Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 28

Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 28
28 B SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ i X eftirvæntingu í svip ferðafólks, eins og þennan dag sem ferðin hófst,“ sagði Ingólfur. „Þegar við lentum í Jóhannesarborg, eftir heillrar næt- ur flug, þurfti að bíða nokkrar klukkustundir eftir framhaldsflugi til Port Elizabeth á suðurströnd Af- ríku, þar sem hin svonefnda „blómaleið" hefst. Til að stytta bið- tímann fóru flestir í kynnisferð um Jóhannesarborg, mestu gullborg heimsins. Þótt borgin hafi mikið lát- ið á sjá síðustu fimm árin fannst fólki áhugavert að skoða þessa frægu borg og stærstu borg Suður- Afríku áður en ferðinni var haldið áfram til strandar. Að morgni næsta dags var lagt upp á hina fögru og rómuðu „blóma- leið, sem liggur nærri ströndinni alla leið til Höfðaborgar. Fólk var heillað af fegurð náttúrunnar, tígu- legum fjallahringnum í norðri og hinum fjölbreytta gróðri. „Próte- an“, hið fagra skrautblóm landsins, var víða í fullum blóma og stansað var við „The Big Tree“, skammt frá Storms River, en það er eitt stærsta og elsta tré í heiminum. Ogleyman- leg verður heimsóknin til Oudts- hoorn, í strútabæinn fræga, þar sem brugðið var á leik og margir fóru á strútsbak, jafnvel í útreiðar, en þessu lauk með ljúffengum kvöldverði á stærsta strútabýli heimsins á Highgate. Cango-hellar, skammt frá Oudts- hoorn, eru taldir fegurstu dropa- steinshellar heimsins og fólk varð orðlaust af hrifningu frammi fyrir „dómkirkjunni, pípuorgelinu, Nál Kleópötru" og „gluggatjöldunum“, sem eru eins og listhönnun frá nátt- úrunnar hendi. Koman til Höfða- borgar verður öllum minnisstæð, þar sem tekið var á móti hópnum með fínum drykkjum, hljóðfæraleik, dansi og söng innfæddra svertingja og höfðu allir af því hið mesta gam- an. Litlu munaði að tækist að ná fundi með Nelson Mandela, forseta, og okkur bárust kærar kveðjur frá skrifstofu hans, þar sem hann sagði að aðdragandinn hefði verið of stuttur, annars hefði hann með mik- illi ánægju tekið á móti hópnum. Allir heilluðust af Höfðaborg og nágrenni hennar. Annan daginn lögðum við leið okkar á Góðrarvon- arhöfða í fegursta veðri sem hugs- ast getur og sáum þetta fræga kennileiti, sem áður fyrr var ein mesta hindrun sjófarenda, baðaðan í sól. Að standa á þvílíkum stöðum, við slíkar aðstæður, er eins og að samlagast sögu heimsins og tign náttúrunnar. Síðasta daginn í Höfðaborg komumst við upp á Borðfjallið fræga í fögru veðri og sáum dýrð höfðans og langt á haf út, þar sem sæfarendur sigldu oft krappan sjó og lentu í mannraunum í leit að fjarlægum löndum og álf- um. En við erum landkönnuðir nú- tímans og margir gátu þess við mig síðar á ferðinni, að af engu hefðu þeir hrifist meira en Suður-Afríku." í íslendingahófí „Down under“ „Leiðin lá næst þvert yfir Ind- landshafið í glæsilegri breiðþotu Qantas-flugfélagsins ástralska, til Perth í Astralíu, þar sem við lentum í glampandi sól að morgni sunnu- dags og héldum beint til strandhót- elsins Rendezvous. Þar var haldið glæsilegt íslendingahóf um kvöldið við mikinn fögnuð okkar og íslend- inganna, sem þar búa, „Down und- er“. Eftir þriggja nátta dvöl var flpgið til Sydney, stærstu borgar Astralíu, sem margsinnis er búið að sæma tignarheitinu „skemmtilegasta borg heimsins“ og undirbýr sig nú af kappi fyrir Olympíuleikana árið 2000. Þátttakendur í ferðinni komust inn á sjálft íþróttasvæðið og fannst mildð til koma. Farið var á sýningu í Sydney-óperunni frægu, siglt um „fegustu höfn heimsins“ og Á TAHÍTÍ var tekið á móti hópnum með kostum og kynjum að hætti inn- fæddra. Heimsklúbbs Ingólfs hafa nýlokið viðamestu hópferð, sem