Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 30

Morgunblaðið - 14.12.1997, Page 30
-> 30 B SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR Einars- son frá Miðdal stundaði rayndlistarnám í Þýska- landi snemma á öldinni. Þar kynntist hann fyrirsætu sem kom á eftir honum heim að loknu námi og giftist honum, en hann tók - > fljótlega saman við dóttur hennar og eignaðist með henni böm og soninn Erró þar fyrir utan. Hann varð einn fjölhæfasti lista- maður sem Island hefur alið og gerðist brautryðjandi í leirmuna- gerð á Islandi en í listrænum efn- um komst hann strax upp á kant við ýmsa samferðamenn sína. Hann lét heillast af hálendinu, sem varð honum ótæmandi upp- spretta listsköpunar, og hann gerðist forkólfur í fjallaferðum. Hann var ástríðufullur veiðimaður »og efni í mestu tröllasagnir ís- lenskrar veiðimennsku. Á vertíð í Þorlákshöfn A árunum 1913-15 stundaði Guðmundur sjóróðra frá Þorláks- höfn og reyndist sérlega duglegur sjósóknari en gaf sér þó tíma til að sinna margvíslegum áhugamálum. Hann stundaði til dæmis íþróttir af miklu kappi og stofnaði meira að segja fimleikaflokk meðal ver- manna sem þótti óneitanlega nokkur nýlunda. Islenskir sjó- menn voru ekki þekktir að ónauð- synlegu sprikli, nema þá helst glímu, en Guðmundur rak félaga sína áfram við Miillersæfingar, * hopp og stökk og hlaup, og enn- fremur lagði hann mjög stund á sund í ísköldum sjónum. Hann fékk nokkra aðra í lið með sér við það og syntu þeir reglulega í fjöru- borðinu, hvernig sem viðraði. Sundíþróttin hafði verið íslending- um lokuð bók öldum saman og það hafði reynst þeim dýrt, þegar sjó- menn drukknuðu svo að segja uppi í landsteinum vegna þess að þeir kunnu ekki einu sinni hundasund. ^Nú var vaxandi sundiðkun til ' marks um þann íþrótta- og ung- mennafélagsanda sem fór um landið og Guðmundur lagði sitt af mörkum í Þorlákshöfn. Ekki kom að vísu til þess að hann eða félagar þyrftu á sundinu að halda til að bjarga lífinu þar sem hann var af- ar farsæll í sinni sjómennsku. En jafnvel full vinna við sjó- róðra og íþróttaiðkun í landlegum dugði ekki til að slá á listþörf Guð- mundar. Hann teiknaði fjölda mynda af verbúðalífinu og þótt þær séu að sjálfsögðu helstil frum- stæðar, þar sem hann var að mestu óskólaður ennþá, sýna þær þó að þarna fór hæfíleikamaður. Á .■sumrin þessi árin var Guðmundur erindreki ungmennafélaganna á Suðurlandi og ferðaðist um á veg- um fjórðungsstjórnar hennar og kynnti starfsemi félaganna og íþróttir af öllu tagi. En myndlist- aráhuginn var honum þó ævinlega efst í huga og hann brann í skinn- inu að fá eitthvað að læra. Árið 1917 virðist hann hafa hafið fyrir alvöru það myndlistarnám sem yf- irleitt stóð til boða á Islandi og fluttist þá inn til Reykjavíkur frá Miðdal, en hafði reyndar verið að mestu fluttur að heiman nokkru áður. Hann stundaði ýmis til- fallandi störf, til dæmis vegavinnu pá sumrin, til þess að reyna að safna sér fyrir farareyri til út- landa, en lagði jafnframt stund á nám í tréskurði hjá Stefáni Eiríks- syni tréskurðarmeistara, og voru þar hæg heimatökin því Stefán var einmitt einn af fastagestunum í Miðdal. Guðmundur leit á tré- skurðarnámið íyrst og fremst sem undirstöðu fyrir nám í högg- myndalist en á því hafði hann einna mestan áhuga. En fjölhæfn- in var þó snemma einkenni hans og hann sótti líka tíma