Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 B 23
Hashimoto
og fólkið sem
gleymdist
Japanspistill
Úti í Japan situr Þóroddur Bjarnason fyrír
framan „tvítyngdau Mitsubishi sjónvarpið sitt
og ieitar í örvæntingu að einhverju sem hægt
er að hafa gaman af, en án árangurs.
*
G BY í Kitakyushu í Japan
og hef möguleika á að sjá
sjö innlendar sjónvarps-
stöðvar sem allar senda út efni frá
því snemma að morgni og fram á
nótt, alla daga, allan ársins hring,
en það er ekki nóg.
Nú slekk ég í fáeinar mínútur
en verð fljótlega aftur vongóður
um að eitthvað skemmtilegt birtist
á skjánum og kveiki á ný, enda
bjartsýn maður að eðlisfari. Ég bíð
þolinmóður eftir að löngum aug-
lýsingahléum ljúki, það er eins og
einn auglýsingapakkinn taki við af
öðrum: „kauptu Kirin bjór, kauptu
nýja Hondu, kauptu þér hraðnúðl-
ur, og kayptu andlitsfarða eða síga-
rettur“ sömu auglýsingamar á öll-
um stöðvum og áður en ég slekk á
tækinu, gefst endanlega upp og
rölti út á myndbandaleigu, slær
klukkan níu og seinni tvítyngdi
fréttatími kvöldsins hefst í ríkis-
sjónvarpinu, NHK. Hann fær mig
til að fresta för minni út á leigu um
sinn.
Þar tekur ekki betra við. Nú
er enn ein hneykslisfréttin á ferð-
inni. Hér í Japan hefur hvert
hneykslismálið rekið annað á und-
anfdnium mánuðum og sjónvarps-
stöðvamar gera þeim ævinlega ít-
arleg skil.
Fréttatíminn í kvöld er vel að
merkja nokkuð hefðbundinn. Eftir
að hneykslissögun lýkur er það
sem eftir lifir fréttatímans sagt frá
fleiri atburðum á innlendum vett-
vangi, einhverjum morðum, veðri,
og Hashimoto. Já skiljanlega er
Hashimoto forsætisráðherra oft í
sjónvarpinu og um daginn, þegar
hann vísaði einum ráðherra sinna
úr nýskipaðri ríkisstjórn sinni,
vegna þess að sá hafði verið viðrið-
inn mútumál fyrir tugum ára, eitt-
hvað sem almenningur reis upp
gegn og heimtaði að manninum
yrði vísað úr stjómini, þá var hann
dómgreindarleysi sínu á að hafa
valið hann i stjórn sína. Auk þess
baðst hann enn afsökunar í
stefnurædu sinni nýlega, sem ég
sá auðvitað í sjónvarpinu.
En hvað er svona leiðinlegt
við japanskt sjónvarpsefni? Sjón-
varpsdagskráin er samansett, fyrir
utan fréttatíma, af: hafnabolta,
hálffíflalegum samtals- og leikja-
þáttum, „brjóstaþáttum" (eftir
miðnætti), matartengdum samtals-
þáttum, matartengdum heimildar-
þáttum, matreiðsluþáttum, jafnan
á besta tíma á laugardagskvöldum,
og japönskum sápuópemm. Ég
ætla ekki að minnast á sjónvarps-
varpsdagskránni, umfjöllun um
þær bíður betri tíma. Innlend dag-
skrárgerð er hér í miklum blóma,
mér og öðrum útlendingum til
mikillar skapraunar.
Stundum sést þó ljós í myrkr-
inu. Það er alltaf gaman að horfa á
sumo, en sent er frá öllum keppn-
um í sumoglímu og eftir miðnætti
hittir maður stundum á gamla
bandaríska framhaldsþætti. A stöð
3 em einnig daglega bandarískar
bíómyndir þótt gmnur vakni um
gæði myndanna þegar í byrjun
kemur fram að framleiðandinn er
einhver dularfullur Grikki, ítah
eða Þjóðverji, og titillinn er til
„Stríðsmenn á mótorhjólum". Stöð
3 virðist sem sagt hafa farið að
dæmi RÚV þegar þeir hér um árið
keyptu sniðuga pakka af myndum,
eins og til dæmis allar Elvis
Presley myndimar, tuttugu og
eitthvað að tölu, sem urðu til þess
að viðskiptin fóru að blómstra sem
aldrei fyrr á íslenskum mynd-
bandaleigum. Og nú blómstra við-
skiptin í Big Box, videóleigunni
minni, þar sem ég get leigt myndir
með ensku tali, og horft á þær aft-
ur og aftur enda eru leigusalarnir
hérlendis rausnarlegir og skiln-
ingsríkir, því viðskiptavinurinn má
halda spólunum í vikutíma.
frábæru
færðu í
Kjallaranum
og Kókó
LAUGAVEGI 67
5ÍMI 551 2880
É
Eitt blað
fyrir alla!
- kjarni málsins!
Hjartans þakkir til allra, er minntust mín
7. desember og gerðu daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
A Hótel Örk var gott að vera.
Kœrar þakkir.
*
Arni Magnússon.
E*
5ARNABÆSUÍR
Nú etu bækumar
um Alla
Nýjastabókin
"Strokufanginn"
er æsispennandi
saga um þrjá 13
ára krakka, sem
uppgötva
leyndardóma
eyðibýlisins.