skipulögð hefur verið umhverfis hnöttinn, sunnan mið- baugs. Ingólfur Guð- brandsson, forstjóri og aðalfararstjóri hópsins, segir í samtali við Svein Guðjónsson að með ferðinni hafí ís- lendingar slegið nýtt heimsmet í ferðalögum, þar sem aldrei fyrr hafi sú leið verið farin, sem hópurinn lagði að baki í þessari ferð. r EG VAR lengi í vafa, margoft búinn að kanna allar álfur heimsins og lifa ferðalögin í botn,“ sagði Ingólfur Guð- brandsson, er hann var spurð- ur um tildrög þess, að hann réðst í svo viðamikla hnattreisu. „Stundum tekur þú eitt land fyrir eða hluta þess og kannar, sekkur þér djúpt niður í sögu þess og listir, lifir liðn- ar aldir upp á nýtt. Þannig er til dæmis Ítalía, óþrjótandi brunnur menningar, fegurðar og lífsnautnar. En það þarf að hafa nokkuð fyrir að opna dymar að þessum fjársjóðum, sem fylla líf þitt fögnuði, sem aðrir ekki þekkja eða kæra sig um. Hjá mörgum eru ferðalög bara sýndar- mennska, skilja ekkert eftir, bara að geta sagst hafa verið þar, til dæmis á fótboltaleik eða popptón- leikum. Öðrum eru þau upphafin lífsnautn í ótal myndum og verða að minningabanka, sem þú getur tekið útúr eftir þörfum, en innstæðan minnkar ekkert, auðlegð sem endist jafnlengi og lífið sjálft og ávaxtast. Það er synd hve margir byrja seint að ferðast, eða alls ekki, og lifa að- eins brot af því sem lífið býður.“ - En viðbrögðin við Hnattreis- unni voru strax góð? .Algjör smellur, eins og sagt er á nútímamáli, hitti beint í mark. 60 manns pöntuðu á tveimur dögum, í FERÐINNI var komið við á mörgum fegurstu eyjum í Suður- höfum. Þessi mynd er frá eyjunni Moorea í Suður-Kyrrahafi. Ferðalangar á vegum Ljósmynd/Ingólfur Guðbrandsson FERÐAFÉLAGARNIR á Góðrarvonarhöfða í Suður-Afríku. og ég ákvað að stækka uppí 80. Sú tala hélst stöðug í allt sumar, en svo byrjuðu afföllin 4-6 vikum fyrir brottför. Það var hrikalegt vanda- mál. Fyrir alla skráða þátttakendur höfðu verið lögð inn óafturkræf staðfestingargjöld. Alls féllu út 27 staðfestar pantanir, en samt varð hópurinn 70 manns, fólk á öllum aldri, fullt af áhuga og lífsgleði, sem naut ferðarinnar dag frá degi.“ Tveggja ára undirbúningur „Undirbúningur ferðarinnar hafði staðið í nærri tvö ár, og í raun- inni finnst mér hún afrakstur þeirr- ar reynslu og þekkingar, sem ég hef aflað mér á heilli mannsævi. í sann- leika sagt þykir mér sem ég hafi lagt lífið að veði að ferð þessi mætti takst sem best í öllum skilningi. Auðvitað var í mikið ráðist að fara með jafnstóran hóp í jafnkrefjandi ferðalag í 33 daga, en hvað snerti tilhögun gekk dæmið algjörlega UPP. °g þurfti hvergi að bíða eftir neinu hjá þjónustuaðilum á allri leiðinni kringum hnöttinn." „Margir voru uggandi um að ferð- in væri allt of löng og erfið. Þótt lít- ilsháttar þreytu væri farið að gæta í lokin, fannst flestum ferðin fremur of stutt, en hins vegar óralöng þegar litið var til baka yfir ótrúlega viðburði ferðalagsins. Allt fram í ferðalok fannst fólki ferðin auðveld og þægileg. Fólk hafði líka kviðið of miklum hita, sem var ástæðulaust, hitinn fór sjaldan yfir 25° C. Arstíðin var und- urfögur, blómjurtir, tré og runnar í fegursta skrúði. Sérstaklega vakti himinblátt blómahaf Jacaröndunnar mikla hrifningu, strax í Suður-Af- ríku, en við fylgdum slóð hennar gegnum Ástrah'u, Nýja Sjáland, Ta- hítí, Chile, Argentínu og Brasilíu. Öll ferðin umhverfis hnöttinn var að mestu á svipuðum breidd- argráðum, það er um það bil 35-18 gráðu suðlægrar breiddar, og hitinn minni en búist var við.“ Að samlagast sögu heimsins „Ferðin hófst með því að flogið var frá Is- landi, um London, til Suður-Af- ríku. Aldrei áður hef ég séð slíka á erindi vii alla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.