í málaralist _hjá Þórarni B. Þorlákssyni. Þá leiðbeindi Ásgrímur Jónsson hon- um einnig nokkuð og hvatti hann til dáða. Best kynntist Guðmund- ur samt Ríkarði Jónssyni sem bæði var mikill meistari í tré- skurði og fékkst einnig við högg- myndalist. Varð þeim Ríkarði vel til vina og útvegaði Ríkarður honum vinnuaðstöðu á sama stað Ljósmynd/Leifur Kaldal FJALLAMENN í skiðaparadís um 1940. Guðmundur frá Miðdal Út er komin hjá Ormstungu bókin Guð- — mundur frá Miðdal. I bókarkynningu segir að hér sé á ferð nýstárleg ævisaga og ríku- lega myndskreytt. Illugi Jökulsson rekur söffu þessa eldheita hugsjónamanns í bók- inni, en þar er einnig vitnað til vina hans jafnt sem andstæðinga og birtir ítarlegir kaflar úr skrifum hans sjálfs. og hann hafði sína eigin vinnu- stofu.[...] Stefnuskrá Skömmu eftir að Guðmundur frá Miðdal kom heim frá námi í Miinchen skrifaði hann grein í tímaritið Iðunni sem skoða má sem eins konar stefnuyfirlýsingu hans í listum, jafnframt því að vera hugleiðingar hans um samtímalist. Greinin lýsir mæta vel hefðbundn- um viðhorfum Guðmundar sem áttu síst eftir að breytast með ár- unum. [... ] Lögmál listarinnar er eilíft og verður ekki fótum troðið með sjálf- birgingshætti og einangrun. Lista- maðurinn ber ábyrgð á verkum sínum gagnvart heiminum. Pað er ekki sama hvort verk hans vekja háleitar hugsjónir eða þjóna lágum hvötum. Listamaðurinn verður að bera svo mikla virðingu fyrir sköp- unarverkinu að hann afskræmi það ekki vísvitandi. Hann verður að hlusta á raddir samvizku sinnar og hlýða þeim. Einungis á þann hátt getur hann orðið heiminum að gagni. Listin heimtar algera hlýðni af þjónum sínum en á enga afsök- un fyrir þá. Það er fróðlegt að athuga hvern- ig þjóðirnar launa þessum „mod- erne“ augnabliksbörnum sínum. Allt ber það vott um sjúkan hugs- unarhátt. Óhóflegt hól samfara ríkidæmi og titlum - en eftir nokkra áratugi fyrirlitning og eilíf útskúfun. Band það sem áður batt listamenn og þjóðir órjúfanlega saman er slitið. í staðinn kemur sjálfbirgingsskapur, smjaður, hræsni og úlfúð. Það væri of mikil svartsýni að sjá ekkert gott íhinum svokölluðu listnýjungum. Ef vel er athugað sér þar rofa fyrir stórtækum per- sónum og dynamiskum krafti. Gjörhugull maður sér líka löngun til að hverfa aftur til náttúrunnar, enda þótt það komi venjulega fram GUÐMUNDUR stundaði sjóinn frá Þorlákshöfn á árunum 1913-1915. í leiðinlegu formi, t.d. í því að eftir- líkja list blökkumanna eða stein- aldarminjar, eða í því að þrengja formum náttúrunnar inn í lögun keilu, kúlu eða sívalninga. [... ] Ævintýri á Fimmvörðuhálsi Einar B. Pálsson segir frá. Við Guðmundur kynntumst um það bil árið 1940, en að sjálfsögðu hafði ég lengi vitað af honum. Það sópaði að Mannsa í Reykjavík; hann var einhver sú alflottasta týpa sem maður sá hér á götunum, ef svo má að orði komast. Hann var myndarlegur og vörpulegur á velli, svipfallegur og mjög vin- gjarnlegur og viðfelldinn í tali. Ég held að það hafi ekki verið margar dömur sem ekki kiknuðu svolítið í hnjánum þegar þær sáu hann. Hann var býsna umtalaður, en ég varð nú ekki var við neitt illt út af einkamálum hans, það hefur þá farið framhjá mér. En þar að auki þekktu allir sem höfðu einhvern áhuga á fjalla- mennsku og skíðaferðum vel til hans. Þegar hann byrjaði að fara á fjöll hér á Islandi um eða fyrir 1920 