum hver og sumir
mun betur. Fyrir skemmstu kom út
ársskífa Póttþétt-raðarinnar, sem heit-
ir því viðeigandi nafni Pottþétt 97.
Árs-
laga-
skffá
Skífan og Spor bundust samtökum um að gefa
Pottþétt-skífurnar út til skiptis, en að þessu
sinni gefur Sport út ársdiskinn. Á honum er venj-
an að helstu lög ásins séu
viðruð og svo er að þessu
sinni, því á diskum er að
finna 37 lög sem vinsæl
hafa orðið yfir árið, innlend
sem erlend. Ef innlendu
lögin eru fyrst upp talin þá
koma Greifarnir þar fyrstir
með lagið Skiptir engu_________________
máli. Þá næst kemur Sálin hans Jóns
míns með lagið Engla, þá Sóldögg með Frið, sem
naut mikillar hylli í sumar, Maus með Égímeila-
þig, Housebuilders með E1 Ritmo og Gus Gus
með Polyesterday. Af erlendu lögunum er helst
NU ER FLUTT í Hótel Islandi
sýningin I útvarpinu heyrði ég lag
þar sem Björgvin Halldórsson
syngur safn helstu laga frá ferli sín-
um. Sýningin dregur nafn sitt af
lagi sem HLH flokkurinn gerði vin- s-
sælt fyrir átta árum og það gerir
líka breiðskífa sem kom út fyrir
stuttu og hefur að geyma 20 lög úr
safni Björgvins.
að geta Meredith Brooks með lag sitt
Bitch, Hanson-bræður flytja Mmm
Bop, Celine Dion syngur af þrótti AU
by Myself, Eternal I Wanna be the
Only One, með dyggri aðstoð BeBe
Winans, Coolio C U When U get
There, Skunk Anansie Hedonism,
Spice Girls væla 2 Become 1, Seal
Fly Like an Eagle, Radiohead Para-
noid Android, Robert Miles One &
One, The Blueboy Remember Me, Ricky Martin
Maria, Tori Amos Armand van Helder endur-
gerð Professional Widow og Energy Café Del
Mar, svo fátt eitt sé talið.
Iútvarpinu heyrði ég lag er
fyrsta safnskífan sem helguð er
HLH fiokknum, sem Björgvin
stofnaði með Þórhalli Sigurðssyni
á sínum tíma og Haraldi bróður
hans. I bæklingi sem fylgir diskn-
um kemur fram að Björgvin fékk
þá hugmynd að setja saman söng-
flokk sem flytja myndir gamlar
rokkperlur og doo-wop-lög og ný
íslensk lög sem samin væru í
sama stíl. Hann fékk Þórhall til
liðs við sig, þekkti hann af heima-
slóð í Hafnarfirði, og Haraldur
var þriðja hjól undir vagninn.
Nafn flokksins var dregið af nöfn-
um eða viðurnefnum þeirra fé-
laga; Björgvins Helga, Þórhalls
Ladda og Haraldar Halla. Fyrsta
breiðskífan kom út haustið 1979
og gekk bráðvel og ekki síður þær
skífur sem á eftir fylgdu. Á rokk-
buxum og strigaskóm, kom út
1984, en á þeirri plötu kom Sigríð-
ur Beinteinsdóttir meðal annars
við sögu, og Jól í góðu lagi, sama
ár. Lokaskífa flokksins að sinni að
minnsta kosti, Heima er best,
kóm svo út 1989.
Skýium oiar sem
verðunur leiðtogi fartölva
IBM er í sjöunda himni yfir velgengni ThinkPad
fartölvanna því engar aðrar fartölvur í heimi-
num hafa fengið fleiri verðlaun. Qg það er
engin tilviljun því ThinkPad hefur fullkamna
tengi- og samskiptamöguleika, stóran og
vandaðan skjé ésamt þjálu lyklabarði í fullri
stærð. Gæðin stíga þá IBM ekki tii höfuðs því
ThinkPad fartölvan er á útrúlega lágu veröi.
(IBM ThinkPad 310E )
"T1B8.DD07)
Við bjóðum
takmarkað magn
á VBrði sem á sér
ekki hliðstæðu.
firatiirvi: Intel Pentiura 133MHz MMX.
Vinnaluminni: ÍBMB EDU, stækkanlegt í 64.
Harðdiakur: 1.6GB.
Skiér: 12,1" DSTN litaskjér.
Margmiðlun: Hljóðkart, hljóðneml, hátalarar.
Rafhlaða: 3,5 klst, NiMH raíhlaða.
P.enV.HrP Hughúnaður: Windows 95, IBM Antivlrus.
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 • Stmi 569 7700
Slóð: http://www.nyherji.is
Netfang: nyherji@nyherji.is