Morgunblaðið - 28.12.1997, Síða 14
14 B SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KAMPAVÍN og áramót
tengjast órjúfanlegum
böndum í hugum margra.
Nýju ári er fagnað með því að
skjóta flugeldum á loft og töppum
úr flösk-
um. Þegar
er farið að
ræða um
hugsan-
legan
kampa-
vínsskort í heiminum vegna yfir-
vofandi aldamóta og við og við
hefur á árinu mátt sjá vangavelt-
ur í erlendum fjölmiðlum um að
hugsanlega verði markaðurinn
þurrausinn og því sé skynsamlegt
að hamstra kampavín, vilji maður
vera viss um að geta skálað fyrir
nýrri öld í kampavíni. Slíkar frétt-
ir eru hins vegar hálfgert apr-
ílgabb. í kjöllurum kampavinsfyr-
irtækjanna í Reims og nágrenni
er að finna margra ára forða af
kampavíni og enginn hætta er á
að þeir tæmist, þrátt fyrir alda-
mót. Hafi menn hins vegar hug á
að skála í einhveiju ákveðnu ár-
gangskampavíni getur verið skyn-
samlegt að verða sér úti um það í
tæka tíð. Argangskampavín eru
ekki framleidd á hverju ári og
þegar þau eru framleidd þá er
það í takmörkuðu magni. Að öðru
leyti er ástæðulaust að hafa
áhyggjur.
Kampavín (Champagne) er
ekki samheiti yfir freyðivín
heldur lögverndað heiti þeirra
freyðandi vína er koma frá svæð-
inu í kringum
borgirnar
Reims og
Epernay í
norðurhluta
Frakklands.
Þrjár þrúgur eru
notaðar við fram-
leiðsluna, ein hvít
(Chardonnay) og tvær rauðar
(Pinot Noir og Pinot Meunier).
Kampavínsframleiðendur hafa ár-
um saman staðið í stappi við
framleiðendur í öðrum héruðum
og ríkjum er hafa viljað skreyta
afurðir sínar með kampavínsnafn-
inu eða því að freyðivín séu fram-
leidd samkvæmt aðferðum hér-
aðsins (Méthode Champenoise).
Þeirri baráttu hefur nú lokið með
sigri og í framtíðinni verða freyði-
vínsframleiðendur að láta sér
nægja að taka fram að þeir noti
„hefðbundna aðferð" (Méthode
Traditionelle) eða „flöskugerjun"
vilji þeir koma því á framfæri að
svipaðar aðferðir séu notaðar og í
Champagne.
í kampavínsaðferðinni felst að
fyrst er framleitt venjulegt
hvítvín og rauðvín úr þrúgunum
(sem ekki eru
neitt frábær
vegna þess
hversu norð-
arlega hérað-
, ið er). Sykri og
—geri er þá bætt út
í vínið og það sett á
flöskur og geymt í hinum risa-
vöxnu kjöllörum, sem er að finna
undir Reims. í flöskunum á sér
stað seinni gerjun og vínið verður
freyðandi. Við gerjunina myndast
botnfall sem losna verður við.
Flöskunum er því snúið örlítið
dag hvem og halla þeirra breytt
þar til flöskustúturinn snýr niður
og botnfallið sest á tappann.
Flöskuhálsinn er þá snöggfrystur
og tappinn með botnfallinu fjar-
lægður og nýr settur í. Allur syk-
urinn hefur gerjast við þetta ferli
og er kampavínið því skrjáfþurrt.
Bestu kampavínin eru nær sykur:
laus og skilgreind sem bmt. í
sætari (demi-sec) kampavín hefur
verið bætt ögn af sírópsblöndu og
henta þau betur í lok máltíðar.
„Venjuleg" kampavín eru ekki
árgangsvín heldur blanda úr
mörgum árgöngum sem helst
stöðug ár frá ári. Er það einhver
mesta kúnstin við kampavíns-
gerðina að blanda saman yngri og
eldri vínum til að tryggja að
bragðið sé ávallt eins. Þegar upp-
Áramótakampavín
skera er einstaklega góð eru jafn-
framt framleidd svokölluð ár-
gangskampavín. Þau eru betri og
töluvert dýrari en venjuleg
kampavín.
Nýtt og spennandi
Það gildir það sama með
kampavín og rauðvín og hvítvín
að með tilkomu sérpöntunarlist-
ans hefur úrvalið aukist töluvert.