var slíkt álitið mesta sérviska og ég tala nú ekki um þegar fréttir bárust af því að hann væri farinn að príla í Ölpunum, meðan hann var í sínu námi suður í Munchen. Um það leyti sem Guðmundur kom heim frá Þýskalandi var áhugi á fjallamennsku að aukast hér á íslandi og hann varð strax forystumaður í hópi þeirra sem fundu sér ekkert skemmtilegra að gera en að ganga á hálendið. Ég var sjálfur mikill áhugamaður um skíðaíþróttina, en þar kom Guð- mundur frá Miðdal reyndar líka við sögu, eins og í öllu útivistar- sporti. Við Steinþór Sigurðsson vorum miklir vinir og með algjöra skíðadellu, vorum í stjórn skíða- ráðs Reykjavíkur og vildum helst vera allar helgar uppi í fjöllum. Þannig var ekki nema eðlilegt að við kæmumst í kynni við Guð- mund, þó hann væri miklu eldri en við, og gæti ekki talist neinn boð- fari í skíðatækninni lengur; hann hafði lært sínar kúnstir áratug fyrr og framfarirnar voru allmikl- ar á Islandi á þeim tíma. En hann var í hópi brautryðjendanna og um það leyti sem ég fer að láta til mín taka á skíðunum, milli 1930 og ‘40, þá eru mjög fáir menn á hans aldri sem eitthvað eru á skíðum. Fyrir nú utan allan áhuga á úti- vist, þá þekktu móðir mín og móð- ursystir Mannsa vel og þannig vildi það til að ég og Steinþór fengum að vera með í hópi sem ætlaði upp á Fimmvörðuháls um páskana árið 1941. Guðmundur hafði stofnað Fjallamenn skömmu áður og þeir höfðu reist skálann á Fimmvörðu- hálsi, en nú átti að fara og halda áfram að dytta að honum. Með honum ætluðu Leifur Kaldal og Ósvaldur Knudsen en þeir Stein- þór og Ósvaldur voru miklir vinir og þannig atvikaðist það að okkur Steinþóri var báðum boðið með. Við Steinþór vorum afar spennt- ir, enda höfðum við aldrei ráðist í álíka fyrirtæki og þetta. Við áttum að safnast saman heima hjá Guð- mundi á Skólavörðustígnum og þangað mættum við náttúrlega með nesti og nýja skó og allar okk- ar fínustu græjur, en þá var hann bara ekki heima. Hann var víst í einhverjum veiðitúr. Við vorum dálítið hissa á þessu, en okkur var bara sagt að hann hlyti að fara að koma. Svo hinkruðum við, og það stóð heima, hann kom á endanum en dálítið seint. Ekki man ég nú hvað hann hafði verið að veiða eða hvernig veiðiskapurinn hafði geng- ið, en hann var að minnsta kosti búinn að kaupa í matinn handa okkur, stóra spyrðu af ýsu, sem við áttum að taka með okkur. Og hann hafði engar vöflur á, heldur dreif sig úr veiðigallanum og beint í skíðafötin og tilkynnti: „Nú förum við.“ Okkur fannst þetta dálítið harkalegt gagnvart fjölskyldu hans, hann var víst búinn að vera í burtu nokkra daga og ætlaði svo að drífa sig undir eins aftur í burtu og vera heila viku, og það á sjálf- um páskunum. En þetta var þá hans máti og konan hans virtist ekki kippa sér upp við þetta; hún var greinilega vön því að svona væri Mannsi. Svo keyrðum við af stað austur í Skóga. Það var snjór yfir öllu, enda hafði gert mjög vont veður nokkrum dögum fyrr og raf- magnslínur lágu niðri á löngum köflum. En í Skógum biðu okkar hestar og við lögðum af stað upp eftir. Við vorum með talsvert af farangri, enda kom nú í ljós að Mannsi hafði boðið ansi mörgum upp í skálann þessa páskahelgi. Hann vissi reyndar ekki nákvæm- lega hversu margir myndu mæta, en við gátum átt von á þó nokkrum fjölda. Nú, ferðin upp eftir var ansi erf- ið. Þetta var eiginlega fyrsta