Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 11

Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 B 11 LENGST til hægri Rosie, reiðskjóti minn um fjöllin. FRÁ Karmelmarkaðnum í Tel Avív. BJÖRK er auðvitað í ísrael. hæglátasti maðurinn í hópnum, og virtist stöðugt utan við sig og var alltaf að týna hópnum og margsló mér við. Heilagur dúfnaskítur við Grátmúrinn Þó að Grátmúrinn eða Vesturmúr- inn eins og Israelar kalla hann sé ekki kristinn helgistaður var vita- skuld sjálfsagt að koma þar við. Það var farið að halla í að hvíldardagur- inn rynni upp og strang- trúuðu gyðingamir voru fjölmennir í karladeild- inni. Því konur og karlar mega ekki biðjast fyrir hlið við hhð við múrinn. Það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var héma í fyrsta skiptið að ég hafði stunið upp ósk við Grátmúrinn. Að vísu liðu nokkur ár uns hún uppfylltist en mér fannst ekki saka að bera nú fram aðra ósk. Svo sjáum við til seinna hvort hún rætist. Erik ljósmyndari var lengi að mynda við múrinn, beið eftir réttu birtunni og við hin voram bara á ranglinu. Og allt í einu féll eitthvað af himnum ofan og lenti nákvæmlega - segi og skrifa nákvæmlega - á nefinu á mér. Eg veit ekki hvort dúfan hafði hringsólað yfir mér lengi áður en hún hafði miðað nægilega en það var ekki annað hægt en dást að nákvæmninni. í leirböð við Dauðahafið Leiðin frá Jerúsalem niður að Dauðahafi er ægifogur, fjöllin nakin litbrigðin slík að ekki verður til margs jafnað. Okkur var búin gisting á lúx- ushótelinu Hyatt og boðið í heilsu- samleg leirböð morguninn eftir. Hyatt er skelfilega stórt hótel og anddyrið eitt nægir eiginlega til að slá mann út af laginu. Herbergin vora eins og vera ber á svona dýra hóteli en ekki fannst mér þau eftir því hlýleg. Það var stöðugt rennerí af þjónustuliði rétt á meðan ég var að bursta tennur og taka það nauðsynlegasta upp úr tösku; það var verið að afhenda ný handklæði, annar kom til að draga gluggatjöldin fyrir. Sá þriðji til að vita hvort allt væri eins og það ætti að vera og þá var mér upp undir það allri lokið og flúði niður á barinn. Eg missti því af að hitta þann sem kom með konfekt og fór á mis við kynni af stúlkunni sem mætti til að taka af rúminu. En leirböðin morguninn eftir vora frábær. Að vísu fyndist mér að mála- kunnátta þeirra sem maka leimum á mann, pakka manni inn og útskýra allt heila galleríið fyrir manni hefði að ósekju mátt vera meiri. En það sem SÉÐ yfir Dauðahafið ofan frá Massada. gerði útslagið var vellíðanin að þessu loknu. Til úlfalda og fúgla í Eilat Á leiðinni frá Dauðahafinu og til Eilats benti Birthe okkur á hvar kona Lots stóð á sínum stað. Hana hafði ég einhverra hluta vegna ekki séð áður og þótti mikið til um hvað þeir hefðu verið tröllvaxnir hér forðum daga. Eilat er aðalsólbaðsstaður Israels og þangað hafði ég ekki komið áður. Rétt í grenndinni er jórdanska sól- baðs- og hafnarborgin Aqaba en tími var því miður ekki til að skreppa yfir landamærin. Okkur var sagt að sam- vinna væri að komast á milli ferða- málamanna í Eilat og Aqaba og stendur til að efla það samstarf meira í framtfðinni. Betri flugvöllur er til að mynda Aqabamegin og Jórdanir era famir að leyfa lendingar gesta til ísraels á honum. Með einhveijum skilyrðum og tilfæringum þó. Eilat