Sérpöntunarvínin er hægt að
panta í öllum
verslun-
um
ÁTVR en
flest
þeirra eru
. j. jafnframt
f7V.Hr fáanleg úr
hillum í sér-
pöntunardeild verslunarinnar
Heiðrúnar við Stuðlaháls. Því
miður er það enn svo að í hvert
skipti sem keypt eru sérpöntun-
arvín verður að greiða sérstakt
„sérpöntunargjald", sem er 400
krónur óháð þvi hvort flöskurnar
eru ein eða tíu.
Þau kampavín sem til eru á sér-
pöntunarlistanum eru öll þess
virði að þeim sé gefinn gaumur. í
fyrsta lagi ber að nefna
Montaudon, sem til er jafnt sem
brut og démi-sec. Þetta er fjöl-
skyldufýrirtæki en Montaudon-
fjölskyldan kom upphaflega frá
Loire-dalnum. Frá 1891 hefur
hún stundað kampavínsfram-
leiðslu í Reims.
Brut-kampavín
íyrirtækisins
byggir að miklu
1 leyti á rauðum
þrúgum frá
f Epernay-svæð-
inu, 50% Pinot No-
ir og 25% Meunier.
Árssalan er um 1,2
milljónir flaskna en í
kjöllurum íyrirtækisins hvíla alla
jafna 2,75 milljónir til viðbótar og
er meðalaldur þeirra þrjú ár.
Montaudon (2.510 kr.) er létt og
þægilegt kampavín. Vel gert og
ferskt með mildum bólum og
þokkalegri þyngd.
Bollinger er með virtustu nöfn-
um kampavínsheimsins enda hef-
ur fyrirtækið fyrir löngu getið sér
orð fyrir einhver bestu kampavín
Sjaldan eru líklega
teknar upp fleiri
kampavínsflöskur en
um áramót. Stein-
grímur Sigurgeirsson
fjallar um kampavín
og ýmsar nýjungar á
markaðnum.
sem fáanleg eru og meðal annars
séð bresku konungsfjölskyldunni
fyrir kampavíni allt frá tímum
Viktoríu drottningar (og nú í
seinni tíð einnig James Bond).
Ársframleiðsla Bollinger er um
1,3 milljónir flaskna en í kjöllur-
um eru geymdar 8,8 milljónir
flaskna og er meðalaldur þeirra
5,5 ár. Bollinger-kampavínin eru
stór um sig og fyrirtækið er eitt
fárra sem notar eikartunnur að
hluta við gerjun vínsins og það
eina sem geymir öll eldri réserve-
vín í magnum-flöskum.
Rauðar þrúgur eru í meirihluta
í kampavíninu og er hlutfall þeirra
að jafnaði um 75%. Eingöngu
Pinot Noir í árgangsvínum en um
15% Pinot Meunier er að finna í
Brut Spécial Cuvée. Þrúgurnar
koma einungis af Marne-svæðinu
og sjá þeir rúmlega 140 hektarar,
sem eru í eigu fyrirtækisins, fyrir
um 70% af þrúguþörfinni.
Bollinger Special Cuvée (2.770
kr.) hefur fallegan lit með rauðum
gljáa. í ilmi rauð ber, kirsuber,
ger og ííkjur. Þetta er aflmikið
kampavín, stórt með mikla fyll-
ingu og bragð. Jafnvægi er hins
vegar fullkomið. Fyriirnyndar-
kampavín.
Árgangsvínið frá sama fyrir-
tæki er Bollinger Grand Année
1989 (4.230 kr.). Það er dýpra,
þéttara og snarpara. Þroskaður
ávöxtur og ger erta nefið og
greina má græn epli, greipávöxt
Freyðivínm
KAMPAVÍN eru frekar dýr
enda yfirleitt mikið í þau lagt.
Því kjósa margir að kaupa frek-
ar freyðivín, enda verðmunur-
inn töíuverður.
Freyðivín eru framleidd í
flestum víngerðarlöndum og eru
æði misjöfti að gæðum. Allt frá
lélegum hvítvínum sem kolsýru
er pumpað út í yfir í vönduð
freyðivín sem koma nálægt
kampavínum að gæðum. Hér
eru nokkur sem ég er hrifinn af.
Spænsku Cava-vínin standa
yfirleitt fyrir sínu og eru góð
kaup í bæði Freixenet og
Codorníu. Freixenet er til þurrt
(Cordon Negro Seco) og
háifsætt (Carta Nevada) og
Codorníu hálfsætt (Semi-Seco).
Verulega góð kaup eru í
áströlskum freyðivínum. Jafnt
hinum ódýru Seppelts vínum
Great Western Brut og Great
Western Rosé sem hinu dýrara
Salinger.