reynsla mín af raunverulegum fjallaferðum og við fórum þetta í einu snarhasti. Síðasta brekkan var helvíti erfið. En loks náðum við upp að skálanum, ansi móðir, og þá kemur í ljós að við komumst ekki inn í húsið. Guðmundur hafði hann- að húsið sjálfur og greinilega ekki tekist það alveg nógu vel. Skála- gólfið var aðeins lægra en jörðin fyrir utan - móbergsklöpp - og það þýddi að vatn hafði lekið inn með hurðinni og frosið, en hurðin opnaðist inn og stóð því föst. Ekki man ég nú hvernig við björguðum þessu en inn komumst við á endanum. Þá tók ekki betra við því þegar við kveiktum í kab- yssunni kom allur reykurinn beint framan í okkur. Strompurinn hafði ekki verið hannaður rétt og það hafði líka komist vatn og snjór of- an í hann og frosið. Auðvitað var þessu kippt í liðinn, og þá skipti Mannsi liði. Suma setti hann í að elda ýsuna í kabyssunni, en við mig sagði hann: „Heyrðu, það á eftir að setja vindskeiðarnar á skálann og ég kann ekki við annað en að ljúka því. Þú ert verkfræð- ingur. Vilt þú ekki hjálpa mér að- eins?“ Og ég hugsaði með mér: Nú er illt í efni. Ég hafði unnið við húsa- smíði og vissi að það var þó nokk- uð mikið verk að koma vindskeið- um á eitt hús. Og það var kominn eftirmiðdagur. En Mannsa óx þetta ekkert í augum. Ég spurði hvort vindskeiðarnar ættu ekki að vera útskornar og hann sagði: „Jú, að sjálfsögðu eiga þær að vera út- skornar. Við skerum þær bara út um leið og við festum þær upp.“ Við fórum svo út og þó ég ætti að heita verkfræðingur og nokkuð reyndur smiður, þá tók Mannsi auðvitað algjöra forystu í þessu öllu saman. Hann átti fjórar fjalii- afgangs frá skálasmíðinni haustið áður, og það skiptir engum togum; hann dregur upp einhver frum- stæð áhöld og eins og hendi sé veifað er hann búinn að skera út fjóra drekahausa á endann á fjöl- unum. Ég ætlaði ekki að trúa mín- um eigin augum. Hann var svo snöggur að þessu en samt var þetta svo flott hjá honum. Og þó voru verkfærin óttalegt rusl, spor- járn og hamar og annað ekki. Og við klifruðum upp á þakið og fest- um vindskeiðarnar einhvern veg- inn á og allt í einu var þetta bara búið. Þeir sem voru að bjástra við ýsuna inni í skálanum urðu alveg steinhissa þegar við stukkum nið- ur af þakinu, en svona var Mannsi fljótur að öllu. Hann var svo flink- ur þegar hann var að vinna, bæði einbeittur og svo verklaginn að hvert handtak nýttist. Hann var hamhleypa en svo gat hann slakað fullkomlega á þess á milli. En þegar við komum niður af þakinu og hinir áttu að vera langt komnir með að elda fiskinn, þá gaus á móti okkur ægilegur óþef- ur. Ástæðan var sú að Mannsi hafði gleymt að slægja fiskinn. Við vissum ekkert um það því hann hafði komið askvaðandi með hann upp á Skólavörðustíg og bara hent honum aftur í bílinn hjá okkur, með haus og hala. En einhvern veginn varð að gera gott úr þessu og að lokum komum við okkur fyrir. Veðrið var þá orðið andskoti vont, eins og vera ber á Fimmvörðuhálsi; eiginlega var brátt ekki hundi út sigandi. Eitt- hvað vorum við samt að væflast þarna úti við en síðan komum við okkur inn í skálann og fórum að segja sögur, helst af svaðilfórum og ævintýrum sem við höfðum lent í. Það var ekki komið að tómum kofunum hjá Steinþóri, hann hafði mælt upp allt hálendi íslands og þekkti hálendið eins og vasann á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.