er afskaplega dæmigerður sólarstrandabær. Þangað flykkjast gestir allt árið um kring, margir Evr- ópubúar koma þangað í leiguflugi á vetuma. Enda er þar allt sem við á að éta, góðar strendur, þar var boðið í snorkl og köfún, þar er neðansjávar- safn til að skoða þúsundir skraut- fiska, hermir sem maður gat sest inn í og flogið í þykjustunni um allan sjó og ég veit ekki hvað. Matsölustaðir era á hverju strái, hvort sem era stórsteik- ur eða sjávarfang eða skyndibitastað- ir. Og fjöragt næturlíf. Hótehð Royal Beach var að vísu gríðarlega stórt en mun vistlegra en Hyatt og ekki undan viðurgjömingi að kvarta - nema síður sé. Rétt hjá Eilat er viða- mikil rannsóknarstöð á farfúglum sem koma til Eilat og eiga þar vetur- setu og við hittum for- svarsmann þess sem fór með okkur um svæðið og lýsti áhyggjum sín- um af því hvað gestafúglum hefði fækk- að á síðustu árum. Svo var boðið í úlfald- areið upp í fjöllin um- hverfis Eilat í fylgd þriggja náunga sem hefðu þess vegna getað verið arabar enda kom í Ijós að þeir vora Ncrð- ur-Afríku gyðingar. í fyrstu var úlfaldalestin bundin saman, svona á meðan við vorum að ná jafnvægi og átta okkur á hreyfing- um skepnanna. En síðan var leyst frá og hvert stjómaði sínum úlfalda og gekk það misjafnlega. Við fóram úlfaldaslóðir um hrika- lega fjöllin og oft varð að láta skepn- umar leggjast niður, fara af baki og teyma þær niður brattann. Efitir þrjá klukkutíma var svo komið í dalverpi og þar var bakað bedúínabrauð við eld og drukkið sætt te. Aftur á Atarimtorgi Við flugum til Tel Avív eftir að hafa verið þrjá daga í Eilat og vegna þess hve dagskrá hafði verið mikil alla dagana var menn farið að langa til að veija þessum síðasta degi á ströndinni og var þvi eklri farið á aðra sögustaði í Tel Avív en að morð- stað Rabins eins og ég gat um fyrr. Ég hafði ekki þrek til að hggja á ströndinni því mig langaði að labba um Karmelmarkaðinn, sifja á kaffi- húsi á Dizengoff stræti og fá mér bjór á Atarimtorgi. Það stóð heima, þetta tókst allt og þegar ég kom á hótelið beið hópurinn mín, síðasta kvöldið var etið á útiveitingastað í Jaffa. Það var ágætur endir á góðu kvöldi og vel heppnaðri ferð. _____FRETTIR__ Atskák og firmakeppni FYRSTA atkvöld ársins verður haldið hjá Taflfélaginu Helli mánu- daginn 5. janúar. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor kepp- andi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með tuttugu mínútna umhugs- unartíma. Mótið hefst kl. 20. Mótið fer fram í Hellish’eimilinu í Þönglabakka 1 í Mjódd, efstu hæð. Sami inngangur og hjá Bridgesambandinu og Keilu í Mjódd. Hellisheimilið er vel stað- sett með tilliti til strætisvagna- ferða, en það er rétt hjá skiptistöð- inni í Mjódd. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri), en kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). Sigurvegarinn fær máltíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þá hefur einn- ig verið tekinn upp sá siður að draga út af handahófi annan kepp- anda, sem einnig fær máltíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Firmakeppni T.R. í hraðskák Taflfélag Reykjavíkur stendur fyrir firmakeppni f hraðskák dag- ana 5.