Salinger er líklega besti kost-
urinn sem í boði er fyrir þá sem
vilja vín er kemur nálægt
kampavíni að gæðum en kostar
þúsund krónum minna á flösku.
Ekki jafn margslungið og
kampavínin en sneisafullt af
þeim gómsæta ávexti og
áströlsku vínin hafa orðið fræg
fyrir.
Á sérpöntunarlista er einnig
ástralskt freyðivín. Blass Brut
frá Wolf Blass. Ilmur er sætur
og þægilegur en vínið freyðir
fremur harkalega í munni og
hefur stutta endingu. Ekki
slæmt en heldur ekkert frá-
bært.
og við. Það stórt vín að það ætti
hæglega að ráða við fuglakjöt, t.d.
vandaða kjúklingarétti og fyllta
aliönd.
Taittinger-fyrirtækið selur 3,3
milljónir flaskna á
ári og geymir að
auki um 19
milljónir til
viðbótar í
kjöllurum sín-
um. Hið hefð-
bundna kampavín
fyrirtækisins byggir
á blöndu þrúgnanna
þriggja, Chardonnay (38%), Pinot
Noir (42%) og Pinot Meunier
(20%). Taittinger Comptes de
Champagne 1988 (5.000 kr.) er
hins vegar svokallað hlanc des
biancs-kampavín, það er unnið úr
Chardonnay eingöngu og koma
þrúgurnar allar frá Cote des
Blancs-svæðinu (Avize, Chouilly,
Le Mesnil sur Oger og Oger).
Það leynir sér ekki að hér sé af-
bragðsvín á ferð.
Mild ilmkarfa ang-
andi af vanillu-
stöngum,
Granny Smith-
eplum og ný-
skornum rabar-
bara. í munni er
vínið, létt, fín-
gert. Jafn
kvenlegt og
Bollinger er
karlmannlegt. Minnir á fallegan
sumardag eða píanókonsert.
Fjölskyldan Perrier-Jouet
stundaði lengi vel korkframleiðslu
fyrir kampavínsiðnaðinn en hóf
eigin kampavínsframleiðslu árið
1811. Árið 1959 keypti hið stóra
kampavínshús Mumm meirihluta
í Perrier-Jouet og var í kjölfarið
lögð aukin áhersla á útflutning.
Árleg sala Penier-Jouet er 2,8
milljónir flaskna og í kjöllurum er
að fínna 12,5 milljónir.
Á sérpöntunariista er til sölu
besta kampavín fyrirtækisins,
Pen-ier Jouet Belle Epoque 1988
(8.450 kr.). Það er selt í einhverri
sérstökustu og fallegustu flösku
sem í boði er á kampavínsmark-
aðnum. Upprunalega var hún
hönnuð af hinum þekkta glerlista-
manni Emile Galle er ásamt
hönnuðinum Majorelle var
fremstur í flokki Art
Nouveau-stflsins í
Frakklandi í kring-
um aldamót.
Blómamunstur
Galles á flöskunni
hefur gefið þessu
kampavíni nafnið Fleur
de Champagne á Banda-
ríkjamarkaði.
Vínið hefur fallegt kröftugt
uppstreymi. Ilmurinn er þroskað-
ur og kröftugur, þroskaðir ávext-
ir, sellerí og jafnvel meyrt kjöt í
bland við karamellu og möndlur.
Þétt, þurrt og mikið kampavín í
munni, allt að því hnökralaust.
Önnur góð
En þótt sérpöntunarlistinn sé
spennandi má þó auðvitað ekki
gleyma þeim ágætu vínum sem er
að finna í hinu hefðbundna úrvali
ÁTVR. Þar er nokkur fjöldi brut-
kampavína til sölu og má þá fyrst
nefna Moet &
Chandon-vínið
Brut Impérial.
Bragðmikið
kampavín með
háu hlutfalli
rauðra berja sem
gefa því þyngd og
fyllingu. Gula
ekkjan frá Veuve-
Clicqout einkennist einnig af háu
Pinot Noir-hlutfalli. Djúpt og
ávaxtamikið vín sem hátt hlutfall
eldri kampavína í blöndunni gerir
margslungið og djúpt. Hið venju-
lega kampavín Taittinger heitir
Brut Réserve. Ljóst og fínlegt
kampavín í klassískum stfl. Loks
ber síðan að nefna rauða borðann
eða Cordon Rouge frá Mumm,
sem lengi hefur verið vinsælt á ís-
landi. Unglegt og ferskt kampa-
vín með þokkalegri fyllingu.