-8. janúar. Þá verða tefldar undanrásir þar sem keppendur draga út fyrir hvaða fyrirtæki þeir tefla. Efstu fyrirtækin komast síð- an í úrslit sem tefld verða mánu- dagskvöldið 22. janúar. Öllum er heimil þátttaka í fírmakeppninni og er þátttaka ókeypis. Veitt verða vegleg peningaverðlaun fyrir best- an árangur úr samanlagt fjórum mótum og fyrir bestan árangur í úrslitum. Ávallt verða tefldar 7 umferðir samkvæmt Monrad kerfí, tvær skákir við hvem andstæðing. Umhugsunartími er 5 mínútur. Taflmennskan hefst stundvíslega kl. 20 öll kvöld. Aðalfundur FT Tamningamenn vilja fetið í kyn- bótadóma TAMNINGAMENN vilja að tekið verði upp fet í kynbótadómum en áskorun þess efnis að Bændasam- tök íslands beiti sér fyrir þessu var samþykkt á aðalfundi Félags tamningamanna sem haldinn var á laugardag. Tillagan var borin upp af þeim Eyjólfi Isólfssyni, Sig- urbimi Bárðarsyni, Benedikt Þor- bjömssyni og Reyni Aðalsteins- syni sem allir hafa hlotið meist- aragráðu félagsins. í greinargerð með tillögunni er bent á að ís- lenski hesturinn sé seldur og kynntur sem hestur með fimm gangtegundir. Því sé hæpið að sleppa einni gangtegundinni þegar metin eru gæði hrossanna. Þá seg- ir að þau rök að fetið taki langan tíma í dómi og þyki leiðinlegt fyr- ir áhorfendur séu haldlítil af þess- um sökum. Þá auðveldi fetið dóm- uram að meta hinn raunverulega vilja hrossanna, m.ö.o. að greina á milli eiginlegs vilja og spennu. Þá var einnig samþykkt önnur áskorun til BÍ þar sem hvatt var til að tekið yrði á grófri reið- mennsku í kynbótasýningum. Flutningsmenn þessarar tillögu voru hinir sömu og hinnar tillög- unnar. Trausti Þór Guðmundsson sagði af sér formennsku í félaginu þar sem hann er fluttur til Þýska- lands en hann hafði gegnt stöðu formanns í níu ár. Auk þess gaf Einar Öder Magnússon ekki kost á sér en hann hefur setið í stjórn svipaðan tíma. Formaður var kjörinn Ólafur H. Einarsson, Freyja Hilmarsdóttir var kjörin varaformaður, Olil Amble gjald- keri, Eysteinn Leifsson ritari og Atli Guðmundsson meðstjórn- andi. í varastjóm voru kjömir Hermann Þór Karlsson og Sig- urður Sigurðarson. Fundurinn var vel sóttur en alls era félagsmenn um 380. Ovissuástand í Niger HAMA Amadou, fyrrum forsætis- ráðherra Niger, var handtekinn á föstudag eftir að yfirvöld sökuðu hann um að eiga aðild að samsæri til að myrða Ibrahim Bare Main- assara, forseta landsins. Flokksmenn Amadous kröfðust þess að hann yrði þegar I stað lát- inn laus úr haldi og að ásakanir á hendur honum væra einungis upp- spuni á vegum „óvinsællar harð- stjómar" er væri staðráðin í að steypa þjóðinni út í borgarastyijöld. Mikil pólitísk óvissa hefur verið í Niger undanfarið ár í kjölfar þess að Mainassara, sem er fyrrum yfir- maður hersins, tók völdin í valda- ráni. Flestir hinna tíu milljón íbúa Niger em múslimar. Pólitísk ólga hefur einkennt ástandið í ná- grannaríkjum þess, Alsír í norðri, Nígeríu í suðri og Chad í austri. Samkvæmt heimildarmönnum innan lögreglunnar er Hama í haldi í höfuðstöðvum hennar í höfuð- borginni Niamey. Á fimmtudags- kvöld sýndi ríkissjónvarp Niger viðtal við mann, sem segist hafa átt aðild að hóp er að undirlagi Hama átti að myrða Mainassara og fleiri þjóðþekkta menn. Sagði sjónvarpið að fjórir menn í það minnsta hefðu verið handteknir vegna málsins, þar af þrír fyrrum hermenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.